Ein besta recovery aðferð íþróttafólks er svefn, Dr. Erla Björnsdóttir kom í Klefann og fræddi okkur meira um það. Erla er stofnandi og framkvæmdagstór Betri Svefns, hún er sálfræðingur, doktor í líf- og læknavísindum og með sérþekkingu á hugrænni atferlismeðferð við svefnleysi. Erla ræddi svefnvenjur, áhrif svefns á heilsuna, hvað er gott svefn umhverfi og sagði okkur hvers vegna svefn er mikilvægur fyrir íþróttafólk. Hvað áttu að gera ef þú ert andvaka eða átt erfitt með að vakna á morgnanna. ...
Jun 10, 2025•43 min•Ep. 62
Hreiðar hjá Haus Hugarþjálfun aðstoðar íþróttafólk, foreldra og þjálfara að byggja upp hugarfarslega þætti eins og sjálfstraust, einbeitingu og liðsheild. Hugarþjálfun er eitthvað sem íþróttafólk ætti að skoða. Hreiðar ræðir þægindahringinn og hvernig við stækkum hann, hvernig við eigum að fókusa á það sem við stjórnum, hvernig hugrekki skiptir máli, þá fer hann yfir kvíða, stress og segir frá sinni nálgun í markmiðasetningu með íþróttafólki. Hvetjum þig til að hlusta. Frekari upplýsingar finnur...
Jun 03, 2025•1 hr 28 min•Ep. 61
Nýkrýndur þjálfari Íslandsmeistari karla í Körfubolta mætti í Klefann og fór víða, Baldur fór yfir þjálfaraferilinn, þjálfun, styrktarþjálfun körfuboltafólks, hugarfarið og hans þjálfara speki. Hvernig hann skapar liðsheildina, teymið í kringum liðið, traust milli þjálfara og leikmanna, hlutverk þeirra, foreldravandamál og margt fleira. Þá fór hann með okkur yfir úrslitarimmuna og hvernig hann skoðaði leikina og lagði áherslur á. Hann sagði okkur hvernig hann nýtti umfjöllunina til að búa til sv...
May 27, 2025•1 hr 39 min•Ep. 60
Birgir Sverrisson framkvæmdastjóri Lyfjaeftirlits Íslands er sestur hjá mér og við ætlum að ræða lyfjamál. Á heimasíðu Lyfjaeftirlitsins stendur að hlutverk þeirra sé fyrst og fremst að vernda hreint íþróttafólk og standa vörð um að íþróttir séu iðkaðar á jafnréttisgrundvelli. Lyfjapróf Bannlistar ADHD lyf Fæðubótaefni og margt fleira Þá er einnig farið inn á hagræðingu úrslita og veðmál sem það tengist heilindum í íþróttum eins og lyfjamálin. Þetta er klárlega þáttur sem íþróttafólk og/eða fore...
May 20, 2025•1 hr 10 min•Ep. 59
Davíð Snorri Jónasson aðstoðarþjálfari A-landsliðs karla kom í Klefann og ræddi starfsemi KSÍ og hugmyndafræði þeirra varðandi uppbyggingu leikmanna frá unga aldri upp í atvinnumennsku. Davíð hefur starfað sem þjálfari hjá Leikni, allt frá yngri flokkum upp í meistaraflokk. Þá hefur Davíð þjálfað yngri landslið Íslands og er nú aðstoðarþjálfari A-landsliðsins, en hann er með KSÍ Pro gráðuna sem gerir honum kleift að þjálfa á efsta stigi. Davíð ræðir þróunina sem hefur verið hjá KSÍ síðustu ár, h...
May 13, 2025•1 hr 31 min•Ep. 58
Ólafur Björn Loftsson er afreksstjóri Golfsambands Íslands og einn reyndasti kylfingur landsins. Ólafur á að baki glæsilegan feril sem landsliðskylfingur, þá var hann Íslandsmeistari í golfi og fyrsti Íslendingurinn til að keppa á PGA-mótaröðinni í Bandaríkjunum. Hann hefur einnig starfað sem framkvæmdastjóri PGA á Íslandi. Í spjallinu fer hann yfir: Vegferð sína sem afrekskylfings, reynslu hans á bandaríska háskólakerfinu og hvernig hann aðstoðar ungt afreksfólk við að komast í skóla með golfst...
