Innkastið eftir 2. umferð Bestu deildarinnar. Leikirnir voru svo sannarlega misskemmtilegir í þessari umferð! Elvar Geir, Valur Gunnars og með þeim er Magnús Haukur Harðarson. Geggjuð skemmtun í Laugardal, ótrúlegur leikur í Úlfarsárdalnum, Stjarnan með fullt hús, markalaus nýliðaslagur, FH-ingar í vandræðum og bikarmeistararnir fengu skell.
Apr 14, 2025
Það er aðeins einn dagur í það að Besta deild kvenna fari af stað; fyrstu tveir leikirnir eru á morgun. Við höldum áfram að telja niður en í þriðja sæti í spánni er Víkingur. Selma Dögg Björgvinsdóttir og Erna Guðrún Magnúsdóttir, leikmenn liðsins, komu í heimsókn í dag og fóru yfir stöðu mála í Víkinni.
Apr 14, 2025
Gestur vikunnar er Gunnar Jarl Jónsson – sannkallaður þúsundþjalasmiður!Gunnar spilaði í næstefstu deild en áttaði sig snemma á því að hann átti bjartari framtíð sem dómari. Þar hafði hann heldur betur rétt fyrir sér: hann var valinn dómari ársins sex sinnum á aðeins átta árum.En sagan endar ekki þar. Gunnar hefur þjálfað fótbolta, stofnað útvarpsþátt á Fotbolti.net fyrir löngu síðan, starfað sem kennari, verið lögga, alið upp fimm börn og – að ógleymdu – gert sjónvarpsþáttinn Atvinnumennirnir o...
Apr 14, 2025
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 12. apríl. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Hitað er upp fyrir 2. umferð Bestu deildarinnar og rennt yfir helstu fréttir og tíðindi. Marklínutækni, tveggja leikja bann Arons Sig og meiðsli Arons Þrándar er meðal þess sem kemur við sögu. Í seinni hlutanum er svo Magnús Orri Schram, nýr formaður knattspyrnudeildar KR, í viðtali. Rætt er um KR-liðið, aðstöðumál, fortíð og framtíð.
Apr 12, 2025
Það eru fjórir dagar í það að Besta deild kvenna fari af stað og Niðurtalningin heldur áfram hér á Fótbolta.net. Þrótti er spáð fjórða sætinu. Álfhildur Rósa Kjartansdóttir, fyrirliði Þróttar, og Ólafur Kristjánsson, þjálfari liðsins, komu í spjall.
Apr 11, 2025
Það eru fimm dagar í það að Besta deild kvenna fari af stað og við höldum áfram með Niðurtalninguna. Í fimmta sæti í spánni er Þór/KA. Sandra María Jessen, besti leikmaður Íslandsmótsins í fyrra, og Karen María Sigurgeirsdóttir, sem átti einnig mjög gott tímabil í fyrra, eru fulltrúar Þórs/KA í Niðurtalningunni.
Apr 10, 2025
Við höldum áfram að telja niður í Bestu deild kvenna. Núna eru aðeins fimm dagar í það að deildin fari af stað. Stjörnunni er spáð sjötta sæti deildarinnar. Anna María Baldursdóttir, fyrirliði, og Jóhannes Karl Sigursteinsson, þjálfari liðsins, komu í heimsókn til að ræða um Stjörnuna.
Apr 10, 2025
Við höldum áfram með Niðurtalninguna þegar það eru sex dagar í að Besta deild kvenna fari af stað. Í sjöunda sæti í spánni er FH. Arna Eiríksdóttir, fyrirliði FH, og Guðni Eiríksson, þjálfari liðsins, komu í heimsókn og ræddu um Fimleikafélagið. Þau stefna á stærri hluti en sjöunda sætið.
Apr 09, 2025
Íslenska kvennalandsliðið tók tvö stig í leikjum sínum gegn Noregi og Sviss í Þjóðadeildinni. Stelpurnar fara í eiginlegan úrslitaleik við Noreg um annað sætið í riðlinum í næsta mánuði. Það var margt jákvætt í þessum tveimur leikjum en líka heilmargt sem hefði mátt fara betur. Guðmundur Aðalsteinn, Magnús Haukur og Sverrir Örn fóru yfir það helsta þegar Ísland á núna þrjá leiki fram að Evrópumóti.
Apr 09, 2025
Niðurtalningin heldur áfram. Það eru sex dagar í fyrsta leik í Bestu deildinni en Fram er spáð áttunda sæti deildarinnar. Fram er að koma upp sem nýliðar en þær halda sér uppi ef spáin rætist. Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Fram, og Alda Ólafsdóttir, leikmaður liðsins, komu í heimsókn og tóku stöðuna fyrir komandi sumar.
