Björn Þór Sigbjörnsson ræddi við Boga Ágústsson um eitt mesta réttarfarshneyksli síðari ára í Bretlandi. Síðustu daga hefur allt verið á öðrum endanum í Bretlandi vegna sjónvarpsþátta um það sem kallað hefur verið alvarlegasta hneyskli í breskri réttarfarssögu á síðari árum, þar sem hundruð saklausra voru dæmd fyrir fjárdrátt og þjófnað. Þáttaröðin nefnist Mr Bates vs. The Post Office. Þar er fjallað rangar ákærur og sakfellingu meira en 700 útibússtjóra í breskum pósthúsum. Fólk missti æruna, m...
Jan 11, 2024•22 min•Ep. 15
Í fyrsta Heimsglugga ársins á Morgunvaktinni á Rás 1 ræddu Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson við Boga Ágústsson um vetrarveður á Norðurlöndum og í norðanverðri Evrópu, ástandið í Mið-Austurlöndum og kosningar sem verða á árinu.
Jan 04, 2024•25 min•Ep. 14
Björn Þór Sigbjörnsson og Eyrún Magnúsdóttir ræddu við Boga Ágústsson um leiðtogafund ESB þar sem málefni Úkraínu verða á dagskrá, þingkosningar í Serbíu, ungfrú alheim sem er í ónáð stjórnvalda í Níkaragúa og komandi forsetakosningar í Finnlandi. Leiðtogafundur Evrópusambandsins í dag snýst að miklu leyti um málefni Úkraínu, annars vegar áframhaldandi fjárhagslegan og hernaðarlegan stuðning, hins vegar tillögu framkvæmdastjórnar ESB um að bjóða Úkraínu að hefja aðildarviðræður. Viktor Orban, fo...
Dec 14, 2023•24 min•Ep. 13
Bresk stjórnmál voru á dagskrá þegar Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu við Boga Ágústsson í vikulegu Heimsgluggaspjalli. Boris Johnson, fyrrverandi forsætisráðherra, sat fyrir svörum í gær hjá nefnd sem rannsakar viðbrögð við COVID-19 faraldrinum. Johnson var auðmjúkur og byrjaði á að biðjast afsökunar, sagði að með því að horfa í baksýnisspegil mætti sjá að mistök hefðu verið gerð. Johnson ber áfram vitni í dag. Íhaldsflokkurinn, sem Boris Johnson veitti forystu uns han...
Dec 07, 2023•24 min•Ep. 12
Heimsgluggi vikunnar hófst á umræðu um Henry Kissinger, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sem er látinn 100 ára að aldri. Kissinger var ótvírætt meðal mestu áhrifamanna í alþjóðamálum á seinni hluta 20. aldar, hann var það sem kallað hefur verið realpolitiker, hafði lítinn áhuga á að tengja utanríkispólitík við mannréttindi eða skilyrða samskipti við aðrar þjóðir. Hann hafði frumkvæði að bættum samskiptum við Kínverja og þýðu í samskiptum við Sovétríkin. Kissinger var afar umdeildur, ...
Nov 30, 2023•23 min•Ep. 11
Þetta verða erfið fjögur ár, sagði Helgi Hrafn Guðmundsson sagnfræðingur um Argentínu eftir að Javier Milei var kjörinn forseti um síðustu helgi. Þeir Bogi Ágústsson ræddu saman um land og þjóð. Helgi Hrafn bjó í Argentínu í um áratug, lærði og starfaði þar. Hann segir efnahagsstefnuna lengi hafa einkennst af skammtímahugsun. Ástandið sé afar slæmt, verðbólga um 200 prósent, mjög ströng gjaldeyrishöft og gjaldmiðillinn nánast verðlaus. Helgi Hrafn segir Milei fyrst og fremst frjálshyggjumann af ...
Nov 23, 2023•23 min•Ep. 10
Heimsglugginn á Morgunvaktinni á Rás 1 fjallaði um átök í stjórnmálum á Bretlandi og í Portúgal. Rishi Sunak forsætisráðherra Bretlands gerði verulegar breytingar á ríkisstjórn sinni á mánudag. Suella Braverman innanríkisráðherra var rekin, James Cleverly tók við embætti hennar og David Cameron varð utanríkisráðherra í stað Cleverlys. Braverman birti afar harðort bréf daginn eftir brottreksturinn, þar sem hún sakaði Sunak um svik við sig, hann væri huglaus, óhæfur og umboðslaus. Fréttaskýrendur ...
Nov 16, 2023•24 min•Ep. 9
Tveir pólitískir skandalar í grannlöndum okkar voru til umræðu í Heimsglugganum á Morgunvaktinni á Rás 1. Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu við Boga Ágústsson. Annars vegar ráðvillt bresk ríkisstjórn og fálmkennd viðbrögð í upphafi COVID-faraldursins eins og komið hefur fram í vitnaleiðslum nefndar sem falið var að rannsaka viðbrögð breskra stjórnvalda við farsóttinni. Hins vegar njósnamálið í Danmörku þar sem Claus Hjort Frederiksen, fyrrverandi varnarmálaráðherra; Lars...
