Kristrún Tinna Gunnarsdóttir er hagfræðingur og starfar í dag sem forstöðumaður stefnumótunar og sjálfbærni hjá Íslandsbanka. Kristrún segir frá starfsferli sínum í íslenskum bankageira auk þess sem við ræðum um allt það sem þú vildir vita um hagkerfið en þorðir ekki að spyrja um. Auk þess ræðum við: Hvernig fjárhags uppeldi hún fékk. Af hverju hagfræðin varð fyrir valinu þegar hún valdi sér háskólanám Hvort hagfræðin sé svipuð vísindi eins og veðurfræði? Hvaða þýðingu hefur hagfræðin fyrir okku...
Mar 30, 2021•1 hr 3 min•Ep. 26
Ólafur Darri Ólafsson er einn ástsælasti leikari íslensku þjóðarinnar. Í dag er hann leikandi í skjónvarpsseríum hér á landi og í stórum Hollywood kvikmyndum. Líf hans hefur samt ekki verið eintómur dans á rósum og hann gekk í gegnum töluverða fjárhagsörðugleika sem ungur maður. Við ræðum hér: Listina hvernig maður lifir af henni. Mikilvægi góðs endurskoðanda Hvernig fjármál hans voru komin á vondan stað í menntaskóla. Hvernig þáttur með Opruh Winfrey opnaði augu hans en þar var höfundur bókarin...
Mar 23, 2021•1 hr 26 min•Ep. 25
Trausti Sigurbjörnsson er 30 ára Skagamaður sem hefur lengi haft áhuga á fjármálum. Hann starfar sem kerfisstjóri hjá DK hugbúnaði. Og er fyrrverandi knattspyrnumaður en hann lagði skóna á hilluna í fyrra. Í þessu viðtali ræðir Trausti um sín fjármál hvenær hann fór að fá áhuga á þeim og hann mun fræða okkur um Dave Ramsey. En Dave er einn þekktasti fjármálafræðingur Ameríku og eru þættir hans og boðskapur svolítil fyrirmynd af Leitinni að peningunum. Saga Dave hefst þegar hann verður gjaldþrota...
Mar 16, 2021•1 hr 33 min•Ep. 24
Andrés Jónsson starfar í dag sem almannatengil og ráðningarráðgjafi við fyrirtæki sitt Góð samskipti. Umræðuefni þessa þáttar er hvað fólk getur gert til að styrkja sig á vinnumarkaði, aukið tekjur sínar og náð meiri árangri. Andrés er með hlaðvarpið Ræðum það þar sem rætt um er um atvinnulífið á Íslandi úr annarri átt. Auk þess ræðum við. Hvernig uppeldi hans mótaði viðhorf hans til lífsins Starferil hans sem hefur einkennst af miklu frumkvöðlastarfi. Þegar hann stofnaði útvarpsstöðina Mono fyr...
Mar 09, 2021•2 hr 10 min•Ep. 23
Svanhildur Hólm Valsdóttir starfar í dag sem framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. Hún starfaði í fjölda ára sem aðstoðarmaður fjármála- og forsætisráðherra. Einnig starfaði hún lengi í fjölmiðlum. Hún ræðir hér um skatta, ríkisfjármál og af hverju við eigum að þekkja til þessara málaflokka og láta þá okkur varða. Auk þess ræðum við fjölmargt fleira: Uppeldi hennar út á landi og ólík starfsreynslu. Hvernig hún sjálf talar um peninga við sín börn? Hvað gera aðstoðarmenn ráðherra? Hvað eru fjárlög hvern...
Mar 02, 2021•1 hr 8 min•Ep. 22
Ari Skúlason hagfræðingur hjá Landsbankanum hefur skoðað íslenskan fasteignamarkað undafarin ár. Hann ræðir í þessu áhugaverða viðtali stöðu fasteignamarkaðar. Borgar sig frekar að leigja en að kaupa? Hvernig Covid hefur haft áhrif á fasteignamarkaðinn og starfsumhverfi. Hvernig vaxtalækkanir Seðlabankans hafa gjörbreytt fasteignamarkaði. Þetta og margt fleira er rætt í þaula í þessu áhugaverða viðtali. Umsjón Gunnar Dofri Ólafsson. Framleitt af umboðsmanni skuldara með stuðningi frá félagsmálar...
