Gullkastið - podcast cover

Gullkastið

Kop.iswww.kop.is
Gullkastið er hlaðvarpsþáttur Kop.is sem hóf göngu sína í maí árið 2011.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Gullkastið – Liverpool Á Toppnum Allsstaðar!

Það er erfitt að teikna fótboltahelgi mikið betur upp en við gerðum núna um helgina. Kop.is fór í frábæra hópferð til Liverpool, kvöldleikur á laugardegi á Anfield með frábæru upphitunaratriði frá Man City rétt fyrir leik. Arsenal og Chelsea töpuðu stigum daginn eftir og svo þegar við lentum á Íslandi var dómaraferli David Coote lokið. Þetta allt í kjölfar þess að Liverpool pakkaði ósigrandi liði Leverkusen saman á Anfield og fer inn í landsleikjahlé á toppnum allsstaðar. Stjórnandi: Einar Matth...

Nov 12, 20241 hr 4 minSeason 2024Ep. 495

Gullkastið – Fullkomin helgi

Liverpool vann og allir helstu keppinautarnir töpuðu, það var erfitt að teikna þessa helgi mikið betur upp. Tveir baráttusigarar á þrælgóðu Brighton liði og City og Arsenal misstigu sig bæði nokkuð illa. Nýtt Ögurverk lið er á sínum stað skipað helstu vonarstjörnum Liverpool og byrjum við á stöðu markmanns. Endilega hjálpið okkur að velja fyrir næstu viku þegar við ætlum að skoða vinstri bakverði. Næsta vika er síðasta vikan fyrir enn eitt helvítis landsleikjahléið en heldur betur með flugeldasý...

Nov 04, 202457 minSeason 2024Ep. 494

Gullkastið – All eras come to an end

Liverpool kom tvisvar til baka í London til að næla í ágætt stig á Emirates í stórleik helgarinnar eftir góðan sigur í Leipzig í miðri viku. Slot heldur áfram að standast stóru prófin með sóma. Svekkjandi að vinna ekki Arsenal auðvitað en alvöru áfallið kom í dag þegar Man Utd sagði Erik Ten Hag mjög ósanngjarnt upp störfum, hann sem var bara rétt að byrja. Nýtt Ögurverk lið og þessi vika inniheldur tvo leiki gegn spræku Brighton liði. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þök...

Oct 28, 20241 hr 3 minSeason 2024Ep. 493

Gullkastið - Milljarðaliðið lagt

Arne Slot er ennþá að sanna sig í hlutverki stjóra Liverpool enda að stíga í risastór fótspor Jurgen Klopp. Leikur helgarinnar var töluvert blásinn upp sem fyrsta alvöru stóra prófið á hann sem stjóri Liverpool jafnvel þrátt fyrir að hann þriðji leikir hafi varið á Old Trafford, fynda við það er reyndar að hann hefur talað þannig sjálfur. Niðurstaðan var góður sigur á þessu sterka milljarðaliði Chel$ski með fullt af jákvæðum punktum án þess að þessi sigur hafi svarað öllum spurningum eða gert út...

Oct 21, 20241 hr 1 minSeason 2024Ep. 492

Gullkastið – Þyngra prógramm

Enski boltinn fer að rúlla aftur um helgina, Chelsea bíður okkar mönnum á Anfield á sunnudaginn. Hitum upp fyrir það, skoðum hvaða áhrif innkoma Slot hefur á mismunandi leikmenn liðsins og stöður á vellinum. Bætum vængmanni við Ögurverk liðið og hitum upp fyrir helgina. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti. Egils Gull / Húsasmiðjan / Verdi Travel / Ögurverk ehf / Done...

