303.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Tippari vikunnar er að þessu sinni enginn annar en gleðigjafinn Ingó Veðurguð. Við spjöllum um lífið og tilveruna ásamt því að Ingó tippar á 5 leiki á Lengjunni. Þá heyri í að sjálfsögðu í Þórhalli Dan. Við förum yfir gang mála í boltanum og veltum upp skuldum liðanna 12 sem ætluðu að stofna Super League. Þær tölur koma aldeilis á óvart. Njótið helgarinnar elskurnar og hafið það sem allra best.
Apr 23, 2021•1 hr 9 min•Ep. 301
302.þáttur. Mín skoðun. Góðan og blessaðan daginn. Síðasti vetrardagur í dag og því ber að fagna þar sem jú þá er sumardaguirnn fyrsti á morgun. Ég og Þórhallur Dan eigum í dag gott spjall um Super League dæmið allt saman sem hrundi eins og spilaborg í gær sem betur fer. Við tölum einnig um kvennalandsliðið í handbolta og Sebastian Alexandersson og margt margt fleira. Njótið og gleðilegt sumar.
Apr 21, 2021•1 hr•Ep. 300
301.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í þætti dagsins förum við Þórhallur Dan yfir Super League umræðuna og allt því tengt. Nýjar fréttir berast á hverri klukkustund og við tjáum okkur ítarlega um þessa vitleysu. Þá vildi Tóti endilega hefja þáttinn á smá sóttvarnarumræðu og þurfti að létta á hjarta sínu. Þá má ekki gleyma lagi sem er um Tóta og mér var sent í gær. Ég spila bút úr laginu sem er að finna á Youtube. Njótið elskurnar.
Apr 20, 2021•1 hr 8 min•Ep. 299
300.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl öllsömul. Í þætti dagsins tala ég við Þórodd Hjaltalín yfirmann dómaramála í fótboltanum hér á landi. Við förum um víðan völl í okkar spjalli. Þá er Þórhallur Dan á línunni og við tölum meðal annars um þessa Ofurdeild í fótboltanum sem er verið að setja á laggirnar. Það er allt vitlaust útaf þessu og Tóti liggur ekki á skoðunum sínum í þessum málum né sóttvarnarmálum hér á landi. Þetta og margt margt fleira. Njótið.
Apr 19, 2021•1 hr 12 min•Ep. 298
299.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl öllsömul. Tippari vikunnar er að þessu sinni hinn eini sanni Eyfi, (Eyjólfur Kristjánsson). Eyfi verður 60 ára á morgun og hann heldur með Þrótti og Manchester United. Gaman að því. Þórhallur Dan er svo að sjálfsögðu á línunni en við förum yfir boltann í gær og tölum svo aðeins um umboðsmenn í fótboltanum og fleira því tengt. Við fjöllum um íslenska kvennalandsliðið í handbolta sem leikur í dag gegn Slóveníu í umspili HM og Þórhallur Dan biðlar til sóttvarnary...
Apr 16, 2021•58 min•Ep. 297
298.þáttur. Mín skoðun. Komið þið sæl og blessuð. Í þætti dagsins hringi ég í Þórhall Dan Jóhannsson þar sem við förum yfir Meistaradeildina í gær og Evrópudeildina í kvöld. Við ræðum um Zlatan, slúður og margt margt fleira. Af nógu að taka og njótið vel.
Apr 15, 2021•50 min•Ep. 296
297.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í þætti dagsins förum ég og Þórhallur Dan Jóhannsson yfir sviðið í sporti dagsins. Meistaradeildin tekin fyrir í gær og í kvöld. Tölum um VAR og við tölum einnig nokkuð um sóttvarnarmálin og fleira tengt því. Þá förum við aðeins í slúður dagsins og margt margt fleira. Njótið og njótið.
Apr 14, 2021•48 min•Ep. 295
296.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl öllsömul. Í þætti dagsins er ég með ítarlegt viðtal við Gísla Þorgeir Kristjánsson landsliðsmann í handbolta og leikmann með Magdeburg. Gísli Þorgeir er einn okkar albesti handboltamaður en hann hefur enn og aftur þurft að gangast undir aðgerð á öxl vegna meiðsla en þrátt fyrir þessi áföll er hann fullur bjartsýni. Þá er Þórhallur Dan á línunni en við förum yfir stöðuna í boltanum og tölum töluvert um stöðu mála í sóttvarnarmálum og svo um leik PSG og Bayern í...
