Kerkez er kominn til Liverpool og því búið að staðfesta alla sem voru líklegastir til að koma núna strax í júní. Þá eru leikmannasölur líklega næstar á dagskrá og líklegt að þar verði ekki minna að gera hjá okkar mönnum. Skoðum líka stöðuna á leikmannamarkaðnum hjá hinum stórliðunum. Minnum svo á að Verdi Travel er komið með ferðir á Anfield í sölu fyrir næsta tímabil Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda...
Jun 26, 2025•1 hr 4 min•Season 2025Ep. 525
Frá því að FSG keypti Liverpool hefur leikmannaglugginn aldrei farið eins spennandi af stað og núna. Það er búið að staðfesta kaup á Frimpong frá Leverkusen, eins er svo gott sem búið að staðfesta kaupin á besta vini hans og dýrasta leikmanni í sögu Liverpool, Florian Wirtz. Besta leikmanni þýsku deildarinnar undanfarin tvö tímabil. Ungverjinn Milos Kerkez hefur svo hamast við það sjálfur að staðfesta komu sína til Liverpool þó félagið hafi ekkert staðest með það ennþá. Miðað við slúðrið er þett...
Jun 19, 2025•1 hr 8 min•Season 2025Ep. 524
Tímabilið 2024-25 er búið og bara gat ekki farið mikið betur fyrir Liverpool, létt uppgör á því. Sigurhátíð um helgina og almenn gleði þar til eitt fífl setti stóran svartan skugga á hátíðarhöldin. Leikmannaglugginn opnar eftir helgi og Liverpool virðist heldur betur ætla að vera með og gera stórar breytingar á hópnum fyrir næsta tímabil. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti....
May 29, 2025•1 hr 8 min•Season 2025Ep. 523
Þvílíka snilldar tímabilið sem þetta er að verða, Liverpool eru Englandsmeistarar og lyfta bikarnum á loft um helgina á meðan lið eins og Arsenal, Man City og Man Utd fara öll titlalaus í gegnum mótið. Leikmannaglugginn virðist heldur betur ætla að verða fjörugri í sumar en hann var síðasta sumar og mjög spennandi nöfn orðuð við Liverpool, jafnvel strax í næstu viku. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda ...
May 22, 2025•1 hr 10 min•Season 2025Ep. 522
Seint mætti Gullkastið þessa vikuna, sem er til marks um ákveðinn slaka í hugum okkar, enda Englandsmeistarar. Við fórum yfir töluvert af safaríku slúðri sem fjallað hefur um okkar menn undanfarið, veltum fyrir okkur fílupúkanum Arteta og hans stöðu hjá Arsenal. Skoðuðum stöðuna í Meistaradeildarbaráttunni, völdum framherja í Ögurverksliðið og skoðuðum síðasta útileik vetrarins í EPL, viljum klára tímabilið með reisn auðvitað. Stjórnandi: Maggi Viðmælendur: SSteinn Þökkum að vanda samstarfsaðilu...
May 16, 2025•1 hr 2 min•Season 2025Ep. 521
Arne Slot gaf hópnum aðeins séns um helgina töluverðum timburmannaleik gegn Chelsea og frammistaðan var ekki til að hrópa húrra fyrir. Skipti ekki öllu enda Liverpool nú þegar búið að vinna titilinn og stemningin á pöllunum í takti við það. Trent nýtti tækifærið til að staðfesta loksins brottför sína eftir tímabilið eftir að hafa forðast blaðamenn (og þannig stuðningsmenn Liverpool) mest allt þetta tímabil. Næsti leikur og heiðursvörður er gegn Arsenal í deildinni en þeir eiga risaverkefni í Mei...
May 06, 2025•1 hr 19 min•Season 2025Ep. 520
Það er komið (Staðfest) á Englandsmeistaratitilinn og tilfinningin er vægast sagt frábær. Meistarar á Anfield og samt eru fjórar umferðir eftir. Liverpool hafa einfaldlega verið langbestir í vetur sama hvað hávær hópur stuðningsmanna annarra liða hefur grenjað. Loksins fá leikmenn og stuðningsmenn að fagna almennilega saman og líklega er veislan bara rétt að byrja. Stöðutaflan í deildinni er eins og listaverk sem rétt væri að ramma inn og hengja upp á vegg. Njótum kæru vinir og til hamingju með ...
Apr 27, 2025•52 min•Season 2025Ep. 519
Liverpool er með 89 stig eftir sigur gegn Leicester um helgina, Arsenal getur max náði 79 stigum á þessu tímabili vinni þeir alla leikina sem þeir eiga eftir og markatalan er 10 mörkum Liverpool í vil með leik til góða. Án þess að segja (Staðfest) er óhætt að fullyrða að staðan hefur sjaldan eða aldrei verið betri. Jafntefli Arsenal gegn Palace gerir það að verkum að Liverpool geta klárað fótbolta.net (Staðfest) svigann núna á sunnudaginn í heimaleik á Anfield gegn helstu erkifjendum Arsenal í T...
