Háspenna lífshætta framundan, útileikur í Meistaradeildinni til að hita upp fyrir stórleik tímabilsins á Etihad á sunnudaginn. Roy Hodgson og félagar í Watford voru afgreiddir um helgina og því búið að tía upp hreint rosalegan leik næstu helgi. Annarsstaðar í deildinni er Everton er áfram í vandræðum, United er í verulegri brekku í baráttunni um Meistaradeildarsæti og Chelsea var fékk Will Smith löðrung. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi...
Apr 04, 2022•1 hr 10 min•Season 2022Ep. 375
Síðasta landsleikjahlé tímabilsins er lognið á undan storminum framundan. Spáðum í spilin fyrir næstu umferð, veltum fyrir okkur vænanlegum eigendaskiptum hjá Chelsea og hverjir eru líklegir til að taka við Man Utd og hvað bíður þeirra þar. Watford er svo verkefni helgarinnar í hádeginu á laugardaginn. 02:00 – Eigendaskipti Chelsea 28:00 – Næsti stjóri United 49:00 – Watford og leikir helgarinnar Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi...
Mar 28, 2022•1 hr 9 min•Season 2022Ep. 374
Apríl mánuður verður rosalegur hjá Liverpool enda liðið komið djúpt í þremur keppnum. Stuðningsmenn Liverpool hafa í um hálfa öld sungið um að hata Nottingham Forest og stuðningsmenn þeirra sýndu ágætlega afhverju það er. Arsenal var sigrað í þriðja skipti á þessu tímabili og næstu andstæðingar í Meistaradeild og FA Cup voru opinberaðir. 03:00 – Nottingham Forest 20:00 – Dregið í Meistaradeild 33:00 – Rosalegur apríl (City í FA Cup) 45:00 – Þriðji sigur tímabilsins á Arsenal Stjórnandi: Einar Ma...
Mar 21, 2022•1 hr 7 min•Season 2022Ep. 373
Flott ferð til Brigton, tapsigur gegn Inter, Sportwashing í enska boltanum, áhugaverð umferð á toppi og botni og Steini fimmtugur í fyrsta skipti! Viðburðarík vika að baki. Salah og barnið sem fer með hans mál fékk sinn tíma og eins það sem er framundan í næstu viku, fyrst er það risaleikur á Emirates í miðri viku og um helgina er það fyrsti bikarleikurinn gegn Nottingham Forest síðan 1989! Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Sveinn Waage og SSteinn...
Mar 14, 2022•1 hr 8 min•Season 2022Ep. 372
Tveir góðir sigrar í Liverpool borg með Magga á vellinum. Vond vika PR lega fyrir Sportwashing félögin í boltanum og Chelsea til sölu. Alvöru barátta um bæði titlinn og Meistaradeildarsæti. Framundan er svo seinni leikurinn við Inter og ferðalag til Brighton. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn
Mar 07, 2022•1 hr 2 min•Season 2022Ep. 371
Einn af fjórum! Maggi og Steini fóru á Wembley og horfðu á okkar menn landa mjög svo sætum sigri á Chelsea liði Roman Abramovich. Gott spjall um þeirra ævintýri í London og hvernig það er að mæta á úrslitaleik. Heimsfréttirnar hafa verið hræðilegar undanfarna daga og gætu haft mikil áhrif á fótboltann líkt og annað og verður t.d. fróðlegt að sjá hvað gerist á næstunni andstæðingum helgarinnar. Leeds liðið var tekið með vinstri í miðri viku og Bielsa sagt í kjölfarið að hann væri Drekinn. FA Cup ...
Feb 28, 2022•1 hr 16 min•Season 2022Ep. 370
Það er líf í toppbaráttunni ennþá eftir góða helgi á Englandi og staðan er ljómandi góð í Meistaradeildinni eftir heimsókn á San Siró. Leeds leikurinn á miðvikudaginn er risastór og um helgina er komið að úrslitaleik deildarbikarsins með Gullkastið á staðnum. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn
Feb 21, 2022•1 hr 10 min•Season 2022Ep. 369
Tveir góðir sigrar á Leicester og Burnley í deildinni er gott fóður í risaslaginn gegn ítölsku meisturunum í Inter. Tvær umferðir í deildinni í vikunni og hörkubarátta um að ná ekki síðasta Meistaradeildarsætinu.
