Hvað er sjóveiki og er hægt að lækna hana, sem og aðrar tegundir hreyfiveiki ? Hannes Petersen læknir á Akureyri hefur í áratugi rannsakað sjó- og hreyfiveiki. Hann var gestur Karls Eskils Pálssonar í Landsbyggðum
Feb 04, 2020•27 min•Season 1Ep. 95
Sigurður Ingi Jóhannsson ræðir afleiðingar veðurofsans, uppbyggingu mikilvægra innviða, uppbyggingu Akureyrarflugvallar, byggðamál og fleira: „Já, svarið er já, við höfum í of langan tíma látið sitja á hakanum að byggja upp innviði, nægjanlega öfluga, vítt og breitt á landsbyggðunum,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnarmála þegar hann er spurður hvort landsbyggðirnar hafi setið eftir á undanförnum árum hvað varðar ýmsa uppbyggingu. Ráðherrann var gestur Karls Esk...
Feb 04, 2020•28 min•Season 1Ep. 94
„Umræðan um varaflugvelli er á miklum villigötum“ „Umræðan um uppbyggingu flugvallamannvirkja á landsbyggðinni hefur verið á röngum stað og röngum trompum hefur verið veifað í þeirri umræðu,“ segir Sveinbjörn Indriðason forstjóri ISAVIA þegar hann er spurður um uppbyggingu varaflugvalla fyrir Keflavíkurflugvöll. Hann var gestur Karls Eskils Pálssonar í Landsbyggðum. „Ég upplifi umræðuna þannig að litið sé á varaflugvalla-hugtakið sem lausn á fjárhagsvanda innanlandsflugvallanna, sem hafa liðið f...
Dec 13, 2019•29 min•Season 1Ep. 93
Mikið byggt á Hvammstanga og íbúar bjartsýnir „Þetta er aðallega ungt fólk sem er að koma til baka, flytja heim,“ segir Þorleifur Karl Eggertsson oddviti sveitarstjórnar Húnaþings vestra og stjórnarformaður Sambands sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Íbúum sveitarfélagsins hefur fjölgað umtalsvert og er verið að byggja hátt í þrjátíu íbúðir. „Það hefur ekki verið byggt svona mikið í mörg ár á Hvammstanga. Hérna eru innviðir traustir en húsnæðisskortur hefur háð okkur nokuð á undanförnum árum. Þ...
Dec 13, 2019•27 min•Season 1Ep. 92
„Auðvitað ríkir samkeppni um kúnnana, en skilningur varðandi samvinnu er að aukast“ „Á Norðurlandi eystra eru um fjögurhundruð fyrirtæki í ferðaþjónustu, en þau eru flest mjög lítil. Við erum með marga frábæra segla sem draga til sín ferðamenn,“ segir Arnheiður Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands. Kastljósinu var beint að þessari ört vaxandi atvinnugrein í Landsbyggðum á N4. „Já, já, ferðaþjónustan skapar fjölda starfa. Ferðaþjónustan hefur auk þess aukið lífsgæði heimafólks,...
Dec 13, 2019•28 min•Season 1Ep. 91
Uppbygging Þeistareykjavirkjunar hefur vakið alþjóðlega athygli - og alþjóðleg verðlaun - fyrir verkefnastjórnun, þar sem sjálfbærni var í fyrirrúmi. Valur Knútsson verkefnastjóri Landsvirkjunar segir frá uppbyggingunni í Landsbyggðum á N4
Nov 27, 2019•26 min•Season 1Ep. 90
Landbúnaður gegnir mikilvægu hlutverki í atvinnumálum Norðurlands eystra. Einungis á Akureyri skapar greinin um fjögurhundruð störf. Kúabúin á svæðinu eru um 130 og sauðfjárbúin eru um 250. Ekki er fjarri lagi að veltan sé um sex milljarðar króna á ári. Í Landsbyggðum á N4 var fjallað um greinina og rætt við Sigurgeir B. Hreinsson framkvæmdastjóra Búnaðarsambands Eyjafjarðar, Ástu Pétursdóttur bónda á Hranastöðum í Eyjafjarðarsveit og Jónu B. Hlöðversdóttur bónda í Þingeyjarsveit og formann Ungr...
Nov 15, 2019•28 min•Season 1Ep. 89
„Ferðaþjónustan getur tekið breytingum á skömmum tíma, til dæmis hvaðan ferðafólkið kemur. Núna fjölgar fólki frá Asíu, sem kallar á breyttar áherslur. Rannsóknir í ferðaþjónustu eru nauðsynlegar, en því miður skortir fjármagn til rannsókna.“ Guðrún Þóra Gunnarsdóttir forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar ferðamála er gestur Karls Eskils Pálssonar í Landsbyggðum.
Nov 15, 2019•27 min•Season 1Ep. 88
GAMLAR HÚSLÆKNINGAR OG HÚSRÁÐ FYRRI ALDA Þegar eitthvað fór úrskeiðis varðandi náttúrulega hreinsun líkamans fyrr á tíð var gripið til annarra ráða, til dæmis með blóðtökum, svitaböðum, þvaglosun og hægðahreinsun. Þetta var t.d. notað við við hitasóttum, magakveisu, en líka leggjarsárum, innvortis og útvortis ígerðum, jafnvel taugaveiklun og móðursýki. Blóðtökum var beitt við allt mögulegt, hitasótt, gigt, jafnvel taugaveiklun og móðursýki Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir þjóðfræðingur hefur undanf...
