#93 Sveinbjörn Indriðason - Forstjóri ISAVIA
Episode description
„Umræðan um varaflugvelli er á miklum villigötum“
„Umræðan um uppbyggingu flugvallamannvirkja á landsbyggðinni hefur verið á röngum stað og röngum trompum hefur verið veifað í þeirri umræðu,“ segir Sveinbjörn Indriðason forstjóri ISAVIA þegar hann er spurður um uppbyggingu varaflugvalla fyrir Keflavíkurflugvöll.
Hann var gestur Karls Eskils Pálssonar í Landsbyggðum.
„Ég upplifi umræðuna þannig að litið sé á varaflugvalla-hugtakið sem lausn á fjárhagsvanda innanlandsflugvallanna, sem hafa liðið fyrir þessa umræðu og meintar þarfir hafa verið búnar til fyrir millilandaflugvelli. Varaflugvöllur þarf bara pláss á jörðinni til þess að geyma fullt af flugvélum. Það þarft ekkert að byggja nýja flugstöð, eða eitthvað slíkt. Varaflugvöllur nýtist því ekkert endilega sem millilandaflugvöllur,“ segir Sveinbjörn.
Hann segir að ISAVIA taki ekki ávarðanir um hvar varaflugvellir skuli staðsettir, slikar ákvarðanir séu í höndum Alþingis.
„Það hefur átt sér stað ótrúlega mikil uppbygging í ferðaþjónustu fyrir norðan á undanförnum árum og leiguflugfélög hafa flogið beint til Akureyrar. Flugvöllurinn á Akureyri er orðinn of lítill fyrir þessi umsvif. Þegar talað er um hvaða tækifæri eru til staðar til að sækja fjármagn til Akureyrarflugvallar, þarf að gera það á réttum forsendum. Umræðan í dag er á mjög miklum villigötum og hefur verið það um tíma, sem er óheppilegt.“
