2. kafli - Fjárhagslegir ósiðir
Fjárhagslegir ósiðir
Að gefa sér tíma í að læra grundvallaratriði um fjármál getur verið ein besta fjárfesting á tíma sem getur skilað sér margfalt til baka. Af hverju tekst sumu fólki alltaf að finna peninga meðan sumir týna þeim oftast hratt? Í þessum hlaðvarpsþáttum er talað við fólk sem náð hefur árangri í fjármálum og reynt verður að átta sig á því hvernig við öðlumst fjárhagslegt sjálfstæði og finnum peningana. Nýr þáttur hvern þriðjudag. Þættirnir eru framleiddir af umboðsmanni skuldara með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu. Umsjón hefur Gunnar Dofri Ólafsson.

Fjárhagslegir ósiðir
1. kafli Hvað hugsar þú um þegar þú hugsar um peninga?
Við munum næstu vikurnar fara af stað með hljóðbók.
Björn Berg Gunnarsson mætir hér og fjallar um væntanlega bók sína Peningar í þessum síðasta þætti Leitarinnar að peningunum. Bókin fjallar um peningalegar hliðar ýmissa hluta og fólks frá áhugaverðu sjónarhorni. Bókin kemur út 29 október nk. Auk þess kemur framleiðandi þáttana Kolbeinn Marteinsson og ræðir um framhaldið.
Gestur þáttarins í dag er Kolbrún Sara Larsen. Kolbrún er einn stjórnenda hópsins FIRE á Íslandi, hjúkrunarfræðingur, annar stjórnenda hlapvarpsins Peningakastið og sjálflærður heimilisfjármálafræðingur. Í þættinum ræðum við meðal annars Hennar fyrstu kynni af FIRE-hreyfingunni Leitina að upprunanum, sem Kolbrún á stóran þátt í að varð til Leiðir Kolbrúnar að því að verða fjárhagslega sjálfstæð Þær aðgerðir sem Kolbrún hefur gripið til til að draga úr útgjöldum og auka tekjur Lífsgæðin sem eru m...
Þorsteinn Hermannsson er samgöngustjóri Reykjavíkur en er nú í tímabundnu starfi hjá Betri samgöngum. Samgöngur eru mjög stór þáttur við rekstur heimila og er áætlað að þau séu í dag þriðji stærsti útgjaldaliðurinn á eftir húsnæði og matarinnkaupum. Kostnaður við rekstur bíls er áætlaður um 120 þúsund á mánuði. Betri samgöngur eru með stór áform um uppbyggingu almenningssamgangna með Borgarlínu, hjóla- og göngustíga auk uppbyggingar á vegakerfinu. Því skoðum við hér hvort hægt verði að minnka ko...
Svandís R. Ríkharðsdóttir og Sigurður B. Stefánsson ræða hér nýútkomna bók sína Hlutabréf á heimsmarkaði - eignastýring í 300. Bókin byggir á langri reynslu og þekkingarleit höfunda sem hafa sérhæft sig í eignastýringu á hlutbréfum. Hlutabréf eru besta leiðin til að byggja upp eignir. Í Hlutabréfum á heimsmarkaði - eignastýring í 300 ár er leitast við að auka skilning og gefa betri yfirsýn um alþjóðlegan fjármálamarkað. Með betri þekkingu verður fjárfesting markvissari og dýpri skilningur næst á...
Lovísa Ósk Þrastardóttir starfar sem yfirlögfræðingur hjá Umboðmanni skuldara. Hún þekki mjög vel fjárhagserfiðleika einstaklinga og afleiðingar þeirra. Í þessum þætti ræðum við því erfiðleika þegar kemur að fjármálum Hvað gerir Umboðsmaður skuldara? Hvernig er staðan í dag þegar kemur að greiðsluerfiðleikum? Hvað einkennir hópinn sem leitar til Umboðsmanns skuldara. Hvað er greiðsluaðlögun og hvernig fer slíkt ferli fram? Hvaða forsendur geta orðið til þess að fólk fær ekki greiðsluaðlögun. Hva...
Páll Pálsson er fasteignasali með fimmtán ára reynslu og kemur nú sem viðmælandi í Leitina að peningunum í annað sinn. Meginumfjöllunarefni þáttarins er staðan á húsnæðismarkaði um þessar mundir, sem einkennist af litlu framboði og mikilli eftirspurn eftir húsnæði. Þar fyrir utan ræðum við: Hvaða þýðingu það hefur að fyrirvarar við tilboð í fasteignaviðskiptum séu til vandræða fyrir kaupendur Hvaða hverfi eiga mesta hækkun inni miðað við önnur á höfuðborgarsvæðinu Stöðuna eftir vaxtahækkun Seðla...
