Gullkastið - podcast cover

Gullkastið

Kop.iswww.kop.is
Gullkastið er hlaðvarpsþáttur Kop.is sem hóf göngu sína í maí árið 2011.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Gullkastið – Gamla góða formið

Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Góður sigur á Palace í deild eftir fáránlega óöruggan sigur á AC Milan í Meistaradeildinni. Liverpool er farið að minna aftur á 2018-2020 liðið. Norwich lítið mál í deildarbikarnum.

Sep 21, 20211 hr 12 minSeason 2021Ep. 348

Gullkastið - Svartur blettur á góðum sigri

Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn Meiðsli Harvey Elliott settu sannarlega svartan blett á annars frábæra frammistöðu Liverpool gegn Leeds núna um helgina. Það eru kunnuleg andlit búin að raða sér í efstu fjögur sætin strax í fjóðu umferð og Meistaradeildin fer af stað í vikunni.

Sep 13, 20211 hr 11 minSeason 2021Ep. 347

Gullkastið – Glugginn glatað tækifæri

Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn, Maggi og Árni Steinn Landsleikjahlé og nýbúið að loka leikmannaglugganum. Skoðuðum hvað Liverpool gerði á markaðnum í sumar og hvaða skilaboð það sendir. Ljóst að andstæðingar Liverpool sátu alls ekki auðum höndum.

Sep 04, 20211 hr 1 minSeason 2021Ep. 346

Gullkastið – Jafnteflistap og leikmannaglugginn

Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Svekkjandi jafntefli gegn tíu Chelsea mönnum, lokametrar leikmannagluggans og slúðrað um mögulega brottför Michael Ewdards.

Aug 30, 20211 hrSeason 2021Ep. 345

Gullkastið – Lokavika leikmannagluggans

Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Flott þrjú sig á ofboðslega leiðinlegu Burnley liði og góð byrjun á tímabilinu. Risaslagur strax í næstu umferð og lokavika leikmannagluggans. Gerir Liverpool eitthvað spennandi þar? Ný lína í dómgæslu, áhugaverð úrslit í öðrum leikjum o.fl.

Aug 23, 20211 hr 5 minSeason 2021Ep. 344

Gullkastið - Alvöru Liverpool

Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Liverpool, alvöru Liverpool fór til Norwich í fyrsta leik á nýju tímabili og sótti þægileg þrjú stig í leik sem var fullur af jákvæðum punktum. Fjörug fyrsta umferð annars í deildinni sem lofar góðu fyrir tímabilið. Leiðinlegasta lið deildarinnar næst á dagskrá og leikmannaglugginn er ennþá opinn.

Aug 17, 20211 hr 8 minSeason 2021Ep. 343

Gullkastið - Tilbúnir í mót

Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þá er ekkert að vanbúnaði og mótið má bara hefjast.

Aug 11, 20211 hr 18 minSeason 2021Ep. 342

Gullkastið - Læti á leikmannamarkaðnum

Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Liverpool hefur lokið æfingaferð sinni til Austurríkis og Frakklands, næst eru tveir leikir á Anfield og svo hefst nýtt mót næstu helgi. Það eru risa stórar bombur á leikmannamarkaðnum en fæstar hafa nokkuð með Liverpool að gera, Edwards er meira í að semja við okkar bestu menn. Nýjar áherslur í VAR og sitthvað fleira í þætti vikunnar.

Aug 06, 20211 hr 2 minSeason 2021Ep. 341

Gullkastið - Leikmannamarkaðurinn á Englandi

Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Yfirferð yfir helstu fréttir vikunnar með áherslu á leikmannamarkaðinn hjá helstu keppinautum Liverpool sem og auðvitað Rauða Hernum.

Jul 28, 20211 hr 15 minSeason 2021Ep. 340

Gullkastið – Æfingaleikir, sölur og samningar

Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Æfingaleikjatímabilið hófst með óvenjulegum hætti í dag þegar Liverpool spilaði tvo hálftíma leiki í Austurríki. Það er svo venjulegur leikur á föstudaginn gegn Mainz. Liverpool seldi tvo leikmenn í þessari viku og það gæti verið stutt í sölu á fleiri mönnum. Eitthvað sem gæti losað um fyrir kaupum á nýjum mönnum. Svo voru áhugaverðar fréttir af samningsmálum lykilmanna.

Jul 21, 202153 minSeason 2021Ep. 339

Gullkastið - Nýtt tímabil

Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Maggi og Steini skelltu sér í heimsreisu austur fyrir fjall og var nýtt tímabil í enska boltanum formlega hafið á Selfossi að þessu sinni, bullandi sumar, nokkrar Egils Gullstundir og almenn gleði. Það má fara klára þetta landsliðamót og fara hefja alvöru fótbolta á ný.

