Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi, SSteinn og Maggi Þórarins (Beardsley) Liverpool eru Englandsmeistar með öllum þeim tilfinningarússíbana sem því fylgir fyrir alla tengdu félaginu. Gleðin er flöskvalaus og það var svo sannarlega málið þegar við skelltum okkur í Hellinn með Englandsmeistarabikarinn og stóra flösku af kampavíni.
Jun 26, 2020•1 hr 40 min•Season 2020Ep. 292
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn Enski boltinn er byrjaður að rúlla og það var nokkuð augljóst að það eru 100+ dagar síðan Liverpool átti síðast leik.
Jun 23, 2020•54 min•Season 2020Ep. 291
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi, SSteinn og Bragi Brynjars. Fengum okkar allra besta Braga Brynjars með okkur á Sport og Grill í Smáralind til að hita upp fyrir fyrsta leik eftir Covid. Það er Hæ hó jibbý jei og City Arsenal strax á miðvikudaginn og svo byrjar ballið fyrir alvöru aftur á sunnudagskvöldið. Erum vægast sagt til í´ða.
Jun 15, 2020•54 min•Season 2020Ep. 290
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi, SSteinn og Maggi Þórarins (Beardsley). Það er vika í enski boltinn fari aftur að rúlla skv. núverandi plani og Henderson byrjaður að æfa bikarlyftingadansinn sinn, þó er Covid hvergi nærri dáið út þar í landi. Kvennaliðið var dæmt niður um deild og ekki bara blandaði Liverpool sé ekki í baráttuna um Timo Werner heldur er orðið á götunni að ekkert verði um stór leikmannakaup í sumar, annað árið í röð. Þetta er allt frekar skrítið en engin rússíbani s...
Jun 10, 2020•1 hr 10 min•Season 2020Ep. 289
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn
May 27, 2020•54 min•Season 2020Ep. 288
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn Hægt og rólega færist (Staðfest) nær á Liverpool Englandsmeistarar og það er ár frá 4-0 sigrinum á Barcelona, einu besta kvöldi í sögu félagsins og að sjálfsögðu tilefni til að ryfja það upp.
May 11, 2020•1 hr•Season 2020Ep. 287
Það vantar ekkert upp á misvísandi fréttir þessa dagana og ljóst að óvissan með framhaldið er ennþá töluverð, ekki bara þegar kemur að fótboltanum. Fórum yfir helstu fréttir vikunnar.
Apr 29, 2020•1 hr•Season 2020Ep. 286
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn Hægt og rólega er að koma einhver mynd á það hvernig fótbolti kemur til með að rúlla aftur á Englandi og ljóst að biðin ekki ennþá hálfnuð þrátt fyrir að Liverpool hafi síðast átt leik fyrir rúmlega mánuði síðan.
Apr 14, 2020•1 hr 12 min•Season 2020Ep. 285
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Miklar vangaveltur áfram um framtíð tímabilsins undanfarið og bara framtíð fótboltans í heild. Ekki vantar "sérfræðingana" í þá umræðu. Neikvæðar fréttir um Liverpool selja líklega best af öllum í þessari mestu gúrkutíð í sögu íþrótta.
Mar 31, 2020•52 min•Season 2020Ep. 284
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn Þvílíka vika. Covid-19 umræða í víðu samhengi út frá sjónarhóli knattspyrnuaðdáenda. Þetta mun líka ganga yfir...og þá verðum við meistarar!
Mar 17, 2020•53 min•Season 2020Ep. 283
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi, SSteinn og Sveinn Waage 01:00 – Hvar vinnum við titilinn? 20:00 – Kórónavírusinn 31:30 – Bournemouth 48:00 – Bikarleikurinn 54:00 – Atletico Madríd – stærsti leikur tímabilsins 01:07:00 – Merseyside Derby Frábær sex stiga sveifla Liverpool í hag um helgina og núna þarf bara eina slíka í viðbót til að landa titlinum. FA Bikarinn var ekki tekinn neitt sérstaklega alvarlega en stærsti leikur tímabilsins er klárlega núna á miðvikudaginn....