Páll Óskar Hjálmtýsson er einn ástsælasti listamaður þjóðarinnar. Hann hefur skemmt Íslendingum frá árinu 1991 og gengið í gegnum ýmislegt þegar fjármál eru annars vegar. Í þessum þættir ræðum við: Ráðleggingarnar frá Ragga Bjarna Mikilvægi þess að fá ekki leið á slögurunum sínum Breyttan heim listamanna í Covid Tekjurnar af plötusölu og Spotify Fjárhagsvandræðin upp úr aldamótum Hvort peningar séu rót alls ills Mikilvægi þess að finna sér starfsvettvang sem maður nýtur Mikilvægi þess að vera du...
Silja Dögg Ósvaldsdóttir er framkvæmdastjóri bókhaldsfyrirtækisins Fastlands sem sérhæfir sig í öllum hliðum fjármála fyrir atvinnurekstur. Fyrirtækið sinnir bókhaldsþjónustu og útbýr ársreikninga fyrir mörg hundruð fyrirætki á hverju ári. Í þessum þættir ræðum við: Hvernig nálgast ég ársreikninga á netinu? Hvað er ársreikningur? Hvernig les maður úr ársreikningi? Hvað segir ársreikningur manni um rekstur fyrirtækja? Hver er munurinn á rekstrarreikningi og ársreikningi? Hvaða tölur skipta mestu ...
Konráð er hagfræðingur og starfar sem aðstoðar framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. Konráð hefur velt fyrir sér hinum ýmsu málum samfélagsins og deilir þeim reglulega á Twitter. Í þessu viðtali ræðum við. Borgar menntun sig? Hvaða menntun skilar mestum tekjum? Muninn á tekjum háskólamenntaðra og þeirra sem aðeins eru með grunnmenntun. Af hverju er tekjujöfnun há hér á landi? Af hverju er svona mikil áhersla á að allir fari í háskólanám? Námslán á maður að taka þau? Hvað skapar háar tekjur? Er erfiðar...
Leitin að peningunum er komin í tveggja vikna sumarfrí. VIð mætum aftur með nýjan þátt 17 ágúst nk.
Bergur Ebbi er rithöfundur og fyrirlesari. Hann lærði lögfræði og vann sem slíkur í nokkur ár í banka en í kjölfarið á því að hann fór að byrja í uppistandi færði hann sig hægt og rólega í núverandi starfsvettvang. Hann hefur undanfarin ár pælt mikið í framtíðinni og skrifað bækurnar Stofuhita og Skjáskot sem fjalla um tíðarandann, tæknina og þær miklu breytingar sem þær hafa á hegðun okkar og samskipti. Við munum því fjalla hér um hvernig tæknin mun hafa áhrif á líf okkar og þá um leið á fjármá...
Ruth Einarsdóttir starfar sem rekstrarstjóri nytjamarkaðs SORPU Góða hirðinn. En Góði hirðirinn skilar öllum hagnaði til góðgerðarmála. Ruth hefur lengst af starfað í verslun og í fatageiranum þangað til hún tók við Góða hirðinum fyrir þremur árum síðan sem aðallega selur húsmuni og húsgögn. Í þessu viðtali ræðum m.a: Hvernig umhverfið fyrir sölu á notuðum vörum hefur breyst á nokkrum árum Mikil aukning í endurnýtingu á húsbúnaði og fötum Fatnað og umhverfisáhrif á tísku þar sem föt hafa enst st...
Eiríkur Ragnarsson er hagfræðingur sem hefur skrifað pistla undir heitinu Eikonomics. Hann var að gefa út bók með sama heiti og er til umfjöllunar í þessu viðtali. Í þessu viðtali ræðum við fjölmargt áhugavert tengdu hagfræði, má þar nefna: Fjárfestingar á tímum Covid, Gamestop og Robinhood Á hverju maður á að fjárfesta í leiðinlegum hlutum Hvaðan þetta nafn Eikonomics kom til? Skattlagning á arfi og hver áhrifin voru þegar Dick Cheney nefndi skattinn dauðaskattinn Af hverju sérfræðingar eru ekk...
