273.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl öllsömul. Jónas Kristinsson framkvæmdastjóri KR er í viðtali í dag þar sem við tölum um íslenskan fótbolta. Hver er staðan? Hver er staðan hjá Íslenskum Topp fótbolta(ÍTF) ? Þessar og margar aðrar spurningar í ítarlegur spjalli okkar. Þórhallur Dan spáir svo í leiki dagsins í Meistaradeildinni og fleira til. Njótið og vonandi eigið þið frábæran dag.
Mar 09, 2021•58 min•Ep. 271
272.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og til hamingju með daginn konur, jú það er alþjóðlegur baráttudagur kvenna í dag. Þórhallur Dan og ég erum í spjalli dagsins um helgina og fórum yfir boltann og fleira. Tóti er sérstaklega ánægður með sína menn í Man.United eftir sigur á City. Þá hringdi ég í afmælisbarn dagsins, Siggi Hlö hinn eini sanni á afmæli í dag og hann segir okkur stöðu mála á fótboltaferðum til Englands og fleira til. Njótið
Mar 08, 2021•45 min•Ep. 270
271.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl elskulega fólk. Tippari vikunnar þennan ágæta föstudaginn er formaður fjárlaganefndar, Willum Þór Þórsson. Við tölum um margt tengt honum og Willum segir frá sínu uppáhaldsliði sem er Chelsea. En afhverju Chelsea? Skemmtilegt spjall við skemmtilegan mann. Þórhallur Dan er svo á línunni og við tölum meðal annars um VAR í enska boltanum og einnig töluvert um ákvörðun Reykjavíkurborgar um að taka frjálsíþróttaaðstöðu í Laugardal undir rafíþróttamót en frjálsíþrót...
Mar 05, 2021•1 hr 18 min•Ep. 269
270.þáttur. Mín skoðun. Mikil umræða hefur verið um ársþing KSÍ sem var haldið um síðustu helgi. Þar hefur farið fremst umræða um fjölgun leikja í efstu deild sem ekkert varð af. Formenn FH, KR og Vals hafa t.d. stigið fram og eru ósáttir með margt og meðal annars ÍTF (íslenska topp fótbolta). Í þætti dagsins er ég með viðtal við Orra Hlöðversson formann Íslensks Topp Fótbolta en Orri er jafnframt formaður Breiðabliks. Þá er Þórhallur Dan að sjálfsögðu á línunni. Við ræðum um enn eitt 0-0 jafntf...
Mar 04, 2021•1 hr 4 min•Ep. 268
269.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl öllsömul. Í dag erum við Þórhallur Dan í stuði. Við ræðum um KSÍ þingið, fjölgun liða sem ekki gekk eftir og hvar við stöndum í dag. Engin breyting og okkar félagsliða fótbolti er að sitja eftir. Við ræðum einnig um enska boltann og svo Zlatan og margt margt fleira. Njótið
Mar 03, 2021•54 min•Ep. 267
268.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl öllsömul. Í dag ræðum við Þórhallur Dan um ársþing KSÍ og förum þar yfir fjölgun og ekki fjölgun liða og önnur þingskjöl á þinginu. Einnig ræðum við um dómstól HSÍ og margt , margt fleira. Njótið.
Mar 02, 2021•49 min•Ep. 266
267.þáttur. Mín skoðun. Viðar Halldórsson formaður FH er í viðtali vegna ársþings KSÍ sem var um helgina. Viðar liggur sem fyrr ekki á skoðunum sínum og studdi meðal annars tillögu samstarfshóps KSÍ og ÍTF um fjölgun leikja. Þórhallur Dan er svo á línunni og við ræðum meðal annars um dómgæslu í ensku úrvalsdeildinni sem enn og aftur er til umræðu. Njótið
Mar 01, 2021•1 hr•Ep. 265
266.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl öllsömul. Tippari vikunnar í dag er rithöfundurinn og fótboltaáhugamaðurinn Einar Kárason. Hann hefur frá mörgu skemmtilegu að segja úr boltanum og fleiru til. Ég og Þórhallur Dan tökum langt viðtal við Þóri Hákonarson íþróttastjóra Þróttar. KSÍ ársþingið er um helgina og fyrir liggur að breyting verður á fyrirkomulagi deildanna, í það minnsta efstu deild. Þá ræðum við einnig um aðstöðuleysi Þróttar og margt margt fleira. Njótið elskurnar og góða helgi....