Oct 15, 20241 hr 6 minSeason 2024Ep. 491

Gullkastið – Útisigur í London

Liverpool er áfram á toppi Úrvalsdeildarinnar eftir ágætan útisigur á Selhurst Park í London og verður næstu vikur enda deildin komin í aðra pásu tímabilsins vegna landsleikja. Fréttir af samningsmálum leikmanna Liverpool, Ögverk liðið og hörku umferð að baki í enska boltanum. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti. Ef fólk vill skoða upphitun á síðunni fyrir leikinn við West Ham á morgun er ha...

Oct 07, 202450 minSeason 2024Ep. 490

Gullkastið – Slot vélin farin að malla

Liverpool er á toppi Úrvalsdeildarinnar og með fullt hús stiga í Meistaradeildinni eftir leiki vikunnar þrátt fyrir að hvorugur hafi verið einhver flugeldasýning sem verður í minnum höfð. Áhugaverð úrslit í öðrum leikjum vikunnar og framundan er útileikur í London sem er síðasta verkefnið fyrir næsta landsleikjahlé. Það koma svo tveir inná miðjuna í Öguverk liðinu Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síð...

Oct 03, 202459 minSeason 2024Ep. 489

Gullkastið - Aftur upp á hestinn

Liverpool kom sterkt til baka eftir slæmt tap gegn Forest. Ansi magnaður leikur í Mílanó og síðan örugg þrjú stig á heimavelli ættu að vísa liðinu inn á rétta braut, í sveitinni var manni sagt að þegar maður dytti að baki þá bara strax aftur upp og af stað og það gekk eftir. Þessa dagana er málið að klára leiki og undirbúa sig fyrir þá næstu, framundan er að hefja titilvörnina í Carling cup gegn West Ham og svo ferðalag til Wolverhampton í deildinni, bæði lið sem hafa komið löskuð undan sumri en...

Sep 24, 20241 hr 10 minSeason 2024Ep. 488

Gullkastið – Skítur Skeður

Liverpool tók þessa líka hvellskituna í fyrsta leik eftir landsleikjahlé og sparkaði öllum jákvæðum straumum eftir byrjun tímabilsins langt út á haf. Afleit byrjun á rosalegu leikaprógrammi fram að næsta landsleikjaglugga. Lið sem ætlar sér eitthvað í Úrvalsdeildinni má hreinlega ekki tapa fyrir Forest heima, það er ekki í boði. AC Milan bíður næst á San Siro og svo er það Bournemouth úti um helgina. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttari...

Sep 16, 202456 minSeason 2024Ep. 487

Gullkastið - Alvaran tekur við á ný

Hitum upp fyrir leiki helgarinnar í enska boltanum sem fer aftur að rúlla eftir landsleiki. Hvernig er staðan á hinum stóru liðunum, Ögurverk liðið og fókus á Nottingham Forrest sem mæta næst á Anfield Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti. Egils Gull / Húsasmiðjan / Verdi Travel / Ögurverk ehf / Done...

Sep 11, 20241 hr 14 minSeason 2024Ep. 486

Gullkastið – Leikhúsveisla

Liverpool leiðrétti pirrandi viðureignir síðasta tímabils gegn Man Utd um helgina með alvöru afgreiðslu. Arne Slot gat ekki staðist fyrsta stóra prófið mikið betur og Liverpool fer inn í landsleikjahlé í kjörstöðu. Leikmannaglugganum var lokað fyrir helgi með nokkrum áhugaverðum leikmannaviðskiptum. Skoðum það, Ögverk lið aldarinnar og leiki helgarinnar á Englandi. Gegguð helgi og þrumustuð í Gullkasti Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þátta...

Sep 02, 20241 hr 15 minSeason 2024Ep. 485

Gullkastið – Óvænt slúður

Lokavikan á leikmannamarkaðnum og Liverpool virðist loksins vera eitthvað að láta til sín taka. Federico Chiesa er heitasta nafnið í slúðrinu núna en hann er óvænt orðaður við Liverpool. Leikmaður sem verður 27 ára í haust og hefur verið á radar hjá Liverpool í nokkur ár. Hann hefur verið skugginn af sjálfum sér eftir erfið meiðsli árið 2021 og er ekki í plönum Motta hjá Juventus og á aðeins ár eftir af samningi þar. Áður er hann meiddist var hann hinsvegar besti maður ítala þegar þeir unnu EM o...