Apr 09, 2025
Fulham skellti toppliði Liverpool 3-2 á Craven Cottage. Man Utd og Man City skildu jöfn í borgarslagnum. Arsenal missteig sig í Guttagarði. West Ham og Bournemouth skildu jöfn 2-2 í skemmtilegum leik. Aston Villa skellti sterkum Notthingham Forest piltum á Villa Park og Jacob Murphy svarthvíta hetja Newcastle gegn Leicester.
Apr 08, 2025
Niðurtalningin fyrir Bestu deild kvenna er hafin. Það er vika í fyrsta leik í deildinni en núna er komið að því að ræða FHL sem er fulltrúi Austurlands í deildinni. Rósey Björgvinsdóttir og Bjarndís Diljá Birgisdóttir, leikmenn FHL, komu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net og ræddu uppgang félagsins síðustu ár og komandi sumar í Bestu deildinni.
Apr 08, 2025
Núna byrjum við Niðurtalninguna fyrir Bestu deild kvenna. Það er akkúrat vika í það að mótið fari af stað en í neðsta sæti í spánni er Tindastóll. Bryndís Rut Haraldsdóttir, fyrirliði, og Donni, þjálfari, ræddu við fréttamann Fótbolta.net um síðustu ár og komandi keppnistímabil á Sauðárkróki. Þau eru núna í æfingaferð en hringt var til Spánar til að taka stöðuna fyrir komandi tímabil.
Apr 08, 2025
Innkastið eftir 1. umferð í Bestu deild karla. Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars. Nýliðarnir töpuðu sannfærandi gegn bestu liðum deildarinnar, stjörnur voru sendar í sturtu og Valur með vonbrigðabyrjun.
Apr 07, 2025
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 5. apríl. Besta deildin að fara í gang. Rýnt er í spá Fótbolta.net fyrir lokastöðu deildarinnar, leikir fyrstu umferðar skoðaðir, farið yfir helstu fréttir, bestu leikmenn undirbúningstímabilsins valdir og rennt yfir ýmsa topplista. Tómas Þór, Elvar Geir, Valur Gunnars og Benedikt Bóas í beinni frá Suðurlandsbrautinni.
Apr 05, 2025
Liverpool vann borgarslaginn. Notthingham Forest skelltu Man Utd. Newcastle á góðri siglingu. Ipswich lagði Bournemouth á útivelli. Saka stimplaði sig strax inn eftir meiðsli hjá Arsenal. Aston Villa með gæðasigur á Brighton og Dýrlingarnir náðu í stig gegn Palace.
Apr 04, 2025
Liverpool er svo gott sem orðið meistari en dómgæslan stal senunni þegar nágrannaliðin Liverpool og Everton áttust við á Anfield. Það var heil umferð í ensku úrvalsdeildinni og mættu þeir Magnús Haukur Harðarson og Kristján Atli Ragnarsson í stúdíó til þess að ræða um allt það helsta. Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson stýrir þættinum.
Apr 04, 2025
Þá er komið að síðasta liðinu í Niðurtalningunni hér á Fótbolta.net. Það er Breiðablik sem er spáð Íslandsmeistaratilinum. Félagarnir Eysteinn Þorri Björgvinsson og Sigurjón Jónsson komu við á skrifstofunni til að ræða um ríkjandi Íslandsmeistara.
Apr 04, 2025
Það eru aðeins tveir dagar í það að Besta deildin fari af stað og við höldum áfram að telja niður. Víkingum er spáð öðru sæti deildarinnar af Fótbolta.net. Halldór Smári Sigurðsson og Tómas Guðmundsson, fyrrum leikmenn Víkinga, komu í heimsókn til að ræða um Fossvogsfélagið.
Apr 03, 2025
Það eru þrír dagar í fyrstu leik í Bestu deildinni og við á Fótbolta.net höldum áfram að telja niður fyrir deildina. Í dag er komið að því að ræða Val sem er spáð þriðja sæti. Vinirnir Arnar Sveinn Geirsson og Jóhann Skúli Jónsson komu í heimsókn til að ræða Val. Mjög skemmtilegt spjall svo ekki sé meira sagt.
