Landsbyggðir - podcast cover

Landsbyggðir

N4n4.is
Landsbyggðir er vikulegur viðtalsþáttur á N4, þar sem kastljósinu er beint að áhugaverðum samfélagsmálum, með áherslu á sjónarmið landsbyggðanna. Þættirnir höfða því einstaklega vel til allra sem áhuga hafa á samfélagsmálum.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

#126 Atvinnulífið á Vestfjörðum - Þáttur 3

„Hérna vantar sárlega fólk til starfa.“ „Fiskeldið fyrir vestan er í dag að skapa á bilinu tvö til þrjúhundruð störf.“ - Fiskeldi er áberandi á Vestfjörðum. - Hver eru samfélagsleg áhrif fiskeldis? - Hvert stefnir fiskeldið? Rebekka Hilmarsdóttir bæjarstgjóri Vesturbyggðar og Sigurður Pétursson hjá Artic fish eru gestir í Landsbyggðum.

Nov 16, 202024 minSeason 1Ep. 126

#125 Atvinnulífið á Vestfjörðum - Þáttur 2

„Fólkið og atvinnulífið kalla eftir fleiri jarðgöngum og láglendisvegum,“ segir sviðsstjóri byggðaþróunar hjá Vestfjarðarstofu. „Okkur vantar einfaldlega fólk til starfa,“ segir sveitarstjóri Strandabyggðar. Rætt er við Aðalstein Óskarsson og Þorgeir Pálsson sveitarstjóra Strandabyggðar í Landsbyggðum á N4.

Nov 16, 202026 minSeason 1Ep. 125

#124 Gauti Jóhannesson - Forseti sveitarstjórnar Múlaþings

Múlaþing er nýtt sameinað sveitarfélag á Austurlandi. Stefnt er að öflugri starfssemi í öllum byggðarkjörnum. Gauti Jóhannesson forseti sveitarstjórnar Múlaþings ræðir hér við Karl Eskil Pálsson.

Oct 29, 202027 minSeason 1Ep. 124

#123 Atvinnulífið á Vestfjörðum - Þáttur 1

„Við höfum driftina og við höfum þessa vestfirsku seiglu,“ segir Sigríður Ó. Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri Vestfjarðarstofu. Það er margt í pípunum í atvinnulífi Vestfjarða og kemur greinilega fram í meðfylgjandi þætti. Landsbyggðir – Vestfirðir – gjörið svo vel !

Oct 29, 202026 minSeason 1Ep. 123

#122 Nanna Ýr Arnardóttir - Sjóveiki sjómanna

Um fimmtungur sjómanna segist taka sjóveikislyf áður en þeir halda í veiðiferð. Stór hluti sjómanna segist hafa upplifað sjóveiki og um helmingur sjómanna þjáist af mígreni eða spennuverkjahöfuðverk. Þetta kemur fram í rannsókn sem Nanna Ýr Arnardóttir lektor við Háskólann á Akureyri og Hannes Petersen háls, nef- og eyrarlæknir við Sjúkrahúsið á Akureyri gerðu. Spurningar voru sendar til sjómanna sem sótt hafa námskeið í Slysavarnarskólanum, einnig til annarra sjómanna á Eyjafjarðarsvæðinu. Nann...

Oct 29, 202026 minSeason 1Ep. 122

#121 Guðmundur Baldvin Guðmundsson - Formaður bæjarráðs Akureyrarbæjar

Niðurskurður og sóknarfæri á Akureyri: Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður bæjarráðs Akureyrarbæjar og oddviti Framsóknarflokksins var gestur Karls Eskils Pálssonar í Landsbyggðum. Farið er yfir nokkur atriði í nýjum samstarfssáttmála bæjarstjórnar.

Oct 29, 202027 minSeason 1Ep. 121

#120 Einar K. Guðfinnsson - Samtök fyrirtækja í svávarútvegi

Fiskeldi er viðspyrna atvinnulífsins á Austurlandi og Vestfjörðum. Þetta segir Einar K. Guðfinnsson hjá Samtökum fyrirtækja í svávarútvegi. Hann segir að fiskeldi hafi tekið miklum breytingum á undanförnum árum og greinin komi til með að þróast mikið á komandi árum. Einar K. Guðfinnson var gestur Karls Eskils Pálssonar í Landsbyggðum á N4.

