Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Stóru fréttir vikunnar voru að sjálfsögðu í fókus í þætti vikunnar þó þær snerti Liverpool ekki beint. Tottenham rak besta stjóra í nútímasögu félagsins og borgar samtals um 27m til að fá Mourinho í staðin til að vinna með Daniel Levy. Það ætti að sjónvarpa öllum þeirra fundum beint, Amazone Prime gæti séð um upptökurnar. Síðasti leikur Liverpool var svo auðvitað gegn Man City og við erum langt í frá búnir að gleyma þeirri gleði. Næsta ver...
Nov 21, 2019•1 hr 1 min•Season 2019Ep. 263
Stjórnandi: Magnús Már Einarsson Viðmælendur: Einar Matthías, Maggi og SSteinn Fórum á skrifstofur Fótbolti.net til að taka upp Innkastið sem fjallaði um veislu helgarinnar. Það er því ekki hefðbundið Gullkast í þessari viku.
Nov 11, 2019•56 min•Season 2019Ep. 262
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Það er nokkuð ljóst að Man City leikirnir eru stærstu leikir tímabilsins ef eitthvað er að marka þá spennu sem hefur verið að byggjast upp alla þessa viku. Fókus að sjálfsögðu töluverður á þeim leik en einnig þremur síðustu leikjum, endurkomunni í Birmingham, bullinu gegn Arsenal og þessum Genk leik sem enginn nennti að spá enda hugurinn á helginni.
Nov 06, 2019•1 hr 20 min•Season 2019Ep. 261
Kynnum til leiks nýja dagskrárlið í samstarfi við Sport & Grill Smáralind, Gullkastið TV. Þetta er hugsað sem mánaðarlegur sjónvarpsþáttur af Gullkastinu þar sem við mætum á okkar heimavöll og gerum upp mánuðinn. Þetta er semi demo útgáfa en vonandi eitthvað sem við þróum áfram. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Nov 04, 2019•44 min•Season 2019Ep. 261
Stjórnandi: Maggi Þórarins Til að almennilega upp fyrir leik gegn Aston Villa þá er fátt betra en að fá toppþjálfarann, Liverpool-áhangandann og fyrrum leikmann Villa til spjalla stuttlega um fortíð, framtíð og nútíð. Það er enginn annar en góðkunningi Kop.is og gulldrengurinn Jóhannes Karl Guðjónsson sem spjallar við okkur
Nov 01, 2019•15 min•Season 2019Ep. 2001
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Sex stig á City, miklu betra TV en Sex in the City. Tottenham fékk 0-1 forgjöf og spilaði eins og Pulis-lið allan leikinn en það dugði ekki til. Þrír risapunktar í toppliðaslag. Genk var lítið mál í Belgíu með miðjunni okkar allra inná. Verðum svo fremst í stafrófinu í næstu leikjum.
Oct 28, 2019•1 hr 5 min•Season 2019Ep. 259
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Liverpool vann ekki deildarleik, það gerðist síðast 3.mars þannig að auðvitað var þörf á krísufundi og áfallahjálp áður en hægt að spá í næstu leikjum gegn Genk og Tottenham.
Oct 22, 2019•1 hr 16 min•Season 2019Ep. 258
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Rétt eins og þegar United var á toppnum þá á það sama við núna þegar þessu er öfugt farið, Liverpool - Man Utd er stærsti leikurinn í fótboltanum. Það er nóg að frétta innan sem utanvallar hjá United og því tókum við vel á þeirra sápuóperu.
Oct 15, 2019•1 hr 21 min•Season 2019Ep. 257
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn Eins og Emlyn Huges sagði á sínum tíma " Liverpool are magic , Everton are tragic ". Liverpool er áfram með fullt hús á toppnum á meðan Everton er í fallsæti og Manchester liðin töpuðu bæði skyldusigursleikjum til að toppa helgina. Leikir helgarinnar ásamt umræðum um City, Spurs og Everton sérstaklega.
Oct 08, 2019•1 hr 35 min•Season 2019Ep. 256
Þetta þarf ekki alltaf að vera sannfærandi svo lengi sem sigurgangan heldur áfram. Tókum á helstu fréttum vikunnar og því sem er framundan. - Salzburg, meira en bara heimaborg Mozart - MK Dons, loksins alvöru deildarbikarleikur fyrir krakkana. - Sanngjarn ljótur sigur í Sheffield - Rodgers mætir í fyrsta skipti aftur á Anfield - Fékk Tottenham sjö mörk á sig í London? - Arsenal og United samanlagt með jafn mörg stig og Liverpool - Everton í nær sex liða botnbaráttu en topp sex. - Veikleikamerki ...
