Fotbolti.net - podcast cover

Fotbolti.net

Fotbolti.netfotbolti.net
Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Niðurtalningin - Eyjamenn koma fagnandi

Það eru ellefu dagar í það að Besta deildin fari af stað en í dag tökum við ÍBV fyrir í Niðurtalningunni hér á Fótbolta.net. Eyjamönnum er spáð neðsta sæti Bestu deildarinnar í spá síðunnar. Arnór Eyvar Ólafsson og Hjálmar Ragnar Agnarsson, stuðningsmenn ÍBV, komu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og ræddu um sitt félag.

Mar 25, 2025

Innkastið - Lestarslys í fyrsta landsliðsglugga Arnars

Það er óhætt að segja að fyrsti landsliðsgluggi Arnars Gunnlaugsson hafi ekki farið eins og vonast var eftir. Strákarnir okkar töpuðu báðum leikjum sínum gegn Kosóvó og eru þeir fallnir í C-deild Þjóðadeildarinnar. Það var ekki margt jákvætt hægt að taka úr þessum leikjum. Haraldur Örn Haraldsson og Valur Gunnarsson settust niður í hljóðveri Fótbolta.net og fóru yfir verkefnið ásamt Guðmundi Aðalsteini.

Mar 24, 2025

Tveggja Turna Tal - Atli Guðnason

Atli Guðnason hóf meistaraflokksferil sinn með FH árið 2004 og varð sjöfaldur Íslandsmeistari og tvöfaldur bikarmeistari með liðinu. Hann er leikjahæsti leikmaður í sögu FH í efstu deild, með 285 leiki þar sem hann skoraði 68 mörk og gaf 84 stoðsendingar. ?Árið 2012 náði Atli þeim merka áfanga, sem enginn annar hefur náð, að verða bæði markakóngur og stoðsendingakóngur Pepsi-deildarinnar. Atli var valinn leikmaður ársins 2009 og 2012.Við Atli ræddum ýmislegt. Golf, hvernig við höldum okkur svona...

Mar 24, 2025

Útvarpsþátturinn - Atli Viðar um landsliðið og Bestu

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 22. mars. Umsjón: Tómas Þór og Benedikt Bóas. Gestur þáttarsins er fótboltasérfræðingurinn Atli Viðar Björnsson og fer hann yfir einvígi Íslands og Kósovó og ræðir um Bestu deildina. Elvar Geir er á línunni frá Spáni þar sem seinni leikurinn verður spilaður.

Mar 22, 2025

Herra HK kveður völlinn - Rauður og hvítur í öll þessi ár

Leifur Andri Leifsson tilkynnti í byrjun vikunnar að hann væri búinn að leggja skóna á hilluna. Leifur skrifaði undir samning í janúar svo ákvörðun hans kom nokkuð á óvart. Leifur er 35 ára miðvörður sem hefur leikið allan sinn feril með HK. Hann er leikjahæsti leikmaður í sögu HK, en hann hefur alla tíð verið hjá félaginu. Því hefur hann fengið viðurnefnið Herra HK. Hann fór með HK niður úr 1. deildinni árið 2011 og komst svo upp í 1. deildina aftur 2014. HK fór upp í efstu deild 2019, féll 202...

Mar 21, 2025

Enski Boltinn - Fyrsti titill Newcastle í 70 ár

Newcastle er deildarbikarmeistari eftir að liðið sigraði Liverpool í úrslitaleiknum og hafa því bundið enda á 70 ára bið eftir titli. 8 leikir í ensku úrvalsdeildinni fóru einnig fram en baráttan um Evrópusæti er enn gríðarlega hörð.Logi Páll Aðalsteinsson samfélagsmiðlastjarna og Brynjar Jökull Guðmundsson handboltamaður mættu til þess að fara yfir helgina ásamt Haraldi Erni Haraldssyni sem sá um þáttinn í fjarveru Guðmundar Aðalsteins.

Mar 17, 2025

Hugarburðarbolti GW 29 Newcastle bikarmeistari. 70 ára bið lokið!

Liðin í öðru og þriðja sætinu í deildinni , Arsenal og Nottingham Forest unnu sína leiki. Man City og Brighton gerðu 2-2 jafntefli í fjörugum leik. Brentford skellti Bournemouth á útivelli og þetta var fimmti útisigur þeirra í röð. Úlfarnir lögðu Southampton á St.Mary's 1-2 og iðnaðar jafntefli 1-1 varð niðurstaðan á Goodison Park á milli Everton og West Ham og Bruno Fernandes kóngurinn á King Power.