Apr 02, 2025
Það eru fjórir dagar í fyrsta leik í Bestu deildinni og við höldum áfram að telja niður í deildina. Núna er komið að því að ræða KR sem er spáð fjórða sætinu. Snorri Sigurðsson, formaður KR klúbbsins, og Valur Páll Eiríksson, íþróttafréttamaður, komu í heimsókn til að ræða um Vesturbæjarstórveldið.
Apr 01, 2025
Það eru fimm dagar í fyrsta leik í Bestu deildinni og við höldum áfram að telja niður í deildina. Núna er komið að því að ræða Stjörnuna sem er spáð fimmta sætinu. Davíð Svavarsson og Eyjólfur Jónsson úr Silfurskeiðinni, stuðningsmannahóp Stjörnunnar, mættu í heimsókn á skrifstofuna og fóru yfir málin.
Mar 31, 2025
Það eru fimm dagar í fyrsta leik í Bestu deildinni og við höldum áfram að telja niður í deildina. Núna er komið að því að ræða ÍA sem er spáð sjötta sætinu. Skagamenn komu upp sem nýliðar í fyrra og áttu frábært tímabil. Frændurnir Andri Júlíusson og Sverrir Mar Smárason komu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net til þess að ræða um sitt félag.
Mar 31, 2025
Gestir vikunnar eru Daníel og Jóhann Laxdalbræður. Við fórum yfir leikinn í Kaplakrika 2014, þar sem kemur í ljós að þeir þakka Allah fyrir að ekki var komið VAR í fótboltann á Íslandi. Við tókum líka fyrir tónlistarsmekkinn, Evrópukeppnina, atvinnumennsku og landsliðið ásamt því sem þeir sögðu frá þjálfurunum sem hafa þjálfað þá. Stórskemmtilegir náungar.
Mar 31, 2025
Útvarpsþátturinn laugardaginn 29. mars. Það er vika í að Besta deildin fer af stað og Gunnlaugur Jónsson mætir í þáttinn. Auk þess að hita upp fyrir komandi tímabil ræðir Gulli um þættina um Arnar og Bjarka sem eru að fara í sýningu. Þá kemur Halldór Árnason, þjálfari Íslandsmeistara Breiðabliks, en Blikar munu mæta Aftureldingu í opnunarleik Bestu deildarinnar 5. apríl.
Mar 29, 2025
Það eru átta dagar í það að Besta deildin fari af stað og við höldum áfram að telja niður. Núna er komið að FH sem er spáð sjöunda sætinu í spá Fótbolta.net. Til þess að ræða FH, þá komu Freyr Árnason og Magnús Haukur Harðarson, stuðningsmenn liðsins, í heimsókn á skrifstofuna. Var farið yfir gullaldarárin, síðustu tímabil og komandi sumar.
Mar 28, 2025
Það eru átta dagar í það að Besta deildin fari af stað og við höldum áfram að telja niður. Núna er komið að KA sem er spáð áttunda sætinu í spá Fótbolta.net. Til þess að ræða KA, þá komu Haraldur Örn Haraldsson og Egill Sigfússon, stuðningsmenn liðsins, í heimsókn á skrifstofuna. Var meðal annars vel farið yfir bikarmeistaratitilinn frá því í fyrra.
Mar 28, 2025
Það eru níu dagar í það að Besta deildin fari af stað og við höldum áfram að telja niður. Núna er komið að Fram sem er spáð níunda sætinu í spá Fótbolta.net. Til þess að ræða Fram, þá komu Svanhvít Valtýsdóttir og Agnar Þór Hilmarsson í heimsókn. Þau þekkja bæði félagið inn og út.
Mar 27, 2025
Það eru tíu dagar í það að Besta deildin fari af stað og við höldum áfram að telja niður. Núna er komið að Aftureldingu sem er að fara að leika sitt fyrsta tímabil í Bestu deildinni. Mosfellingum er spáð tíunda sæti deildarinnar. Ármann Örn Vilbergsson og Elvar Magnússon, stuðningsmenn Aftureldingar, mættu í heimsókn og fóru yfir síðustu ár og komandi sumar hjá sínu liði.
Mar 26, 2025
Það eru tíu dagar í það að Besta deildin fari af stað en í dag tökum við Vestra fyrir í Niðurtalningunni hér á Fótbolta.net. Vestra er spáð ellefta sæti Bestu deildarinnar í spá síðunnar. Aron Guðmundsson og Sigurgeir Sveinn Gíslason, stuðningsmenn Vestra, komu í heimsókn á skrifstofuna og ræddu um sitt félag. Þetta er annað árið í röð þar sem þeir koma og tala um Vestra, en þeir vonast til að gera þetta að árlegri hefð.
Mar 26, 2025