Mar 10, 2020•1 hr 20 min•Season 2020Ep. 282
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn Ef að það á að tapa leik á annaðborð er jafngott að gera það bara með stæl og okkar menn gerðu einmitt það um helgina. Vonandi kjaftshöggið sem liðið var aðeins farið að þurfa. Tókum auðvitað fyrsta skell tímabilsins, bikarleikinn annað kvöld og leik helgarinnar ásamt öðru almennu spjalli um okkar menn.
Mar 02, 2020•53 min•Season 2020Ep. 281
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Liverpool borg er full af íslenskum stuðningsmönnum félagsins og verulega góður andi fyrir leik kvöldsins. Tókum aðeins stöðuna á leikjum helgarinnar, slúðri og spáðum í spilin fyrir West Ham.
Feb 24, 2020•35 min•Season 2020Ep. 280
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Það tók alls ekki langan tíma að jafna sig á þessum misskilningi í gærkvöldi gegn afkvæmi Allardyce og Pulis og hans mönnum í Atletioco. Klárum þá á Anfield, næst á dagskrá er St. Mirren, viljum fá alla í Torfasons Black& White Army stuðningsmannaklúbb St. Mirren á Íslandi.
Feb 19, 2020•32 min•Season 2020Ep. 279
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn Erum í Madríd að taka út stemminguna fyrir leik
Feb 18, 2020•18 min•Season 2020Ep. 278
Tilvalið að nýta stórskemmtilegan biðtíma í millilendingu í létt podcast Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn
Feb 17, 2020•26 min•Season 2020Ep. 277
Stjórnandi: Magnús Þórarinsson (Beardsley) Viðmælandi: Össur Skarphéðinsson Upphitun fyrir Norwich með Össuri Skaprhéðinssyni
Feb 14, 2020•25 min•Season 2020Ep. 9005
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og Kristján Gylfi Guðmundsson Mesta spennan á þessu tímabili er baráttan um fjórða sætið, það eru sex lið í hörku baráttu um þetta rándýra sæti og kaldhæðni örlaganna er að Arsenal er ekki eitt af þeim. Sætið þeirra! Það hefur líka meira en nóg gengið á hjá þessum liðum í vetur og til að spá í spilin með okkur fengum við United manninn Kristján Gylfa Guðmundsson en hann er jafnframt æðsti Fylkismaður landsins....
Feb 11, 2020•1 hr 2 min•Season 2020Ep. 276
Stjórnandi: Magnús Már (Fótbolti.net) Viðmælendur: Einar Matthías, SSteinn og Maggi. Skelltum okkur á skrifstofur Fótbolti.net og vorum með í Innkastinu. Fókusinn auðvitað á Liverpool en tókum auk þess snúning á enska boltanum almennt og því helsta í Evrópu.
Feb 03, 2020•1 hr 13 min•Season 2020Ep. 275
Stjórnandi: Maggi Viðmælendur: SSteinn og Hafliði Breiðfjörð Síðast þegar Liverpool vann ekki fótboltaviðureign var þegar U9 ára liðið tapaði gegn Aston Villa á síðasta áratug. Það var því svekkjandi sjokk að missa Shrewsbury í aukaleik í bikarnum og það í miðju vetrarfríinu. Bölvaður óþarfi raunar og skiptar skoðanir um það hvernig Liverpool ætlar að tækla það. Wolves var hinsvegar klárað í deildinni í hörkuleik og framundan eru tveir leikir í deildinni. Hafliði Breiðfjörð eigandi fotbolti.net ...
Jan 27, 2020•1 hr 7 min•Season 2020Ep. 274
Auðvitað var beðið eftir United með lagið sem andstæðingar Liverpool hafa af einhverjum undarlegum ástæðum dreymt um að heyra á Anfield í nokkra mánuði. Þetta gat ekki verið mikið fullkomnari tímasetning en í uppbótartíma gegn United til að gulltryggja sigurinn og svo gott sem afgreiða deildina í leiðinni. Þetta var besta fótboltahelgi á miðju tímabili í sögu enska boltans og það var hrikalega gaman að ræða hana. Eðlilegt line-up að þessu sinni og upphitun fyrir Pub Quiz í bónus þar sem SSteinn ...
