Það er stórfrétt af Liverpool utan vallar nánast í hverri viku þessa dagana en núna um daginn tilkynnti Julian Ward yfirmaður knattspyrnumála að hann hefði sagt upp semer í meira lagi óvænt. Aðalmaðurinn hjá FSG dró til í hlé fyrir skömmu síðan, félagið er á sölu og meira að segja tölfræðinördið sem smíðaði kerfið sem Liverpool vinnur eftir er búinn að segja upp. Snertum á þessu og spáðum t.a.m. aðeins í því hvað þessir menn hafa í raun verið að skila Liverpool undanfarin ár, er það eitthvað umf...
Nov 28, 2022•1 hr 11 min•Season 2022Ep. 405
Óhætt að segja að þetta hefur verið vonbrigðatímabil hingað til og líklega bara áægætt að fá þetta fáránlega Sportwashing festival frí núna næstu 5-6 vikurnar. Það hefur hinsvegar verið nóg um að vera innan sem utan vallar í boltanum undanfarna daga. Sigurleikir í deild og deildarbikar, Eigendamál Liverpool, Hágrenjandi Ronaldo, Hörmuleg tölfræði miðjumanna Liverpool o.fl. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að ...
Nov 14, 2022•1 hr 2 min•Season 2022Ep. 404
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Það hefur verið nóg að gera á skrifstofum þeirra sem fylgjast með og fjalla um Liverpool undanfarna tvo sólarhringa. Fyrst var það góður baráttusigur í London, sá fyrsti á útivelli í deildinni í vetur. Næst var Real Madríd dregið upp úr pottinum í Meistaradeildinn í 16-liða úrslitum og svo komu sprengjufréttir um að Liverpool væri til sölu. Nóg að ræða í þessari viku. Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda...
Nov 07, 2022•1 hr 17 min•Season 2022Ep. 403
Liverpool liðið sem við þekkjum minnir á sig í Meistaradeildinni og er komið áfram í þeirri ágætu keppni en krísan í deildinni er í sögulegu hámarki eftir annað tap í röð gegn botnliði deildarinnar. Fáránlega lélegar frammistöður hafa eyðilagt undanfarnar tvær helgar illilega og ljóst að eigendur Liverpool, stjórinn og leikmennirnir þurfa að bregðast við strax næstu helgi í London. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Sveinn Waage Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að ...
Nov 02, 2022•1 hr 14 min•Season 2022Ep. 402
Líklega verstu úrslit Liverpool í deildinni síðan hörmungartímabilið 2020 þegar Fulham vann á Anfield, endalaus meiðsi sem bíta hressilega og mest allt það jákvæða frá síðustu viku laglega í vaskinn. Liðin fyrir ofan í deildinni töpuðu mörg hver stigum sem gerir tapið á City Ground ennþá verra. Ajax í vikunni og Leeds um helgina næst á dagskrá. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti. Egils Gull...
Oct 25, 2022•1 hr 5 min•Season 2022Ep. 401
Vika er langur tími í fótbolta og þessi var klárlega sú besta á þessu tímabili. Frábær sigur á Man City í kjölfar þess að Rangers var kjöldregið í Skotlandi. Klárlega mikil batamerki á leik liðsins í heild. Tímamóta þáttur þar sem þessi er númer 400. af Gullkastinu og af því tilefni hóuðum við saman upprunalega crew-inu og fengum stofnendur síðunnar Einar Örn og Kristján Atla með okkur í settið á Sólon í miðbænum. Þrumustuð. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn, Maggi, Kristján Atli o...
Oct 17, 2022•1 hr 13 min•Season 2022Ep. 400
Liverpool er komið í þó nokkra krísu eftir svekkjandi tap gegn Arsenal, titilbaráttu er klárlega endanlega lokið og spurning hvort félagið sé að skilja eftir of stórt bil fyrir Meistaradeildarsætin líka? 2020 wibe yfir byrjun tímabilsins og Man City bíður um næstu helgi sem er langt í frá heillandi verkefni núna. Fyrst er það hinsvegar heimsókn á Ibrox í Glasgow. Eina gleðifrétt vikunnar er hinsvegar að Eurovision er að fara til Liverpool næst og við erum búnir að raða saman framlagi íslands. St...
Oct 10, 2022•54 min•Season 2022Ep. 399
Byrjun tímabilsins hjá Liverpool hefur vægast sagt verið gríðarlega svekkjandi, enn eitt ósannfærandi og svekkjandi jafnteflið á Anfield um helgina gegn Brighton en ágætur sigur á Rangers í Meistaradeildinn léttir aðeins andann. Þar “frumsýndi” Klopp mögulega leikkerfi sem hentar liðinu betur í komandi verkefnum. Arsenal og Man City er næstu andstæðingar í deildinni og því ekki seinna vænna en að fara byrja þetta tímabil. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda s...
