Kjaftæði - podcast cover

Kjaftæði

Délítanwww.facebook.com
Kjaftæði! með Délítunni er spjall- og leikjaþáttur þar sem Délítan (Dagur, Viktor Ingi, og Palli) fær fólk til að ljúga upp í opið geðið á sér. Í hverjum þætti mætir gestur og segir áhugaverðar og skemmtilegar sögur úr sínu lífi en laumar einni lygasögu með. Drengirnir í Délítunni setjast í yfirheyrslusætin og spyrja gestina spjörunum úr til að komast að því hvað er sannleikur og hvað er kjaftæði.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Kjaftæði #013 - Hamfarir og höfuðhögg [Unnur Jónsdóttir]

Kvikmyndagerðakona, klippari, verðlaunahafi. Unnur Jónsdóttir kom til okkar á dögunum og sagði okkur að hún hefði fengið ýmislegt í höfuðið, sem og læknavask, nemendafót og leikaralim. En skyldi hún vera að segja satt? Að því ætla drengirnir að komast að í þrettánda þættinum af Kjaftæði!

Dec 28, 20211 hr 2 min

Kjaftæði #012 - Dramatík í Djúpinu [Berglind Halla]

Leikkona, teiknari og nýbökuð mamma. Hún Berglind Halla kom til okkar á dögunum og sagði okkur frá svaðilförum í djúpinu, hvítunni í Frakklandi og týndum tíma í Disneylandi. Þá fór nú að syrta í álinn því ólikt öðrum þáttum höfðu dáðadrengirnir í Délítunni ekki hugmynd um hvort ein eða tvær sögur voru kjaftæði. Komist að því í tólfta þættinum af Kjaftæði!

Dec 21, 202157 min

Kjaftæði #011 - Allir reyna að drepa Felix [Felix Bergsson]

Disneyhetjan, Júróvísjónleiðtoginn og Greifi. Hinn eini sanni Felix Bergson kom og reyndi að sannfæra okkur um að hann hafi næstum verið drepinn á sviði, drepinn af Gunna Helga og drepinn "af" sviði. Einhver þessara saga er haugalygi og það er einmitt það sem drengirnir í Délítunni ætla að komast að í ellefta þættinum af Kjaftæði!

Dec 14, 202156 min

Kjaftæði #010 - Geðveiki í gufubaði [Gunnar Helgason]

Kominn til að verma tíunda þáttinn er enginn annar en Gunnar Helgason! Leikari, leikstjóri, rithöfundur (og hundur ef út í þá sálma er farið). Hann sagði okkur fræknar sögur af Ungfrú Alheimi, íslenskum túristum og skriðdrekagufubaði en mær eru ekki allar sannar. Komist að því hver þessara frásagna er haugalygi í tíunda þættinum af Kjaftæði!

Dec 07, 20211 hr 5 min

Kjaftæði #009 - Dýrið í Hálsaskógi [Konni Gotta]

Adrenalínfíkill, stökkbrettakall, ritsjóri. Hann Konni Gotta kom til okkar og sagði okkur fræknar sögur af ælu, reisnum og hraðakstri allt með því yfirskini að blekkja okkur. En hvar liggur blekkingin? Komist að því í níunda þættinum af Kjaftæði!

Nov 30, 202154 min

Kjaftæði #008 - Lord of the Hrings [Nonni]

Jón Sigurður (Nonni) er fimleikakappi, sirkússtjarna og alltaf í hringjum! Hann kom um daginn og sagði okkur frá ævintýralegri tilviljun, tvöföldu hlandi og Ronaldo (já, þeim Ronaldo). Eitthvað var þó hrein lygi. Komist að sannleikanum í áttunda þætti af Kjaftæði!

Nov 23, 202146 min

Kjaftæði #007 - Forðumst fólk [Palli, Dagur og Viktor]

"Hlaðvarpsstjörnurnar", glensararnir, "rappararnir". Þið þekkið kappana, það eru Palli, Dagur og Viktor sem stíga hér sjálfir á stokk og ljúga hver að öðrum. Forðast Dagur fólk? Hræðir Palli Börn? Gerast allar sögurnar hans Viktors í Noregi? Hlustið á og komist að sannleikanum í sjöunda þættinum af Kjaftæði!

Nov 16, 202128 min

Kjaftæði #006 - Öfgar, klúnkið og danska klámið [Hulda Hrund]

Leikkona, Hafnfirðingur og grjótharður Öfgi. Svo mætti lengi telja því Hulda Hrund segist einnig hafa verið Kryddþruma, barþjónn í níunda bekk og kaupandi atvinnudúnks af kynlífsdeyfikremi. Hvert af þessu er haugalygi getið þið komist að í sjötta þættinum af Kjaftæði!

Nov 09, 202157 min

Kjaftæði #005 - Brotin á báðum [Vigdís Hafliðadóttir]

Uppistandari, söngkona, textahöfundur. Svona mætti lengi telja því hjá okkur situr Vigdís Hafliðadóttir og reynir að telja okkur trú um að hún hafi tvíhandleggsbrotnað, verið spurð um peninga og setið fyrir á skinnklæðunum. Piltarnir grafa djúpt og reyna að komast að sannleikanum í fimmta þættinum af Kjaftæði.

Nov 02, 202142 min

Kjaftæði #004 - Fingralaus í fermingarfræðslu [Fjölnir Gísla]

Þið þekkið hann úr Já OK og Draugavarpinu! Leikarinn og hlaðvarpskappinn Fjölnir Gíslason leit til okkar og sagði okkur að honum hefði verið bjargað af hundi, þurft að afhenda fullt a fjár til skuggalegra Dana og misst fingur í fermingarfræðslu. Ein af þessum sögum er haugalygi, en hver? Komist að því í fjórða þættinum af Kjaftæði!

Oct 26, 202141 min

Kjaftæði #003 - Sverðaslagur við sérsveitina [Bjartmar Þórðarson]

Bjartmar er leikari, leikstjóri, söngvari og raddþjálfi, og svo kennir hann fallhlífastökk! ...Hann kennir ekki fallhlífastökk. En skyldi hann hafa verið hústökumaður, komist í kast við sérsveit Nýju Jórvíkur eða verið stöðvaður af enn annarri mafíunni? Leggið við hlustir og komist að sannleikanum í þriðja þættinum af Kjaftæði!

Oct 19, 202149 min

Kjaftæði #002 - Stemningsmaður! [Kári Þór]

Kári Þór Birgisson; samstarfsmaður, mölletmaður, stemningsmaður! Hann er kappinn sem daðraði við lögregluna, mætti óvæntri mótspyrnu á salerni og komst í kast við austur evrópska herramenn. Eða hvað? Það eina sem við vitum er að ein þessara staðreynda er kjaftæði!

Oct 12, 202136 min

Kjaftæði #001 - Ítalska djobbið [Urður Bergsdóttir]

Lenti hún í útistöðum við ítölsku mafíuna? Brá hún sér í dulargervi sem fór algjörlega úr böndunum? Játaði vinur hennar morð á djamminu? Það er margt sem leikkonan, söngkonan og pönkarinn Urður Bergsdóttir hefur sér til lista lagt, en kann hún að ljúga? Því ætla drengirnir í Délítunni að komast að í fyrsta þættinum af Kjaftæði!

Oct 05, 202134 min
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android