Feb 23, 2021•52 min•Ep. 21
Sædís Anna Jónsdóttir er þriggja barna móðir sem hefur á nokkrum árum losnað úr fátæktargildru og fjárhagsáhyggjum Hún er jafnframt stofnandi Facebookhópsins fjármálatips en í hópnum eru þegar þetta er ritað um 13.000 manns. Í þessu viðtali ræðum við um: Af hverju Fjármálatips hefur gengið svona vel Hvað hún hafi lært frá hópnum Hvað hún leggur áherslu á við uppeldi á sínum börnum Hvað hún hefði sjálf viljað læra um peninga þegar hún ólst upp Hvernig kreditkort, bílalán og yfirdráttur geta verið...
Feb 16, 2021•41 min•Ep. 20
Ragna Benedikta Garðarsdóttir er með doktorsgráðu og starfar sem dósent við félagssálfræði við Háskóla Íslands. Hún ræðir í þessu viðtali áhrif umhverfisns á hegðun okkar og þá oft neyslu. Þeim óhamingjusamari sem þú ert því líklegri ertu til að falla fyrir markaðsbrellum og kaupa einhvern óþarfa. Það er munur á ánægju sem fylgir nýjum hlut og hamingju. Ánægjan fer fljótt. Við eigum frekar að kenna börnum markaðsbrellur og að lesa markaðsskilaboð en vexti verðbólgu o.þ.h. Þetta er stóra verkefni...
Feb 09, 2021•1 hr 9 min•Ep. 19
Gunnar Baldvinsson er framkvæmdastjóri Almenna lífeyrissjóðsins og var auk þess formaður Landssambands lífeyrissjóða um árabil. Hann hefur skrifað fjölmargar bækur um fjármál einstaklinga sem í dag eru nýttar til kennslu . Nýjasta bók hans Farsæl skref í fjármálum er nýkomin út og er til umræðu í þessum þætti. Gunnar ræðir einnig lífeyrismál og af hverju í eftirlaunum okkar er oft að finna verðmætustu eign okkar. Einnig ræðum við um: Mikilvægi þess að huga að lífeyrismálum sem fyrst. Ungt fólk g...
Feb 02, 2021•1 hr 6 min•Ep. 18
Már Wolfgang Mixa starfar sem lektor við Háskólann í Reykjavík. Hann hefur langa starfsreynslu af fjárfestingum og stýringu fjármuna í íslensku bankakerfi og erlendis. Már ræðir hér fjárfestingar og gefur góð ráð við ávöxtun peninga. Þetta viðtal er mjög yfirgripsmikið og nokkuð langt en hér er farið á dýptina þegar kemur að sparnaði og fjárfestingum. Meðal þess sem hér er rætt Er hægt að tímasetja markaðinn varðandi kaup á hlutabréfum? Þegar Már hóf sinn starfsferil í kringum aldamótin, var mik...
Jan 26, 2021•2 hr 1 min•Ep. 17
Sævar Helgi Bragason einnig þekktur sem Stjörnu Sævar er landsmönnum vel kunnur. Hann gekk í gegnum skilnað nærri þrítugur og þurfti að taka stórar ákvarðanir og færa miklar fórnir. Hann flutti aftur í foreldrahús, vann frá morgni til kvölds með það að markmiði að þéna meira, hækka laun sín og spara fyrir íbúð. Á tveimur árum sparaði Sævar sér 17 milljónir króna með því að minnka neyslu, leggja bílnum. Hann hjólaði í vinnu í Reykjavík frá Hafnarfirði og sparaði sér um leið líkamsræktarkort. Sæva...
Jan 19, 2021•1 hr 19 min•Ep. 16
Stefanía útskrifaðist frá Menntaskólanum á Akureyri vorið 2019 og hefur síðan unnið mikið með það að markmiði að spara eins mikla peninga og mögulegt er. Hún hefur náð nú þegar að safna sér dágóðri upphæð en hún hyggur á nám og vill eiga sparnað þegar þar að kemur. Stefanía segir að hún hafi sótt sér mikinn fróðleik um fjárfestingar og sparnað. Það sem hefur þó komið henni leiðinlega á óvart er að þegar hún fer að tala um þessa hluti þá fær hún oft neikvæð tilsvör frá fólki. Bæði finnst fólki óþ...
Jan 12, 2021•35 min•Ep. 15
Kolbeinn Marteinsson er einn eiganda almannatengsla- og kynningarfyrirtæksins Athygli. Hann er jafnframt einn stofnenda og eigenda Útilegukortsins og fleiri fyrirtækja í ferðaþjónustu. Kolbeinn ræðir í þessum þætti um sín fjármál en hann er í dag mikill áhugamaður um fjármál. Þessi áhugi kviknaði samt í kjölfar mjög erfiðra aðstæðna. Á árunum eftir hrun urðu fjármál Kolbeins rústir einar eftir að fyrirtæki sem hann átti fór í gjaldþrot og skuldir hans jukust mjög mikið. Á sama tíma hrundu tekjur...