Apr 13, 2021•1 hr 20 min•Ep. 294
295.þáttur. Mín skoðun. Góðan og blessaðan daginn. Í þætti dagsins förum við Þórhallur Dan yfir ýmislegt sem var í gangi um helgina, svo sem, sóttvarnarreglurnar, (en við skiljum ekki afhverju íþróttir eru ekki leyfðar á Íslandi), krummasögur eru svo strax á eftir og þessi í dag er ágæt, förum í leikina á Englandi um helgina þar sem VAR og Mourinho koma við sögu. Við tölum aðeins um Masters í golfi og margt margt fleira. Njótið
Apr 12, 2021•46 min•Ep. 293
294.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og velkomin til leiks. Tippari vikunnar er enginn annar en Bogi Ágústsson fréttamaður. Okkar ástsælasti fréttalesari um árabil. Bogi er mikill aðdáandi Tottenham og segir söguna af því afhverju hann varð stuðningsmaður þess liðs. Við ræðum um margt er varðar þennan merka mann og Bogi svarar meðal annars þeirri spurningu, hvaða starf hann myndi velja ef hann væri ekki fréttamaður. Þórhallur Dan er svo að sjálfsögðu á línunni og við félagar er mjög ósáttir með s...
Apr 09, 2021•1 hr 13 min•Ep. 292
293.þáttur. Mín skoðun. Komiði sæl og blessuð. Í þætti dagsins förum ég og Þórhallur Dan Jóhannsson yfir það helsta í sportinu. Við tölum um Masters í golfi, Meistaradeildina og Evrópudeildina í fótbolta. Tölum um ítalska boltann og styrkleikalista FIFA og margt fleira. Njótið
Apr 08, 2021•59 min•Ep. 291
292.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl öllsömul. Í þætti dagsins fer ég ásamt Þórhalli Dan yfir það sem gerðist í gær í meistaradeildinni í fótbolta. Við ræðum um þau vafaatriði sem áttu sér stað í leikjunum tveimur og förum svo í leiki kvöldsins þar sem við komum einnig við á Ítalíu. Mourinho kemur aðeins við sögu en hann er í sérlegu uppáhaldi hjá Tóta. Þá förum við aðeins í stöðuna á Covid faraldrinum og meira til. Njótið.
Apr 07, 2021•54 min•Ep. 290
291.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og vonandi hafið þið átt gleðilega páska. Í þætti dagsins förum ég og Þórhallur Dan yfir gang mála um helgina en það var spilað í boltanum í Evrópu. Tóti hefur mikið dálæti á Jose Mourinho þjálfara Tottenham(NOT) og við ræðum um það og förum í leiki helgarinnar. Ásamt því að við förum í slúður og þar er Tóti með slúður er varðar landsliðið og KSÍ. Eigið góðan dag.
Apr 06, 2021•1 hr•Ep. 289
290.þáttur. Mín skoðun. AUKAÞÁTTUR. Heil og sæl öllsömul. Landsleikjahrinu hjá U21 árs liðinu og A-landsliðinu í fótbolta er lokið. U21 árs lið er úr leik í úrslitakeppni EM en A-landsliðið náði að vinna Liechtenstein auðveldlega. Ég og Þórhallur Dan Jóhannsson ræðum um þessa leiki og margt fleira í þessum aukaþætti. Njótið og gleðilega Páska.
Mar 31, 2021•38 min•Ep. 288
289.þáttur. Mín skoðun. Komiði sæl og blessuð. Í þætti dagsins förum ég og Þórhallur Dan yfir landsleiki Íslands sem eru í dag. U21 árs liðið mætir Frakklandi og A-landsliðið leikur gegn Liechtenstein. Við tölum einnig um KSÍ, mál Viðars Arnar Kjartanssonar og margt margt fleira. Hlustið og njótið og við félagarnir verðum með þátt strax að leik loknum. ÁFRAM ÍSLAND
Mar 31, 2021•1 hr•Ep. 287
288.þáttur. Mín skoðun. Góðan og blessaðan daginn. Mikið er rætt og ritað um landsliðin okkar í fótbolta í karlaflokki, þar á ég við U21 árs landsliðið og A-landsliðið. Jákvæð og neikvæð umræða hefur verið í gangi og til að ræða við mig um þessi mál hringdi ég í Arnar Gunnlaugsson þjálfara Víkings og fyrrum landsliðsmann. Hann er í góðu og ítarlegu spjalli við mig í dag og segir sína skoðun. Njótið og eigið góðan dag.