Oct 05, 2022•58 min•Season 2022Ep. 398
Enski boltinn fer aftur af stað með látum um helgina og Meistaradeildin í næstu viku eftir ótrúlega langa bið. Kvennalið Liverpool hefur fengið sviðið undanfarið meðan karlaliðið hefur nánast verið í pásu en tímabilið var að hefjast hjá þeim með Liverpool á ný deild þeirra bestu. Fókusinn á þetta og fleira í þætti vikunnar og var Daníel Brandur með í þessari viku nýkominn af Anfield þar sem hann sá Liverpool - Everton fyrir fullum velli. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þ...
Sep 28, 2022•1 hr 24 min•Season 2022Ep. 397
Sannarlega lognið á undan storminum þessa dagana, Liverpool leik helgarinnar var frestað og landsleikjahlé hefur tekið við. Nýttum tækifærið til að rýna betur í leikmannakaup Liverpool undanfarin ár og þeirri vegferð sem félagið er á. Skoðuðum rosalegt leikjaprógramm október mánaðar og byrjun tímabilsins í deildinni. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti. Egils Gull Húsasmiðjan Sólon Jói Úther...
Sep 20, 2022•1 hr 16 min•Season 2022Ep. 396
Þetta er farið að minna á Covid ruglið, það er frestað deildarleikjum Liverpool tvær helgar í röð verða fráfalls Elísabetar Englandsdrottningar og ástæðurnar fyrir þessu raski eru vægast sagt tæpar. Einu leikir Liverpool undanfarið eru því tveir afar mismunandi Meistaradeildarleikir. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti. Egils Gull Húsasmiðjan Sólon Jói Útherji Ögurverk ehf...
Sep 14, 2022•51 min•Season 2022Ep. 395
Byrjun tímabilsins heldur áfram að vera allt of mikið bras hja okkar mönnum, eins tæpur sigur og mögulegt er á móti Newcastle í miðri viku og 0-0 tap gegn Everton á Woodison var allt of sumt í þessari viku og framundan er þriggja leikja vikur fram að HM í eyðimörkinni. Napoli á útivelli fyrsta verk í þeirri törn. Leikmannaglugganum var einnig lokað í þessari viku m.a.s. Liverpool bætti við sig leikmanni. Þéttur pakki. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samst...
Sep 06, 2022•1 hr 8 min•Season 2022Ep. 394
Liverpool vaknaði heldur betur til lífsins um rústaði Bournemouth 9-0 eftir þreytta byrjun á þessu tímabili. Það er því aðeins léttari brúnin fyrir verkefnum vikunnar sem eru Newcastle á miðvikudaginn og Everton í hádeginu á laugardaginn. Smelltum okkur á Sólon Bistro Bar í miðbænum og fengum gallharðan Newcastle mann með okkur til að fara yfir allt það helsta í þessari viku. Leikmannamarkaðnum lokar að fimmtudaginn og það var dregið í Meistaradeildinni líka. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælend...
Aug 29, 2022•1 hr 14 min•Season 2022Ep. 393
Svona þættir eru ekki síður sáfræðitími en fótboltaumræða. Ömurleg úrslit á Old Trafford, eitt versta tap Liverpool undir stjórn Klopp og staðan í deildinni bara alls ekki sexy. Ljóst að liðið þarf að stíga hressilega upp og orðið mjög augljóst að það þarf fleiri ferska gæðaleikmenn í þennan hóp. Liverpool virkar þreytt, gamalt og meitt fyrstu vikurnar á nýju tímabili. Bournemouth er kjörið tækifæri til að snúa því. 1.mín – Leikurinn gegn United 34.mín – Það helsta úr hinum leikjum umferðarinnar...
Aug 23, 2022•1 hr•Season 2022Ep. 392
Það er eins og Liverpool sé alltaf að spila sama leikinn, þeir virðast allir þróast á svipaðan hátt og ætlar að reyna erfitt að brjóta af þeim vana. Endalaus meiðsli og annarskonar fjarverur lykilmanna einfalda alls ekki lífið. Rosalega vond töpuð stig gegn Palace og strax fjögur stig í toppliðin. Næsti leikur er svo gegn botnliðinu á Old Trafford! 1.mín – Copy/Paste gegn Palace 26.mín – Það helsta úr hinum leikjum umferðarinnar 43.mín – Botnliðið næst á Old Trafford næst Stjórnandi: Einar Matth...