Jan 05, 2021•1 hr 12 min•Ep. 14
Vilborg Arna þarfnast ekki kynningar en þessi magnaða kona var fyrsta konan í heiminum til að afreka það að ganga ein á Suðurpólinn á skíðum og klífa 8000 metra tind ein. Hún hefur sett sér skýr markmið í fjármálum sem og í leiðöngrum sínum og segir markmiðin eitt það mikilvægasta þegar kemur að árangri.
Dec 29, 2020•55 min•Ep. 13
Guðrún Magnúsdóttir er alltaf kölluð Gógó. og hefur verið hluti af FIRE( Financial, Freedom, Retire, Early) hreyfingunni lengi þar sem stefnt er að fjárhagslegu sjálfstæði. Hún segist hafa reynt mikilvægi þessa þegar henni var sagt upp starfi nokkrum dögum eftir að hafa flutt með fjölskylduna í draumahúsið sumarið 2020. Hún fann þó ekki til ótta eða kvíða því hún vissi að hún átti sparnað sem myndi duga henni áfram. Gógó fékk fjárhagslegt uppeldi og lærði snemma að fara vel með peninga. Hún segi...
Dec 22, 2020•1 hr 4 min•Ep. 12
Þórarinn Ævarsson er bakari sem uppgötvaði þegar hann var farinn að vinna hjá Dominos að hann hafði nef fyrir viðskiptum. Á þeim tíma tileinkaði Þórarinn sér lífsspeki sína sem er að selja mikið með lágri framlegð. Af þeim sökum hefur Þórarinn aldrei viljað tala um markhópa heldur vill hann eiga viðskipti við alla. Frá Dominos lá leið Þórarins til IKEA þar sem hann var í 15 ár. Sömu viðskiptalögmál áttu við þar og hjá Dominos að selja mörgum með lágri framlegð. Þórarinn hætti hjá IKEA og stofnað...
Dec 15, 2020•1 hr 5 min•Ep. 11
Georg Lúðvíksson er einn stofnanda hugbúnaðarfyrirtækisins Meninga sem var stofnað með það að markmið að geta aðstoðað fólk með lausnum sem tengjast fjármálum heimilisins í gegnum netbanka. Með því að breyta fjármálahegðun sinni getur fólk aukið lífsgæði sín mikið. Lausnin er ekki að halda skipulegt heimilisbókhald þar sem allt er fært inn að sögn Georgs heldur að nýta lausnir eins og Meniga sem hjálpa fólki að skipuleggja fjármál sín á einfaldan hátt. Georg segir stjórn fjármálum eina mikilvæga...
Dec 07, 2020•1 hr 2 min•Ep. 10
Björn Berg Gunnarsson starfar sem deildarstjóri greiningar og fræðslu hjá Íslandsbanka. Hann hefur kynnt sér fjármál bíla í þaula . Hvað þýðir það ef maður kaupir sér bíl í kringum tvítugt, hverju fórnum við í staðinn? Það mun að öllum líkum seinka íbúðarkaupum og jafnvel hafa slæm áhrif á mögulegt nám. Peningur sem fer í rekstur og kaup á bíl er svo mikill að þú getur gert mjög mikið fyrir þá peninga. Það kostar nokkur hundruð þúsund á ári að reka bíl auk þess sem bílinn lækkar hratt í verði. &...
Dec 01, 2020•1 hr 8 min•Ep. 9
Jóhannes Árnason lögmaður en hann rekur ásamt öðrum síðurnar, kaupmali.is og erfðaskra.is. um 40% hjónabanda á Íslandi enda með skilnaði og því er mikilvægt að kynna sér vel fjárhagsstöðu og réttindi í sambandi eða hjónabandi. Í flestum tilfellum er samið um fjármál þegar fólk skilur eins er ekki hægt að skilja fyrr en Mikilvægast er að huga að fjármálum, þegar fólk hefur fyrstu sambúð þá á fólk þær eignir sem það kemur með inn í sambúðina. Því er gott að vita í sambúð eru fjármál að langmestu l...
