Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, var gestur Heimsgluggans og ræddi friðarráðstefnu Höfða, friðarseturs Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands, sem fer fram í Iðnó í dag. Bogi Ágústsson, Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu svo um leiðtogakjör í breska Íhaldsflokknum þar sem almennir félagar kjósa leiðtoga í stað Rishi Sunaks. Eftir kosningar í þingflokknum standa eftir Kemi Badenoch og Robert Jenrick sem bæði eru úr hægri armi flokksins. Frétta...
Oct 10, 2024•23 min•Ep. 45
Bogi Ágústsson, Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu um hörmuleg átök í Mið-Austurlöndum þar sem veruleg hætta er á frekari útbreiðslu og hörmungum fyrir fólk sem þarna býr. Gyðingahatur hefur aukist mikið síðasta árið eftir árás Hamas á Ísrael og gífurlega mannskæðar árásir Ísraelshers á Gaza. Þá ræddu þau einnig landsfund breska Íhaldsflokksins og þau fjögur sem berjast um að taka við af Rishi Sunak sem leiðtogi flokksins.
Oct 03, 2024•23 min•Ep. 44
Stjórnmálaflokkar í Bretlandi halda landsfundi þessar vikurnar, Frjálslyndir demókratar í síðustu viku, Verkamannaflokkurinn í þessari og Íhaldsflokkurinn í næstu viku. Hamingja og eindrægni ríkti hjá Frjálslyndum sem fengu 72 þingmenn kjörna í þingkosningunum í júlí. Ekki hafa setið fleiri Frjálslyndir í neðri málstofunni í heila öld. Ætla hefði mátt að sigurgleði ríkti einnig á landsfundi Verkamannaflokksins sem vann stórsigur í sumar og fékk 404 þingsæti. Því var ekki að heilsa, flokksmenn sa...
Sep 26, 2024•23 min•Ep. 43
Heimsglugginn fjallaði þessa vikuna um vaxtalækkun í Bandaríkjunum, Bromma-flugvöll í Stokkhólmi, stríðið í Úkraínu, skýrslu Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna um Venesúela og Mossad, leyniþjónustu Ísraelsmanna. Mossad er almennt talin bera ábyrgð á sprengjutilræðum gegn Hisbollah-liðum í Líbanon.
Sep 19, 2024•26 min•Ep. 42
Björn Þór Sigbjörnsson og Bogi Ágústsson ræddu margt í Heimsglugga vikunnar á Morgunvakt Rásar-1. Nefna má hlutleysi Sviss, norrænan sjónvarpsþátt um öryggismál á Norðurlöndum eftir innrás Rússa í Úkraínu og inngöngu Finna og Svía í NATO. Við heyrðum í nýjum sænskum utanríkisráðherra, Nigel Farage í breska þinginu og Allan Lichtman, sem hefur reynst sannspár um úrslit forsetakosninga í Bandaríkjunum síðastliðin 40 ár. Lichtman er sagnfræðingur og prófessor við American University í Washington DC...
Sep 12, 2024•26 min•Ep. 41
Valur Gunnarsson, sagnfræðingur og rithöfundur, var gestur Heimsgluggans. Hann og Bogi Ágústsson ræddu stríðið í Úkraínu, harðar loftárásir Rússa, sókn Úkraínumanna inn í Kúrsk-hérað í Rússlandi og breytingar á ríkisstjórn Úkraínu. Valur telur ólíklegt að stríðið vinnist á vígvellinum, það endi líklega með vopnahléi og Úkraínumenn þurfi að sætta sig við að Rússar ráði því landi sem þeir hafi hernumið. Heimsglugginn hófst á spjalli Björns Þórs Sigbjörnssonar og Boga um afsögn Tobiasar Billströms,...