Feb 14, 2022•1 hr 14 min•Season 2022Ep. 368
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og Sveinn Waage Luis Diaz stimplaði sinn inn í fyrsta skipti, Harvey Elliott mætti aftur og minnti rækilega á sig og Thiago er kominn aftur á ról. Afríkukeppninni lauk með einvígi Salah og Mané og Klopp því kominn með allt að því fullskipað lið fyrir átök næstu vikna. Leicester og Burnley bíða í þessari viku en Meistaradeildin fer svo aftur af stað í þeirri næstu.
Feb 07, 2022•1 hr 13 min•Season 2022Ep. 367
Í fjarveru Einars fóru Maggi og SSteinn yfir leikmannagluggann í janúar, bæði hjá Liverpool og öðrum liðum í enska boltanum. Kíktu svo aðeins á leikinn við Cardiff í bikarnum um næstu helgi
Jan 31, 2022•1 hr 10 min
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Tveir sigrar í deildinni án Afríkumannanna og sæti í úrslitaleik á Wembley í ofanálag. Janúnar fór betur en margir óttuðust.
Jan 24, 2022•1 hr 2 min•Season 2022Ep. 365
Góður sigur um helgina og hálfleikur í einvíginu gegn Arsenal í deildarbikarnum stóru málin á dagskrá í þessari viku. City tók slaginn við Chelsea, Benitez er farinn frá þeim bláu og Coutinho mætti aftur með látum. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Jan 17, 2022•1 hr 12 min•Season 2022Ep. 364
Jan 14, 2022•26 min
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Bikarvika á Anfield, janúarglugginn, Covid vesen, erfið titilbarátta o.fl.
Jan 03, 2022•1 hr 6 min•Season 2022Ep. 363
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og MaggiLiverpool kveður árið 2021 á svipuðum nótum og þeir hófu það. Svekkjandi tap gegn Leicester, uppgjör á árinu og upphitun fyrir stórleikinn gegn Chelsea var helst á dagskrá í lokaþætti ársins.
Dec 30, 2021•1 hr 1 min•Season 2021Ep. 362
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Óhjákvæmileg dómaraumræða eftir torsótt stig í London, sigur á ríkasta liði sögunnar í miðri viku og gríðarlega krefjandi jólatörn framundan og allt vaðandi í Covid. Þétt dagskrá í síðasta þætti fyrir jól.
Dec 20, 2021•1 hr 8 min•Season 2021Ep. 361
Eftir ævintýralegt klúður hjá UEFA kom Inter Milan upp úr hattinum í næstu umferð Meistaradeildarinnar. Liverpool er því aftur á leiðinni á San Siro þar sem þeir luku riðlakeppninni með fullu húsi stiga. Steven Gerrard kom svo aftur á Anfield en fékk lítið meira en lófaklappið. Næsta verk er svo ríkasta íþróttalið sögunnar. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Dec 13, 2021•59 min•Season 2021Ep. 360
Dec 09, 2021•24 min
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Liverpool fór á Goodison og bauð gleðileg jól og tók þá bókstaflega með vinstri. Divock Origi kom inná gegn Wolves með þau fyrirmæli frá Klopp að vera Divock Origi, hann gerði einmitt það. Frábær vika og framundan er ferð til Milan og endurkoma Steven Gerrard. Tvær heilar umferðir á Englandi, nóg að ræða og þrumustuð.
Dec 06, 2021•1 hr 9 min•Season 2021Ep. 359
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Everton er verkefni vikunnar á Goodison Park og verður vonandi ekki jafn herfilega heimskulega dæmdur og fáránlega grófur og þessi leikur liðanna var á síðustu leiktíð. Sú fjandans viðureign er geymd en ekki gleymd. Úlfarnir bíða svo um helgina einnig á útivelli. Síðustu viku vann Liverpool samanlagt 10-0 og var það nokkuð vel sloppið frá sjónarhóli andstæðinga vikunnar. Annarsstaðar tapaði Chelsea loksins stigum og United réði bara nokkuð...
