Heimsglugginn - podcast cover

Heimsglugginn

RÚVwww.ruv.is
Bogi Ágústsson ræðir um erlend málefni
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Leiðtogafundur NATO og vandræði breska Verkamannaflokksins

Bogi Ágústsson og Davíð Stefánsson, formaður Varðbergs, ræddu niðurstöður leiðtogafundar NATO í Haag í gær. Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu svo við Boga um vandræði breska Verkamannaflokksins. Stór hluti þingflokksins hefur lagst gegn frumvarpi stjórnarinnar um breytingar á velferðarkerfinu og niðurskurð um milljarða punda. Undir lokin sagði Björn frá því að Morgunvaktin er að fara í sumarfrí og Heimsglugginn sömuleiðis. Umsjónarmaður Heimsgluggans snýr sér að undirbún...

Jun 26, 202524 minEp. 75

Pópúlistar helsta hættan við frjálslynt lýðræði

Þórunn Elísabet Bogadóttir og Bogi Ágústsson ræddu í upphafi um stöðuna í Mið-Austurlöndum. Ólafur Þ. Harðarson, prófessor emeritus, var aðalgestur þáttarins og hann og Bogi ræddu hættu sem stafar að frjálslyndu lýðræði. Ólafur sagði Donald Trump grafa undan lýðræði í Bandaríkjunum, eins og Viktor Orban í Ungverjalandi. Hann sagði ekki miklar ytri hættur steðja að lýðræðisríkjum, helsta hættan kæmi frá þjóðernissinnuðum pópúlistum.

Jun 19, 202523 minEp. 74

Heimsglugginn: Ísrael, óeirðir í Los Angeles og Ballymena og konungsheimsókn í Færeyjum

Bogi Ágústsson og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu um refsiaðgerðir gegn ísraelskum ráðherrum, óeirðir í Los Angeles í Bandaríkjunum og Ballymena á Norður-Írlandi, heimsókn Friðriks Danakóngs til Færeyja og Pétur og köttinn Brand. Barnabækurnar um þá félaga Pétur og Brand (Pettson och Findus) eftir Sven Nordqvist hafa verið bannaðar í Rússlandi vegna þess að þýðandinn, Aleksandra Polívanova, er í ónáð hjá yfirvöldum og hefur verið lýst „erlendur útsendari“.

Jun 12, 202523 minEp. 73

Heimsglugginn: Gaza, Úkraína, skuldaþak Bandaríkjanna, vestræn varnarmál

Ástandinu á Gaza hefur verið lýst sem „verra en helvíti“ og forseti Alþjóðaráðs Rauða krossins var afar þungorð um ástandið í viðtali við BBC. Þetta var meðal þess sem Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu við Boga Ágústsson í Heimsglugga vikunnar. Þau ræddu einnig styrjöldina í Úkraínu, frumvarp Trumps Bandaríkjaforseta sem hann kallar „Big beautiful bill“, stóra dásamlega frumvarpið. Elon Musk, sem lauk störfum fyrir Trump í síðustu viku, hefur ráðist harkalega á frumvarpi...

Jun 05, 202523 minEp. 72

Stjórnmál í Portúgal og ógnarástand á Gaza

Bogi Ágústsson ræddi við Einar Loga Vignisson, sem þekkir vel til í Portúgal, um úrslit þingkosninga þar um helgina. Einar Logi segir áframhaldandi minnihlutastjórn líklegasta kostinn því engin fylking fékk nægilegan stuðning til að geta myndað meirihlutastjórn. Í síðari hluta Heimgsluggans ræddu Bogi, Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ástandið á Gaza. Stór hluti alþjóðasamfélagsins virðist vera að búinn að fá yfir sig nóg af framferði Ísraelsmanna.

May 22, 202524 minEp. 71

Ísland, norðurslóðir og ný heimsmynd

Magnús Skjöld, dósent í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst, var gestur Heimsgluggans að þessu sinni. Hann er meðal fyrirlesara á ráðstefnu í Norræna húsinu: Ísland og norðurslóðir í nýjum heimi. Þar verður fjallað um ógnir, öryggi, áskoranir og tækifæri í breyttum heimi. Þeir Bogi Ágústsson ræddu ráðstefnuna og alþjóðamálin. Bogi og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu svo meðal annars niðurskurð til þróunaraðstoðar og hjálpar við fátæk ríki. Bandaríkjastjórn hefur skorið niður fjárveitingar ti...