Oct 29, 202026 minSeason 1Ep. 120

#119 Vífill Karlsson - Sérfræðingur í málefnum sveitarfélaga

Hvernig lítur draumasveitarfélagið út ? Hvers vegna eru t.d. Skagfirðingar, Vestfirðingar og Akurnesingar svona ánægðir ? Vífill Karlsson er einn helsti sérfræðingur í málefnum sveitarfélaga, hann hefur meðal annars rannsakað búsetuskilyrði hér á landi. Slík könnun stendur nú yfir. Vífill Karlsson var gestur Karl Eskils Pálssonar i Landsbyggðum.

Oct 29, 202028 minSeason 1Ep. 119

#118 Soffía Gísladóttir - Forstöðumaður hjá Vinnumálastofnun

Atvinnuleysi hefur aukist verulega. Soffía Gísladóttir forstöðumaður hjá Vinnumálastofnun segir frá starfsemi stofnunarinnar og hvernig hún getur aðstoðað atvinnuleitendur. Einnig er rætt við Aðalstein Árna Baldursson formann Framsýnar stéttarfélags um atvinnuástandið í Þingeyjarsýslum. Hann gagnrýnir starfsemi Vinnumálastofnunar.

Oct 29, 202027 minSeason 1Ep. 118

#117 Páley Borgþórsdóttir - Lögreglustjóri á Norðurlandi eystra

Starfsemi lögreglunnar hefur tekið verulegum breytingum á undanförnum árum. Hvernig tekst lögreglan á við kynferðisbrot, netglæpi eða auðgunarbrot ? Páley Borgþórsdóttir nýr lögreglustjóri á Norðurlandi eystra var gestur í Landsbyggðum.

Oct 29, 202026 minSeason 1Ep. 117

#116 Ásthildur Sturludóttir - Bæjarstjóri á Akreyri

„Við erum að upplifa eina dýpstu kreppu frá stofnun lýðveldisins og öll sveitarfélög landsins þurfa að fara í algjöra uppstokkun á næstu tveimur til þremur árum. “ segir Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri á Akreyri. Að óbreyttu verður halli aðalsjóðs bæjarins á þriðja milljarð króna á þessu ári. Hún var gestur Karls Eskils Pálssonar í Landsbyggðum á N4. Víða er komið við í þættinum, svo sem viðbrögð við áhrifum vegna heimsfaraldursins, skipulagsmál, öldrunarþjónustu og fleira....

Oct 29, 202028 minSeason 1Ep. 116

#115 Halla Eiríksdóttir - stjórnarmaður í Bændasamtökum Íslands

Er matvælaöryggi mikilvægt fyrir okkur Íslendinga? Hvernig þróast íslenskur landbúnaður? Er umræðan um landbúnað alltaf sanngjörn? Halla Eiríksdóttir stjórnarmaður í Bændasamtökum Íslands er gestur Karls Eskils að þessu sinni í Landsbyggðum á N4.

Jul 29, 202027 minSeason 1Ep. 115

#114 Kristín Ágústsdóttir - forstöðumaður Náttúrustofu Auturlands

Náttúrustofa Austurlands gegnir mikilvægu hlutverki. Kristín Ágústsdóttir forstöðumaður Náttúrustofu Auturlands var gestur Karls Eskils Pálssonar í Landsbyggðum á N4, þar sem farið var yfir ýmsar merkilegar rannsóknir á vegum stofunnar. „Vertíðin hjá náttúrufræðingum er yfir sumartínann. Veturinn fer svo í að greina rannsóknir sumarsins og skrifa skýrslur.“ Hún segir að GPS tæknin hafi gjörbreytt vísindarannsóknum. „Já, já, tæknin hefur breytt ýmsu. Ég man þá tíð þegar við stóðum úti með blauta ...

Jul 29, 202017 minSeason 1Ep. 114

#113 Jón Björn Hákonarson - forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar

Sveitarfélögin þurfa að horfa til framtíðar, meðal annars hvernig bregðast á við tækni- og samfélagsbreytingum. Jón Björn Hákonarson forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar er gestur í Landsbyggðum. Byggðapólitík, atvinnulífið, sameining sveitarfélaga, uppbygging innviða á landsbyggðunum og fleira.

Jul 29, 202027 minSeason 1Ep. 113

#112 Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir - sveitarstjóri í Húnaþingi vestra

Íbúum Húnaþings vestra fjölgar umfram landsmeðaltal. Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir er sveitarstjóri, hún var gestur í Landsbyggðum á N4, þar sem meðal annars var rætt um uppganginn í sveitarfélaginu, byggðastefnu, fjölgun opinberra starfa og fleira.