May 06, 2025•1 hr 32 min•Ep. 57
Jimmy Ekstedt er Svíi með sterkar tengingar við Ísland, hann þjálfar hér á landi og er giftur íslenskri konu og saman eiga þau tvær stúlkur. Þegar þátturinn var tekinn var hann landsliðsstjóri sænska fimleikasambandsins en hefur nú sagt upp störfum þar og tekið að sér verkefni á Íslandi. Þótt Jimmy komi úr fimleikunum þá hefur hann þjálfað íþróttafólk úr öllum íþróttum, þátturinn er því fyrir fólk sem hefur áhuga á íþróttum unglinga og afreksfólks! Jimmy ræðir þjálfarahlutverkið, hvað gerir góða...
Apr 29, 2025•1 hr 20 min•Ep. 56
Gestur Pálma hefur komið víða við, hann er meðal annars fyrrum sérsveitarmaður og segir okkur frá því ferli. Í dag starfar hann sem stjórnenda þjálfari hjá Complete og sagði okkur frá áhugaverði nálgun stjórnenda. Gestur hefur unnið með mikið af íþróttafólki og þá hefur hann aðstoðað hlaupara í bakgarðinum og ræðir sumar áskoranir þeirra. Gestur ræðir leiðtoga og hvernig þú færð liðið til að vinna vel saman og svo er hann að vinna með Formúlu 1 liði og segir okkur aðeins frá því. Streita, starte...
Apr 15, 2025•1 hr 30 min•Ep. 55
Perla Ruth Albertsdóttir er landsliðskona í handbolta, hún mætti á sína fyrstu handboltaæfingu 17 ára og segir okkur frá því þegar hún byrjaði, hvernig hún æfði með yngri flokkum til að fá verkefni við hæfi og eyddi mörgum kvöldum að henda bolta í vegg til að læra grunnatriðin. Perla segir frá vegferð sinni í landsliðið eftir að hafa byrjað frekar seint í handbolta, en hún á 157 leiki með íslenska landsliðinu og hefur skorað í þeim 138 mörk. Í gær tilkynnti hún að hún væri ólétt af sínu öðru bar...
Apr 08, 2025•50 min•Ep. 54
Pétur Rúnar Heimisson er markaðs- og þjónustustjóri hjá fasteignafélaginu Heimum. Pétur hvetur íþróttafélög til að leggja meira áherslu á markaðsmál því það muni skila sér á endanum til félagsins. Núna er úrslitakeppnin hafin í handbolta og körfubolta og knattspyrnu tímabilið að hefjast, hvað eru íþróttafélögin að gera á samfélagsmiðlum. "Vörumerki íþróttafélaga eru með þeim verðmætustu á Íslandi. Á sama tíma er markaðsstarfi þeirra stýrt af sjálfboðaliðum." Farið víðan völl í þættinum - Vörumer...
Apr 04, 2025•1 hr 15 min•Ep. 53
Sigrún Haraldsdóttir er eigandi Happy Hips , sem er æfingakerfi þar sem hún blandar saman bandvefsnudd, hreyfiflæði, teygjur og slökun til að fá sem mest út úr líkamanum. Hún mætti með Beinu með sér og við skoðuðum líkamann og hvernig við getum látið hann vinna með okkur. Sigrún fór yfir margt í þættinum eins og: Hvernig við rúllum okkur og hvað gerist í líkamanum Hvernig bolta viljum við frekar og af hverju Hvenær á ungt fólk að byrja að rúlla sig Hvað er bandvefur (spiderman gallinn) og hvað g...
Mar 04, 2025•1 hr 33 min•Ep. 52
Viran Morros þykir einn besti varnarmaðurinn í handbolta síðustu 20 ára. Viran er spænskur 41 árs retired handboltamaður sem lék meðal annars með Barcelona Ciudad Real, Paris saint-germain, Fuchse Berlin og fleirum. Viran á bronz frá Ólympíuleikunum, þrjár medalíur frá Heimsmeistaramótinu og fjórar frá Evrópumeistaramótinu, þá hefur hann þrisvar sinnum unnið Meistaradeild Evrópu með Barcelona. Viran hefur meðal annars spilað með Ólafi Stefáns, Guðjóni Val, Aroni Pálmars og Sigfúsi Sigurðssyni og...