Nov 02, 2023•22 min•Ep. 8
Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu að þessu sinni við Boga Ágústsson um átök popúlista og lýðræðissinna víða um heim. Þau ræddu um Argentínu, Venesúela, Bandaríkjaþing, Slóvakíu, Ítalíu, Pólland og Bretland. Í Argentínu má segja að tveir popúlistar takist á um forsetaembættið. Annar er hagfræðingurinn Javier Milei, sem hefur verið lýst sem pólitískum utangarðsmanni, jafnvel hægrisinnuðum anarkista. Hinn er Sergio Massa efnahagsráðherra úr Perónistaflokknum Union por la Pa...
Oct 26, 2023•22 min•Ep. 7
Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu að þessu sinni við Boga Ágústsson um Martti Ahtisaari, fyrrverandi forseta Finnlands, sem lést fyrr í vikunni. Ahtisaari hlaut friðarverðlaun Nóbels 2008 fyrir áratuga starf í mörgum heimshlutum þar sem hann reyndi að setja niður deilur og sætta stríðandi fylkingar. Alexander Stubb, fyrrverandi forsætisráðherra Finnlands og forsetaframbjóðandi, sagði um Ahtisaari: Heimurinn hefur hugsanlega aldrei þurft eins mikið á manni eins og honum a...
Oct 19, 2023•23 min•Ep. 6
Hilmar Þór Hilmarsson, prófessor við Háskólann á Akureyri, var gestur Heimsgluggans á Morgunvakt Rásar-1. Bogi Ágústsson ræddi við hann um bók hans sem kom út fyrr á árinu, The Nordic, Baltic and Visegrád Small Powers in Europe. Visegrád ríkin er Pólland, Slóvakía, Tékkland og Ungverland, sem öll voru í Varsjárbandalaginu og leppríki Sovétríkjanna en eru núna í Evrópusambandinu og NATO. Hilmar segir að óttinn við Rússland hafi verið ein meginástæða þess að löndin kusu náinn samruna við Evrópu og...
Oct 12, 2023•24 min•Ep. 5
Í Heimsglugganum ræddu Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir við Boga Ágústsson um dramatíska atburði sem gerðust í Danmörku fyrir réttum 80 árum er langflestum gyðingum var bjargað frá handtöku og flutningi í fangabúiðir nasista. Við heyrðum brot úr dönskum sjónvarpsþætti með viðtölum við nokkur þeirra sem upplifðu þessa atburði. Við heyrðum einnig um Hans Walter Rothenborg, sem var 16 ára þegar fjölskylda hans komst yfir Eyrarsund eftir að hafa verið í felum í nokkra daga í Danm...
Oct 05, 2023•23 min•Ep. 4
BBC hefur gert þriggja þátta röð um bresk stjórnmál frá 2016. Mikil upplausn hefur ríkt og fimm forsætisráðherrar hafa verið á sex árum. Laura Kuenssberg, sem var stjórnmálaritstjóri BBC á þessum tíma, fer í gegnum atburðarásina og nefnir þættina State of Chaos sem þýða sem Ríki í ringulreið eða Upplausnarástand. Kuenssberg ræðir við fjölda fólks og dregur upp mynd af því sem gerðist og ekki síður hvað var að gerast á bak við tjöldin. Þórunn Elísabet Bogadóttir og Bogi Ágústsson ræddu þessa þætt...
Sep 28, 2023•24 min•Ep. 3
Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu einkum norræn málefni við Boga Ágústsson í Heimsglugga vikunnar á Morgunvakt Rásar 1. Fyrst um ofbeldisölduna í Svíþjóð þar sem 37 hafa verið myrtir í skotárásum á árinu, langflestir í átökum glæpagengja eða innbyrðis uppgjöri eins og í Foxtrott-glæpaklíkunni þessa dagana. Þá var rætt um vandræði norskra stjórnmálamanna, tveir ráðherrar hafa þurft að segja af sér og tveir aðrir eru í vandræðum. Bæði Anniken Hvitfelt, utanríkisráðherra, o...
Sep 21, 2023•24 min•Ep. 2
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu að þessu sinni við Boga Ágústsson um stöðu efnahagsmála í Evrópu, verðbólga fer minnkandi, litlum hagvexti er spáð og vextir eru enn háir. Í mörgum Evrópulöndum er skortur á vinnuafli og jafnvel ríkisstjórn Ítalíu undir forsæti Giorgiu Meloni hefur rætt við Afríkuríki að fólk til starfa. Meloni og stjórn hennar eru annars afar andvíg innflutningi fólks. Í Danmörku hefur vinnuveitendasambandið beðið stjórnvöld um að fá 50 þúsund útlending...
Sep 14, 2023•25 min•Ep. 1