Feb 26, 2021•1 hr 9 min•Ep. 264
265.þáttur. Mín skoðun. Komiði sæl elskurnar. Í dag er yndislegur dagur. Ég og Þórhallur Dan ræðum um allt og allt en förum þó sérstaklega í viðtal sem Harmageddon tók við Lilju Alfreðsdóttur um Rúv og auglýsingamarkaðinn annarsvegar og streymisveitur hinsvegar. Þetta og margt margt fleira. Njótið
Feb 25, 2021•49 min•Ep. 263
264.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl á þessum fallega degi. Já veðrið er fallegt. Ég og Þórhallur Dan förum yfir víðan völl í þætti dagsins. Meistaradeildina, enska boltann, Tiger Woods, spyrjum okkur að því hvort Liverpool nái inná topp fjögur í ensku deildinni og fáum réttan framburð á nafni þjálfara Chelsea. Þetta og margt fleira. Njótið
Feb 24, 2021•33 min•Ep. 262
263.þáttur. Mín skoðun. Ég og Þórhallur Dan förum um víðan völl í þætti dagsins, allt frá íþróttum og ótrúlegt en satt fórum við aðeins inní pólitík. Gerist ekki aftur :) Snorri Steinn Guðjónsson þjálfari Vals í handbolta er á línunni en Valsmenn fóru ansi létt með Aftureldingu í gær og eru að finna fjölina á ný. Snorri Steinn er eins og ávallt einlægur og skemmtilegur. Njótið elskurnar.
Feb 23, 2021•49 min•Ep. 261
262.þáttur. Mín skoðun. Góðan og blessaðan mánudag. Ég og Þórhallur Dan förum yfir víðan völl í spjalli dagsins, enski boltinn, körfubolti, tennis, Viaplay, Rúv og Sýn og margt margt fleira. Njótið elskurnar.
Feb 22, 2021•50 min•Ep. 260
261.þáttur. Mín skoðun. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar er Tippari vikunnar hjá mér og það er mikið hlegið í þessu spjalli. Bráðskemmtilegt. Elvar Már Friðriksson landsliðsmaður í körfuknattleik er í sjöunda himni eftir að Ísland vann Slóvakíu í gær í undankeppni EM. Elvar Már er léttur, ljúfur og kátur og segir skemmtilegar sögur. Þá er Þórhallur Dan í skýjunum að vanda en hans menn unnu fótboltaleik í gær. Við ræðum um formannskjör ÍTF og fleira til. Njótið og góða helgi öll...
Feb 19, 2021•1 hr 19 min•Ep. 259
260.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl öllsömul. Það lítur út fyrir átakafund hjá Íslenskum Topp Fótbolta (ÍTF) í dag . Tveir eru í framboði til formanns a aðalfundi félagsins, þeir Geir Þorsteinsson framkvæmdastjóri ÍA og Orri Hlöðversson formaður Breiðabliks. Þessir ágætu herramenn eru í viðtali hjá mér og Þórhalli Dan í þætti dagsins og njótið elskurnar. Áfram Ísland
Feb 18, 2021•57 min•Ep. 258
259.þáttur. Mín skoðun. Góðan og blessaðan öskudag. Ég og Þórhallur Dan ræðum í þætti dagsins um allt og allt eða þannig. Förum í Meistaradeildina, enska boltann, hvað kostar fyrir Tottenham að reka Mourinho, afhverju leyfa sóttvarnaryfirvöld ekki áhorfendum að vera á leikjum og margt margt fleira. Njótið og munið eftir öskupokunum. Hvar er eiginlega sú hefð?
