Klefinn með Silju Úlfars - podcast cover

Klefinn með Silju Úlfars

Silja Úlfarsklefinn.is

Í klefanum þá skoðum við hvernig við náum árangri og komumst nær markmiðunum okkar. 

Í Klefanum þá talar allt íþróttafólk sama tungumálið! 

https://klefinn.is/
https://www.instagram.com/klefinn.is/

Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Margrét Lára - Hvernig seturðu þér markmið?

Margrét Lára starfar sem sálfræðingur og leggur áherslu á markmiðasetningu sem hún vinnur oft með íþróttafólki sínu. Í þættinum fer Margrét Lára yfir aðferðir sem hún notar í markmiðasetningu með fólkinu sem hún vinnur með. Markmiðasetning snýst ekki bara um að ná árangri, heldur eykur það einnig sjálfstraustið, er ákveðin streituþjálfun og getur aðsoðað með frammistöðukvíða. Það er mikilvægt að skrifa niður markmiðið og endurskoða þau reglulega. Markmiðasetning hefur víðtæk áhrif á íþróttafólk,...

Oct 31, 202439 minEp. 33

Margrét Lára Viðarsdóttir - Knattspyrnulegend og sálfræðingur

Margrét Lára Viðarsdóttir kíkti í Klefann og fór yfir ferilinn, en hún er ein af farsælustu knattspyrnukonum Íslands, hún starfar í dag sem sálfræðingur við Heil Heilsumiðstöð sem hún rekur ásamt fjölskyldu sinni. Margrét Lára fer yfir ferilinn sinn sem hófst hjá ÍBV, hún fer aðeins yfir liðin sín, lærdóminn og meiðslin sem höfðu mikil áhrif á hana. Margrét lék með öllum landsliðum Íslands á sama tíma, en í dag myndi hún gera þetta öðruvísi. Þá segir hún frá upplifuninni þegar hún sleit krossbön...

Oct 29, 20241 hr 44 minEp. 32

Erlingur Richardsson - handboltaþjálfari

Í þessum þætti ræðum við við Erling Richardsson íþróttafræðing og handboltaþjálfara Austuríska liðsins Mödling og akademíunnar í Vestmannaeyjum. Erlingur ræðir þjálfaraferilinn, reynslu sína að þjálfa í nýju umhverfi, að setja saman teymið sitt, velja fyrirliðann og að byggja upp skipulagða þjálfun fyrir ungt íþróttafólk. Erlingur talar um mikilvægi þess að æfa fleiri íþróttir og seinka sérhæfingu íþróttafólks, þá ræðir hann einnig hugmyndir um hvernig sé hægt að efla íþróttakennslu, mikilvægi f...

Oct 22, 20241 hr 21 minEp. 31

Arnar Sölvi - Íþróttanæringarfræðingur

Arnar Sölvi ræðir næringur íþróttafólks, en hann lærði íþróttanæringarfræði í Liverpool og var nálægt því að landa starfi hjá Tottenham Hotspur sem íþróttafræðingur. Arnar vinnur með íþróttafólki með því markmiði að bæta æfingar og keppnisárangur, ná betri endurheimt, bæta líkamssamsetningu, minnka meiðslahættu og fleira. Margt kom fram í þættinum meðal annars: Hvað á íþróttafólk að fókusa á í næringu? Skipulag, hvað á að borða fyrir og eftir æfingar Morgunæfingar Fæðubótaefni, prótein, kreatín ...

Oct 15, 20241 hr 26 minEp. 30

Lára Hafliðadóttir - Þjálfun kvenna og tíðahringurinn

Lára Hafliðadóttir hefur verið að sérhæfa sig í þjálfun kvenna og er fitness þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Víking. þá er hún einnig að hefja doktorsnám til að skoða fitness hjá konum í fótbolta enn frekar. Lára ræðir hvernig á að þjálfa konur og hún útskýrir tíðahring kvenna og hvernig áhrif hann hefur á æfingar og líkamann og hvað gerist í hverjum fasa í tíðahringnum og að konur ættu að tracka tíðahringinn sinn, þá fer hún einnig yfir hormónabreytingar, getnaðarvarnir og fleira. Það er mik...