Jul 29, 202023 minSeason 1Ep. 112

#111 Hjördís Albertsdóttir - varaformaður Félags grunnskólakennara og kennari í Mývatnssveit

Starf kennarans hefur tekið miklum breytingum „Já, kennarastarfið hefur breyst mikið á undanförnum árum og áratugum, breytingarnar hafa verið hraðar á allra síðustu árum,“ segir Hjördís Albertsdóttir varaformaður Félags grunnskólakennara og kennari í Mývatnssveit. Hún var gestur Karls Eskils Pálssonar í Landsbyggðum á N4. „Í dag er staðan sú að kennarar og nemendur eru í samvinnu við að leysa ákveðin rauntengd verkefni, kennarinn er nemendum til stuðnings.“

Jul 29, 202025 minSeason 1Ep. 111

#110 Sumarnámskeið Háskólans á Akureyri 2020

"Við erum mjög ánægð með viðbrögðin, skráningar sýna að fólk hefur áhuga á þessum leiðum sem í boði eru" Fjallað er um sumarnámskeið Háskólans á Akureyri í Landsbyggðum á N4.

Jul 29, 202027 minSeason 1Ep. 110

#109 Ásmundur Einar Daðason - félagsmálaráðherra

Starfsemi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á Sauðárkróki verður efld og verður auglýst eftir starfsfólki á næstunni. Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra er gestur þáttarinns að þessu sinni. Hann segir fyrirhugað að setja á laggirnar nýtt svið innan stofnunarinnar sem sinni sérstaklega brunavörnum og starfsemni slökkviliða í landinu.

Jul 29, 202028 minSeason 1Ep. 109

#108 Hólmfríður Sveinsdóttir - doktor í lífvísindum og næringarfræðingur

„Já, frumkvöðla- og nýsköpunarstarf er í genum okkar Íslendinga. Við höfum lifað við erfiðar aðstæður í gegnum tíðina og höfum þurft að aðlaga okkur að náttúrunni,“ segir Hólmfríður Sveinsdóttir doktor í lífvísindum og næringarfræðingur. Nýsköpun og frumkvöðlastarf skipar stóran sess i endurreisn efnahags- og atvinnulífsins í kjölfar kórónaveirufaraldursins. Hún ræddi mikilvægi þessara mála í Landsbyggðum á N4.

Jul 29, 202027 minSeason 1Ep. 108

#107 Eyþór Ingi Jónsson - fuglaljósmyndir

Eyþór Ingi Jónsson á Akureyri er einn fremsti fluglaljósmyndari landsins. Safnið hans er gríðarlega stórt. Eyþor Ingi sýndi nokkrar vel valdar myndir í Landsbyggðum og sagði skemmtilegar sögur af hverri mynd. Þáttinn sjálfan má nálgast á N4.is, Facebooksíðunni N4 Sjónvarp og Youtube til þess að sjá myndirnar sem um ræðir.

Jul 29, 202028 minSeason 1Ep. 107

#106 Logi Már Einarsson - Formaður Samfylkingarinnar og þingmaður

Mikilvægt að félagshyggjuflokkarnir myndi næstu ríkisstjórn: Logi Már Einarsson formaður Samfylkingarinnar og þingmaður Norðausturkjördæmis var gestur Karls Eskils Pálssonar í Landsbyggðum á N4. Logi Már segist sækjast eftr því að leiða framboðslista flokksins við komandi alþingiskosningar, sem að óbreyttu verða á næsta ári. Hann vill að félagshyggjuflokkarnir myndi næstu ríkisstjórn. Hann segir einnig að taka þurfi tillit til byggðasjónarmiða þegar stórar ákvarðanir eru teknar, svo sem í tengsl...

May 19, 202028 minSeason 1Ep. 106

#105 Aðalsteinn Þorsteinsson - Forstjóri Byggðastofnunar

„Byggðastefna er ekki lengur fyrirgreiðslupólitík, langt í frá, heldur snýst hún um jöfn tækifæri og aðgengi að grunnþjónustu og atvinnu,“ segir Aðalsteinn Þorsteinsson forstjóri Byggðastofnunar. Aðalsteinn var gestur í Landsbyggðum á N4, þar sem meðal annars var talað um byggðastefnu og efnahagsleg viðbrögð við kórónaveirufaraldrinum. „Þegar svo stórar ákvarðanir eru teknar varðandi stuðning við efnahagslífið er mikilvægt að taka tillit til byggðasjónarmiða. Ef efnahagsreikningar eiga að vera h...