Feb 17, 2021•56 min•Ep. 257
258.þáttur. Mín skoðun. Í dag heyri ég í Einari Andra Einarssyni handboltagúru og við förum yfir Olísdeild karla í handbolta. Maður kemur svo sannarlega ekki að tómum kofanum þar. Algjör viskubrunnur. Þórhallur Dan fer yfir enska boltann með mér og við erum ánægðir með Moyes og West Ham. Það er bara málið og þá förum við í Meistaradeildina og margt fleira. Sprengidagur í dag og njótið elskurnar.
Feb 16, 2021•54 min•Ep. 256
257.þáttur. Mín skoðun. Góðan og blessaðan BOLLUDAG. Allir í stuði er það ekki? Ég og Þórhallur Dan er að minnsta kosti léttir, ljúfir og kátir í þætti dagsins. Við ræðum um enska boltann, Viaplay og íslenskan fjölmiðlamarkað, handbolta og svo pínulítið um ítalska boltann og margt margt fleira. Njótið
Feb 15, 2021•45 min•Ep. 255
256.þáttur. Mín skoðun. Tippari vikunnar er á sínum stað þennan föstudaginn og Víðir Reynisson hinn eini sanni sér um að tippa á 5 leiki fyrir okkur á Lengjunni. Víðir er eyjamaður upplýsir um uppáhaldslið og leikmann, hann talar einnig um Lars Lagerbäck og um Covid19 og fleira til. Þá er Þórhallur Dan á línunni og við ræðum um endurkomu Lars Lagerbäck í íslenskan fótbolta, faraldurinn og íþróttir og boltann um helgina. Njótið og góða helgi
Feb 12, 2021•1 hr 20 min•Ep. 254
255.þáttur. Mín skoðun. Ég og Þórhallur Dan förum yfir sviðið. Tölum mikið um Gylfa Sig. Met Man.City er tekið fyrir, afmælisbörn dagsins fá kveðju og umræðu og veltum fyrir okkur afhverju áhorfendur mega ekki vera á íþróttaviðburðum. Þetta og margt, margt fleira. Njótið
Feb 11, 2021•45 min•Ep. 253
254.þáttur. Mín skoðun. Ég og Þórhallur Dan ræðum um ýmislegt sem var í gangi í gær, til dæmis Man.Utd og West Ham. VIð förum yfir KSÍ tillögur varðandi hugsanlega fjölgun, förum í niðurröðun fyrir Íslandsmótið og svo förum við í slúðrið og fleira til. Njótið
Feb 10, 2021•49 min•Ep. 252
253.þáttur. Mín skoðun. Ég og Þórhallur Dan ræðum um boltann og margt margt fleira. Dómgæslu og fleira. Þá heyri ég í Einari Andra Einarssyni handboltaþjálfara og gúru en við förum yfir gang mála í Olís deild karla og Einar Andri liggur ekki á skoðunum sínum. Njótið
Feb 09, 2021•1 hr 7 min•Ep. 251
252.þáttur. Mín skoðun. Ég og Þórhallur Dan fórum yfir sviðið um helgina. Töluðum meðal annars um Zlatan, dómgæslu í enska boltanum, SuperBowl, Liverpool-Man.City, Man.Utd.-Everton og margt fleira. Njótið
Feb 08, 2021•1 hr 4 min•Ep. 250
251.þáttur. Mín skoðun. Ég og Þórhallur Dan fórum yfir leik Tottenham og Chelsea í gær auk þess sem Tóti tjáði sig um orð útvarpsstjóra Ruv í Morgunblaðinu í gær og fleira til. Tippari vikunnar er Helgi Björns, sá mikli snillingur sem hefur yljað okkur með tónlistarveislu á Símanum í þessum heimsfaraldri. Helgi er mikill aðdáandi Tottenham en afhverju er það? Njótið elskurnar og góða helgi.