Jan 21, 2020•1 hr 20 min•Season 2020Ep. 273
Stjórnandi: Maggi Viðmælendur: Maggi Þórarins (Beardsley), Eyþór, Daníel og Hannes. Það hjálpaði Motormouth ekkert að pakka í vörn á heimavelli gegn þeirri vél sem þetta Liverpool lið er orðið. Þáttur strax eftir leik og meirihluti pennanna samankomin í miðborg Sódómu. Einar og SSteinn sátu hjá á meðan Maggi tók stjórnvölin og fór yfir leikinn með pennum síðunnar.
Jan 11, 2020•58 min•Season 2020Ep. 272
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Það er ekki hægt að koma því nægjanlega vel til skila hér á landi hversu mikill rígur er á milli Liverpool og Everton í Liverpool borg. Þessi tapleikur Everton í gærkvöldi er mögulega sá versti í nágrannaslag gegn Liverpool frá upphafi og það er svo sannarlega af nægu að taka. Van Wilder stjóri Sheffield United sló metið í flokki andstæðinga þegar kemur að því að hrósa Liverpool liðinu eftir fyrsta leik Liverpool á nýju ári á meðan Wolves ...
Jan 06, 2020•1 hr 13 min•Season 2020Ep. 271
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Heimsmeistarar fyrir jól og titilbarátta Leicester afgreidd strax eftir jól. Þessi vika er búin að vera stanslaus veisla. Horfðum aðeins til baka á helstu atvikin á þessum áratug og eins var spáð í spilin fyrir áramótaleikjunum gegn Wolves og efsta United liði deildarinnar, Sheffield.
Dec 27, 2019•1 hr 8 min•Season 2019Ep. 270
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Liverpool spilar um gullið í Heimsmeistarakeppni Félagsliða en er úr leik í Framrúðubikarnum á Englandi, jöfnum okkur alveg á því. Börnin gerðu eins vel og hægt var að búast við af þeim, jafnvel betur en aðalliðið gerði í Katar. Minamino var í læknisskoðun í dag, koma fleiri leikmenn? Ancelotti og Arteta staðfestir hjá Everton og Arsenal, hvor er betri? Þetta og meira í síðasta þætti fyrir jól....
Dec 19, 2019•1 hr•Season 2019Ep. 269
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Athletico Madríd í Meistaradeildinni svo lengi sem það verður ekki eldgos í Eyjafjallajökli! Klopp búinn að framlengja til 2024. Watford tekið með vinstri og forskotið eykst á toppnum. Fréttir vikunnar og Leicester - Man City. Börnin spila í deildarbikarnum á morgun á meðan fullorðnu strákarnir spila á HM félagsliða á miðvikudaginn. Nokkurnvegin dagskráin að þessu sinni.
Dec 16, 2019•1 hr 25 min•Season 2019Ep. 268
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Liverpool vann ofvirkasta lið Evrópu sæmilega sannfærandi og virðast hafa tekið þeirra besta mann með sér heim eftir leik, Takumi Minamino sem var fullkomlega allsstaðar í leiknum enda búinn að drekka 17 Red Bull fyrir leik. Skoðum hvaða lið koma til greina sem mótherjar í 16.liða úrslitum og hvað við viljum. Botnliðið svo um helgina.
Dec 12, 2019•56 min•Season 2019Ep. 267
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þessi vika var mögulega vendipunktur á tímabilinu, Liverpool skipti upp einn gír og náði í sex stig á meðan Man City misstieg sig aftur. Nóvemberuppgjör og næsta vika.
Dec 09, 2019•1 hr 14 min•Season 2019Ep. 266
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Liverpool vann sinn leik og allir helstu andstæðingar Liverpool töpuðu stigum, fullkomið. Fórum um víðan völl í umræðu um síðustu viku og það sem er framundan.
Dec 02, 2019•1 hr 15 min•Season 2019Ep. 265
Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Fótboltaleikur er 90 mínútur plús uppbótartími og til að fá eitthvað gegn Liverpool um þessar mundir þarf að halda einbeitingu allan þennan tíma. Enn einn hugarfarssigurinn niðurstaðan um helgina með sigurmarki á lokamínútunum, dásamlegt. Framundan er eina liðið sem hefur unnið Liverpool á leiktíðinni og strax í kjölfarið heimaleikur gegn Brighton til að slútta nóvember.
Nov 25, 2019•1 hr 12 min•Season 264Ep. 2019