Apr 23, 2025•1 hr 9 min•Season 2025Ep. 518
Það er ennþá styttra í fyrirheitna landið eftir leiki vikunnar. Liverpool náði í þrjú stig á Anfield á meðan Arsenal tapaði stigum. Sex stig duga því til að vinna deildina þannig að tölfræðilega gæti einmitt það gerst núna um helgina. Liverpool mætir Leicester en Arsenal fær Ipswich í heimsókn þannig að við höldum ekkert niðri í okkur andanum. Veljum í Ögurverk liðið og skoðum stöðuna í deildinni almennt og spáum í leiknum á Páskadag Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökku...
Apr 16, 2025•1 hr 10 min•Season 2025Ep. 517
Annað tap tímabilsins í deildinni um síðustu helgi og löng vika fram að næsta leik fyrir vikið. Góðar fréttir af Salah og Van Dijk Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.
Apr 10, 2025•53 min•Season 2025Ep. 516
Liverpool borg er og hefur alltaf verið rauð, sigur á David Moyes og Everton var aðalatriði í leik sem tók vel á þolrifin og þökk sé því hvernig hann var dæmdur. Tólf stig þarf úr átta síðustu leikjunum til að klára titilinn. Hlóðum í nýtt Ögurverk lið og spáðum í spilin fyrir leikinn gegn Fulham um helgina og leikjaprógrammið í þessum mánuði. Allir leikir Liverpool sem eftir lifa tímabilsins verða á sunnudegi. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaði...
Apr 03, 2025•58 min•Season 2025Ep. 515
Allar helstu fréttir vikunnar benda til að Trent sé við það að skrifa undir hjá Real Madríd og fari þangað á frjálsri sölu. Afskaplega leiðinlegur viðskilnaður hjá uppöldum leikmanni og lykilmanni í algjöru toppliði. Óháð framtíð Trent er ljóst að Liverpool þarf að láta til sín taka á leikmannamarkaðnum í sumar og tókum við púlsinn á því hvaða leikmenn eru líklegir til að fara og hvað er í boði í staðin í hverri stöðu. Ögurverk liðið er á sínum stað og þrenna að þessu sinni. Deildin fer svo aftu...
Mar 27, 2025•1 hr 22 min•Season 2025Ep. 514
Arne Slot valdi hreint afleita viku til að tapa tveimur leikjum í röð í fyrsta skipti á ferlinum. Liverpool lauk leik í 16-liða úrslitum þrátt fyrir að hafa toppað deildarfyrirkomulagið í Meistaradeildinn og tapaði svo með afar þreyttum og ósannfærandi hætti gegn Newcastle Wembley, versta frammistaða Liverpool þar síðan 1988. Alls ekki gott og ágætt að fá bæði landsleikjahlé og bikarhelgi í kjölfarið á því. Nú fer allur fókus á þessa níu leiki sem eru eftir af þessu tímabili. Sigur í fimm þeirra...
Mar 17, 2025•1 hr 3 min•Season 2025Ep. 513
Bilið breikkaði um tvö stig í viðbót í deildinni og staðan orðin vægast sagt góð. Seinni leikurinn gegn PSG er næst á dagskrá og Wembley um helgina. Liverpool spilar bara stórleiki. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Mar 10, 2025•1 hr 1 min•Season 2025Ep. 512
Forskotið á toppnum er komið í 13 stig og heldur betur farið að sjást í endamarkið. Þrátt fyrir bókstaflega allan katalóginn af afsökunum frá Arsenal mönnum hafa þeir í raun aldrei komist almennilega í titilbaráttuna og eru með stigasöfnun sem jafnan er meira á pari við liðin í baráttu um Meistaradeildarsæti. Liverpool á Southampton næst á Anfield og er sá leikur á undan leik Arsenal gegn United úti um helgina. Deildin verður hinsvegar í aukahlutverki í þessum mánuði fyrir utan leikinn gegn botn...
Mar 03, 2025•1 hr 3 min•Season 2025Ep. 511
Síðasta helgi var líklega besta helgi tímabilsins fyrir Liverpool þegar Man City var loksins lagt á Etihad í deildarleik og það í kjölfarið á tapi Arsenal á Emirates vellinum. Ekki alltaf sem úrslitin á þessum olíuvöllum falla svona með okkur. Það var dregið í Meistaradeildinni, hörku vendingar í deildinni, Everton og Man Utd eru m.a. bara þremur stigum á eftir Liverpool, sko samanlagt. Næst er það svo hið heita/kalda Newcastle lið, generalprufa fyrir úrslitaleikinn í deildarbikarnum. Stjórnandi...