Nov 24, 2020•49 min•Ep. 8
Snædís Ögn sýslar með stórar upphæðir dags daglega en hún starfar sem framkvæmdastjóri þriggja eftirlaunasjóða. Hún lærði snemma í uppeldinu að hver einasta króna skiptir máli en hún varð ólétt 17 ára gömull og stofnar þá heimili. Besta ráðið sem Snædís hefur fengið og hún hefur reynt að temja sér er að skilja á milli gerviþarfa og raunverulegra þarfa. Hún hefur gert matseðil á sunnudagskvöldum fyrir fjölskylduna og segir þessa reglu að hafa skipulagt matarinnkaup og gert þau mun auðveldari þar ...
Nov 17, 2020•44 min•Ep. 7
Í þessum þætti eru viðmælendur þau Jóhanna Hauksdóttir frá Vinnumálastofnun og Sverrir Briem sérfræðingur í ráðningum hjá Hagvangi. VIð munum ræða og skoða sérstaklega: Hvað þýðir það fjárhagslega að missa vinnuna og hvað er það fyrsta sem maður á að gera ef slíkt hendir mann? Má maður vera í námi á sama tíma og maður fær atvinnuleysisbætur og hver er tekjutenging þeirra. Ferilskráin skiptir öllu máli, hún er oft fyrsta snertingin við þann sem er að leita að starfskrafti. Einnig skiptir máli að ...
Nov 10, 2020•46 min•Ep. 6
Sigrún María Hákonardóttir er menntaður viðskiptafræðingur, náms- og starfsráðgjafi sem rekur í dag í eigið fyrirtæki Fitby Sigrún. Hún stofnaði fyrirtækið í kjölfarið á því að hún fór að deila fríum æfingum á Instagram árið 2014 fyrir óléttar konur og nýbakaðar mæður. Hún segir nám sitt í viðskiptafræðinni hafa nýst mjög vel við reksturinn. Hún lenti í kulnun 21 árs gömul. Sú reynsla hefur búið hana undir það álag sem fylgt hefur rekstri fyrirtæksisins auk annara áskoranna. Hú segist vita í dag...
Nov 03, 2020•40 min•Ep. 5
Kjartan Örn Sigurðsson kaupsýslumaður fjallar hér um bókina Ríki pabbi, fátæki pabbi (Rich Dad Poor Dad) sem kom út árið 1997 en sú bók hefur verið ein mest selda bók um fjármál einstaklinga síðan hún kom út. Hann segir bókina vera fyrir alla þá sem vilja skilja grundvallaratriði fjármála og hefur hann gefið fjölmörgum þessa bók. Kjartan segir bókina í grundvallaratriðum fjalla um hvernig efnað fólk vinnur ekki fyrir peningum heldur lætur peninga vinna fyrir sig. Kjartan heldur úti hlaðvarpinu F...
Oct 28, 2020•1 hr 8 min•Ep. 4
Brynja útskrifaðist sem verkfræðingur árið 2011. Fyrsta verkefnið eftir útskrift var að markaðssetja íslenskt vodka og fór hún í markaðsbransann í framhaldi af því starfi. Hún ræðir hér um stofnun Extraloppunar og þær áskoranir sem fylgt hafa opnun hennar. Hvað skiptir mestu við reksturinn og hvaða mistök hefur hún gert við rekstur hennar? Og við spyrjum hvort Brynja gangi bara í notuðum fötum í dag? Við ræðum einnig samfélagsmiðla og spyrjum hvaða tekjur er hægt að hafa af þeim og hvernig Brynj...
Oct 20, 2020•45 min•Ep. 3
Edda Hermannsdóttir markaðs - samskiptastjóri Íslandsbanka fjallar fjármál og hvernig hún tileinkaði sér reglur í fjármálum á unga aldri sem hafa reynst henni vel allar götur síðan. Hún byrjaði snemma að vinna og unnið mikið og áttaði sig fljótt á því hvað hún þurfti að vinna mikið til að eiga fyrir ákveðnum hlutum. Hvernig nær maður árangri þegar kemur að sparnaði og margt fleira áhugavert í þessu viðtali. Umsjón: Júlí Heiðar Halldórsson Þessi þáttur er framleiddur af umboðsmanni skuldara með s...
Sep 17, 2020•37 min•Ep. 2
Páll Pálsson fasteignasali ræðir um hvernig maður ber sig að við kaup á fasteign. Hvar er hagstæðast að kaupa, hvað ber að varast og hvað þarf maður að eiga af peningum? Á hvað ætti maður að horfa þegar keypt er fyrsta íbúðin? Húsnæðislán er fyrir flesta stærsta fjárfestingin og því borgar sig að skoða valkosti og ólíkar gerðir. Umsjón: Júlí Heiðar Halldórsson Þessi þáttur er framleiddur af umboðsmanni skuldara með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu.
Sep 15, 2020•52 min•Ep. 1