Kjaftæði - podcast cover

Kjaftæði

Délítanwww.facebook.com
Kjaftæði! með Délítunni er spjall- og leikjaþáttur þar sem Délítan (Dagur, Viktor Ingi, og Palli) fær fólk til að ljúga upp í opið geðið á sér. Í hverjum þætti mætir gestur og segir áhugaverðar og skemmtilegar sögur úr sínu lífi en laumar einni lygasögu með. Drengirnir í Délítunni setjast í yfirheyrslusætin og spyrja gestina spjörunum úr til að komast að því hvað er sannleikur og hvað er kjaftæði.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Kjaftæði #038 - Wake me up before you GóGó [GóGó Bergmann]

GóGó Bergmann kom til okkar á dögunum og sagði okkur frá sífellt banvænni sögum um Netflix, útskriftir og Hafnfirsk költ. Pörupiltarnir okkar reyna eftir fremsta megni að greina úr hvað er satt og hvað er lygi í þrítugastaogáttunda þætti af Kjaftæði!

Oct 19, 202348 min

Kjaftæði #037 - High on life, beint úr buxunum! [Ylfa Marín]

Ylfa Marín kom til okkar á dögunum og sagði okkur furðusögur af manna(kvenna)villtum, búðarflassi og rothöggum! Grallararnir grúska sem mest þeir geta og reyna að komast að sannleikanum í þrítugastaogsjöunda þættinum af Kjaftæði!

Oct 03, 202344 min

Kjaftæði #036 - Ómerkilegar Sögur [Délítan]

Palli, Dagur og Viktor ljúga hvor annan fullan í þetta sinn. Sögur af köngulóamanninum, dracco köllum og háskalegum glæfraakstri. Komist að Sannleikanum í þrítugastaogsjötta þætti af Kjaftæði!

Sep 19, 202339 min

Kjaftæði #032 - Gigg, nudd og sóló [Veigar Margeirsson]

Tónskáldið Veigar Margeirsson kom til okkar á dögunum og sagði okkur frá þremur "misskilningum" sem hann hafði lent í, hvor öðrum lygilegri. Strákarnir köfuðu í þá og leituðu að sannleikanaum í þrítugasta-og-öðrum þætti af Kjaftæði!

Jul 25, 202353 min

Kjaftæði #028 - Gode venner på Roskilde [Villi Neto]

Eftir ílangt páskafrí snúa fræknu lygabanarnir aftur! Sestur í stólinn er enginn annar en Villi Netó og sagði hann okkur sögur af tölfræðilegum ólíkindum á Hróarskeldu, þreyttum fótboltaköppum á Spáni og róðrarafrekum sínum. Komist að sannleikanum í tuttugastaogáttunda þætti af Kjaftæði!

May 16, 202353 min

Kjaftæði #026 - Hvar hef ég EKKI pissað?! [Askur Nielsen]

Palli er týndur! Þannig að Askur kom til okkar og sagði okkur fræknar sögur af líkamsvessum af öllum toga; pissi, svita og pöddum. Pöddum?? Pöddum. Okkur til halds og traust stökk Brimrún inn í staðinn fyrir Palla og hjálpaði okkur að komast að sannleikanum í tuttugastaogsjötta þætti af Kjaftæði!

Mar 29, 20221 hr 3 min

Kjaftæði #024 - Varúð! Táneglur [Ólafur Jóhann Steinsson]

Uppkastari, Tik Tokkari, Olif! Óli kom til okkar á dögunum og sagði okkur frá Svíþjóð, Spáni og tánöglum. allt lönd í Evrópu. Eitt þessara landa er uppspuni frá rótum. Komist að sannleikanum í tuttugastaogfjórða þættinum af Kjaftæði!

Mar 15, 202249 min

Kjaftæði #023 - Katla rassar forsetann [Katla Njálsdóttir]

Leikkona, söngkona og verðandi háskólanemi! Katla kom til okkar og sagði okkur frá sænsku ofurstjörnunni Jake Gyllenhal, kúkaferð á Esju og forsetarössun. Komist að lyginni í tuttugastaogþriðja þættinum af Kjaftæði!