Feb 25, 2025•1 hr 56 min•Ep. 51
Kristinn Jónasson er lögmaður og eigandi hjá KPMG Law. Kristinn er einnig formaður körfuboltans í Haukum, en sjálfur lék hann með Haukum lengi. Þá er hann einnig einn af stofnendum körfuboltaliðs Hauka Special Olympics liðsins. Undanfarið hefur verið rætt um skattalegt regluverk í tengslu m við íþróttafélög, sem er mikið áhyggjuefni innan íþróttahreyfingarinnar. Kristinn skrifaði grein " Íþróttahreyfingin glímir við skattyfirvöld " og hélt fyrirlestur um viðfangsefnið. Þetta snertir íþróttalí...
Feb 18, 2025•1 hr 26 min•Ep. 50
Unnar Helgason er Osteopati og þjálfari, hann segir okkur frá samvinnu hans og Gunnars Nelsons sem á nú bardaga í mars. Þá vinnur hann með Eygló Fanndal sem keppir í Ólympískum lyftingum og hefur komið einmitt í Klefann. Þá hefur hann einnig unnið með fólki frá Hollywood þegar þau eru í tökum hér á landi og segir okkur aðeins frá því. Unnar fer yfir ýmislegt tengt líkamanum, axlaræfingar, mjaðmir, kálfar og fleira. Þá segir hann okkur hvað Osteopadia er og hvað hann gerir með sínum kúnnum. Þá ræ...
Feb 11, 2025•1 hr 36 min•Ep. 49
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir 23 ára er leikmaður leikmaður Bayer Leverkusen í þýsku úrvalsdeildinni, en er á láni frá Bayern Munich. Karólína er ein af lykil leikmönnum íslenska kvennalandsliðsins, hún hefur leikið um 50 leiki með landsliðinu og ræðir EM sem fer fram í Sviss í sumar og stemmninguna í landsliðinu. Karólína fer yfir ferilinn og leiðina að atvinnumannaferlinum í Þýskalandi, hvernig gekk að aðlagast og hvernig æfingavikurnar eru uppsettar. Hún ræðir mótlæti og að það geti verið kref...
Feb 04, 2025•1 hr 5 min•Ep. 48
Dr. Birna Varðardóttir hefur síðustu 10 ár verið að mennta sig í því sem tengist næringu og þjálfun, þá hefur hún mikið verið að skoða hlutfallslegan orkuskort í íþróttum, eða það sem við köllum REDs (Relative Energy Deficiency in sport). Á sínum tíma glímdi Birna við átröskun og þar af leiðandi langaði hana að skilja betur hvað gerðist í líkamanum og hvers vegna. Birna gerði doktorsverkefnið sitt um REDs og fer aðeins yfir niðurstöðurnar ásamt því að ræða um átröskun, endurheimt, næringu og fle...
Jan 21, 2025•1 hr 2 min•Ep. 47
Bæði Logi Geirs og Aron Pálma hafa kíkt í Klefann og rætt sinn feril, margt svipað með þeim og greinilegt að Logi hafði allskonar áhrif á Aron. Það er fyndið að bera saman sumar sögurnar þeirra, hér eru einhverjar sögurnar klipptar saman. Hlustaðu hér á Loga Geirsson. Hlustaðu hér á Aron Pálmarsson. Nú eru þeir í sviðsljósinu á HM á sitthvorum vettvangnum og þá er gaman að rifja upp eitt og annað. Ég hef nú ekki áður tekið svona saman, en væri gaman að heyra hvort þið hafið gaman af - sendu mér ...
Jan 19, 2025•21 min
Aron Pálmarsson einn besti handboltamaður Íslands og jafnvel einn sá besti í heimi. Aron hefur leikið með mörgum af bestu liðum heims eins og Kiel, Veszprém, Barcelona, Álaborg og FH. Aron hefur unnið marga af helstu titlum í Evrópu, verið íþróttamaður ársins, rookie of the year í Þýskalandi, valinn í All Star Team á Ólympíuleikunum, MVP í Championship league og fleira. Aron fer yfir ferilinn, segir okkur sögur frá hverjum stað, eins og þegar öfuga jólatréð mætti til Kiel og að það borgi sig ekk...