Oct 08, 202459 minEp. 29

Brynjar Benediktsson - Soccer & Education USA

Brynjar Benediktsson kom í Klefann og sagði okkur hvernig ungt íþróttafólk getur farið út til Bandaríkjanna á háskólastyrk. Brynjar er eigandi Soccer and Education USA ásamt konu sinni Jónu Kristínu Hauksdóttur. Árlega aðstoða þau um 80 íþróttafólk að fá skólastyrk til Bandaríkjanna í fótbolta, körfubolta, frjálsum, sundi og golfi. Brynjar segir okkur frá ferlinu til að komast út, hann gefur góð ráð fyrir undirbúninginn og hleypir okkur betur inn í þennan Bandaríska heim. Það er gott að huga að ...

Oct 01, 20241 hr 6 minSeason 1Ep. 28

Kristín Þórhallsdóttir - Kraftlyftingakona

Kristín Þórhallsdóttir er sterkasti dýralæknir í heiminum, hún byrjaði í Kraftlyftingum 35 ára og er verðlaunahafi á Heims- og Evrópumeistaramótum, þá hefur hún meðal annars orðið Evrópumeistari og á Evrópumet. Kristín ræðir ferilinn, hvernig hún kynntist íþróttinni og komst hratt í fremstu röð, þá fer hún aðeins yfir Kraftlyftingarnar, en þar er keppt í samanlögðum árangri í hnébeygju, bekkpressu og réttstöðulyftu. Ef þú ert að spá í tölum Kristínar þá á hún 230 kg í hnébeygju, 125 kg í bekkpre...

Sep 24, 20241 hr 16 minSeason 1Ep. 27

EM í götuhjólreiðum

Evrópumótið í götuhjólreiðum fer fram í Belgíu dagana 11.-15. september. Keppt er í tímatöku þar sem þau hjóla 31.2 km, og götuhjólreiðum þar sem Elite konur og U23 hjóla 162 km og Elite karla hjóla 222.8 km. Mikael Schou afreksstjóri Hjólreiðasambands Íslands sagði okkur frá mótinu og umstanginu í kringum það, þá heyrðum við í Elite keppendunum ásamt Davíði sem keppir í U23. Í þættinum ræða þau meðal annars undirbúninginn, næringuna, olnbogana, hvað þarf að huga að og hvernig svona keppni fer f...

Sep 10, 20241 hr 11 minSeason 1Ep. 26

Anton Sveinn Mckee - sundmaður og Ólympíufari

Anton Sveinn McKee sundmaður og fjórfaldur Ólympíufari settist hjá Silju og fóru yfir það hvað er að vera afreksíþróttamaður. Anton gerði upp Ólympíuleikana hvað var öðruvísi og truflaði keppendur einnig ræddi hann hvað er frammundan þegar skýlan nálgast hilluna. Þá sagði hann okkur ítarlega frá hvernig hann setur markmið og hvernig hann brýtur þau niður og hvað hann gerir til að ná þeim, hvernig vinnur hann í andlega þættinum og notar dagbók og sjónmyndaþjálfun. Næringin, æfingarnar og lyftinga...

Sep 03, 20241 hr 11 minSeason 1Ep. 25

Ingeborg Eide - kastari og Paralympics fari

Ingeborg Eide Garðarsdóttirer kúluvarpari úr Ármanni og keppir í flokki F37 í kúluvarpi, en hún er ein af fimm sem keppa fyrir Íslands hönd á Paralympics sem fer fram í París dagana 28. ágúst - 8. september. Ingeborg á Íslandsmetið í kúluvarpi sem er 9.83 m og þá á hún einnig íslandsmetið í kringlukasti. Hún keppir á Paralympics þann 31. ágúst í kúluvarpi. Ingeborg þekkir stórmótin vel en hún á bronz frá Evrópumeistaramótinu 2021 og endaði í 4. sæti á HM í maí. Ingeborg ræðir sinn íþróttaferil, ...