Jónas Stefánsson starfar sem sérfræðingur hjá Landsbankanum viðskiptalausnum einstaklinga en hann hóf störf þar árið 2012. Hann hefur sinnt íbúðalánaráðgjöf í bankanum og hefur séð mikla vitundarvakningu hjá viðskiptavinum bankans um vexti og kjör. Í þessu viðtali ræðum við um nánast allt það sem snýr að íbúðalánum sem eru fyrir flesta stærstu viðskipti hvers og eins. En hér má sjá nokkur þeirra mála sem við ræðum: Breytingar á starfsumhverfi banka frá Hruni Húsnæðislán breytingar á þeim á undan...
Hlynur Hauksson starfar sem viðskiptastjóri hjá Meniga. Meniga ákvað að skoða hvað það kostar að eignast barn fyrir Leitina að peningunum. Hvaða áhrif hefur fæðingarorlof á tekjur á meðan á orlofi stendur og hver eru áhrifin á framtíðartekjur? Hvar eru íslenskir foreldrar að eyða mest þegar þeir fara í fæðingarorlof? Hver er startkostnaður við að eignast barn? Er þessi markaðir þjakaður af miklum gerviþörfum? Hver er eyðslan á íslenskum barnavörumarkaði? Þetta og margt fleira í þessu áhugaverða ...
Árni Þór Hlynsson er framkvæmdastjóri Skatts og bókhalds sem sér um bókhald og reikningsskil fyrirtækja. Hann hefur unnið við fyrirtækjaráðgjöf varðandi rekstur, bókhald og skattamál í áratugi. Hann ræðir í þessu viðtali allt það sem viðkemur rekstri einstaklinga og fyrirtækja. Við ræðum í þessu viðtali meðal annars. Hvort Íslendingar séu skattafælnir? Hvað þarf maður að gera ef maður vill fara að vinna í bókhaldi eða endurskoðun? Hvenær þarf maður að fara að stofna til rekstur t.d ef maður er a...
Aníta Rut Hilmarsdóttir er ein þriggja kvenna sem starfa sem verðbréfamiðlarar. Starf sem hún segir vera mjög spennandi og krefjast þess að maður sé sífellt að fylgjast með mörkuðum og fréttum af þeim. Hún stofnaði fræðsluvettvanginn Furtuna Invest á Instagram í ársbyrjun 2021 ásamt Rakel Evu Sævarsdóttur og Rósu Kristinsdóttur en þær vinna allar í fjármálageiranum. Meginmarkmið Fortuna Invest er að auka fjölbreytileika á fjármálamarkaði og stuðla að þátttöku kvenna á því sviði. Í þess...
Kristján Ingi Mikaelsson er frumkvöðull og introvert að eigin sögn og fór fljótt í að vinna í tölvum. Hann varð fljótlega var við áhuga við að fara í eigin rekstur. Þegar hann var kominn í nám í Versló var hann kominn á fullt í eigin rekstur samhliða. Hann fór að vinna við gerð appa hjá Stokk á upphafsárum þeirra hér á landi. Hann fór svo að vinna hjá Green Cloud sem varð svo keypt af Netapp.com. Hann stofnaði fyrirtæki með félögum sínum og var haldið í Kísildalinn í Kaliforníu að leita að fjárf...
Aðalsteinn Leifsson starfar í dag sem ríkissáttasemjari og lektor við Háskólann í Reykjavík. Hann skrifaði bókina Samningatækni með það að markmiði að bókin gæti orðið hagnýtt tæki við samninga og í daglegu lífi. Við ræðum í þessu viðtali: Hvað gerir ríkissáttasemjari? Hvaða þættir skipta máli svo aðilar séu sáttir við samninga? Samningar er eitthvað sem við fáumst við alla daga og eitt mikilvægasta form ákvörðunartöku. Af hverju við erum ekki eins góðir samningamenn og við teljum okkur vera. Af...
Sóley Ósk Hafsteinsdóttir er tveggja barna móðir sem vakið hefur athygli á samfélagsmiðlum fyrir skynsamlega nálgun á fjármál og við rekstur heimilis. Í þessu viðtali ræðum við um. Skipulag við matarinnkaup. Af hverju maður á að versla í matinn einu sinni í viku? Hvernig stendur á því að Sóley og maður hennar eru að byggja hús? Hvernig byggir maður hús? Af hverju þau hættu við að byggja fyrir sig sjálf og af hverju þau ætla að selja húsið? Barnauppeldi og ráð um gjafir. Ferðalög kostnað við t.d....