Jul 05, 20211 hr 11 minSeason 2021Ep. 338

Gullkastið - Þjálfarakapall

Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Spáum í helstu vendingar á leikmanna og þjálfaramarkaðnum, horfum aðeins til baka á þetta tímabil og tókum snúning á úrslitaleikjunum í Evrópu sem voru í þessari viku

May 31, 20211 hr 12 minSeason 2021Ep. 337

Gullkastið – Þetta er loksins búið!

Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Gullkastið er 10 ára í dag en fyrsti þáttur fór í loftið á Istanbul daginn árið 2011. Til hamingu við sjálfir. Djöfull sem þetta hefur verið gaman og það var sannarlega létt yfir okkur í þætti vikunnar. Höfðum reyndar ekki hugmynd um þessi tímamót þegar á upptöku stóð en það breytir því ekki að Liverpool er komið í Meistaradeildina og náði m.a.s. 3.sæti. Uppgjör á tímabilinu á matseðlinum í dag, mikið djöfull er gott að þetta tímabil er bú...

May 25, 20211 hr 29 minSeason 2021Ep. 336

Gullkastið - Heilagur Alisson Becker

Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þvílíka vikan! Endurkoma gegn United þar sem Salah kláraði dæmið í uppbótartíma. Það var þó ekkert miðað við fagnaðarlætin þegar Alisson, já Alisson Becker skoraði sigurmarkið eftir að uppbótartíminn var liðinn gegn liði sem Sam Helvítis Allardyce stjórnar og er nú þegar fallinn með. Þetta einfaldlega galopnar baráttuna við Leicester og Chelsea um Meistaradeildarsæti. Það sem það var kominn tími á eina svona viku í Gullkastinu....

May 17, 202157 minSeason 2021Ep. 335

Gullkastið - Vonarneisti

Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn, Maggi og Guðlaugur Þór Þórðarson Guðlaugur Þór Þórðarson Utanríkisráðherra mætti í hellinn með okkur og fórum við yfir það helsta úr boltanum undanfarnar vikur. Sigur á Southampton, fíaskóið í kringum leikinn á Old Trafford, helstu væringar í Evrópuboltanum o.fl.

May 10, 202156 minSeason 2021Ep. 334

Gullkastið - Þar fór það

Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Vonbrigðin þetta tímabilið ætla bara engan enda að taka. Enn einu sinni kastar Liverpool frá sér leik sem ætti að öllu eðlilegu að vera löngu búinn. Tímabilið fjaraði svo gott sem endanlega út fyrir vikið.

Apr 26, 202154 minSeason 2021Ep. 333

Gullkastið – PR hamfarir hjá FSG

Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Það tók ekki langan tíma að kála hugmyndum um European Super League

Apr 20, 202156 minSeason 2021Ep. 332

Gullkastið – Meistaradeildin í aðalhlutverki

Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Meistaradeildarsæti á næsta tímabili er orðið raunhæfara í dag en það fyrir ekki svo löngu síðan en baráttan um sæti í 8-liða úrslitum á þessu tímabili er orðin töluvert snúnari. Fórum yfir misjafna leiki gegn Aston Villa og Real Madríd. Liverpool hefur auðvitað séð það svartara gegn spænskum risa fyrir leik á Anfield. Leeds bíður svo handan við helgina. Einfaldlega stærsta vika tímabilsins framundan....

Apr 12, 20211 hr 14 minSeason 2021Ep. 330

Gullkastið – Frá höfuðborg Englands til höfuðborgar Spánar

Stjórnandi: Maggi Viðmælendur: SSteinn og Einar Matthías Real Madríd bíður í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar og hressandi yfirspilun á Emirates var einmitt upphitunin sem við þurftum fyrir það. Reyndar líka þessi upphitun frá því í gær. Baráttan um Meistaradeildarsæti er síður en svo búin en Liverpool nær að spila svona áfram.

Apr 06, 20211 hr 7 minSeason 2021Ep. 329

Gullkastið - Lokaspretturinn

Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælandi: Maggi Síðasta landsleikjahléi tímabilsins lokið og alvöru prógramm framundan sem hefst með stórleik gegn Arsenal á laugardagskvöldið. Ræðum nýjasta slúðrið af leikmannamarkaðnum en Liverpool var í vikunni nokkuð sterklega orðað við miðvörð frá Leipzig. Framtíð Salah, breytingar á Meistaradeild, arftaki Aguero hjá City o.fl.

