Landsbyggðir - podcast cover

Landsbyggðir

N4n4.is
Landsbyggðir er vikulegur viðtalsþáttur á N4, þar sem kastljósinu er beint að áhugaverðum samfélagsmálum, með áherslu á sjónarmið landsbyggðanna. Þættirnir höfða því einstaklega vel til allra sem áhuga hafa á samfélagsmálum.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

#156 Hildigunnur Svavarsdóttir - Verðandi forstjóri SAk

Hildigunnur Svavarsdóttir nýr forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri er gestur Karls Eskils Pálssonar. Mikið álag hefur verið á heilbrigðisstofnunum vegna heimsfaraldursins. Hildigunnur segir frá viðbrögðunum á SAK, auk þess sem hún horfir til framtíðar varðandi uppbyggingu stofnunarinnar.

Aug 20, 202128 minSeason 1Ep. 156

#153 Eyfirskir fossar - Svavar A. Jónsson

Séra Svavar A. Jónsson hefur myndað eyfirska fossa og gefið út bók um þá. Hann sýnir valdar myndir af fossum og segir frá þeim. ATH. Myndirnar má sjá með þættinum á www.n4.is, Youtube og Facebooksíðu N4 Sjónvarp. Einnig er þar að finna texta við þáttinn, þar sem hljóðupptakan er ekki eins og á verður kosið, enda tekið upp í fjarviðtali.

Jun 03, 202126 min

#150 Halldór Guðmundsson - Framkvæmdastjóri Heilsuvernd

Halldór Guðmundsson mun stýra Heilsuvernd Hjúkrunarheimili ehf á Akureyri, sem um mánaðamótin tók við rekstri Öldrunarheimila Akureyrarbæjar. Karl Eskil Pálsson ræðir við Halldór um starfsemina og framtíðarsýn.

May 06, 202127 minSeason 1Ep. 150

#145 Minjasafnið á Akureyri - Hörður Geirsson

Súkkulaði og vetraríþróttir. Minjasafnið á Akureyri varðveitir gríðarlegt magn gamalla mynda. Hörður Geirsson sýnir í þættinum myndir sem tengjast páskum. Meðal annars myndir sem teknar voru í súkkulaðiverksmiðjunni Lindu á Akureyri. ATH. Myndirnar má sjá með þættinum á www.n4.is, Youtube og Facebooksíðu N4 Sjónvarp. Landsbyggðir, gjörið svo vel !

Apr 27, 202126 minSeason 1Ep. 145

#140 Sigfús Ingi Sigfússon - Sveitarstjóri Skagafjarðar

Íbúum Sveitarfélagsins Skagafjarðar fjölgaði umtalsvert á síðasta ári og umtalsverð uppbygging er fyrirhuguð í sveitarfélaginu á komandi árum. Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri er gestur Karls Eskils Pálssonar.

Apr 27, 202127 minSeason 1Ep. 140

#138 Heiðrún Lind Marteinsdóttir - Framkvæmdatjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi

Starfsemi sjávarútvegsfyrirtækja hefur tekið miklum breytingum á undanförnum árum og með aukinni tæknivæðingu er líklegt að breytingar verði jafnvel enn hraðari á komandi árum. Hverjar eru ógnirnar og hvar liggja helstu tækifærin. Heiðrún Lind Marteinsdóttir framkvæmdatjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi er gestur í Landsbyggðum.

Apr 27, 202127 minSeason 1Ep. 138

#136 Héraðsskjalasafnið á Ísafirði - Guðfinna Hreiðarsdóttir

Héraðsskjalasafnið á Ísafirði varðveitir stórt safn gamalla mynda. Í þættinum eru eru sýndar merkilegar myndir frá norðanverðum Vestfjörðum sem safnið varðveitir. ATH. Myndirnar má sjá með þættinum á www.n4.is, Youtube og Facebooksíðu N4 Sjónvarp. Einnig er þar að finna texta við þáttinn, þar sem hljóðupptakan er ekki eins og á verður kosið, enda tekið upp í fjarviðtali. Landsbyggðir, gjörið svo vel !

Apr 27, 202127 minSeason 1Ep. 136

#132 Vetrar- og aðventumyndir frá Skagafirði

Héraðsskjalasafn Skagfirðinga varðveitir stórt myndasafn. Í þættinum Landsbyggðum á N4 sýnir Sólborg Una Pálsdóttir hérðasskjalavörur gamlaar myndir sem flestar voru teknar á aðventunni í Skagafirði. ATH. Myndirnar má sjá með þættinum á www.n4.is, Youtube og Facebooksíðu N4 Sjónvarp. Landsbyggðir, gjörið svo vel !

Dec 29, 202027 minSeason 1Ep. 132

#131 Einstakar aðventumyndir frá Akureyri

Einstakar myndir af jólaskreytingum á Akureyri, stórfenglegum jólaútstillingum í verslunum, laufabrauðsgerð, komu jólasveinanna og auðvitað jólatrésskemmtunum! ATH. Myndirnar má sjá með þættinum á www.n4.is, Youtube og Facebooksíðu N4 Sjónvarp. Hörður Geirsson í Minjasafninu á Akureyri sagði frá þessum einstköku myndum í Landsbyggðum á N4.

Dec 29, 202025 minSeason 1Ep. 131

#130 Júlí M. Brynjólfsdóttir - Sykursýki og Lionshreyfingin

Sykursýki verður stöðugt algengari í heiminum. Lionshreyfingin er meðal þeirra sem berst með skipulögðum hætti gegn sykursýki. Júlía M. Brynjólfsdóttir hjúkunarfræðingur á Akureyri er í aðgerðarhópi Lionshreyfingarinnar, gegn sykursýki. Hún er gestur í Landsbyggðum á N4.

Dec 29, 202026 minSeason 1Ep. 130

#129 Sigurður Ægisson - Íslensku fuglarnir og þjóðtrúin,

"Á Horni í Sléttuhreppi boðaði það rigningu, ef lómurinn stóð á öðrum fæti og skrækti" "Í Heklu átti að vera bústaður hrafna með glóandi klær og nef úr járni" Íslensku fuglarnir og þjóðtrúin, Sigurður Ægisson segir frá bókinni og segir áhorfendum hvaða þjóðsögur tengjast nokkrum fuglategundum.

Dec 04, 202027 minSeason 1Ep. 129

#127 Atvinnulífið á Vestfjörðum - Þáttur 4

Tálknafjörður - Boluingarvík - Patreksfjörður: Í þættinum Landsbyggðum á N4 er hugað að atvinnulífinu á Vestfjörðum, rætt er við sveitarstjórann á Tálknafirði, bæjarstjórann í Bolungarvík og sérfræðing hjá Umhverfisstofnun á Patreksfirði.

Nov 17, 202022 minSeason 1Ep. 127
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android