Sep 05, 2024•22 min•Ep. 40
Bogi Ágústsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu ágreiningsefni innan danska ríkissambandsins. Færeyingar vilja sjálfstæða aðild að WTO, Alþjóðaviðskiptastofnuninni. Grænlendingar vilja að Grænlendingur verði skipaður í nýtt embætti norðurslóðasendiherra. Nokkuð varð ágengt til að leysa þennan ágreining á fundi leiðtoga landanna í vikunni. Þá ræddu þau erfiðleika norsku konungsfjölskyldunnar þar sem Marius Borg Høiby, stjúpsonur krónprinsins, hefur verið ákærður fyrir heimilisofbeldi og fíknie...
Aug 29, 2024•24 min•Ep. 39
Fleiri deyja vegna neyslu fíkniefna í Skotlandi en nokkru öðru landi í Evrópu. Skotar hafa miklar áhyggjur, vonir eru að neyslurými geti fækkað dauðsföllum. Stjórnvöld í Danmörku og Svíþjóð hafa ákveðið að auka mjög samstarf í baráttu gegn glæpagengjum. Dómsmálaráðherrar landanna og ríkislögreglustjórar hittust og ákváðu aðgerir sem eiga að stoppa að samfélagsmiðlar séu notaðir til að lokka börn og unglinga í Svíþjóð til óhæfuverka í Danmörku, stórauka samstarf dönsku og sænsku lögreglunnar með ...
Aug 22, 2024•24 min•Ep. 38
Heimsglugginn hófst á því að rætt var um nokkra helstu atburði síðustu vikna á erlendum vettvangi. Meginefnið voru þó samræður Boga Ágústssonar og Jóns Óskars Sólness um stöðuna í bandarískum stjórnmálum og baráttuna fyrir kosningarnar í nóvember. Viðsnúningur hefur orðið frá því að Joe Biden forseti dró sig í hlé og Kamala Harris varð frambjóðandi Demókrataflokksins.
Aug 15, 2024•25 min•Ep. 37
Guðrún Hálfdánardóttir og Vera Illugadóttir ræddu við Boga Ágústsson um bresku þingkosningarnar sem eru í dag. Við heyrðum í sir John Curtice, helsta kosningaskýranda BBC. Ólöf Ragnarsdóttir fréttamaður ræddi við hann um stöðuna í breskum stjórnmálum. Þá var Ólöf með, beint frá Lundúnum, og sagði frá andrúmsloftinu í höfuðborg Bretlands þar sem allir búast við stórsigri Verkamannaflokksins.
Jul 04, 2024•23 min•Ep. 36
Bogi Ágústsson ræddi við Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunni Elísabetu Bogadóttur um lausn Julians Assange úr fangelsi í Bretlandi og við heyrðum hluta úr frétt Kristins Hrafnssonar í sjónvarpsfréttum 2010 þegar birt var myndband af árás bandarískrar þyrlu á fréttamenn Reuters í Bagdad. Það var meðal gagna sem Wikileaks birtu og leiddu til þess að bandarísk yfirvöld ákærðu Assange fyrir njósnir. Evan Gershkovich, blaðamaður Wall Street Journal, er fyrir rétti í Katrínarborg í Rússlandi. Rússnesk y...
Jun 27, 2024•24 min•Ep. 35
Emmanuel Macron forseti Frakklands boðaði óvænt til þingkosninga í lok júní og þykir mörgum hann taka mikla áhættu. Bogi Ágústsson ræddi við Damien Degeorges, sem er alþjóðastjórnmálafræðingur með meistaragráðu í norrænum fræðum frá Sorbonne-háskóla og doktorsgráðu í stjórnmálafræði. Þeir ræddu stöðuna í frönskum stjórnmálum. meistaragráðu í norrænum fræðum frá Sorbonne-háskóla og doktorsgráðu í stjórnmálafræði Í síðasta hluta Heimsgluggans ræddu Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörns...