Aug 26, 20241 hr 14 minSeason 2024Ep. 484

Gullkastið - Ballið byrjað

Sigur á nýliðum Ipswich í fyrsta leik tímabilsins og tími Arne Slot formlega hafinn. Er liðið tilbúið í heilt tímabil eða lætur Liverpool loksins til sín taka á leikmannamarkaðnum? Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti. Egils Gull / Húsasmiðjan / Verdi Travel / Ögurverk ehf / Done...

Aug 19, 20241 hr 1 minSeason 2024Ep. 483

Gullkastið – Afleit byrjun hjá Richard Hughes

Það ætlar að verða ansi langdregið sumarið hjá Liverpool á leikmannamarkaðnum þetta árið og eins og staðan er núna byrjar Richard Hughes vægast sagt illa sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Liverpool. Afskaplega heimakær Martin Zubimendi leikmaður Real Soceidad sveik reyndar klárlega loforð við hann þess efnis að hann væri til í að koma til Liverpool en það breytir því ekki að Liverpool virkar verulega viðvaningslegt og enn eitt árið án síns aðal skotmarks. Eins er talið verulega ólíklegt að félag...

Aug 12, 20241 hr 9 minSeason 2024Ep. 482

Gullkastið – Leikmannaslúður

Æfingaleikir í Ameríku og leikmannaslúður helst á dagskrá í þætti vikunnar. Verdi Travel er komið með ferðir á alla heimaleiki fram að áramótum en Kop.is verður með fararstjórn í tveimur þeirra, Aston Villa (nóv) og Ipswich (janúnar). Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Guðlaugur Þór Þórðarson Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti. Egils Gull / Húsasmiðjan / Verdi Travel / Jói Útherji / Ögurverk ehf / Done...

Jul 31, 20241 hr 5 minSeason 2024Ep. 481

Gullkastið – Lífsmark á leikmannamarkaðnum

Þó að Liverpool sé ekki enn byrjað að láta taka til sín á leikmannamarkaðnum hefur alveg verið smá lífsmark það sem af er sumri. Skoðum aðeins hvað Liverpool er líklegt til að gera og sem og helstu keppinautar. Verdi Travel er komið með ferðir á alla heimaleiki fram að áramótum en Kop.is verður með fararstjórn í tveimur þeirra, Aston Villa (nóv) og Ipswich (janúnar). Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni ú...

Jul 22, 202450 minSeason 2024Ep. 480

Gullkastið - Logn Á Undan Stormi?

Þrátt fyrir mjög miklar breytingar hjá Liverpool utan vallar hefur sumarið og byrjun á æfingatímabilinu verið eitt það rólegasta í seinni tíð hjá félaginu. Arne Slot er tekin til starfa og er smátt og smátt að fá leikmenn til æfinga eftir landsleikjaverkefni og sumarfrí og er samhliða að púsla saman nýju þjálfarateymi félagsins. Ferð til Ameríku er næst á dagskrá. Skoðum það helsta á leikmannamarkaðnum hjá Liverpool og öðrum helstu fréttir sumarsins. Verdi Travel er komið með ferðir á alla heima...

Jul 17, 20241 hr 1 minSeason 2024Ep. 379

Gullkastið – Ferðir á Anfield

Leikjaplanið fyrir næsta tímabil er komið út og af því tilefni heimsóttum við Lúlla Arnars á skrifstofur Verdi Travel til að fara yfir fótboltaferðir næsta vetur, þann bransa almennt og bara fótboltann almennt. Enginn á landinu með meiri reynslu í þeim bransa. Verdi Travel er komið með ferðir á alla heimaleiki fram að áramótum en Kop.is verður með fararstjórn í tveimur þeirra, Aston Villa (nóv) og Ipswich (janúnar). Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstar...