Mar 08, 202241 min

Kjaftæði #022 - Leikskólaglæpir [Ólöf Tara]

Einkaþjálfari, femínisti og grjótharður Öfgi. Ólöf Tara kom til okkar og sagði okkur frá því þegar hún reyndi að brenna niður hús móður sinnar, láta sig hverfa á Spáni og verða fjögurra ára mafíósi. Ein þessara sagna er lygi, en hver? Komist að sannleikanum í tuttugastaogöðrum þætti af Kjaftæði!

Mar 01, 202241 min

Kjaftæði #021 - Næstum því í Nylon [Margrét Erla Maack]

Fjöllistadís, Fjölmiðlakona, Danskennari, Karókíáhugamanneskja, Plötusnúður, Pistlahöfundur, Verkefnastjóri, Sirkuslistakona, Kabarett, Skemmtikraftur, Heimskona, Mataráhugamanneskja, Móðir, Kærasta, Íbúðareigandi, Miðbæjarrotta, Fegurðardís, Dóttir, Systir, Barnabarn, Letidýr ofl. Margrét Erla Maack kom og sagði frá ofurhetjuuppruna sínum, slæmum ömmum og öfum og Nylonkeppninni frægu. En hún, sem aðrir, lýgur og ein þessara saga er haugalygi. En hver þeirra? Komist að því í tuttugasta og fyrsta...

Feb 22, 202246 min

Kjaftæði #020 - Trúðurinn á Titanic [Jón Haukdal]

Söngvari, bangsi, trúður. Jón Haukdal kom til okkar á dögunum og sagði okkur frá byssuævintýri á Spáni, örlögum Títanikks og bestu afmælisveislunni. Ein þessara sagna er lygi, en hver? Komist að sannleikanum í tuttugasta(!) þættinum af Kjaftæði!

Feb 15, 202258 min

Kjaftæði #019 - Hvernig ég kynntist mömmu þinni [Sigurboði Grétarsson]

Tónlistarmaður, tattúartisti, víkingur. Sigurboði bað okkur um að setjast niður á meðan hann sagði okkur fræknar sögur af ruslfæði, dýrum bónorðum og öskuillum prinsessum. Einhver sagna hans var að sjálfsögðu hrein og tær lygi, en hver þeirra? Komist að því í nítjánda þættinum af Kjaftæði!

Feb 08, 202253 min

Kjaftæði #017 - Lygar úr Latabæ [Máni Svavarsson]

Tónskáld, Techno Tarfur og Konungur Mánavirkis! Eða hvað? Máni Svavarsson kom til okkar á dögunum og sagði okkur frá virkjum, norðmönnum og tónlistarþjófum. Ekki er allt með felldu og kapparnir í Délítunni komast að sannleikanum í sautjánda þættinum af Kjaftæði!

Jan 25, 202248 min

Kjaftæði #016 - Högni, þú ert rækja! [Agnes Halla]

Podcast stjórnandi, Tik-Tokkari, Tignarleg Tæfa. Hún Agnes Halla kom til okkar og sagði okkur frá þrísommi með grimmum afleiðingum, einvígi Högna og Sigfinns og hvernig allt rann saman á Vogi. Komist að því hvar lygin liggur í sextánda þættinum af Kjaftæði!

Jan 18, 202254 min

Kjaftæði #015 - Annie Lennox kaupir hest [Hugleikur Dagsson]

Grínisti, myndasöguteiknari, rithöfundurinn. Hugleikur Dagsson kom til okkar með látum og sagði okkur fræknar sögur af absinthubar í Austur-Evrópu, endurfæðingu í Þjóðleikhúsinu og strangkristna bandinu Scooter. Ekki er allt sem sýnist og munu drengirnir komast að sannleikanum í fimmtánda þættinum af Kjaftæði!

Jan 11, 20221 hr 1 min

Kjaftæði #014 - Kjarnorkuver undir Hlemmi [Dagur, Palli og Viktor]

Pörupiltarnir í Délítunni hefja nýja árið með ennþá sturlaðri, vitlausari og ótrúverðugari sögum en nokkru sinni fyrr. Hvort sem þær tengjast bankaráni, geislavörnum eða stórhættulegum fiskum þá er aldrei að vita hvað er satt eða lygi í fjórtánda þættinum af Kjaftæði!

Jan 04, 202235 min
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android