May 15, 202524 minEp. 70

Fjölmiðlar, andúð erlendis gegn Trump, Indland og Pakistan

Bogi Ágústsson, Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu um nýja skýrslu Blaðamanna án landamæra um frelsi fjölmiðla í heiminum. Þar er Ísland eftirbátur annarra norrænna ríkja. Andúð erlendis á Donald Trump Bandaríkjaforseta og stefnumálum hans má merkja í kosningaúrslitum í Kanada og Ástralíu og jafnvel í hergagnakaupum. Að síðustu var minnst á átök Indverja og Pakistana um Kasmír-hérað sem eiga sér langa sögu.

May 08, 202523 minEp. 69

Kúvending í Washington

Heimsglugginn fjallaði að mestu um skyndilega stefnubreytingu Bandaríkjaforseta þegar hann frestaði um þrjá mánuði flestum tollahækkunum. Hlutabréfamarkaðir réttu strax úr kútnum en margir velta fyrir sér hvað hafi valdið kúvendingunni. Flestir hallast að því að verðlækkun bandarískra ríkisskuldabréfa og hærri ávöxtunarkrafa hafi orðið til þess að forsetinn breytti um stefnu. Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu einnig við Boga Ágústsson um nýja stjórn í Þýskalandi og kosni...

Apr 10, 202521 minEp. 68

Mörgæsirnar tollaðar

Donald Trump kynnti í gærkvöld með miklum tilþrifum nýja tolla á vörur sem eru fluttar inn til Bandaríkjanna. Tollurinn verður minnst 10 prósent og Ísland lendir í þeim tollflokki. Í sama flokki eru einnig Heard og McDonald-eyjur. Þær eru með afskekktustu stöðum á jörðinni, 4000 kílómetra frá næsta byggða bóli og þar hafa aldrei búið menn. Þar er hins vegar að finna skordýr, sjófugla, seli og mörgæsir. Ýmsir hafa hent gaman að þessu þó að þeir séu fleiri sem hafi áhyggjur af áhrifum verndartolla...

Apr 03, 202522 minEp. 67

Danski þrællinn sem flúði til Íslands og endurmat sögunnar

Gísli Pálsson, prófessor emeritus, var gestur Heimsgluggans og ræddi um nýja leikna heimildarþáttaröð Danmarks Radio sem nefnist Slave af Danmark og fjallar um þrælahald á dönsku Jómfrúareyjum og í Danmörku. Ein höfuðpersóna þáttaraðarinnar er Hans Jónatan sem flúði til Íslands í byrjun 19. aldar. Gísli skrifaði bók, Hans Jónatan: maðurinn sem stal sjálfum sér, um ótrúlegt líf Hans Jónatans. Gísli sagði okkur frá Hans Jónatan, rannsóknum sínum á ævi hans, ætt og þrælahaldi í Danmörku. Í lokin va...

Mar 27, 202522 minEp. 66

„Grænland verður sjálfstætt fyrr eða síðar“

Rasmus Gjedssø Bertelsen, prófessor í norðurslóðafræðum við háskólann í Tromsø, telur að Grænlendingar verði sjálfstæð þjóð í framtíðinni. Hann telur Bandaríkjamenn þegar hafa allan rétt á Grænlandi sem þeir óski og Danir hafi alltaf uppfyllt allar óskir þeirra, meðal annars leyft kjarnorkuvopn í herstöðinni í Thule. Þeir hafi logið um það bæði að dönsku þjóðinni og Grænlendingum. Ásælni Trumps Bandaríkjaforseta í innlimun Grænlands sé sálfræðilegs eðlis. Bertelsen var gestur í Heimsglugganum.