Mar 30, 2021•1 hr 4 min•Ep. 286
287.þáttur. Mín skoðun. Komið þið sæl og blessuð. Í þætti dagsins er umræðuefnið U21 árs landsliðið sem og A-landsliðið í fótbolta. Það gekk ekki vel um helgina, reyndar afleitlega. Þórhallur Dan er á línunni og ég skal segja ykkur það að hann talar með tveimur hrútshornum. Njótið og eigið góðan dag.
Mar 29, 2021•58 min•Ep. 285
286.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og velkomin til leiks þennan ágæta föstudag. Tippari vikunnar er að þessu sinni enginn annar en fótboltagoðsögnin Ásgeir Sigurvinsson. Auk þess að tippa á 5 leiki á Lengjunni þá spjalla ég aðeins við hann um U21 árs leik Íslands og Rússlands í gær og að sjálfsögðu tölum við um leik Þýskalands og Íslands í undankeppni HM. Þorvaldur Örlygsson þjálfari hjá Stjörnunni í Garðabæ er á línunni og við ræðum um þessa tvo landsleiki okkar í gær í fótboltanum sem fóru il...
Mar 26, 2021•1 hr•Ep. 284
285.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl öllsömul. Í dag er landsleikjadagur hjá okkar mönnum í karlafótboltanum. A-landslið Íslands hefur leik í undankeppni HM og andstæðingurinn er fjórfaldir heimsmeistarar Þýskalands á útivelli. U21 árs landslið karla hefur svo leik í úrslitakeppni EM og andstæðingurinn er Rússland en leikið er í Ungverjalandi. Þórhallur Dan er á línunni og við förum yfir líkleg byrjunarlið Íslands í dag og ræðum um leiki gærdagsins og aðra leiki kvöldsins. Þá er Willum Þór Þórsso...
Mar 25, 2021•1 hr 10 min•Ep. 283
284.þáttur. Mín skoðun. Komiði sæl og blessuð. Í þætti dagsins förum ég og Þórhallur Dan yfir stöðu mála hjá íslenska A-landsliðinu í fótbolta og einnig U21 árs liðsins. Tóti velur sitt byrjunarlið gegn Þýskalandi og fleira og fleira. Þá heyri ég í Ágústi Jóhanssyni aðstoðarlandsliðsþjálfara Íslands í handbolta kvenna en Ísland mætir Slóveníu í umspili fyrir HM. Ágúst er mikill viskubrunnur og gaman að hlusta á hann. Njótið og eigið góðan dag.
Mar 24, 2021•48 min•Ep. 282
283.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl öllsömul og til hamingju með daginn. Ég og Þórhallur Dan komum víða við í dag. Tölum um kvennalandsliðið í handbolta, hugsanleg þjálfaraskipti hjá Juventus, Gísli Þorgeir handboltakappi meiddist á öxl um helgina og við ræðum aðeins um það sem og um A-landslið karla og U21 árs landsliðið. Tóti hefur sínar ákveðnu skoðanir og ég stilli upp fyrstu tillögu að byrjunarliði Íslands gegn Þýskalandi. Njótið dagsins.
Mar 23, 2021•45 min•Ep. 281
282.þáttur. Mín skoðun. Þórhallur Dan og ég förum yfir víðan völl í dag svo vægt sé tekið til orða. Covid, enski boltinn, Lewandowski, Tryggvi Guðmundsson, Gylfi Sigurðsson og margt margt fleira. Hann Tóti liggur ekki á skoðunum sínum og talar hreina og klára íslensku. Njótið
Mar 22, 2021•45 min•Ep. 280
281.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Tippari vikunnar er enginn annar en fjölmiðlamaðurinn Sigmar Guðmundsson. Sigmar er að vanda bráðskemmtilegur og segir okkur afhverju hann heldur með Arsenal og fleira til. Ég og Þórhallur Dan ræðum síðan um Meistaradeildina og Evrópudeildina í fótbolta. Tökum fyrir körfuboltann hér innanlands, tölum töluvert um Mourinho og hrakfarir Tottenham og komum svo við hjá KSÍ. Þetta og margt margt fleira. Njótið helgarinnar.