Feb 24, 2025•1 hr 3 min•Season 2025Ep. 510
Liverpool er í mjög þungu prógrammi þessa dagana og það sást vel í báðum leikjum vikunnar sem tóku á taugarnar. Framundan eru tveir risastórir útileikir gegn Villa og Man City. Ögurverk liðið er á sínum stað og fagmaðurinn í boði Deloitte Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti. Egils Gull / Deloitte / Verdi Travel / Ögurverk ehf / Done Afsláttarkóði í febrúar á WoktoWalk.is – 25% afsláttur með ...
Feb 17, 2025•1 hr 3 min•Season 2025Ep. 509
Liverpool fer í síðasta skipti þennan tæplega kílómeter sem er frá Anfield yfir á Goodison núna á miðvikudaginn í alvöru mikilvægum nágrannaslag. Tap þarna síðast og það er ekki í boði aftur. Um helgina eru það svo Úlfarnir sem mæta á Anfield og því tveir deildarleikir í þessari viku. Síðasta vika var bikarleikavika, Liverpool er komið í úrslit í öðrum bikarnum en tapaði gegn versta liði Championship deildarinnar í hinum. Ögurverk liðið er á sínum stað og fagmaðurinn í boði Deloitte Stjórnandi: ...
Feb 10, 2025•48 min•Season 2025Ep. 508
Það er síðasti dagur leikmannagluggans í dag eða mánudagur eins og við stuðningsmenn Liverpool köllum hann. Rosalega tíðindalítill mánuður hjá okkar mönnum sem er kannski skiljanlegt miðað við gengi liðsins og meiðslalista. Flottur útisigur á Bournemouth um helgina sem varð ennþá mikilvægari eftir að Arsenal pakkaði vonlausu City liði saman. Næsta vika fer svo í báðar bikarkeppnirnar, fyrst undanúrslit í deildarbikarnum gegn Tottenham. Bjóðum auk þess Deloitte hjartanlega velkomna í hóp samstarf...
Feb 03, 2025•1 hr 1 min•Season 2025Ep. 507
Liverpool endaði á toppi deildarinnar í Meistaradeildinni þrátt fyrir tap gegn PSV í lokaumferðinni og ljóst hvaða fjórum liðum okkar menn geta mætt í 16-liða úrslitum. Flottur sigur á Ipswich í deildinni og toppsætið ennþá okkar. Það er mjög margt svipað núna og fyrir ári síðan í deildinni en með undantekningum þó sem vonandi eru okkar mönnum í vil, skoðuðum það aðeins. Leikmannamarkaðurinn er opin til mánaðarmóta og töluvert slúður þar þessa dagana, lítið tengt Liverpool reyndar. Nýtt Ögurverk...
Jan 30, 2025•57 min•Season 2025Ep. 506
Liverpool fór inn í þessa mjög svo þungu viku með 6 stiga forskot á toppi deildarinnar og endaði tveimur leikjum seinna á nákvæmlega sama stað. Leikurinn gegn Everton á Goodison er svo ennþá inni. Ljómandi góð niðurstaða í ljósi þess að útlitið var bara alls ekkert sérstakt eftir 180 mínútur af fótbolta í útileikjum gegn bæði Nottingham Forest og Brentford. Vindum okkur í nýtt Ögurverk lið og spáum í spilin fyrir leikinn annað kvöld gegn Hákoni og félögum í Lille frá Frakklandi, sjá upphitun Íva...
Jan 20, 2025•1 hr 15 min•Season 2025Ep. 505
Það eru stór próf framundan í þessari viku, fyrst er það útileikur gegn sjóðandi heitu liði Nottingham Forest, eina liðið sem vann Liverpool í deildinni á þessu tímabili. Brentford á útivelli bíður svo um helgina Liverpool fór áfram í FA Cup síðustu helgi og fær Plymoth úti í næstu umferð. Ögurverk liðið er á sínum stað og sem og fagmaður vikunnar í boði Húsasmiðjunnar. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að hal...
Jan 13, 2025•1 hr 8 min•Season 2025Ep. 504
Það hefur alls ekki verið sama flug á Liverpool núna eftir áramót og var yfir hátíðarnar, slæmt 2-2 tap á Anfield gegn okkar gömlu erkifjendum og svo tap í fyrri hálfleik deildarbikarsins gegn Tottenham, þeir þurftu reyndar að vanda óhemju mikla hjálp frá dómarateyminu sem eyðilagði þann viðburð. Engin heimsendir en viðvörunarbjöllur á Anfield og stór leikur næst í deildinni. Það er nóg að frétta úr enska boltanum stjóraskipti hjá liðum sem hafa verið í brasi, leikmannamarkaðurinn er opinn og fl...