Aug 27, 202457 minSeason 1Ep. 24

Frjálsíþrótta Ólympíu þáttur

Ólympíuleikarnir eru á fullu og það styttist í frjálsíþróttaveisluna. Silja settist niður og tók saman 4 frjálsíþróttafréttir sem henni finnst áhugaverðar sem snúa að frjálsum á Ólympíuleikunum. 4:30 mín - Purple Speed King 9:30 mín - Repechage / endurtekningar umferð 14:00 mín - leiðin að Ól … eða ekki 19:30 mín - Ólympíu verðlauna afhending 12 árum seinna... skellur! Klefinn er í boði Nutrilenk, Útilíf, Hafið fiskverslun og Lemon. Endilega fylgdu Klefanum á instagram....

Jul 31, 202432 minSeason 1Ep. 23

Vésteinn Hafsteinsson - Afreksstjóri ÍSÍ

Vésteinn Hafsteinsson er einn sigursælasti þjálfari okkar Íslendinga og nú er hann fluttur heim og starfar sem Afreksstjóri ÍSÍ. Sem þjálfari þá hefur Vésteinn þjálfað 56 einstaklinga frá 10 löndum sem hafa samanlagt náð í 20 verðlaun á alþjóðlegum stórmótum - þar af 5 verðlaun á ÓL. Hann er nú á leið á sína 11 Ólympíuleika en í nýju hlutverki, hann hefur farið áður sem íþróttamaður, þjálfari og nú sem afreksstjóri og yfir farastjóri. Vésteinn ræðir í þættinum árangur, hugarfar, framtíðina, hvað...

Jul 02, 20241 hr 26 minSeason 1Ep. 22

Hlaupaspjall Klefans í Útilíf

Þann 25. júní vorum við með hlaupaspjall í Útilíf þar sem Afreksfólk Útilífs settist niður með Silju. Þorsteinn Roy og Andrea Kolbeinsdóttir hlauparar svöruðu ýmsum spurningum um hlaup, undirbúning og fleira, þá var einnig Hildur Kristín sjúkraþjálfari með og svaraði spurningum um hlaupara meiðsli og gaf ráðleggingar.. Í þættinum ræða þau upphitun, recovery aðferðir, hreyfiflæði, hlaupaskó, meiðsli og annað sem er gott að hafa í huga. Þetta er klárlega þáttur fyrir hlaupara og þau sem eru að stí...

Jun 26, 202437 minSeason 1Ep. 21

Jón Halldórsson - eigandi KVAN og formaður Vals í handbolta

Jón Halldórsson fór yfir víðan völl þegar hann ræddi leiðtoga, liðsheild, menningu innan liða, Evrópumeistara ævintýri Valsar og fleira. Jón er einn af eigendum KVAN sem er mennta- og þjálfunarfyrirtæki. Einnig er hann formaður handknattleiksdeildar Vals sem átti stórt tímabil bæði hjá konunum og körlunum. Jón ræddi hvernig menningin var sköpuð innan liðsins, hvernig þeir fjármögnuðu Evrópukeppnina og framhaldið hjá bæði kvenna- og karlaliðinu. Þá ræddi hann einnig menninguna innan félagsins hjá...

Jun 18, 202446 minSeason 1Ep. 20

Hafdís Sigurðardóttir - hjólreiðakona Íslands

Hafdís er margfaldur Íslands- og bikarmeistari, en hún keppir bæði í götuhjólreiðum, tímatöku og gravel. Hafdís keppir fyrir Íslands hönd og hefur farið á Evrópumeistaramót sem og Heimsmeistaramót. Hafdís fer með okkur yfir ferilinn, hvað þarf til að ná árangri í hjólreiðum hvernig er að æfa hjólreiðar á Íslandi, einnig þegar það snjóar ennþá í júní. Þá ræðir hún mótin hér heima, samkeppnina og stórmótin úti. Um daginn fóru fimm íslenskar stelpur saman á Tour de feminin og hún segir okkur hverni...