Nov 04, 2019•28 min•Season 1Ep. 87
Umræðan er ekki alltaf sanngjörn „Nei, nei, umræðan er ekki alltaf sanngjörn,“ segir Sveinbjörn Ingimundarson forstjóri ISAVIA, þegar hann er spurður um umræðuna varðandi uppbyggingu Akureyrarflugvallar. Í þættinum er rætt um mikilvægi samgangna á Norðurlandi eystra, þannig að byggðirnar geti vaxið og dafnað. Viðmælendur í þættinum eru auk Sveinbjörns: Halla Björk Reynisdóttir, forseti bæjarstjórnar Akureyrar Elías Pétursson sveitarstjóri, Langanesbyggðar Jón Þorvaldur Heiðarsson, Háskólanum á A...
Nov 04, 2019•28 min•Season 1Ep. 86
„Má mamma ráða því hvort ég eigi kærasta ?“ - Þetta er ein af þeim fjölmörgu spurningum sem berast til umboðsmanns barna. Salvör Nordal umboðsmaður barna er gestur Karls Eskils Pálssonar í Landsbyggðum. „Börn eru að glíma við allt annan veruleika en áður, til dæmis samfélagsmiðla,“ segir Salvör.
Oct 18, 2019•28 min•Season 1Ep. 85
Sviðsmyndir í Landsbyggðum Sævar Kristinsson hjá KPMG á Íslandi er gestur Karls Eskils í Landsbyggðum. Sævar hefur þróað gerð sviðsmynda sem er aðferðarfræði til þess að skilja umhverfið og framtíðina. Sævar ræddi m.a. búsetuþróun á Íslandið á næstu árum. Er hugsanlegt að dreifbýlið heyri nánast sögunni til?
Oct 10, 2019•29 min•Season 1Ep. 84
Lagt er til að sveitarfélögum landsins fækki verulega á næstu árum. Í Landsbyggðum á N4 er kastljósinu beint sérstaklega að Norðurlandi eystra. Hilda Jana Gísladóttir formaður Eyþings ogKristján Þór Magnússon varaformaður Eyþings ræða þessar tillögur, auk þess sem Svanfríður Jónasdóttir og Hjalti Jóhannesson fara yfir stöðu mála, en þau hafa fylgst með málefnum sveitarfélaga um langt árabil. Þrír milljarðar í pottinum á Norðurlandi eystra Líklega mun umræðan um sameiningu sveitarfélaga þyngjast ...
Oct 02, 2019•29 min•Season 1Ep. 83
3.000.000 MYNDA SEM VARÐVEITA OG SEGJA SÖGUNA „Já, það eru alltaf að bætast við myndir í safnið,“ segir Hörður Geirsson hjá Minjasafninu á Akureyri en þar eru varðveittar um þrjár milljónir mynda. Myndir segja sögur. Myndir varðveita. Hörður sýndi nokkrar vel valdar myndir í Landsbyggðum og sagði sögu þeirra. Afskaplega fróðleg og skemmtileg ljósmyndasýning, gjörið svo vel !
Sep 24, 2019•29 min•Season 1Ep. 82
„Það segir sig sjálft að íslenski fiskurinn selur sig ekki sjálfur og þess vegna verðum við alltaf að vera á tánum í sölumálum og sækja inn á nýja markaði,“ segir Jens Garðar Helgason stjórnarformaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi við viðtali í Landsbyggðum á N4. Rætt er um kvótakerfið, frumkvöðlastarfsemi í sjávarútvegi, fiskeldi, endurnýjun skipaflotans, tæknivæðingu og fleira.
Sep 24, 2019•27 min•Season 1Ep. 81
„Já, menningin er nauðsynleg, þannig að samfélögin geti vaxið og dafnað,“ segir Þuríður Helga Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri Menningarfélags Akureyrar. Hún er var gestur Karls Eskils Pálssonar í Landsbyggðum á N4. MAk er öflugasta menningarstofnunin utan höfuðborgarsvæðisins og hefur þess vegna ýmsum skyldum að gegna.
Sep 09, 2019•27 min•Season 1Ep. 80
„Jú, ég þurfti að hugsa málið vel og vandlega, hvort ég ætti að sækja um þetta embætti,“ segir Ragna Árnadóttir aðstoðarframkvæmdastjóri Landsvirkjunar, sem nú um mánaðamótin tekur fyrst kvenna við embætti skrifstofustjóra Alþingis. Ragna var gestur Karls Eskils Pálssonar, þar sem rætt var um starfsemi Alþingis og hvaða augum hún lítur á þetta viðamikla embætti.
Sep 09, 2019•28 min•Season 1Ep. 79
Valgeir Þorvaldsson forstöðumaður Vesturfarasetursins á Hofsósi ræðir fólksflutningana miklu í Landsbyggðum. Talið er að um fjórðungur landsmanna hafi yfirgefið Ísland á ofanverðri 19. öld í leit að betra lífi.