Jun 24, 202458 minSeason 2024Ep. 478

Gullkastið - Hvað gera hin liðin í sumar?

Að venju er þetta rólegasti tími ársins þegar kemur að enska boltanum enda meira og minna allir í fríi eða að taka þátt í verkefnum. með landsliðum sínum. Hinsvegar er jafnan töluvert í gangi bakvið tjöldin sem fer að koma betur og betur í ljós þegar líður að júlí mánuði en æfingatímabilið hefst á ný. Tókum aðeins stöðuna á hinum liðunum í deildinni og hvað þau eru líkleg til að gera í sumar. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir...

Jun 17, 20241 hr 11 minSeason 2024Ep. 477

Gullkastið – Arne Slot og þjálfarakapall

Tókum aðeins snúning á því hvað Arne Slot hefur verið að gera undanfarin ár, hvaða áhrif hann hafði á Feyenoord og hvernig núverandi hópur Liverpool gæti hentað hans hugmyndafræði. Eins tókum við snúning á slúðrinu en öfugt við stundum áður á þessum árstíma er töluvert meira slúður tengt þjálfaramarkaðnum en leikmannamarkaðnum og nokkuð fróðlegar vikur í vændum hvað stjórastöðu nokkurra stórra liða varðar. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fy...

May 27, 20241 hr 11 minSeason 2024Ep. 476

Gullkastið – Klopp Tíminn Á Enda

Tímabilinu er lokið og Liverpool formlega búið að kveðja Jurgen Klopp, Takk fyrir okkur Jurgen! Gerum upp tímabilið bæði hjá Liverpool og almennt og horfum til framtíðar. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti. Egils Gull / Húsasmiðjan / Verdi Travel / Jói Útherji / Ögurverk ehf / Done...

May 23, 20241 hr 15 minSeason 2024Ep. 475

Gullkastið – Síðasta vika Klopp

Síðasta vika Jurgen Klopp sem stjóri Liverpool. Tókum saman uppáhalds momentin í tíð Klopp sem stjóri Liverpool. Gerðum upp leikinn á móti Aston Villa og tímabilið í heild. Spáðum svo í spilin fyrir í lokaumferðina. Aly Chissoko er svo að sjálfstöðu kominn í Ögurverk lið aldarinnar. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti. Egils Gull / Húsasmiðjan / Verdi Travel / Jói Útherji / Ögurverk ehf / Do...

May 14, 20241 hr 14 minSeason 2024Ep. 474

Gullkastið – Brot af því besta og versta

Fínn sigur á Tottenham og mikið nær hinu raunverulega Liverpool en þó með kunnuglegum sjúkdómseinkennum. Hvar þarf Liverpool að gera breytingar á hópnum í sumar og hvaða leikmenn eru í færi á markaðnum? Framundan er svo næst síðasti leikur Liverpool undir stjórn Jurgen Klopp. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn, Maggi og Sigfinnur Þrúðmarsson Hér er svo hægt að kaupa miða á Árshátíð Liverpool Klúbbsins 2024 Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðu...

May 06, 20241 hr 14 minSeason 2024Ep. 473

Gullkastið – Arne Slot tekur við Liverpool

Arne Slot stjóri Feyenoord tekur við Liverpool liðinu í sumar eftir að félögin náðu samkomulagi þar um skv. fréttum í síðustu viku. Þessar stórfréttir voru helstu fókus okkar að þessu sinni. Verkefnið verður kannski ekki eins erfitt og leit út fyrir nokkrum vikum þar sem þetta tímabil hefur endanlega farið fjandans til í undanförnum leikjum. Liðið er þó blessunarlega svo gott sem komið í Meistaradeildina á nýjan leik og eiga í næstu umferð lið sem langar mikið að verða fjórði og síðasti fulltrúi...