Mar 17, 2025

Útvarpsþátturinn - Uppfærð spá, Besta og landsliðið

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 15. mars. Umsjón: Tómas Þór og Elvar Geir. Baldvin Borgarsson kemur með endurskoðaða ótímabæra spá fyrir Lengjudeildina í sumar. Skoðaðar eru helstu fótboltafréttir vikunnar, Baldur Sigurðsson ræðir um Bestu deildina og lengsta undirbúningstímabilið og Sæbjörn Steinke ræðir um landsliðsvalið fyrir einvígið gegn Kósovó.

Mar 15, 2025

Arnar Gunnlaugs eftir sinn fyrsta hóp - Klárlega merki um nýja tíma

Elvar Geir Magnússon ræddi við Arnar Gunnlaugsson á Laugardalsvelli strax eftir að Arnar hafði opinberað val á sínum fyrsta landsliðshóp. Það er kominn nýr fyrirliði í íslenska landsliðinu, Orri Steinn Óskarsson. Sveigjanleiki er orð sem verður áberandi í landsliðsþjálfaratíð Arnars. Arnar ræddi um valið, frammistöðu okkar fremstu leikmanna að undanförnu, leikina framundan gegn Kosóvó og fleira.

Mar 12, 2025

Hugarburðarbolti GW 28 Hinn heilagi andi ætlar sér í meistaradeildina!

Nottingham Forest skelltu Man City í Skíriskógi! Liverpool breikkar bilið. Bruno G hetja Newcastle á Ólympíuleikvangnum í London. Botnliðin halda áfram að ströggla. Tottenham og Bournemouth skildu jöfn 2-2 í skemmtilegum leik og stórleikur Man Utd og Arsenal var spennandi!

Mar 11, 2025

Tveggja Turna Tal - Ólafur Þ. Harðarson

Ólafur Þ. Harðarson er stjórnmálafræðingur og prófessor emiritus við Háskóla Íslands. Við Ólafur ræddum Donald Trump, Gobbels og Mussolini en ennþá meira um fótboltamenn og annað íþróttafólk sem tekið hefur sæti á Alþingi Íslendinga. Af nægu er að taka og Ólafur er hafsjór fróðleiks!Þátturinn er í boði Visitor Ferðaskrifstofu, Lengjunnar, Hafsins fiskverslun, Budvar, World Class og Golfklúbbsins Keilis !

Mar 10, 2025

Enski boltinn - Forest, Bournemouth og Brighton í Meistaradeildina?

Nottingham Forest sigraði Manchester City um helgina og eru í þriðja sæti deildarinnar þegar nákvæmlega tíu umferðir eru eftir af deildinni. Baráttan um Evrópusætin er gríðarlega spennandi, og möguleiki á því að mikið af stóru liðunum missi af.Magnús Haukur Harðarsson mætti eins og svo oft áður til þess að ræða liðna umferð í boltanum en einnig mætti Arnór Gauti Ragnarsson leikmaður Aftureldingar. Arnór er stuðningsmaður Southampton, og því aðeins farið meira yfir þeirra gengi á tímabilinu.Hægt ...

Mar 09, 2025

Útvarpsþátturinn - 28 dagar í Bestu og enska hringborðið

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 8. mars. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Það eru 28 dagar í Bestu deildina og farið er yfir helstu fréttir og viðbrögðin eftir ótímabæru spánna. Frammistaða Hákonar í Meistaradeildinni og komandi landsliðsval Arnars eru meðal umræðuefna. Kristján Atli, talsmaður Liverpool á Íslandi, sest við enska hringborðið og opinberar val á úrvalsliði annars þriðjungs. Skoðuð er staðan í deildinni miðað við spár og fjallað um Meistaradeildina.

Mar 08, 2025

Tveggja Turna Tal - Hermann Hreiðarsson

Gestur vikunnar er enginn annnar en Hermann Hreiðarsson. Hermann er eini Íslendingurinn sem hefur unnið FA cup bikarinn og hefur spilað 332 leiki í Premier League á 15 árum í ensku deildinum. Í þessum fyrri hluta þáttarins fórum við yfir árin í Eyjum og í ensku úrvalsdeildinni. Við ræddum Harry Redknapp, Atla Eðvalds, Joe Royle, Alan Curbishley og fleiri góða menn. Njótið vel!Styrktaraðilar þáttarinns eru: Visitor FerðaskrifstofaHafið FiskverslunBudweiser BudvarWorld ClassLengjan

Mar 03, 2025

Hugarburðarbolti GW 28 Liverpool eru vel smurð vél sem hikstar ekki!

Liverpool bera af í deildinni og eru að stinga af. Liðin í öðru og þriðja sæti gerðu markalaust jafntefli í Nottingham. Ismaïla Sarr og Mateta í stuði gegn Aston Villa á Selhurst Park. Rauða spjald Patrick Dorgu kom ekki að sök á Old Trafford. Rodrigo Muniz með sigurmarkið gegn Úlfunum á útivelli. Danny Welbeck hetja Brighton gegn Bournemouth. Lánleysi Cole Palmer heldur áfram en Chelsea liðið sigraði Southampton þægilega á brúnni.