Aug 16, 2022•1 hr 8 min•Season 2022Ep. 391
Liverpool var mjög lengi í gang í hádegisleiknum gegn Fulham í fyrstu umferð og það kostaði á endanum tvö mjög dýrmæt stig. Vond byrjun á mótinu sem helstu keppinautar nýttu sér vel í kjölfarið. 1.mín – Fulham leikurinn 25.mín – Fyrsta umferðin – hin liðin 52.mín – Crystal Palace í næstu viku Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Aug 08, 2022•1 hr 5 min•Season 2022Ep. 390
Enski boltinn fer formlega af stað núna um helgina og byrjar Liverpool á ferð til London í fyrramálið. Gummi Ben tók skemmtilegt spjall við okkur til að spá í spilin fyrir komandi vertíð. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn, Maggi og Gummi Ben
Aug 05, 2022•55 min•Season 2022Ep. 389
Undirbúningstímabilið er tæknilega búið og Liverpool ferðast nú aftur til Englands eftir stífar æfingar undanfarna viku og tvo æfingaleiki gegn Leipzig og Salzburg. Góðgerðarskjöldurinn er klukkan 15:00 á laugardaginn og mótið hefst svo helgina á eftir. 2.mín – Æfingaleikurinn gegn Salzburg og undirbúningstímabilið 22.mín – Helstu fréttir úr knattspyrnuheiminum 61.mín -Upphitun fyrir góðgerðarskjöldinn Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi...
Jul 28, 2022•1 hr 17 min•Season 2022Ep. 388
Góðgerðarskjöldurinn er eftir 12 daga og æfingatímabilið að fara í næsta fasa. Töluvert að frétta af leikmannamarkaðnum en svosem ekki mikið hjá Liverpool. 1.mín – Æfingaleikir í Asíu 17.mín – Breytingar á miðjunni? 35.mín – Hvað er að frétta af hinum liðunum í deildinni 72.mín.mín – Næstu leikir Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti. Egils Gull (léttöl) Húsasmiðjan Sólon Bistro Bar Ögurverk ehf Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Mag...
Jul 18, 2022•1 hr 17 min•Season 2022Ep. 387
Salah er búinn að gera nýjan þriggja ára samning við Liverpool, hin toppliðin sitja heldur betur ekki auðum höndum í sumar og æfingaleikjatímabilið hefst strax í næstu viku. 1.mín – Salah með nýjan samning 14.mín – Fleiri leikmannakaup í sumar? 23.mín – Breytingar á hinum liðunum 55.mín – Æfingar og æfingaleikir framunda Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti. Egils Gull (léttöl) Húsasmiðjan Sólon Bistro Bar Ögurverk ehf Stjórnandi: Einar Matthías Vi...
Jul 04, 2022•1 hr 1 min•Season 2022Ep. 386
Darwin Nunez er komin til Liverpool en Sadio Mané er að fara. Tókum stöðuna á helstu fréttum af Liverpool á leikmannamarkaðnum og horfðum til næsta tímabils sem er handan við hornið. 1.mín – Darwin Nunez 25.mín – Mané að fara 38.mín – Calvin Ramsey frá Aberdeen 46.mín – Fleiri að fara/koma í sumar? 58.mín – Leikjaplanið 22/23 Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti. Egils Gull (léttöl) Húsasmiðjan Sólon Bistro Bar Ögurverk ehf Stjórnandi: Einar Matthí...
Jun 17, 2022•1 hr 6 min•Season 2022Ep. 385
Frakkar sýndi það og sönnuðu í eitt skipti fyrir öll að þeir eru ömurlegir heim að sækja, það var ekki hægt að standa mikið verr að Úrslitaleik Meistaradeildarinnar og hjálpaði það ekki ofan í vonbrigðin yfir leiknum sjálfum. Hvað gera Julian Ward, Jurgen Klopp og félagar í sumar til að hressa upp á hópinn og hvernig er prógrammið framundan í sumar? 1.mín – Klúður hjá Liverpool í París 12.mín – Hörmungar skipulag og lygar hjá Frökkum og UEFA 28.mín – Hvernig þróast Liverpool liðið í sumar – Sill...
Jun 02, 2022•1 hr 4 min•Season 2022Ep. 384
Stærsti leikur tímabilsins framundan, Liverpool – Real Madríd í París í Úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Þetta verður einfaldlega ekkert stærra en það. Hituðum upp fyrir leikinn í París, tókum stutt spjall við hressa meistara úr stjórn Liverpool klúbbsins sem eru staddir í París og horfðum aðeins yfir tímabilið sem var að klárast um helgina. 1.mín – Lokaumferðin og stemmingin á Anfield 18.mín – Real Madríd í París 28.mín – Stemmingin í Parísarborg 41.mín – Samanburður á liðunum Þökkum að vanda ...