Mar 20, 202523 minEp. 65

Risagjaldþrot í Svíþjóð, vopnahlé í Úkraínu og óvænt úrslit á Grænlandi

Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu að fimmtudagsvenju við Boga Ágústsson um erlend málefni í Heimsglugga vikunnar. Að þessu sinni var rætt um stærsta gjaldþrot í sænskri viðskiptasögu. Northvolt átti að verða lykilfyrirtæki í sókn evrópskra bílaframleiðenda á rafbílamarkaðnum en reksturinn gekk aldrei eins og skyldi. Fyrirtækið er nú gjaldþrota og þrjú þúsund manns í Skellefteå í Norður-Svíþjóð hafa misst vinnuna. Úkraínumenn hafa fallist á tillögur Donalds Trumps um vopn...

Mar 13, 202523 minEp. 64

Serbía, tollastríð og óánægja í Tasiilaq

Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu að fimmtudagsvenju við Boga Ágústsson um erlend málefni í Heimsglugga vikunnar. Að þessu sinni var rætt um óeirðir í þinginu í Belgrad og víðtæk mótmæli í Serbíu. Mótmælin hófust þegar þak á lestarstöð í Novi Sad hrundi í nóvember og 15 létust. Þá var rætt um afleiðingar refsitolla Donalds Trumps á efnahagslíf heimsins, Kanadamenn eru reiðir Bandaríkjastjórn og forðast að kaupa bandarískar vörur. Bílaframleiðendur og bændur í Bandaríkjun...

Mar 06, 202524 minEp. 63

Gleymdu stríðin í Afríku

Fáir Íslendingar þekkja jafn vel til Afríku og Stefán Jón Hafstein sem hefur um áratugaskeið starfað að þróunaraðstoð. Stefán Jón var gestur Boga Ágústssonar í Heimsglugganum á Morgunvakt Rásar 1.

Feb 27, 202524 minEp. 62

Hvíta gullið á Grænlandi og árásir Trumps á Úkraínuforseta

Danmarks Radio hefur tekið úr birtingu „Grønlands hvide guld“, umdeilda heimildarmynd um kríólítvinnslu á Grænlandi. DR rak einnig ritstjóra sem bar ábyrgð á henni. Myndin var gagnrýnd meðal annars fyrir að rugla saman hagnaði af kríólítvinnslunni og veltu í rekstrinum. Donald Trump Bandaríkjaforseti fer mikinn í árásum á Volodymyr Zelensky forseta Úkraínu, kallar hann einræðisherra og segir hann bera ábyrgð á innrás Rússa í Úkraínu. Zelensky segir Trump vera í heimi rússneskrar upplýsingaóreiðu...

Feb 20, 202523 minEp. 61

Albert Jónsson: Vopnahlé líklegra en friðarsamningar í Úkraínu

Gestur Boga Ágústssonar í Heimsglugga vikunnar var Albert Jónsson, sérfræðingur í öryggis- og utanríkismálum og fyrrverandi sendiherra. Hann telur að litlar líkur séu á að hægt verði að gera friðarsamninga á milli Rússa og Úkraínumanna. Verði Trump Bandaríkjaforseti að ósk sinni um að stríðinu ljúki verði það líklega með vopnahléi. Albert bendir á að friðarsamningar hafi aldrei verið gerðir á milli Norður- og Suður-Kóreu en þar hafi verið vopnahlé í meira en 70 ár.

Feb 13, 202523 minEp. 60

Sænska þjóðin í sorg, kosningar á Grænlandi, ný norsk stjórn og fjör í breska þinginu

Í Heimsglugganum var sjónum beint að norrænum málum. Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddi við Boga Ágústsson um sorgina í Svíþjóð eftir fjöldamorð í skóla í Örebro, kosningar sem hafa verið boðaðar á Grænlandi 11. mars og minnihlutastjórn norska Verkamannaflokksins. Þá heyrðum við Keir Starmer í breska þinginu úthúða fyrri stjórn fyrir veisluhöld á COVID-tímanum.

Feb 06, 202523 minEp. 59

Utanríkismál í hverfulum heimi

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra Íslands, ræddi öryggis- og varnarmál við Boga Ágústsson. Þorgerður Katrín sagði nú vera óvissu, jafnvel ólgutíma, og nauðsyn að vera í náinni samvinnu við mestu vinaþjóðir okkar. Hún lagði áherslu á nauðsyn þess að reglur væru virtar í alþjóðasamskiptum. Hún sagði mikla samstöðu með norrænu ríkjunum og að norræn og evrópsk samvinna skipti miklu máli. Hún sagði einnig að Íslendingar þyrftu að bæta í þegar kemur að öryggi og framlögum til varna lan...