Feb 05, 2021•1 hr 2 min•Ep. 249
250.þáttur. Mín skoðun. Ég og Þórhallur Dan fórum yfir boltann og fleira til. Hver verður næsti formaður ÍTF? Hverjar eru tillögurnar fjórar um deildarkeppnina í PepsíMax, Lengjudeildinni og neðri deildum? Þetta og margt fleira. Njótið
Feb 04, 2021•41 min•Ep. 248
249.þáttur. Mín skoðun. Kristinn Óskarsson körfuknattleiksdómari náði þeim ótrúlega árangri á dögunum að dæma 800 leiki í efstu deild. Það telst vera mikið afrek en er talan hærri? Hver er eftirminnilegasti leikurinn? Kristinn svarar þessu og meira til en hann er í ítarlegu spjalli í þætti dagsins. Ég og Þórhallur Dan förum svo yfir leiki gærkvöldsins í enska boltanum og Tóti er glaður í dag eftir að hans menn skoruðu 9 mörk í gær. Njótið elskurnar
Feb 03, 2021•1 hr 30 min•Ep. 247
248.þáttur. Mín skoðun. Dagný Brynjarsdóttir knattspyrnukona er nýgengin til liðs við enska félagið West Ham United. Dagný er í góðu spjalli um sig og svarar spurningunni hvernig þetta kom til? Dagný er að vanda einlæg og segir okkur afhverju hún hefur alltaf haldið með West Ham. Þórhallur Dan er á línunni og við ræðum meðal annars um nýjan samning Viaplay við UEFA og margt fleira. Njótið elskurnar
Feb 03, 2021•52 min•Ep. 246
247.þáttur. Mín skoðun. Ég og Þórhallur Dan fórum yfir sviðið í sportinu og byrjuðum á HM í handbolta og töluðum meðal annars um Loga Geirs og Arnar Péturs gegn Guðmundi Guðmyndssyni. Hvað er málið þar? Við fórum einnig í fótboltann og Tippari vikunnar s.l. föstudag, Katrín Jakobsdóttir, á afmæli í dag. Til lukku með daginn en hversu marga rétta fékk Katrín? Njótið
Feb 01, 2021•53 min•Ep. 245
246.þáttur. Mín skoðun. Það er fjölbreyttur þáttur í dag. Tippari vikunnar er Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og hún fer á kostum skal ég segja ykkur. Siggi Sveins handboltagoðsögn fer yfir gang mála á HM en undanúrslitin eru í dag. Siggi er alveg með þetta. Þórhallur Dan liggur ekki á skoðunum sínum sem fyrr og talar um ráðningar og annað hjá KSÍ og svo er Hannes S. Jónsson formaður Körfuknattleikssambands Íslands í stuttu spjalli en KKÍ er 60 ára í dag. Njótið elskurnar og góða helgi....
Jan 29, 2021•1 hr 9 min•Ep. 244
245.þáttur. Mín skoðun. Ég og Þórhallur Dan fórum yfir sviðið í sportinu, ráðning landsliðsþjálfara kvenna í fótbolta, HM í handbolta, U21 í fótbolta, KKÍ dómarahneykslið og fleira. Njótið
Jan 28, 2021•45 min•Ep. 243
244.þáttur Mín skoðun. Ég og Þórhallur Dan fórum yfir víðan völl sportsins. Fórum í dómgæslu, töluðum um Zlatan vs Lukaku í gær, landsliðsþjálfaramál kvenna í fótbolta en það er víst búið að ráða þó svo að það hafi ekki enn verið tilkynnt. Þetta og fleira til. Njótið
Jan 27, 2021•55 min•Ep. 242