Jun 11, 20241 hr 8 minSeason 1Ep. 19

Helena Sverrisdóttir - fyrrum atvinnukona í körfubolta

Helena er ein farsælasta körfuboltakona Íslands. Helena á nánast öll met sem hægt er að setja í körfuboltanum, en hún lék sinn fyrsta meistaraflokksleik 12 ára og fyrsta landsleik 14 ára. Helena ræðir ferilinn, hún fór í Texas Christian University og náði frábærum árangri þar, en í haust verður hún tekin inn í frægðarhöll TCU. Helena spilaði sem atvinnukona í Slóvakíu, Ungverjalandi og Póllandi, en hún fann mun á að koma úr háskóla “bubblunni” yfir í atvinnumennskuna þar sem þú þarft að standa m...

Jun 04, 202458 minSeason 1Ep. 18

EM í Utanvegahlaupum

Evrópumótið í utanvegahlaupum fer fram í Annecy, Frakklandi dagana 30. maí - 2. júní. Hlaupið er um 60km og um 3900 m hækkun, en hlaupaleiðin er í fjöllunum við Annecy vatn. Við heyrðu í Friðleifi Friðleifssyni liðstjóra og formanns langhlauparanefndar um Evrópumótið og undirbúninginn. Þá heyrðum við einnig í fimm af átta hlaupurum um undirbúninginn fram að hlaupi, taktík, búnað og fleira. Þátturinn er í boði Útilífs , Heilsuhillunnar , Hafið fiskverslun og GoodGood . Hvetjum ykkur til að hlusta...

May 28, 202459 minSeason 1Ep. 17

Arnar Freyr Theodórsson - Umboðsmaður

Arnar Freyr Theodórsson er umboðsmaður handboltamanna. Sjálfur lék Arnar handbolta lengi en fór út í umboðsmennsku þegar hann missti af tækifæri sem hann vildi ekki að aðrir myndu missa af. Arnar Freyr segir okkur frá heimi umboðsmanna og hvað það felur í sér, en sjálfur segist hann vera í þjónustustarfi sem snýst mikið um samskipti. Þá ræðir Arnar einnig hvaða eiginleika hann vill sjá hjá leikmönnum þegar hann skoðar að byrja að vinna með þeim og af hverju íslenskir handboltamenn eru góð söluva...

May 21, 20241 hr 1 minEp. 16

Elísabet Margeirsdóttir - Ofurhlaupari

Elísabet Margeirsdóttir ofurhlaupari var fyrsta konan í heiminum til að klára 400km Ultra-Gobi maraþonið undir 100 klukkustundum. Elísabet fer yfir feril sinn, hvernig hún byrjaði að hlaupa yfir í að vera í eigenda hóps Náttúruhlaupa og hvað starfið er fjölbreytt þar. Elísabet hefur 14 sinnum farið í Laugavegshlaupið, hún segir aðeins frá reynslu sinni úr hlaupinu. Bakgarðurinn hófst 4. maí og lauk þann 6. maí, það var stórskostleg keppni, Elísabet ræðir keppnina, hvernig Bakgarðurinn byrjaði á ...

May 14, 20241 hr 8 minSeason 1Ep. 15

Gréta Salóme - Söngkona, lagahöfundur og fiðluleikari

Gréta Salóme er þekkt fyrir hæfileika sína í tónlist, en til að ná árangri á stóra sviðinu þá þarftu að þora að dreyma, eltast við markmiðin þín og vera skipulögð. Gréta segir okkur frá hvernig hún setur sér markmið, hún segir okkur frá fjórum aðferðum sem hún notar til að ná árangri. Þá ræðir hún einnig hvernig er að vera tónlistarkona, hvernig hún byrjaði að vinna hjá Disney og áskorunum þar. Þá hefst Eurovision í kvöld 7. maí og Gréta Salóme hefur sterkar skoðanir á þátttöku Íslands í Eurovis...