Jan 09, 2025•1 hr 11 min•Season 2025Ep. 503
Liverpool er búið að spila fjóra leiki um jól og áramót, sigur í einum þeirra gegn Southampton í deildarbikar og slátrun í hinum þremur. Fjórtán mörk í þremur deildarleikjum og þar af ellefu í London. Geggjaður endur á árinu og við hæfi að henda í smá uppgjör. Leikmannaglugginn opnar á miðvikdaginn og Liverpool fær Man Utd í heimsókn á sunnudaginn. Ögurverk liðið er á sínum stað og sem og fagmaður vikunnar í boði Húsasmiðjunnar. Við félagarnir á Kop.is viljum annars nota tækifærið og þakka lesen...
Dec 30, 2024•1 hr 23 min•Season 2024Ep. 502
Liverpool lenti í ótrúlegu mótlæti gegn Fulham og tapaði á endanum ósanngjarnt tveimur stigum í leik þar sem stóru atvikin féllu svo sannarlega ekki með okkar mönnum, ekkert þeirra. Engu að síður sæmilegt stig m.v. að liðið var marki undir þegar Robertson var sendur í bað og því manni færri í 74.mínútur plús 16.mínútur í uppbótartíma. Samtals 90 mínútur og það voru svo sannarlega ekki 10 leikmenn Liverpool sem voru að reyna tefja og halda stiginu á lokamínútunum. Ögurverk liðið er á sínum stað o...
Dec 16, 2024•1 hr 8 min•Season 2024Ep. 501
Hlaðvarpsþættir Kop.is hófu göngu sína 25.maí árið 2011 og hafa síðan þá verið stór partur af starfsemi síðunnar. Þátturinn í þessari viku er númer 500 og er Gullkastið elsta starfandi hlaðvarp landsins og reyndar þó víðar væri leitað. Til að fagna þessum tímamótum fengum við tvær kempur með okkur í þáttinn í þessari viku sem vart þarf að kynna frekar, meistara Bjössa Hreiðars og Hödda Magg. Liverpool leik helgarinnar var reyndar frestað en staðan á toppnum vænkaðist eiginlega engu að síður, hre...
Dec 10, 2024•1 hr 2 min•Season 2024Ep. 500
Þvílík vika, Real Madríd var pakkað saman í miðri viku og Man City jafnvel ennþá meira sannfærandi um helgina. Liverpool er afgerandi á toppnum allsstaðar fyrir vikið. Framundan eru tveir erfiðir útileikir, Newcastle á St. Jamses áður en Liverpool heldur í síðasta skipti yfir Stanley Park til að spila í Guttagarði. Ljómandi að losna við þá úr hverfinu. Ögurverk liðið er á sínum stað, það var töluverð barátta um fagmann vikunnar í boði Húsasmiðjunnar Happatreyjur.is – Gjafaleikur Minnum áfram á H...
Dec 02, 2024•1 hr 14 min•Season 2024Ep. 499
Það var hvorki sannfærandi en sérstaklega fallegt þessa helgina en Liverpool er komið með átta stiga forskot á toppnum eftir aðeins 12 umferðir, það er sérstaklega fallegt og sannfærandi. Framundan er rosalegt leikjaprógramm sem byrjar á Real Madríd með Man City í eftirrétt! Bætum miðvörðum við Ögurverks liðið og óskum eftir djúpum miðjumanni við næst í þetta lið Brostinna vona. Spáum svo auðvitað í því helsta frá síðustu helgi. Happatreyjur.is – Gjafaleikur Einnig var dregið út og tilkynnt sigu...
Nov 25, 2024•1 hr 8 min•Season 2024Ep. 498
Síðasta landsleikjapása ársins er á enda og deildarleikur gegn Southampton framundan úti á sunnudaginn. Eftir það taka við öllu stærri verkefni með Real Madríd og Man City á dagskrá. Skoðum hvernig landið liggur eftir landsleiki, spáum í leikjum helgarinnar. Ögurverk liðið er að sjálfstöðu á sínum stað. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn Happatreyjur.is – Gjafaleikur Fyrir ykkur sem eruð í vandræðum með jólagjöfina í ár þá er húna á happatreyjur.is sem við ræðum betur í þættinum. Le...
Nov 21, 2024•47 min•Season 2024Ep. 497
Kop.is samsteypan kom saman laugardaginn 2.nóvember og tók upp Pub Quiz sem Daníel Brandur hélt utan um strax í kjölfarið á góðum sigri Liverpool á Brighton. Vægast sagt ekki auðvelt quiz en við ákváðum að prufa að taka þetta upp og leyfa hlustendum að vera með líka. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti. Egils Gull / Húsasmiðjan / Verdi Travel / Ögurverk ehf / Done...
Nov 17, 2024•1 hr 11 min•Season 2024Ep. 496