May 19, 202027 minSeason 1Ep. 105

#104 Sigurður Ingi Jóhannsson - samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra

„Með uppbyggingu Akureyrarflugvallar skapast möguleikar á reglulegu millilandaflugi til Akureyrar .“ „Ríkisstjórnin hefur þegar samþykkt tillögur að breytingum á sveitarstjórnarstiginu.“ Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra ræddi stöðu sveitarstjórna vegna Covid-19, uppbyggingu Akureyraraflugvallar og aukið fé til samgöngumála í Landsbyggðum á N4.

Apr 07, 202028 minSeason 1Ep. 104

#103 Öryggsimál sjómanna

Enginn sjómaður fórst á síðasta ári við strendur landsins, sem er sjötta árið sem slíkt gerist og þriðja árið í röð. Í Landsbyggðunum er kastljósinu beint að öryggismálum.

Apr 07, 202029 minSeason 1Ep. 103

#101 Svanhildur Konráðsdóttir - forstjóri Hörpu

„Ég held að íslenskt tónlistarfólk geti vart hugsað sér lífið án Hörpu“ Svanhildur Konráðsdóttir forstjóri Hörpu sagði Karli Eskil Pálssyni ýmislegt merkilegt um tónlistarhúsið Hörpu í Reykjavík í þættinum Landsbyggðum. Á hverju ári eru haldnir 1300 til 1400 viðburðir í húsinu. Met var sett í fjölda ráðstefna í Hörpu í fyrra og í ár stefnir í að það met verið slegið.

Mar 12, 202025 minSeason 1Ep. 101

#100 Bogi Nils Bogason - Forstjóri Icelandair Group

“Stjórnvöld í samstarfi við ferðaþjónustuna þurfa sérstaklega að horfa til sjálfbærni, arðsemi og dreifingu ferðamanna um allt land,” segir Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair Group. Hann var gestur Karls Eskils Pálssonar í Landsbyggðum á N4, þar sem rætt var um íslenska ferðaþjónustu, með áherslu á landsbyggðirnar. Bogi Nils segir að félagið hafi lagt til að Egilsstaðarflugvöllur verði fyrsti varaflugvöllurinn, ástæðan hafi fyrst og fremst verið landfræðileg.

Feb 20, 202026 minSeason 1Ep. 100

#99 Katrín Jakobsdóttir - forsætisráðherra

„Það eru blikur á lofti varðandi fjármögnun björgunarsveita landsins. Við þurfum því að tryggja fjárhagslegt sjálfstæði sveitanna, verði breytingar á flugeldasölu,“ segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra í viðtali í Landsbyggðum á N4. Víða er komið við í viðtalinu, meðal annars uppbyggingu mikilvægra innviða, svo sem raforku, fjarskipti, starfsemi ríkisstofnana og málefni sveitarfélaganna. Katrín segir vera hlynnt því að sveitarfélög sameinist í framtíðinni og verði þannig öflugri....

Feb 20, 202028 minSeason 1Ep. 99

#98 Þorlákur Axel Jónsson - PISA kannanir

Þjóðfélagsstaða skýrir muninn á árangri nemenda á PISA: Þorlákur Axel Jónsson aðjúnkt við Háskólann á Akureyri segir nauðsynlegt að skoða PISA kannanirnar á annan hátt en gert hefur verið hingað til. Einkunnir segir ekki alla söguna. Þorlákur Axel ræddi þetta í Landsbyggðum á N4

Feb 04, 202029 minSeason 1Ep. 98

#97 Ólöf Þ. Hallgrímsdóttir - Vogafjós í Mývatnssveit

Ólöf Þ. Hallgrímsdóttir í Vogafjósi í Mývatnssveit þekkir vel til íslenskrar ferðaþjónustu. „Þetta er frábært! Ég bý í miðborg Parísar og ég var hreinlega búinn að gleyma því hvaðan mjólkin kemur“ „Ég ætla að fá svona segja þeir og benda á myndina í símanum“

Feb 04, 202028 minSeason 1Ep. 97

#96 Þór Sigfússon - Íslenski sjávarklasinn

Íslenski sjávarklasinn opnar nýsköpunarhús í Bandaríkjunum í mars, starfsemin verður með svipuðum hætti og í húsi sjávarklasans í Reykjavík. Þar eru um sjötíu fyrirtæki, allt frá nýstofnuðum sprotum sem eru að stíga sín fyrstu skref yfir í útibú rótgróinna fyrirtækja, sem eiga það sameiginlegt að vera hafsækin. Þór Sigfússon stofnandi og eigandi Íslenska sjávarklasans var gestur Karls Eskils Pálssonar í Landsbyggðum.

Feb 04, 202028 minSeason 1Ep. 96
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android