Mar 30, 20211 hr 2 minSeason 2021Ep. 328

Gullkastið – Real Madríd á leiðinni til Istanbul

Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Ljót þrjú stig gegn Úlfunum og annar sigur á RB Leipzig léttu aðeins andann fyrir langt þriggja vikna hlé. Real Madríd kom upp úr pottinum í Meistaradeildinni og Liverpool á sannarlega harma að hefna gegn þeim. Óvenjulegt landsleikjahlé nýtist Klopp svo vonandi vel fyrir lokakafla tímabilsins.

Mar 22, 202151 minSeason 2021Ep. 327

Gullkastið - Gleðivísitalan í lágmarki

Enn ein hörmungarhelgin og nákvæmlega ekkert gengur á Anfield, Meistaradeildarsætisbaráttan svo gott sem búin en Liverpool er þó ennþá inni í núverandi tímabili í Meistaradeildinni. Fengum formann Liverpoolklúbbsins og fréttamanninn Hallgrím Indriðason með okkur til að fara yfir síðustu viku og til að kynna nýjan hlaðvarpsþátt Liverpoolklúbbsins sem fór í loftið á miðvikudaginn....

Mar 08, 202159 minSeason 2021Ep. 326

Gullkastið - Loksins sigur

Loksins loksins sigur í deildarleik þrátt fyrir ennfrekari brottföll í leikmannahópnum, framundan er eru svo tveir ólíkir leikir við höfuðborgarliðin og nágrannana í Chelsea og Fulham. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi

Mar 01, 202151 minSeason 2021Ep. 325

Gullkastið - Þegar sýður uppúr þá þrífur maður eldavélina

Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Það blæs verulega á móti hjá okkar mönnum og alls kyns furðusögur verið á lofti um helgina eftir slæmt tap gegn Leicester í leik sem var reyndar að svona 75% leiti vel spilaður af okkar mönnum. Leipzig í Meistaradeildinni annað kvöld, Everton um helgina og meiðslalistinn svo langur að Ingó Tóta er að semja lag um hann.

Feb 15, 202159 minSeason 2021Ep. 324

Gullkastið - Það er alltaf næsta tímabil

Veik von um alvöru titilbaráttu dó í síðstu viku og ljóst að Liverpool er í bullandi erfiðri baráttu um Meistaradeildarsæti ef gengi liðsins fer ekki að breytast til batnaðar. Afar erfið vika á dagskrá að þessu sinni. Framundan eru svo þrír stórir leikir.

Feb 08, 202156 minSeason 2021Ep. 323

Gullkastið – Leikmannaglugginn og leikir í London

Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Ensku meistararnir skelltu sér tvisvar til London í þessari viku og náðu í sex risastór stig. Þetta var allt annað að sjá en þessa 2010 útgáfu af Liverpool sem við fengum megnið af janúar. Auk þess var síðasti dagur leikmannagluggans í dag og Liverpool lét til sín taka með panic kaupum á tveimur miðvörðum, ekki veitir af. Brigton sem vann Tottenham líka í þessari viku er næst á dagskrá og svo risaslagur á Anfield við Man City....

Feb 01, 20211 hr 6 minSeason 2021Ep. 322

Gullkastið – Déjà vu

Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Það er eins og við séum stanslaust að horfa á sama leikinn þessa dagana, tveir vondir tapleikir í þessari viku og áframhald á ömurlegu gengi. Aðalvandamálið blasir við en eigendur félagsins eru ekki aðeins farnir að fara í taugarnar á stuðningsmönnum liðsins heldur stjóranum líka sem er meira áhyggjuefni. Frank var sparkað hjá Chelsea og framundan eru Mourinho og Moyes með tilheyrandi gleði....

Jan 25, 20211 hr 2 minSeason 2021Ep. 321

Gullkastið - Þurr janúar

Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Liverpool er í smá krísu, vond töpuð stig á Anfield gegn Man Utd liði sem mætti fyrst og fremst til að halda stiginu. Næstu leikir eru gegn Dyche, Mourinho og Moyes þannig að það er hætta á sömu sýningu áfram ef Liverpool nær ekki að breyta um takt sóknarlega.

Jan 18, 202153 minSeason 2021Ep. 320

Gullkastið – United í deild og bikar

Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Börnin hjá Aston Villa stóðu sig vel en þar sem það dugði ekki til er Liverpool á leiðinni á Old Trafford í næstu umferð bikarsins. Fyrst er reyndar deildarleikur á Anfield við sama lið.

Jan 11, 202151 minSeason 2021Ep. 319
Hosted on Libsyn
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android