Oct 01, 2019•1 hr 3 min•Season 2019Ep. 255
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þórarins (Beardsley) Sigurinn á Chelsea var sá besti það sem af er þessu tímabili og fær andstæðingurinn í þeim leik ekki mikið minna svigrúm í þætti vikunnar. Tókum einnig umræðu um helstu keppinauta Chelsea í vetur og veltum fyrir okkur hvort þetta sé flokkað sem topp sex mikið lengur? Mk Dons og Sheffield eru verkefni vikunnar og að lokum spáðum við aðeins í FIFA verðlaunaafhendinguna sem var í gærkvöldi, þar átti Liverpool gott kvöld. ...
Sep 25, 2019•1 hr 22 min•Season 2019Ep. 254
Vont tap í Napoli eftir góðan sigur á Newcastle þar sem fleiri en stuðningsmenn Liverpool fóru að átta sig á gæðum Bobby Firmino Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Sep 19, 2019•54 min•Season 2019Ep. 253
Fréttir af ferðalögum kop.is í vetur, við rýnum í landsleikjahléið og skoðum heimsókn lærisveina Steve Bruce um næstu helgi auk þess að fjalla um þá staðreynd að Evrópumeistarar mæta til leiks. Einar Matthías er í fríi í kvöld og Maggi fær að stjórna Steina! Auk þeirra kemur í þáttinn formaður Liverpool-klúbbsins á Íslandi, Hallgrímur Indriðason.
Sep 11, 2019•1 hr 1 min•Season 2019Ep. 252
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur : Maggi og SSteinn Sannfærandi sigur á Turf Moor sýnir líklega best þróun Liverpool liðsins undanfarin ár. Mesta "Tony Pulis Stoke" lið deildarinnar átti ekkert í líkamlega sterka leikmenn Liverpool sem eru á sama tíma mun betri á öllum stigum fótboltans. Van Dijk og Alisson fóru á meginlandið fyrir leik til að ná í verðlaun sem bestu varnarmenn álfunnar á síðasta tímabili og Van Dijk ætti að vera næsta öruggur með Ballon d´Or. Úrslit í öðrum leikjum voru a...
Sep 03, 2019•1 hr 27 min•Season 2019Ep. 251
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn Boring borning Arsenal mætti til að verja stigið á Anfield og tókst það auðvitað ekkert. Burnley bíður næstu helgi og ekki er það nú skemmtilegra lið. Hættir Klopp 2022, er Nike að taka við af New Balance, hverja viljum við fá í Meistaradeildinni á föstudaginn, hvað gerðist í öðrum leikjum helgarinnar? Þetta og fleira í þéttum þætti vikunnar.
Aug 28, 2019•1 hr 16 min•Season 2019Ep. 250
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn Þetta var viðburðarík vika hjá OfurEvrópuMeisturum Liverpool og það er stórleikur um helgina. Hjóluðum í það og svöruðum nokkrum spurningum "úr sal" í restina.
Aug 21, 2019•1 hr 10 min•Season 2019Ep. 249
Stjórnandi : Einar Matthías Viðmælendur : SSteinn og Maggi Hentum okkur í þátt strax eftir fyrsta leik, frábær sigur á Norwich, vangaveltur um leikmannagluggann og spánna fyrir mót. Hlaðið í þátt strax eftir fyrsta leik gegn Norwich.
Aug 09, 2019•1 hr 8 min•Season 2019Ep. 248
Tómas Þór Þórðarson verður aðalmaðurinn í umfjöllun um enska boltann í vetur, hann mætti til okkar í spjall um vistaskipti sín til Símans og hvernig þau ætla sér að haga umfjöllun um boltann. Seinni hluti þáttarins var meira hefðbundið Liverpool tengt spjall
Jul 31, 2019•1 hr 8 min•Season 2019Ep. 247
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Veltum fyrir okkur hverjir hafa verið að nýta tækifærið það sem af er æfingatímabilinu, stöðunni á hópnum og öðrum fréttum frá Ameríku sem og annarsstaðar í fótboltaheiminum. Nú er heldur betur farið að styttast í mót.