Jan 30, 202523 minEp. 58

„Í Guðs bænum sýndu miskunn“

Donald Trump var aftur til umræðu í Heimsglugganum á Morgunvakt Rásar 1 og við heyrðum í biskupi Washington biðja forsetann um að sýna miskunn. Ummæli Trumps um Panama og Grænland voru einnig á dagskránni er Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu við Boga Ágústsson um erlend málefni. Fjallað var um sögu Panama og skipaskurðinn þar.

Jan 23, 202524 minEp. 57

Vopnahlé á Gaza, Grænland, Eystrasalt og afsögn bresks ráðherra

Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu erlend málefni við Boga Ágústsson eins og jafnan á fimmtudagsmorgnum á Morgunvaktinni. Samið hefur verið um vopnahlé á Gaza eftir grimmdarleg átök, þar sem talið er að nærri 50 þúsund Palestínumenn hafi beðið bana og á annað þúsund Ísraelsmenn. Forsætisráðherra Dana ræddi í síma í gær við verðandi Bandaríkjaforseta og lagði áherslu á að Grænlendingar ættu að ráða eigin framtíð. Leynistríð Rússa gegn vestrænum ríkjum var til umræðu. Ríki ...

Jan 16, 202524 minEp. 56

Hótanir Trumps um að beita hervaldi til að ná Grænlandi undir Bandaríkin.

Donald Trump verðandi forseti Bandaríkjanna segist ekki geta útilokað að beita hervaldi eða efnahagslegum aðgerðum til að ná Grænlandi og Panama undir yfirráð Bandaríkjanna. Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu Grænlandsmál við Boga Ágústsson í Heimsglugganum. Bandaríkjamenn hafa raunar haft herstöðvar á Grænlandi síðan 1951 samkvæmt varnarsamningi milli Bandaríkjanna og Danmerkur. Rætt var um afstöðu Grænlendinga og möguleika á sjálfstæði, einnig um viðbrögð við yfirlýsing...

Jan 09, 202524 minEp. 55

Óvissa í alþjóðamálum í upphafi nýs árs

Bogi Ágústsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu stöðu alþjóðamála í upphafi nýs árs. Bogi sagði að ekki yrði sagt að 2024 hafi verið gott ár á alþjóðavettvangi: í kosningum fengu popúlskir flokkar víða byr í seglin, umhverfisráðstefna Sameinuðu þjóðanna skilaði engu og stór hluti heimsins virðist kæra sig kollóttan um sífellt hættulegri hamfarahlýnun. 2024 er heitasta ár sem hefur mælst og það berast æ oftar tíðindi af ýmsum öfgafyrirbærum í veðri, illviðrum, flóðum og þurrkum. Þau ræddu horf...

Jan 02, 202522 minEp. 54

Norræn pólitík og jólalög

Norski Verkamannaflokkurinn er í miklum öldudal um þessar mundir eins og stjórnarflokkar víðar á Norðurlöndum. Framfaraflokkurinn nýtur mests fylgis og þykir tíðindum sæta að hann skuli njóta meiri stuðnings en Høyre sem hefur haft afgerandi forystu á hægri væng norskra stjórnmála. Sænska kosningarannsóknin við háskólann í Gautaborg hefur birt lista yfir mat kjósenda á stjórnmálaleiðtogum frá 1979. Fredrik Reinfeldt, fyrrverandi forsætisráðherra og leiðtogi Moderaterna, fær hæstu einkunn, Jimmie...

Dec 19, 202423 minEp. 53

Sýrlendingar hafa aldrei ráðið eigin örlögum

Bashar al-Assad hefur hrakist frá völdum í Sýrlandi og óvissa hvað tekur við. Ólíklegt er að almenningur fái ráðið því hverjir taki við stjórn, það hefur aldrei verið lýðræði í Sýrlandi í árþúsunda sögu landsins. Farið var yfir sögu landsins í Heimsglugga vikunnar.