Jan 14, 2025•1 hr 42 min•Ep. 46
Elísabet hefur verið aðalþjálfari knattspyrnuliðs í 30 ár, í 15 ár stýrði hún liði Kristianstads í sænsku úrvalsdeildinni með frábærum árangri. Hún hefur tvisvar sinnum verið útnefndur þjálfari ársins hjá sænsku úrvalsdeildinni og hefur meðal annars hlotið Fálkaorðuna fyrir sín störf í þágu kvenna knattspyrnu. 2023 hætti hún hjá Kristianstad til að róa á önnur mið og við bíðum spennt að sjá hvað hún tekur sér fyrir hendur. Elísabet segir frá sínum fyrstu skrefum sem þjálfari, ræðir liðin og ásko...
Jan 07, 2025•1 hr 37 min•Ep. 45
Eygló Fanndal Sturludóttir er 23 ára læknanemi og ein sú besta í Ólympískum Lyftingum í -71 kg flokki. Í ár hefur Eygló sannað sig sem eitt af framtíðarstjörnum í Ólympískum lyftingum, hún varð Norðurlandameistari, Íslandsmeistari, Evrópumeistari U23 og í 4rða sæti á Heimsmeistaramótinu núna í desember. Þá var hún hársbreidd frá því að komast inn á Ólympíuleikana og ræðir um áætlanir hennar fram að 2028 Ólympíuleikunum. Í Ólympískum lyftingum er keppt í Snörun og Jafnhendingu (clean & jerk),...
Dec 30, 2024•1 hr 2 min•Ep. 44
Guðbjörg Gunnarsdóttir er fyrrum markvörður sem lék með öllum yngri landsliðum Íslands ásamt A landsliði Íslands, yfir 100 landsleiki. Þá var hún atvinnukona frá 2009-2022 þar sem hún spilaði með 6 erlendum liðum í Svíþjóð, Noregi og Þýskalandi. Í dag starfar hún sem markmannsþjálfari hjá yngri landsliðum sænska knattspyrnusambandsins, ásamt því að halda í fyrirlestra fyrir sænska sambandið sem snúast um markmannsþjálfun, þróun markvarða og hvernig best er að leggja upp æfingar fyrir markmenn. Þ...
Dec 23, 2024•1 hr 22 min•Ep. 43
Snorri Steinn Guðjónsson er landsliðsþjálfari íslenska karla landsliðsins í handbolta sem undirbýr sig nú fyrir Heimsmeistaramótið sem fer fram í janúar. Snorri Steinn spilaði 257 leiki fyrir íslenska landsliðið, þá var hann einnig atvinnumaður í Danmörku, Þýskalandi og Frakklandi. Snorri ræðir landsliðsþjálfara starfið, aðdraganda Heimsmeistaramótsins og hvernig rútínan þeirra er úti. Snorri ræðir ferilinn, silfurverðlaunin og deilir reynslu sinni af mótlæti, meðal annars að klikka á mikilvægu ...
Dec 17, 2024•1 hr 33 min•Ep. 42
Arnar Páll Gunnlaugsson frá Sósíalistaflokknum kom í Klefann til að ræða íþróttatengd málefni og framtíð íþrótta á Íslandi. Þátturinn er í boði: Auður, Hafið fiskverslun, Lemon og Nutrilenk. Tímalína: 4:50 - Fjármagn til íþróttahreyfingarinnar 13:05 - þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi 18:15 - Brottfall og stytting menntaskóla 24:10 - Þjóðarhöllin og Þjóðarleikvangurinn 25:50 - Veðmálastarfsemi á Íslandi Þú finnur okkur á Instagram: @klefinn.is @meistariarnar @siljaulfars @sosialistaflokkurinn...
Nov 14, 2024•29 min•Ep. 41
Ásmundur Einar Daðason frá Framsókn kom í Klefann til að ræða íþróttatengd málefni og framtíð íþrótta á Íslandi. Þátturinn er í boði: Auður, Hafið fiskverslun, Lemon og Nutrilenk. Tímalína: (Ásmundur snertir þessi atriði út um allt í þættinum en tímalínan er gróf). 15:55 - Fjármagn til íþróttahreyfingarinnar 33:45 - þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi 40:15 - Brottfall og stytting menntaskóla 48:42 - Þjóðarhöllin og Þjóðarleikvangurinn 58:35 - Veðmálastarfsemi á Íslandi Þú finnur okkur á Instagr...