Mar 19, 2021•51 min•Ep. 279
280.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl öllsömul. Í þætti dagsins förum ég og Þórhallur Dan yfir það helsta sem er í fréttum og byrjum á mest lesnu fréttinni inná Mannlíf.is þar sem umfjöllun er um Eið Smára og hans meintu ölvun í þættinum Völlurinn á Símanum síðasta sunnudag. Við förum einnig yfir gang mála í Evrópudeildinni og þar tölum við aðallega um leik AC Milan og Man.Utd. sem er í kvöld og förum yfir líkleg byrjunarlið. Þetta og margt fleira. Njótið og eigið góðan dag.
Mar 18, 2021•48 min•Ep. 278
279.þáttur. Mín skoðun. Íslenski landsliðshópurinn í knattspyrnu sem mætir Þýskalandi, Armeníu og Liechtenstein í undankeppni HM síðar í þessum mánuði var valinn í dag. Ég og Þórhallur Dan fórum yfir hópinn. Við fórum einnig aðeins í Olísdeild karla og margt margt fleira. Njótið
Mar 17, 2021•39 min•Ep. 277
278.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Þórhallur Dan og ég ræðum um boltann í þætti dagsins. Förum í lstöðu Liverpool, U21 árs landsliðshópinn sem fer á EM og margt margt fleira. Njótið
Mar 16, 2021•40 min•Ep. 276
277.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl öllsömul og gleðilegan mánudag. Ársþing KKÍ (körfuknattleikssamband Íslands) var haldið um helgina. Nokkuð var tekist á um hin ýmsu mál og Hannes S. Jónsson formaður KKÍ er í viðtali dagsins. Hann fer yfir málefni þingsins með mér ásamt því að upplýsa okkur um styrki FIBA og íslenska ríkisins. Þórhallur Dan er að sjálfsögðu á línunni. Við förum yfir íþróttir helgarinnar og Tóti er ánægður með að hans menn unnu á sjálfsmarki. Njótið dagsins.
Mar 15, 2021•51 min•Ep. 275
276.þáttur. Mín skoðun. Góðan og blessaðan daginn. Stórsöngvarinn og snillingurinn Magni er Tippari vikunnar að þessu sinni. Magni er að vanda bráðskemmtilegur og segir margar skemmtilegar sögur auk þessa að tippa á 5 leiki á Lengjunni. Þórhallur Dan er svo í spjalli og við förum um víðan völl, Evrópudeildina, enska boltann, Dominsodeild karla, Golf og margt margt fleira. Njótið helgarinnar.
Mar 12, 2021•1 hr 5 min•Ep. 274
275.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og góðan dag. Sebastian Alexandersson þjálfari meistaraflokks karla hjá Fram í handbolta fékk uppsagnabréf um helgina og verður ekki með félagið á næstu leiktíð. Uppsögn Sebastians kom handboltaáhugamönnum verulega á óvart en Fram hefur verið að gera mjög góða hluti í Olísdeild karla í vetur. Sebastian er í viðtali vegna þessa en hann verður með liðið út yfirstandandi leiktíð. Ég og Þóhallur Dan tökum síðan boltann og ræðum þetta mál og Tóti liggur ekki á skoð...
Mar 11, 2021•47 min•Ep. 273
274.þáttur. Mín skoðun. Góðan og blessaðan daginn. Birgir Jóhannsson framkvæmdastjóri ÍTF (íslensks topp fótbolta) er í viðtali í dag. Við ræðum um stöðu fótboltans hér á landi, ÍTF, sjónvarpssamninga og margt fleira. Ég og Þórhallur Dan ræðum síðan um Meistaradeildina í gær og í kvöld og við skiljum ekki þetta VAR lengur. Það er bara þannig. Njótið og eigið þið góðan dag.
Mar 10, 2021•1 hr 3 min•Ep. 272