Mar 01, 2025

Enski boltinn - Þetta er búið

Skomina dómari getur flautað þetta mót af, Liverpool verður meistari og neðstu þrjú liðin falla. Það er að vísu talsverð spenna um síðustu þrjú Meistaradeildarsætin en að öðru leyti er allt ráðið. Sæbjörn Steinke fór yfir umferðina með Aksentije Milisic og var tekin góð umræða um flest öll liðin. Byrjað er á talsvert langri United umræðu en mikið er að á Old Trafford á þessum síðustu og verstu. Sóknarleikur Arsenal, viðsnúningur Everton og hendi á Haaland? Það og fleira er til umræðu í þættinum....

Feb 27, 2025

Enski boltinn - Svo gott sem komið hjá Liverpool

Liverpool er komið með níu og hálfan fingur á enska meistaratitilinn. Það má í raun segja að þetta sé komið. Liverpool vann stórgóðan 0-2 sigur gegn Manchester City í gær á meðan Arsenal tapaði gegn West Ham á heimavelli deginum á undan. Meistaradeildarbaráttan er gríðarlega spennandi en fallbaráttan er minna spennandi. Bræðurnir Hinrik og Magnús Haukur Harðarsynir fara yfir málin í ensku úrvalsdeildinni að þessu sinni ásamt Guðmundi Aðalsteini Ásgeirssyni.

Feb 24, 2025

Tveggja Turna Tal - Eiður Ben Eiríksson

Gestur vikunnar er Eiður Ben Eiríksson. Eiður er í þjálfarateymi Íslandsmeistara Breiðabliks og á nokkuð áhugaverðan feril að baki. Hann byrjaði mjög ungur að þjálfa og var orðinn þjálfari í efstu deild kvenna rétt rúmlega fermdur. Eiður hefur komið víða við og unnið með mörgu góðu fólki. Við ræddum þetta allt, fórum vítt yfir sviðið. Eiður er áhugaverður náungi. Hann segir frá því þegar Pétur Péturs skammaði hann eins og son sinn, hvenær hann vissi af Blikar yrðu meistarar, afhverju hann strauj...

Feb 24, 2025

Hugarburðarbolti GW 26 Liverpool er langbesta lið deildarinnar !

Liverpool er í frábærri stöðu í deildinni! West Ham skellti Arsenal á Emirates annað tímabilið í röð! Markaveisla á St.James Park. Tottenham með þrjá sigra í röð. Sterkir útisigrar hjá Crystal Palace , Wolves og Brentford. Marco Asensio hetja Aston Villa í endurkomu sigri gegn Chelsea.

Feb 23, 2025

Útvarpsþátturinn - Gylfaginning og ársþingið

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 22. febrúar. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Í fyrri hlutanum er farið yfir fréttir vikunnar, dramatíkina alla í kringum skipti Gylfa yfir til Víkings og Evrópuleik Víkings gegn Panathinaikos. Í seinni hlutanum mætir Þórir Hákonarson, bæjarstjóri og sérfræðingur um fótboltapólitíkina, í tilefni af ársþingi KSÍ.

Feb 22, 2025

Ótímabæra spáin fyrir Bestu deild kvenna

Það styttist í fótboltasumarið á Íslandi en Besta deild kvenna rúllar af stað þann 15. apríl næstkomandi. Endirinn á síðasta tímabili var svo sannarlega eftirminnilegur þar sem úrslitin réðust á hreinum úrslitaleik á Hlíðarenda. Áhorfendamet var sett þegar Breiðablik varð Íslandsmeistari eftir markalaust jafntefli gegn Val. Nú þar sem það styttist í næsta mót þá ákváðu Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson og Magnús Haukur Harðarson að setja saman ótímabæra spá fyrir deildina miðað við stöðuna í dag þ...

Feb 21, 2025

Hugarburðarbolti GW 25 Er kominn nýr egypskur prins í úrvalsdeildina ?

Omar Marmoush fór hamförum gegn Newcastle og setti þrennu! Liverpool tóku sigur gegn Wolves en með herkjum þó. Mikel Merino kom af bekknum og reyndist hetja Arsenal á King Power. Tottenham sigraði Man Utd. Brighton lagði Chelsea á Amex. Fulham, Brentford og Everton einnig með sterka sigra. Allt þetta í GW25!