May 07, 20241 hr 2 minSeason 1Ep. 14

Ólympíuhópur staðan 3. maí

Ólympíuleikarnir í París hefjast 26. júlí, en aðeins einn íþróttamaður hefur náð lágmörkum, en það er sundmaðurinn Anton Sveinn McKee. Í Ólympíuhóp ÍSÍ eru 13 íþróttamenn, en það eru þau sem eru að stefna á Ólympíuleikana. Í þessum öðrum þætti þá ræddi Silja við Hákon Þór Svavarsson - haglabyssuskotfimi, Erna Sóley - kúluvarp, Valgarð Reinhards - áhaldafimleikar, Ingibjörg Erla - Taekwondo, Hilmar Örn - sleggjukast. Hvetjum ykkur til að styðja við íþróttafólkið okkar. Þátturinn er í boði Heilsuh...

May 03, 202437 minSeason 1Ep. 13

Birgir Leifur Hafþórsson - fyrrum atvinnu kylfingur

Birgir Leifur Hafþórsson hefur sjö sinnum verið Íslandsmeistari í golfi, þá hélt hann þátttökurétti á Evrópsku mótaröðinni og sigraði áskorendamótaröð Evrópu. Birgir Leifur fer yfir hvernig hann byrjaði og hvað hann hefur lært af sínum ferli. Þá ræðir hann hugarþjálfun og hvernig hann sá fyrir sér hringina, hvaða triggera hann notaði til að komast aftur í gírinn, hvernig hann æfði og hvernig var að keppa á stóru mótunum. Þá gefur hann einnig ýmis ráð, sem enginn golfáhugamaður/kona vill láta fra...

Apr 30, 20241 hr 7 minSeason 1Ep. 12

Ólympíuhópur staðan 26. apríl

Ólympíuleikarnir í París hefjast 26. júlí, en aðeins einn íþróttamaður hefur náð lágmörkum, en það er sundmaðurinn Anton Sveinn McKee. Í Ólympíuhóp ÍSÍ eru 13 íþróttamenn, en það eru þau sem eru að stefna á Ólympíuleikana. Í þessum þætti þá ræddi Silja við Baldvin hlaupara , Thelmu fimleikakonu , Guðlaugu Eddu þríþrautakonu og Guðna Val kringlukastara um hvernig gengur að komast á Ólympíuleikana, hvað er framundan og fleira. Hvetjum ykkur til að styðja við íþróttafólkið okkar. Þátturinn er í boð...

Apr 26, 202436 minSeason 1Ep. 11

Logi Geirsson - Silfurverðlaunahafi á Ólympíuleikunum

Logi Geirsson er handknattleiksmaður uppalinn í FH, lék með Lemgo í 6 ár, var í silfurliðinu á á Ólympíuleikunum 2008 í Peking og bronz liðinu á EM 2010. Logi ræðir hvernig hann setti sér markmið og náði þeim, þá ræðir hann hvað hugarfarið skiptir miklu máli hjá íþróttafólki og visualization, hann segir frá því þegar hann tók útihlaupin upp í rúmi. Hvernig á að tækla meiðsli, hvað sjálfstraust er mikilvægt og að þú getur allt sem þú vilt, þú þarft að vita hvert markmiðið er og hefjast handa. Það...

Apr 23, 202453 minEp. 10

Kári Steinn Karlsson - hlaupari og Ólympíufari

Kári Steinn Karlsson keppti í Maraþoni á Ólympíuleikunum 2012 í London, en það var hans þriðja maraþon frá upphafi. Hann á 17 virk Íslandsmet ennþá í dag, en hefur aldrei orðið Íslandsmeistari í maraþoni. Kári Steinn er aðeins byrjaður að hlaupa aftur og setti meðal annars brautarmet í hlaupi 2023. Kári fór í háskólann Berkeley í California, en þar var hlaupamenningin öðruvísi. Þá ræðir hann maraþonið á Ólympíuleikunum og undirbúninginn fyrir Ól. Kári Steinn er aðeins 37 ára í dag, en hlaupa men...