Jun 20, 2024•24 min•Ep. 34
Hægriflokkar áttu erfiðara uppdráttar í norrænu Evrópusambandsríkjunum í kosningunum til Evrópuþingsins en í Frakklandi og Þýskalandi. Björn Þór Sigbjörnsson og Bogi Ágústsson ræddu þetta í Heimsglugga vikunnar á Morgunvaktinni á Rás 1. Óvæntar þingkosningar í Frakklandi bar einnig á góma sem og tilhneigingu Rishis Sunaks, forsætisráðherra Breta, til að skora sjálfsmörk í kosinngabaráttunni þar.
Jun 13, 2024•22 min•Ep. 33
Jón Ormur Halldórsson stjórnmálafræðingur segir að óvænt fylgistap BJP, flokks Narendra Modis forsætisráðherra Indlands, sé í raun sigur lýðræðis. Hann ræddi við Boga Ágústsson um úrslit kosninga í Suður-Afríku og á Indlandi. Í Suður-Afríku tapaði Afríska þjóðarráðið, ANC, meirihluta á þingi í fyrsta sinn frá því að aðskilnaðarstjórn hvíta minnihlutans féll. Björn Þór Sigbjörnsson og Bogi ræddu svo kosningabaráttuna í Bretlandi.
Jun 06, 2024•24 min•Ep. 32
Björn Þór Sigbjörnsson og Bogi Ágústsson ræddu óánægju Grænlendinga með stöðu sína í norrænu samstarfi. Múte B. Egede, formanni landsstjórnar Grænlands, var ekki boðið á fund forsætisráðherra Norðurlandanna í Stokkhólmi. Grænlendingar og Færeyingar hafa óskað eftir sjálfstæðri aðild að Norðurlandaráði en það strandar á því að löndin eru ekki sjálfstæð fullvalda ríki. Einnig var rætt um kosningabaráttuna á Bretlandi og að lokum var söngkonan Mama Cass til umræðu. Hún var þekktust fyrir veru sína ...
May 30, 2024•24 min•Ep. 31
Hundblautur í hellirigningu fyrir utan Downing-stræti 10 boðaði Rishi Sunak forsætisráðherra til nýrra þingkosninga í Bretlandi 4. júlí. Fram að tilkynningu Sunaks höfðu breskir miðlar verið undirlagðir af vitnisburði Paulu Vennells, fyrrverandi forstjóra póstsins. Rannsóknarnefnd kannar það sem kallað hefur verið stærsta réttarfarshneyksli í sögu landsins þegar tæplega eitt þúsund útibússtjórar í pósthúsum voru sóttir til saka fyrir skjalafals og þjófnað og á áttunda hundrað voru sakfelldir. Næ...
May 23, 2024•22 min•Ep. 30
Svíþjóðardemókratarnir hafa á laun rekið ,,tröllaverksmiðjur" á netinu sem dreifðu áróðri gegn innflytjendum og óhróðri um stjórnmálamenn í öðrum flokkum. Svíþjóðardemókratarnir styðja minnihlutastjórn Ulfs Kristerssons en hafa samt á laun kastað skít í forystumenn ríkisstjórnarflokkanna. Þeir hafa brugðist ókvæða við en ekki er talið að stjórnin falli vegna málsins. Þetta ræddu Þórunn Elísabet Bogadóttir og Bogi Ágústsson í fyrri hluta Heimsgluggans. Í síðari hlutanum var rætt við í Jóhann Hlíð...
May 16, 2024•25 min•Ep. 29
Bogi Ágústsson ræddi við Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunni Elísabetu Bogadóttur um kosningar á Salómons-eyjum, við heyrðum falsaða yfirlýsingu Mette Frederiksen um frídaga í Danmörku, tillögu Magdalenu Anderson, leiðtoga sænskra Jafnaðarmanna, um refsingar gegn ESB-ríkjum sem brjóta lýðræðisreglur sambandsins. Aðalefnið var þó vandræði Skoska þjóðarflokksins, SNP, sem þarf að velja nýjan leiðtoga eftir að Humza Yousaf hrökklaðist frá í byrjun vikunnar. Þar á undan var rætt um bæjar- og sveitarst...