May 26, 2022•1 hr 28 min•Season 2022Ep. 383
Uppgjör á lokadegi tímabilsins og tímabilinu í heild var aðalmál á dagskrá í þessari viku með annað augað á hvað gerist í framhaldinu, bæði á leikmannamarkaðnum og auðvitað í París um helgina. Einar Örn annar af stofnendum Kop.is mætti aftur eftir langt hlé og fréttamaðurinn knái og fráfarandi Formaður Liverpool klúbbsins Hallgrímur Indriða var með okkur að auki. 1.mín – Lokaumferðin á Anfield og Etihad 28.mín – Leikmannamarkaðurinn hjá Liverpool 41.mín – Uppgjör á tímabilinu hjá helstu liðum af...
May 23, 2022•1 hr 20 min•Season 2022Ep. 382
Liverpool eru bikarmeistarar 2022 eftir annan sigur gegn Chelsea á Anfield South eftir vítaspyrnukeppni. West Ham gaf Liverpool svo líflínu í deildinni með því að taka stig af City en dauðþreytt Liverpool liðið á næsta leik, Southampton úti á þriðjudaginn. Sigur þar gerir næstu helgi spennandi, Liverpool fær Úlfana á Anfield á meðan Steven Gerrard og félagar fara á Etihad… Okkar allra besta Hanna Símonardóttir var með okkur að þessu sinni og fræddi okkur m.a. um Liverpool skólann sem verður í tí...
May 15, 2022•1 hr 7 min•Season 2022Ep. 381
Úrslit í Meistaradeildinni staðfest, Real Madríd aftur. Deildin fór ekki vel um helgina en það er strax komið að næstu umferð í kvöld (þriðjudag) gegn Aston Villa og svo bíður sjálfur Úrslitaleikur FA Cup um næstu helgi. Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Egils Gull (léttöl) Húsasmiðjan Sólon Bistro Bar Ögurverk ehf Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi...
May 09, 2022•1 hr 2 min•Season 2022Ep. 380
Four more years af Jurgen Klopp, flott staða í Meistaradeildinni og góður sigur í Newcastle. Úrvals vika hjá Liverpool. Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Haukur Guðmunds (Liverpool Haukur)
May 01, 2022•49 min•Season 2022Ep. 379
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Ef það ætti að teikna upp hina fullkomnu viku fyrir stuðningsmann Liverpool væri sigur á Man City, stórsigur á Man Utd og nánast algjörir yfirburðir gegn Everton ansi nærri lagi. Framundan eru svo tveir undanúrslitaleikir Meistaradeildarinnar og ferðalag til Newcastle í millitíðinni. 1.mín – Everton leikfélagið 26.mín – United niðurlægt, aftur. 39.mín – Undanúrslit Meistaradeildarinnar 47.mín – Newcastle – heitasta lið deildarinnar...
Apr 26, 2022•56 min•Season 2022Ep. 378
Liverpool fór illa með Man City á Wembley og er komið í bikarúrslit gegn Chelsea. Ferðalag í undanúrslit Meistaradeildarinnar eru einnig staðfest og gegn Gula kafbátnum sem sökkti FC Bayern. Þessi vika verður einokuð af báðum alvöru höfuðandstæðingum Liverpool. 1.mín – Fótbolti.net 20 ára 5.mín – Sannfærandi á Wembley 37.mín – Undanúrslit í Meistaradeildinni 51.mín – Sean Dyche og baráttan um að ná ekki topp 4. 57.mín – United og Everton vika framundan Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins f...
Apr 18, 2022•1 hr 19 min•Season 2022Ep. 377
Efst á dagskrá var auðvitað risaslagurinn á Etihad og helstu viðburðir helgarinnar. Sömu andstæðingar í næstu viku en allt aðrar aðstæður. 1.mín – Stórleikur tímabilsins 30.mín – Leikir helgarinnar – Spurs með keflið 40.mín – Meistaradeildin – Hvaða lið fara áfram? 66.mín – Undanúrslit í bikarnum Það er svo mikið ánægjuefni að kynna til leiks nýja samstarfsaðila sem hjálpa okkur við að halda síðunni úti, Húsasmiðjan sem er Liverpool byggingavörumarkaðarins á Íslandi. Stjórnandi: Einar Matthías V...
Apr 11, 2022•1 hr 15 min•Season 2022Ep. 376