Feb 18, 2025

Og allt í einu er Gylfi kominn í Víking

Það voru risastór tíðindi í íslenskum fótbolta í dag þar sem Gylfi Þór Sigurðsson skipti frá Val í Víking. Kaupverðið er um 20 milljónir króna. Víkingur og Breiðablik lögðu fram tilboð í Gylfa sem voru samþykkt, en Víkingur hafði betur í baráttunni. Það myndaðist ákveðin drasmatík í kringum þessi skipti en formaður Vals hefur sakað Gylfa um vanvirðingu gagnvart liðsfélögum sínum og félaginu. Þessar fréttir auka spenninginn fyrir Bestu deildina sem hefst í byrjun apríl. Guðmundur Aðalsteinn, Valu...

Feb 18, 2025

Enski boltinn - Er botninum náð?

Manchester United situr í 15. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Já, 15. sæti deildarinnar. United tapaði 1-0 gegn Tottenham núna um helgina í uppgjöri þeirra lið sem hafa ollið mestum vonbrigðum á tímabilinu. Er botninum náð eða verður þetta verra? Liverpool harkaði inn sigur gegn Wolves og Mikel Merino var hetja Arsenal gegn Leicester. Næstu leikir verða áhugaverðir í titilbaráttunni á milli þessara tveggja liða. Arnar Laufdal og Eysteinn Þorri Björgvinsson fara yfir leiki helgarinnar ásamt Guðmun...

Feb 18, 2025

Tveggja Turna Tal - Guðjón Pétur Lýðsson

Guðjón Pétur Lýðsson er einhver mestu do-er sem fyrir finnst á Íslandi. Hann er með öll járn heimsins i eldinum ásamt því að reka fjölskyldu og spila fótbolta.Guðjón Pétur hefur spilað með mörgum félögum á Íslandi, sumum oftar en tvisvar og hann nennir engu kjaftæði.Við fórum yfir víðan völl. Hver kenndi honum að sparka í bolta, afhverju varð atvinnumennskan ekki lengri, þjálfaradraumar og margt margt fleira.Njótið Vel!Styrktaraðilar þáttarins eru vinir okkar frá :Visitor Ferðaskrifstofa: www.vi...

Feb 17, 2025

Útvarpsþátturinn - Sögulegur sigur, Siggi Raggi og ungir leikmenn

Tómas Þór og Benedikt Bóas sigla flaggskipinu á X977 þessa vikuna. Farið er yfir fréttir vikunnar, þar á meðal umræðuna um Gylfa. Sögulegur sigur Víkings gegn Panathinaikos í Helsinki er auðvitað gerður upp. Þá mætir Sigurður Ragnar Eyjólfsson og ræðir um stöðu ungra íslenskra leikmanna og notkun á þeim.

Feb 15, 2025

Enski boltinn - Sá síðasti í Guttagarði, töfrar í bikar og vesen á City

Það var söguleg stund í ensku úrvalsdeildinni í gær þegar síðasti nágrannaslagur Everton og Liverpool á Goodison Park fór fram. Eftir tímabilið fer Everton á nýjan heimavöll. Það var heldur betur drama í þessum leik en Magnús Haukur Harðarson og Jóhann Páll Ástvaldsson fóru yfir það ásamt Guðmundi Aðalsteini Ásgeirssyni. Einnig var farið yfir leiki síðustu helgar í FA-bikarnum, Meistaradeildina og stórleikinn á eftir á milli Víkings og Panathinaikos.

Feb 13, 2025

Tveggja Turna Tal - Finnur Orri Margeirsson

Finnur Orri Margeirsson tilkynnti fyrir nokkrum dögum að hann hefði lagt skóna á hilluna þó svo að ég sé nokkuð viss um að hann vilji spila einn leik til!Finnur spilaði á Íslandi með Breiðablik, KR og FH, sem hann tvísamdi við. Hann átti líka gott tímabil með Lillestrom í Noregi.Við fórum yfir ferilinn, ræddum Metoo, hann valdi bestu leikmenn sem hann spilaði með í liðunum á Íslandi og síðast en ekki síst sagði ég honum sögur af tengdapabba hans!Við Turnarnir erum í boði Visitor ferðaskrifstofu,...

Feb 10, 2025

Útvarpsþátturinn - Heima í Helsinki og ótímabær Lengjuspá

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 8. febrúar. Umsjón: Tómas Þór og Elvar Geir. Farið yfir helstu fréttir vikunnar, öflugir leikmenn komu heim í Bestu deildina og Víkingur er að halda til Helsinki og mæta Panathinaikos. Heimir Gunnlaugsson formaður fótboltadeildar Víkings er á línunni. Þá mætir sérfræðingurinn Baldvin Már Borgarsson og afhjúpar ótímabæra spá fyrir Lengjudeildina í sumar.

Feb 08, 2025
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android