Pawel Bartozek fæddist í Póllandi og flutti til Íslands 8 ára gamall. Hann er stærðfræðingur sem hefur látið samfélagsmál til sín taka. En hann hefur ritað pistla á vefinn í fjölmiðla reglulega undanfarin 20 ár. Pawel er jafnframt borgarfulltrúi. Í þessu viðtali ræðir Pawel um æsku sína í Póllandi og kommúnismann sem þar var yfir öllu. Vandamál þar var ekki skortur á peningunum heldur skortur á vörum. Einnig fáum við Pawel til að ræða líkindi og happdrætti. Borgar sig t.d að taka þátt í Lottó eð...
Haukur Hilmarsson er ráðgjafi í fjármálahegðun og kennari í fjármálameðferð við félagsráðgjafadeild HÍ. Hann rekur einnig vefinn skuldaus. Haukur segist sjálfur vera fáviti í fjármálum þar sem hann lét fjármál stjórnast af tilfinningum. Þar sem hann kom sér í skuldir sem hann borgaði upp aftur og aftur. Eftir að hafa skoðað þetta sá hann að hegðun hans var á sjálfstýringu. Haukur lifði tvöföldu lífi þegar kom að fjármálum eftir að hafa kynnst konu sinni þar sem hann faldi vanskil og skuldir sína...
Snæfríður Ingadóttir er blaðamaður, rithöfundur, fyrirlesari og síðast en ekki síst ferðafrömuður. Snæfríður er fædd og uppaldin á Akureyri og býr þar í dag með manni og þremur börnum. Hún hefur undanfarið skrifað ferðahandbækur um íbúðaskipti, flutninga til Spánar auk bókar um eyjurnar Tenerife og Gran Canary. Snæfríður byrjaði á íbúðaskiptum fyrir nokkrum árum og þá með það í huga að spara peninga. Í dag stundi hún þau vegna þess að þau bjóði uppá lengra frí, meiri upplifanir og samband og sam...
Elva Ósk Vium lögfræðingur ræðir í þessum þætti um fjármál og hvernig við eigum helst að nálgast þau þegar kemur að maka okkar. Frá því að Elva hóf að starfa sem lögmaður hefur hún unnið mikið í sambúðar- og hjúskaparmálum sem og erfðarétt. Lögmenn eru oft kallaðir að málum þegar málin eru komin í óefni. Hún hefur þú séð því séð mistökin sem fólk gerir og fer yfir það í þessu viðtali hvernig best sé að komast í veg fyrir að fólk geri þau. Hér ræðum við: Hver er munurinn á réttarstöðu giftra og þ...
Daníel og Gísli Magnússynir eru bræður á þrítugsaldri. Gísli lenti ungur í klóm smálána og fjárhagserfiðleika í tengslum við fíkniefnaneyslu. Eftir að hafa tekist á við fíkniefnavandann þurfti hann að takast á við annan erfiðan andstæðing sem voru skuldir sem hann hafði safnað upp í neyslu. Skuldir sem voru að stórum hluta smálán. Bróðir hans Daníel rann blóðið til skyldunar og fór hann í að semja við kröfuhafa eftir að hafa fengið aðstoð hjá umboðsmanni skuldara. Í þessu viðtali ræðum við hvern...
Árni Páll Árnason er rappari, viðskiptamaður og samfélagsrýnir er oftast þekktur undir listamannsnafni sínu hr. Hnetusmjör. Í þessu viðtali ræðum við um fjármál og líf rappara á Íslandi. Auk þess ræðum við um: Af hverju hann vill að stjórnvöld bregðist við Covid. Hvernig hann fór í að leita að peningum eftir að tekjur hans drógust saman um 50% á síðasta ári. Hvernig fyrirmyndir hans í rappinu eru rapparar sem einnig eru í viðskiptum. Hversu miklu máli það skiptir að vera með fyrirtæki um rekstur...
Berglind Guðmundsdóttir er menntaður hjúkrunarfræðingur og stofnandi matarvefjarins Gulur rauður grænn og salt. Hún er einnig þáttastjórnandi Dagmála á mbl.is. Hún heldur úti hlaðvarpinu Matur fyrir sálina sem er þáttur sem miðar að valdeflingu kvenna. Hún mun sá einnig um sjónvarpsþátt sem fjallar um lífstíl á Sikiley sem verður sýndur á sjónvarpi Símans í apríl. Hún starfar sem sem sjálfstæður atvinnurekandi sem hún segir vera erfitt en um leið mjög þroskandi. Matseðil Berglindar fyrir hlusten...