May 02, 2024•23 min•Ep. 28
Bogi Ágústsson ræddi við Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunni Elísabetu Bogadóttur um eldsvoðann í Kaupmannahöfn er Børsen brann og byggingar Kristjáns fjórða konungs. Þau ræddu og nýja bók Liz Truss, sem var forsætisráðherra Bretlands í 49 daga. Hún hefur farið mikinn í kynningu á bók sinni þar sem hún ver sjálfa sig og stefnu sína sem leiddi til þess að pundið hrundi, markaðir tóku dýfu og vextir snarhækkuðu. Rætt var um bresk stjórnmál en bæja- og sveitastjórnarkosningar verða í maí og þingkosni...
Apr 18, 2024•23 min•Ep. 27
Jón Ormur Halldórsson, doktor í stjórnmálafræði, var gestur Heimsgluggans. Jón Ormur þekkir vel til á Indlandi. Hann er fyrrverandi háskólakennari og höfundur fjölda greina og bóka um alþjóðamál og að margra mati mati einn skarpasti greinandi alþjóðastjórnmála á Íslandi. Bogi Ágústsson ræddi við hann um þingkosningar sem hefjast á Indlandi í næstu viku og standa fram í maí. Jón Ormur segir það mikið verk að halda kosningar þar sem milljarður manna er á kjörskrá. Lítill vafi leikur á að Narendra ...
Apr 11, 2024•24 min•Ep. 26
Björn Bjarnason var gestur Heimsgluggans og þeir Bogi Ágústsson ræddu Atlantshafsbandalagið en 75 ár eru í dag frá því stofnsáttmáli bandalagsins var undirritaður. Björn er fyrrverandi ráðherra og alþingismaður og jafnframt sérfræðingur um utanríkis-, öryggis- og varnarmál. Norræna ráðherranefndin fékk hann fyrir nokkrum árum til að gera tillögur um eflingu norræns utanríkismálasamstarfs. Bjarni Benediktsson, faðir Björns, var utanríkisráðherra 1949 og undirritaði Atlantshafssáttmálann fyrir hön...
Apr 04, 2024•23 min•Ep. 25
Magnús Þorkell Bernharðsson var gestur Heimsgluggans og þeir Bogi Ágústsson ræddu hörmungarástandið á Gaza og átökin þar sem hafa kostað meir en 30 þúsund manns lífið á undanförnum mánuðum.
Mar 21, 2024•23 min•Ep. 24
Þórunn Elísabet Bogadóttir og Bogi Ágústsson ræddu um Haítí og langa sorgarsögu landsins. Haítí var frönsk þrælanýlenda og annað landið í Ameríku sem lýsti yfir sjálfstæði á eftir Bandaríkjunum eftir afar blóðuga þrælauppreisn. Fátækt, spilling, stjórnleysi og náttúruhamfarir hafa orðið óhamingju landsins að vopni. Svo má heita að algjört stjórnleysi og ringulreið sé á Haíti og hætta á hungursneyð. Þá ræddu þau um öryggis- og varnarmál á norðurslóðum eftir inngöngu Svía í NATO. Jens Stoltenberg ...
Mar 14, 2024•24 min•Ep. 23
Spjall Þórunnar Elísabetar Bogadóttur og Eyrúnar Magnúsdóttur við Boga Ágústsson hófst á sagnfræðilegum nótum. Fyrir nokkrum dögum var opnuð póstsending í þjóðskjalasafni Breta 214 árum eftir að pósturinn var sendur frá Færeyjum til Kaupmannahafnar. Pósturinn komst ekki alla leið því Anne-Marie, skipið sem flutti póstinn, var hertekið af breska flotanum. Farmur Anne-Marie hefur líklega verið boðinn upp og áhöfn herskipsins fengið andvirðið en póstsendingin var eftir í Lundúnum. Þegar pósturinn v...