Apr 29, 20241 hr 12 minSeason 2024Ep. 472

Gullkastið - Byrjunin á endanum

Loksins sigur eftir hreint hræðilega viku hjá Liverpool. Amorim er alls ekkert að koma til Liverpool, Arne Slot líklegastur núna! Eða hvað? Derby slagurinn á morgun og West Ham í hádeginu á laugardaginn. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Bragi Brynjars Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti. Egils Gull / Húsasmiðjan / Verdi Travel / Jói Útherji / Ögurverk ehf / Done...

Apr 23, 20241 hrSeason 2024Ep. 471

Gullkastið – Endurtekið efni

Jafnteflis tap á Old Trafford og svekkjandi helgi í boltanum en sigur í miðri viku. Amorim að nálagst Anfield? Fréttir vikunnar og nýtt Ögurverk lið aldarinnar. Næst hjá Liverpool eru tveir leikir á Anfield. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Óli Haukur og SSteinn Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti. Egils Gull / Húsasmiðjan / Verdi Travel / Jói Útherji / Ögurverk ehf / Done...

Apr 09, 202451 minSeason 2024Ep. 470

Gullkastið - Súper Sunnudagur

Súper Sunnudagur og Liverpool einir á toppnum eftir þessa viku. Stórar fréttir af þjálfaraleit Liverpool og tveir hrikalega mikilvægir leikir framundan. Fengum meistara Bjössa Hreiðars til að spá í spilin með okkur að þessu sinni. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn. Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti. Egils Gull / Húsasmiðjan / Verdi Travel / Jói Útherji / Ögurverk ehf / Done MP3: Þáttur 469...

Apr 01, 20241 hr 7 minSeason 2024Ep. 469

Gullkastið – Þjálfaraleit stóru liðanna

Hvað bíður nýs stjóra hjá Liverpool og hvernig er staðan núna í þjálfaraleit stóru liðanna? Brighton kemur í heimsókn á sunnudaginn og strax á eftir þeim leik mætast Arsenal og Man City. Mjög þétt prógram framundan hjá Liverpool og ekki nema þrír deildarleikir á sjö dögum strax í kjölfarið á landsleikjapásunni. Réðum svo stjóra í Ögurverk lið aldarinnar skipað mestu gerpum aldarinnar Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn. Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjál...

Mar 26, 20241 hr 5 minSeason 2024Ep. 468

Gullkastið – Lognið Á Undan Síðasta Storminum

Síðasta landsleikjahlé tímabilsins fyrir rosalegan endasprett í deildinni og ljóst að Liverpool verður að keppa á tveimur vígstöðvum í stað þriggja eftir svekkjandi endi í framlengdum leik í enska bikarnum. Það var þó alltaf þriðja mikilvægasta málið á dagskrá enda Liverpool með sinn aðalfókus á aðrar keppnir, Sparta Prag var ekkert vandamál í 16-liða úrslitum og ljóst að næsta verkefni verður á Ítalíu. Við gætum átt 12-15 leiki eftir undir stjórn Klopp eftir því hvernig gengur í Evrópudeildinni...

Mar 19, 202458 minSeason 2024Ep. 467

Gullkastið - Alvöru Toppslagur

Enn eitt helvítis jafnteflið í þessum stóru leikjum tímabilsins og enn einu sinni dómaramistök sem falla ekki með okkar mönnum. Frammistaða Liverpool hinsvegar ekkert annað en stórkostleg í báðum leikjum vikunnar, bæði innan sem utan vallar. Leikurinn á Anfield er alveg á lista fyrir einn besta leik tímabilsins. Spennandi fréttir í síðustu viku þess efnis að Michael Edwards væri líklega að snúa aftur til Liverpool ásamt vini sínum Richard Hughes sem hefur verið yfirmaður knattspyrnumála hjá Bour...

Mar 11, 20241 hr 7 minSeason 2024Ep. 466
Hosted on Libsyn
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android