Nov 14, 2024•1 hr 3 min•Ep. 40
Theodór Ingi Ólafsson frá Pírötum kom í Klefann til að ræða íþróttatengd málefni og framtíð íþrótta á Íslandi. Þátturinn er í boði: Auður, Hafið fiskverslun, Lemon og Nutrilenk. Tímalína: 8:25 - Fjármagn til íþróttahreyfingarinnar 17:10 - þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi 21:25 - Brottfall og stytting menntaskóla 26:20 - Þjóðarhöllin og Þjóðarleikvangurinn 28:05 - Veðmálastarfsemi á Íslandi Þú finnur okkur á Instagram: @klefinn.is @teddilebig @siljaulfars @piratar...
Nov 13, 2024•33 min•Ep. 39
Hannes S. Jónsson frá Samfylkingunni kom í Klefann til að ræða íþróttatengd málefni og framtíð íþrótta á Íslandi. Þátturinn er í boði: Auður, Hafið fiskverslun, Lemon og Nutrilenk. Tímalína: 12:00 - Fjármagn til íþróttahreyfingarinnar 31:45 - Þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi 37:37 - Brottfall og stytting menntaskóla 45:30 - Þjóðarhöllin og Þjóðarleikvangurinn 50:50 - Veðmálastarfsemi á Íslandi Þú finnur okkur á Instagram: @klefinn.is @hannes_sigurbjorn @siljaulfars @xs_samfylkingin...
Nov 13, 2024•1 hr 1 min•Ep. 38
Hanna Katrín Friðriksson frá Viðreisn kom í Klefann til að ræða íþróttatengd málefni og framtíð íþrótta á Íslandi. Hér má sjá stefnu Viðreisnar um Íþróttir og tómstundir. Þátturinn er í boði: Auður, Hafið fiskverslun, Lemon og Nutrilenk. Tímalína: 7:50 - Fjármagn til íþróttahreyfingarinnar 23:45 - þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi 29:25 - Brottfall og stytting menntaskóla 37:50 - Þjóðarhöllin og Þjóðarleikvangurinn 40:35 - Veðmálastarfsemi á Íslandi Þú finnur okkur á Instagram: @klefinn.is @ha...
Nov 12, 2024•46 min•Ep. 36
Bjarki Hjörleifsson frá Vinstri Grænum kom í Klefann til að ræða íþróttatengd málefni og framtíð íþrótta á Íslandi. Þátturinn er í boði: Auður, Hafið fiskverslun, Lemon og Nutrilenk. Tímalína: 5:10 - Fjármagn til íþróttahreyfingarinnar 14:20 - Þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi 23:40 - Brottfall og stytting menntaskóla 31:14 - Þjóðarhöllin og Þjóðarleikvangurinn 35:52 - Veðmálastarfsemi á Íslandi Þú finnur okkur á Instagram: @klefinn.is @bjarkihj @siljaulfars @vinstrigraen...
Nov 12, 2024•42 min•Ep. 37
Anton Sveinn McKee frá Miðflokknum kom í Klefann til að ræða íþróttatengd málefni og framtíð íþrótta á Íslandi. Þátturinn er í boði: Auður, Hafið fiskverslun, Lemon og Nutrilenk. Tímalína: 8:00 - Fjármagn til íþróttahreyfingarinnar 20:30 - Þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi 25:00 - Brottfall og stytting menntaskóla 27:50 - Þjóðarhöllin og Þjóðarleikvangurinn 29:30 - Veðmálastarfsemi á Íslandi Þú finnur okkur á Instagram: @klefinn.is @antonmckee @siljaulfars @midflokkurinn...
Nov 11, 2024•35 min•Ep. 35
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir frá Sjálfstæðisflokknum kom í Klefann til að ræða íþróttatengd málefni og framtíð íþrótta á Íslandi. Þátturinn er í boði: Auður, Hafið fiskverslun, Lemon og Nutrilenk. Tímalína: 5:50 - Fjármagn til íþróttahreyfingarinnar 17:40 - þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi 25:45 - Brottfall og stytting menntaskóla 32:00 - Þjóðarhöllin og Þjóðarleikvangurinn 34:20 - Veðmálastarfsemi á Íslandi Þú finnur okkur á Instagram: @klefinn.is @aslaugarna @siljaulfars @sjalfstaedis...
Nov 11, 2024•41 min•Ep. 34