Jul 24, 2019•53 min•Season 2019Ep. 246
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn Æfingatímabilið er farið að stað og spurning hvort við lærðum eitthvað í fyrstu tveimur æfingaleikjunum? Coutinho hefur verið fyrirferðarmikill í slúðrinu í vikunni, er líklegt að Liverpool kaupi hann og viljum við hann yfirhöfuð? Hvað eru hin liðin að gera í sumar og hvaða væntingar geta þau haft til næsta tímabils? Veltum þessum spurningum og fleiri fyrir okkur í framlengdum Gullkastþætti....
Jul 18, 2019•1 hr 34 min•Season 2019Ep. 245
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn Greindum Liverpool liðið stöðu fyrir stöðu til að reyna finna út hvar og hvernig væri hægt að styrkja Liverpool liðið með hliðsjón af misalvarlegum orðrómum tengdum félaginu það sem af er sumri. Tókum einnig aðrar fréttir úr enska boltanum og horfðum til fyrstu umferðar í ágúst.
Jun 27, 2019•1 hr 31 min•Season 2019Ep. 244
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn Létt uppgjör á tímabilinu, úrslitaleikurinn, Silly Season o.m.fl.
Jun 12, 2019•1 hr 27 min•Season 2019Ep. 243
Það mun taka einhverja daga að melta þennan geggjaða sigur í Meistaradeildinni. Leiðin hefur verið svo mikið lengri en bara þetta tímabil. Bara við hæfi að Liverpool færi til Madríd og næði í helvítis bikarinn sem við áttum svo skilið í fyrra. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn, Maggi, Maggi Beardsley, Daníel, Ingimar og Óli Haukur
Jun 03, 2019•1 hr 12 min•Season 2019Ep. 242
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Maggi og SSteinn Úrslitaleikur Meistaradeildarinnar er í Madríd annað kvöld, það er loksins komið að þessu. Til að reka endahnútinn í upphitun Kop.is fyrir þennan risaviðburð héldum við félagarnir í Stjórnarráðið á fund Forsætisráðherra sem er að sjálfsögðu stuðningsmaður Liverpool.
May 31, 2019•23 min•Season 2019Ep. 241
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi, SSteinn og Birgir Ólafsson formaður Tottenham klúbbsins á Íslandi. Fókusinn var á Tottenham í fyrri þætti vikunnar samanburð á liðunum. Formaður Tottenhamklúbbsins var með okkur til að ræða sína menn.
May 28, 2019•1 hr 7 min•Season 2019Ep. 240
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Það eru ennþá heilir 11 dagar í veisluna í Mddríd sem verða góða 48 daga að líða. Fókusinn var því ekki á Madríd í þessum þætti heldur meira hvað sé næst hjá okkar mönnum á leikmannamarkaðnum. Eins snertum við aðeins á vandamálum Man City utanvallar, þrumuskitu UEFA þegar kemur að úrslitaleikjunum í báðum Evrópukeppnunum og enduðum á því að skoða aðeins Arsenal og Chelsea.
May 21, 2019•1 hr 8 min•Season 2019Ep. 239
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn Liverpool setti nýtt og áður óþekkt viðmið í að vanta bara herslumuninn til að vinna deildina á mögnuðu tímabili. Gríðarleg vonbrigði en það er eitt stórt verkefni framundan og núna ljóst hverjir andstæðingarnir verða í Madríd.
May 16, 2019•1 hr 4 min•Season 2019Ep. 238
Vorum við að horfa á besta kvöld sem Anfield Road hefur séð? Ef að Liverpool klárar dæmið í Madríd verður þetta ekki spurning. Meira er ekki hægt að fara fram á frá þessu liði, ótrúlegir. Það var ekki hægt annað en að taka upp þátt strax eftir leik. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og Istanbul-Steini
May 07, 2019•1 hr 3 min•Season 2019Ep. 237
Hlóðum í þátt strax í kjölfarið á þessum hræðilegu úrslitum í Barcelona.
May 01, 2019•1 hr 2 min•Season 2019Ep. 236
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn, Maggi og Maggi Þórarins (Beardsley) Stórundarleg vika þar sem flestir stuðningsmenn Liverpool halda meira með Man Utd en flestir stuðningsmenn djöflanna. Cardiff var afgreitt um helgina og Huddersfied bíður á föstudaginn og Barcelona í næstu viku. Það er allt galopið ennþá.
Apr 23, 2019•1 hr 7 min•Season 2019Ep. 235