Mar 07, 2024•24 min•Ep. 22
Hlaupársþáttur Heimsgluggans var ekki um heimsmálin heldur um lífseiga söguskoðun Íslendinga sem var meðal annars mótuð af bókum Jónasar frá Hriflu og Jóns J. Aðils sem kenndar voru áratugum saman. Draga má þetta saman í að saga Íslands hafi byrjað þegar frjálsbornir höfðingjar í Noregi sættu sig ekki við kúgun Haraldar hárfagra konungs og flýðu til Íslands þar sem þeir settu á stofn fyrirmyndarríki og fyrsta löggjafarþing heims. Það hafi verið gullöld Íslendinga sem hafi lokið þegar Gissur Þorv...
Feb 29, 2024•23 min•Ep. 21
Bogi Ágústsson , Eyrún Magnúsdóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu örlög þeirra sem hafa sett sig upp á móti Vladimír Pútín Rússlandsforseta. Alexei Navalny hefur bæst í hóp þeirra sem hafa dáið beint eða óbeint vegna andstöðunnar við forsetann. Á Vesturlöndum er litið svo á að Navalny hafi verið myrtur að undirlagi Pútíns. Í hópi þeirra Rússa sem handlangarar Pútíns hafa myrt eru meðal annarra Alexander Litvinenko, Anna Politkovskaya, Sergei Magnitsky, Boris Nemtsov og Jevgení Prígósjín. Þ...
Feb 22, 2024•23 min•Ep. 20
Jón Óskar Sólnes var gestur Heimsgluggans að þessu sinni og þeir Bogi Ágústsson ræddu stöðuna í bandarískum stjórnmálum. Jón Óskar, sem var eitt sinn fréttamaður RÚV, hefur búið í Washington síðustu ár og fylgist vel með stjórn- og þjóðfélagsmálum. Hann telur að staða Donalds Trumps meðal Repúblikana sé miklu sterkari en þegar hann tilkynnti forsetaframboð fyrir hálfu öðru ári. Demókratar eigi undir högg að sækja vegna mikillar ásóknar flótta- og förufólks frá Mið- og Suður-Ameríku. Þá snúist um...
Feb 15, 2024•23 min•Ep. 19
Bogi Ágústsson ræðir um heimsmálin í þættinum Morgunvaktin á Rás 1 á hverjum fimmtudegi. Að þessu sinni var rætt um loftrýmiseftirlit yfir Íslandi en norski flugherinn annast slíkt eftirlit um þessar mundir. Eirik Kristoffersen, yfirmaður norska hersins, segir mikilvægt fyrir Norðmenn að fylgjast vel með á svæðum nærri Noregi og Íslendingar eru staðfastir vinir og bandamenn. Hann segir að það sé mjög náin norræn samvinna í varnar-og öryggismálum og að frá innrás Rússa í Úkraínu í febrúar 2022 ha...
Feb 08, 2024•23 min•Ep. 18
Aðalefni Heimsgluggans var viðtal Boga Ágústssonar við Jón Óskar Sólnes um stöðuna í bandarískum stjórnmálum og einkum framboðsmál repúblikana. Jón Óskar var lengi fréttamaður hjá RÚV en hefur verið búsettur í Washington síðustu ár. Eyrún Magnúsdóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu einnig stöðu NATO-umsóknaraðildar Svía við Boga og nýjustu skoðanakannanir fyrir forsetakosningarnar í Finnlandi.
Jan 25, 2024•24 min•Ep. 17
Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson héldu áfram að ræða um málefni bresku póstþjónustunnar og stærsta réttarfarshneyksli í sögu landsins á síðari tímum þegar tæplega eitt þúsund útbússtjórar í pósthúsum voru sóttir til saka fyrir skjalafals og þjófnað og á áttunda hundrað voru sakfelldir. Næstum öll voru saklaus, sökudólgurinn var Horizon, gallað bókhaldskerfi sem Fujitsu bjó til fyrir breska póstinn. Nick Read, forstjóri Póstsins, sat fyrir svörum hjá viðskiptanefnd þingsins og...
Jan 18, 2024•24 min•Ep. 16