Dec 12, 202423 minEp. 52

Frí í útlöndum? Um alþjóðastarf þingmanna

Vilborg Ása Guðjónsdóttir var gestur Heimsgluggans. Hún er alþjóðastjórnmálafræðingur og vinnur að doktorsritgerð um þátttöku þingmanna í alþjóðastarfi. Hún segir enn eima eftir af þeirri afstöðu að slíkt starf sé „frí í útlöndum“ og að viðhorf gagnvart alþjóðastarfinu sé neikvætt og ekki borin virðing fyrir því. Marius Borg Høiby, stjúpsonur Hákons krónprins Noregs, situr í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á tveimur nauðgunum og öðrum alvarlegum afbrotum gegn sex konum. Málið veldur krísu í nors...

Nov 21, 202422 minEp. 51

Utanríkismál í kosningabaráttunni

Heimsglugginn fjallaði að þessu sinni um hlut utanríkis- og varnarmála í kosningabaráttunni fyrir Alþingiskosningarnar 30. nóvember. Bogi Ágústsson ræddi við Davíð Stefánsson og Piu Hansson. Davíð er formaður Varðbergs, samtaka um vestræna samvinnu og alþjóðamál og Pia er forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands en þau standa fyrir fundi um utanríkis- og varnarmál ásamt Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands og Félagi stjórnmálafræðinga. Þar skýra 10 frambjóðendur s...

Nov 14, 202423 minEp. 50

Þýska stjórnin fallinn, Trump endurkjörinn

Þórunn Elísabet Bogadóttir og Guðrún Hálfdánardóttir ræddu við Boga Ágústsson um fall þýsku stjórnarinnar. Þar sauð upp úr eftir deilur um ríkisútgjöld á milli stjórnarflokkanna. Frjálsir demókratar vildu draga úr útgjöldum til félagsmála og grænna verkefna til að loka gati í ríkisbúskapnum. Jafnaðarmenn og Græningjar gátu ekki sætt sig við þau áform og Olaf Scholz kanslari rak Christian Lindner, fjármálaráðherra og leiðtoga Frjálsra demókrata, úr embætti. Stjórnin situr áfram sem minnihlutastjó...

Nov 07, 202423 minEp. 49

Sögulegar kosningar í Japan

Stjórnmál í Japan eftir þingkosningar um síðustu helgi voru til umræðu í Heimsglugganum í Morgunvaktinni á Rás 1. Bogi Ágústsson ræddi við Kristínu Ingvarsdóttur, lektor í japönskum fræðum við Háskóla Íslands. Þingkosningar á sunnudag sættu talsverðum tíðindum. Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn, LDP, sem hefur farið með stjórn í Japan nánast óslitið í nærri 70 ár, beið afhroð. Flokkurinn tapaði 64 þingsætum, það eru 465 fulltrúar í neðri deild japanska þingsins. Það vakti líka athygli að fleiri kon...

Oct 31, 202424 minEp. 48

Erfið prófraun lýðræðis

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu við Boga Ágústsson um stöðu lýðræðis og kosningar á árinu 2024. Talað hefur verið um árið sem „kosningaárið mikla“ og þegar hafa kjósendur í 67 löndum greitt atkvæði í þing- eða forsetakosningum. Í þessum löndum búa 3,4 milljarðar fólks. Áður en 2024 verður liðið verður einnig gengið til kosninga í löndum þar sem 440 milljónir búa. Þar eru forsetakosningarnar í Bandaríkjunum 5. nóvember langmikilvægastar. Lýðræðið á víða undir högg að sæ...

Oct 24, 202422 minEp. 47

Alex Salmond og vandræði Northvolt

Björn Þór Sigbjörnsson og Bogi Ágústsson minntust Alex Salmonds sem lést um síðustu helgi. Hann var óskoraður leiðtogi sjálfstæðishreyfingar Skota fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna 2014. Þeir ræddu einnig erfiðleika Northvolt í Svíþjóð sem átti að verða lykilfyrirtæki í sókn evrópskra bílaframleiðenda á rafbílamarkaðnum, risastórt fyrirtæki sem framleiddi rafhlöður fyrir bíla. Reksturinn hefur hins vegar gengið illa og til stendur að segja upp 1600 manns af um 5000 starfsmönnum.

Oct 17, 202420 minEp. 46
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android