Aug 29, 2019•29 min•Season 1Ep. 78
Kjaramál, verkalýðshreyfingin, IKEA og brauðtertur. Það hefur verið töluverður öldugangur hjá ASÍ, nýir kjarasamningar gerðir og sjálfsagt fleiri samningar undirritaðir á næstu vikum. Drífa Snædal forseti ASÍ er gestur Karls Eskils Pálssonar í Landsbyggðum. Víða er komið við, svo sem hugsanleg sameining stéttarfélaga, miklar sveiflur í hagkerfinu, svört atvinnustarfsemi, húsnæðismál og skattamál. Að ógleymdum miklum áhuga Drífu á brauðtertum og að setja saman IKEA innréttingar....
Aug 29, 2019•28 min•Season 1Ep. 77
Steingrímur J. Sigfússon þingmaður Norðausturkjördæmis og forseti Alþingis er gestur Karls Eskils Pálssonar að þessu sinni í Landsbyggðum. Rætt er um virðingu Alþingis, traust almennings til þingsins, starfhætti og fleira.
Aug 29, 2019•28 min•Season 1Ep. 76
"Óvissan getur nagað fólk inn að beini. Okkar hlutverk er meðal annars að leiðbeina fólki í réttar áttir" Bergur Þorri Benjamínsson formaður Sjálfsbjargar, landssambands hreyfihamlaðra er gestur Karls Eskils Pálssonar í Landsbyggðum. Rætt er um helstu baráttumál Sjálfsbjargar.
Aug 29, 2019•28 min•Season 1Ep. 75
"Ég get alveg viðurkennt að á kvöldin þarf ég stundum að ná mér niður" Stefán Tryggva- og Sigríðarson er gestur Karls Eskils Pálssonar í Landsbyggðum.
Aug 29, 2019•28 min•Season 1Ep. 74
"Höfnin er hjarta bæjarins á Siglufirði og hefur alltaf verið." Síldarminjasafnið á Siglufirði er eitt stærsta safn landsins. Aukin áhersla er lögð á rannsóknir er tengjast sögu síldariðnaðarins. Anita Elefsen safnstjóri er gestur Karls Eskils Pálssonar í Landsbyggðum.
Aug 29, 2019•27 min•Season 1Ep. 73
Vöxtur Háskólans á Akureyri hefur verið hraður. Eyjólfur Guiðmundsson rektor HA er gestur Karls Eskils Pálssonar í Landsbyggðum. Rætt er um mikilvægi háskólans og framtíðarsýn.
Aug 29, 2019•27 min•Season 1Ep. 72
„Mér finnst gríðarlega mikilvægt að landsbyggðirnar eigi fulltrúa á Alþingi. Umræðan um ferðakostnað þingmanna er að einhverju leiti villandi en aðhaldið frá almenningi er nauðsynlegt,“ segir Albertína Friðbjörg Elíasdóttir þingmaður Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi. Hún er gestur Karls Eskils Pálssonar í Landsbyggðum að þessu sinni. Umræðuefnið er meðal annars virðing Alþingis, byggðapólitík, menntamál, fiskeldi, frumkvöðlastarfsemi og ferðakostnaður þingmanna....
Aug 29, 2019•26 min•Season 1Ep. 71
Róbert Guðfinnsson athafnamaður og frumkvöðull á Siglufirði er gestur Karls Eskils Pálssonar í Landsbyggðum. Róbert hefur byggt upp öfluga ferðaþjónustu á Siglufirði og líftæknifyrirtækið Genís.
Aug 29, 2019•27 min•Season 1Ep. 70
Höldur er stærsta bílaleiga landsins. Karl Eskil Pálsson ræðir við Steingrím Birgisson forstjóra Hölds um fyrirtækið og íslenska ferðaþjónustu. Þótt stærstur hluti viðskiptanna eigi sér stað á höfuðborgarsvæðinu, segir Steingrímur um margt hagstætt að hafa höfuðstöðvarnar norður á Akureyri.
Aug 29, 2019•27 min•Season 1Ep. 69
Heilbrigðisþjónusta á Austurlandi Guðjón Hauksson forstjóri Heilbgigðisstofnunar Austurlands er gestur Karls Eskils Pálssonar í Landsbyggðum.
Aug 29, 2019•29 min•Season 1Ep. 68
Guðrún Björt Yngvadóttir er fyrsta konan sem gegnir embætti alþjóðaforseta Lions. Hennar verkefni er m.a. að heimsækja um 200 þjóðlönd. Guðrún Björt segir frá þessu viðamikla verkefni í Landsbyggðum á N4.
Aug 29, 2019•27 min•Season 1Ep. 67
„Íbúarnir hafa fyrst og fremst áhuga á þjónustu sveitarfélagsins, enginn spyr um fjárhagslega afkomu.“ Aldís Hafsteinsdóttir bæjarstjóri í Hveragerði ræðir málefni bæjarins. Hún er jafnframt formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Aug 29, 2019•28 min•Ep. 66