Apr 16, 202452 minSeason 1Ep. 9

Tinna Jökulsdóttir - Sjúkraþjálfari - Fókus Þjálfun

Tinna Jökulsdóttir er sjúkraþjálfari í Sporthúsinu og eigandi Fókus þjálfunar. Tinna kemur úr handboltanum og er meðal annars sjúkraþjálfari íslenska kvennalandsliðsins í handbolta. Hvað er fókus þjálfun ? Þetta eru æfingar sem snúa að meiðslafyrirbyggjandi þáttum ásamt því að auka við færni hvers og eins leikmanns. Lögð er áhersla á liðkun, hreyfiteygjur, líkamsbeytingu, snerpu og samhæfingar þjálfun. Einnig er farið í jafnvægis- og styrktaræfingar þar sem unnið er með stöðugleikakerfið. Við hv...

Apr 09, 202446 minSeason 1Ep. 8

Helgi Valur Pálsson - Íþróttasálfræðingur

Helgi Valur Pálsson er íþróttasálfræðingur og deilir með okkur leiðum til að fá sem mest út úr íþróttunum (og lífinu). Helgi Valur æfði knattspyrnu á sínum yngri árum en glímdi við meiðsli sem hafði áhrif á hans feril. Helgi Valur ákvað að snúa sér að íþróttasálfræði þar sem hann vildi aðstoðað annað íþróttafólk í sínum meiðslum. Helgi Valur fer um víðan völl og talar meðal annars um sjálfstraust, meiðsli, kvíða, hugarþjálfun, að setja sér markmið, skynmyndarþjálfun, spennustjórnun, einbeitingu,...

Apr 01, 20241 hr 27 minSeason 1Ep. 7

Dwight Phillips - 2/2 - World- and Olympic Champion - the Coach

Dwight Phillips er fyrrum Ólympíu- og Heimsmeistari í langstökki. Dwight sigraði Ólympíuleikana 2024 í Athens, þá hefur hann fimm sinnum orðið Heimsmeistari í langstökki. Þetta er seinni þátturinn af tveimur, en í fyrri þættinum ræddu þau feril hans, öll stórmótin, sigrana og allt sem fylgir því. Dwight ræðir hvað einkennir góðan þjálfara, hvernig hann þjálfar afreksfólkið og unga íþróttafólkið, þau ræða hraðaþjálfun, framfarir í frjálsum íþróttum og fleira. Við hvetjum ykkur til að hlusta, við ...

Mar 28, 202433 minSeason 1Ep. 6

Dwight Phillips - World and Olympic Champion - the Athlete 1/2

Dwight Phillips er fyrrum Ólympíu- og Heimsmeistari í langstökki. Dwight sigraði Ólympíuleikana 2024 í Athens, þá hefur hann fimm sinnum orðið Heimsmeistari í langstökki. Við fórum yfir ferilinn hans, ræddum stórmótin, hvað gekk vel og hvað gekk illa, hann segir frá mistökunum sem hann gerði og fer yfir það hvernig það er að keppa á stærstu sviðunum. Þá ræðir hann einnig hvernig hann hafði trú á sjálfum sér og að að þurfi að vera traust milli íþróttamanns og þjálfara. Silja og Dwight æfðu saman ...

Mar 26, 202450 minSeason 1Ep. 5

Sólveig Þórarinsdóttir - Sjúkraþjálfari

Sólveig Þórarinsdóttir er sjúkraþjálfari hjá Sjúkraþjálfun Íslands. Sólveig æfði knattspyrnu á sínum yngri árum en meiðsli settu strik í hennar feril og nú brennur hún fyrir því að fyrirbyggja meiðsli ungs íþróttafólks. Sólveig talar um rannsóknir á konum og körlum í knattspyrnum (p.s. prósentan er sjokkerandi), en konur eru ekki litlir karlar. Hún talar um FITTOPLAY.ORG þar sem hægt er að finna fyrirbyggjandi æfingar fyrir allar íþróttagreinar, við hvetjum ykkur til að kíkja á þessa heimasíðu. ...

Mar 19, 202447 minSeason 1Ep. 4
Hosted on Buzzsprout
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android