Nov 29, 2021•1 hr 9 min•Season 358Ep. 2021
Nov 26, 2021•25 min
Liverpool rústaði Arsenal enn eina ferðina á Anfield en það var ekki bara gleði um helgina, Man Utd sagði okkar manni á hjólinu mjög ósanngjarnt upp störfum. Meistaradeild í vikunni og þétta leikjaprógramm næstu vikur. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Nov 22, 2021•1 hr 10 min•Season 2021Ep. 357
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn, Maggi og Sveinn Waage Michael Edwards er búinn að staðfesta það að hann ætli að hætta sem Sporting Director eftir tímabilið og Julien Ward tekur við af honum. Hvaða áhrif gæti þetta haft á félagið? Steven Gerrard er tekin við Aston Villa og mætir kokhraustur með þá á Anfield í næsta mánuði. Stórleikur gegn Arsenal um helgina en skytturnar hafa ekki tapað í síðustu tíu leikjum.
Nov 15, 2021•1 hr•Season 2021Ep. 356
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Tap í London en sigur í Meistaradeildarriðlinum. Svekkjandi veikleikar í leik Liverpool og verulega vond töpuð stig. Nóg að gera annarsstaðar í boltanum enda nú þegar búið að skipta um stjóra hjá fimm liðunum í úrvalsdeildinni. Er Gerrard að koma í enska boltann?
Nov 08, 2021•1 hr 11 min•Season 2021Ep. 355
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Liverpool henti hreinlega frá sér tveimur stigum á Anfield um helgina en komst áfram í deildarbikarnum. Tottenham rak stjórann sinn, United gerði það ekki, City tapaði og Arsenal er að nálgast þá í töflunni. Benitez er í basli hjá Everton. Ballið heldur svo áfram í vikunni og tveir stórir leikir framundan.
Nov 01, 2021•1 hr 13 min•Season 2021Ep. 354
Guðlaugur Þór Utanríkisráðherra var með okkur í þessari viku ásamt fyndnasta vini okkar Sveini Waage til að fara yfir þessa bráðfyndnu veislu á Old Trafford. Stemmingin hefur sjaldan verið betri. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn, Guðlaugur Þór og Sveinn Waage
Oct 25, 2021•1 hr 11 min•Season 2021Ep. 353
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Landsleikir og fjarvera lykilmanna hafði engin áhrif á Liverpool liðið sem var stórkostlegt gegn Watford og sluppu heimamenn nokkuð vel með 0-5 tap. Næsti leikur er úti gegn Atletico Madríd í Meistaradeildinni og á sunnudaginn er stórleikurinn gegn United á Old Trafford. Þétt dagskrá og almenn gleði.
Oct 18, 2021•1 hr 14 min•Season 2021Ep. 352
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Sádi-Arabía er loksins búið að klára kaup sín á Newcastle og koma til með að breyta því félagi í nýjasta Olíufélagið í boltanum. Jurgen Klopp fagnaði sex ára starfsafmæli með Liverpool og leikjaprógrammið út þennan mánuð er nokkuð krefjandi með útileikjum og fjarveru lykilmanna.
Oct 11, 2021•1 hr 9 min•Season 2021Ep. 351
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Rétt eins og í síðasta deildarleik tapaði Liverpool tvisvar sinnum forystu og gerði á endanum jafntefli. Man City var þó eðli málsins samkvæmt töluvert annað stríð en háloftaboltinn gegn Brentford. Svakalegur stórslagur á Anfield. Porto er hinsvegar okkar uppáhalds borg, það er nokkuð ljóst. Tókum púlsinn á öllu því helsta frá leikjum helgarinnar og síðustu viku.
Oct 04, 2021•57 min•Season 2021Ep. 350
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Liverpool lenti í bölvuðu veseni með kála leik helgarinnar gegn Brentford þrátt fyrir að skora þrjú mörk og fá færi til að skora a.m.k. þjrú í viðbót. Það kostaði á endanum, auðvitað. Porto næst á dagskrá og svo risaleikurinn gegn Man City yfrirvofandi um helgina.
Sep 27, 2021•1 hr 10 min•Season 2021Ep. 349