Fotbolti.net - podcast cover

Fotbolti.net

Fotbolti.netfotbolti.net
Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Fótbolta nördinn - Undirbúningstímabil: Trivíaleikarnir

Fyrstu seríunni er lokið af Fótbolta Nördanum en við erum hvergi nærri hættir. Fram að næstu seríu verða aukaþættir með ójöfnu millibili til þess að svala þorstann hjá öllum nördunum í samfélaginu. Í þetta skiptið mættu menn úr geysivinsæla hlaðvarpinu Trivíaleikarnir. Það voru þeir Ingi Eddu Erlingsson og Stefán Geir Sveinsson.

Feb 06, 2025

Hugarburðarbolti GW 24 Arsenal slátraði meisturum Man City 5-1!

Arsenal slátraði Man City 5-1 á Emirates! Það er búið að vera kveikt Viðnum allt tímabilið. Sjóðandi heitur!! Mo Salah skildi Bournemouth og Liverpool að í flottum fótboltaleik. Fulham vann sterkan útisigur á Newcastle á St James's Park 1-2. Jean Philip Mateta með bæði mörk Crystal Palace gegn lánlausum Man Utd mönnum í 0-2 sigri á Old Trafford og Tottenham vann frábæran 0-2 sigur á Brentford á erfiðum útivelli.

Feb 04, 2025

Enski boltinn - Stay humble, janúarglugginn og Luka pælingar

Í gær kláraðist 24. umferð ensku úrvalsdeildarinnar með leik Chelsea og West Ham á Stamford Bridge. Stórleikur umferðarinnar var á sunnudag þegar Arsenal fór illa með Manchester City en það var nóg að ræða í kringum þann leik. Farið er yfir alla leiki umferðarinnar, janúargluggann sem var að klárast og svo er snert aðeins á körfubolta í lokin þegar rætt er um skipti Luka Doncic til Los Angeles Lakers. Eru þau tengd inn í fótboltann í þættinum. Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson stýrir og með honum ...

Feb 04, 2025

Tveggja Turna Tal - Ómar Ingi Guðmundsson

Ómar Ingi Guðmundsson er yfirmaður hæfileikamótunar KSI, þjálfari U-15 ára landsliðsins og aðstoðarþjálfari U-19 ára landsliðsins. Ómar Ingi þjálfaði yngri flokka HK ásamt því að vera yfirþjálfari félagsins í áratugi áður en hann óvænt tók við meistaraflokk karla hjá félaginu og setti stigamet hjá félaginu í efstu deild. Ómar Ingi hefur líka þjálfað í Mosfellsbæ og í Hveragerði og hvar sem hann kemur getur hann sér góðs orðs enda eðaldrengur. Við Turnarnir viljum þakka Visitor, World Class, Hafi...

Feb 03, 2025

Útvarpsþátturinn - Ótímabæra spáin þegar það eru tveir mánuðir í Bestu

Besta deild karla fer af stað laugardaginn 5. apríl og ótímabæra spáin fyrir deildina er aðalatriðið í þættinum. Tómas Þór Þórðarson, Valur Gunnarsson og Elvar Geir Magnússon skoða stöðu mála hjá öllum tólf liðum deildarinnar, rýna í undirbúningstímabilið, félagaskiptamarkaðinn og helstu fréttir. Þá er skoðað hvaða leikmenn þurfa að stíga upp og hverjum verður sérstaklega spennandi að fylgjast með.

Feb 01, 2025

Hugarburðarbolti GW 23 Er Hjálmar Örn farinn að þjálfa Tottenham?

Bournemouth kjöldrógu Forest liða á Suðurströndinni 5-0. Alexander Isak með tvennu fyrir Newcastle í nokkuð þægilegum útisigri gegn Dýrlingunum. Coady Gakpo með hörku leik gegn Ipswich, tvö mörk og stoðsending. Arsenal hafði útisigur gegn Wolves með naumindum 0-1 eins og Man Utd úti gegn Fulham 0-1 sigur.

Jan 28, 2025

Fótbolta nördinn - Úrslit: Víkingur vs Fylkir

Þá er komið að úrslita þættinum af fyrstu seríunni og í þetta sinn tekur Haraldur Örn á móti Fylki og Víking. Fyrir Fyllki keppti Ragnar Bragi Sveinsson en fyrir Víking keppti Davíð Örn Atlason. Þátturinn var tekinn upp live síðasta laugardag á Arena en tæknimálin fóru aðeins úrskeiðis og því eru hljóðgæðin því miður ekkert sérlega góð.

Jan 28, 2025

Enski boltinn - Hákon Arnar, þrot hjá Tottenham og umtalað rautt spjald

Það er viðburðarrík helgi að baki í ensku úrvalsdeildinni. Tottenham er í algjöru rugli, leikmaður Arsenal fékk eitt umtalaðasta rauða spjald síðari ára og Manchester City vann stórleik gegn Chelsea. Þá er Hákon Arnar Haraldsson orðaður við nokkur af stærstu félögum deildarinnar, þar á meðal Manchester United. Baldvin Már Borgarsson og Magnús Haukur Harðarson eru gestir í þessum þætti en Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson stýrir.

Jan 27, 2025

Tveggja Turna Tal - Davíð Snorri Jónasson

Davíð Snorri Jónasson er alinn upp í Fellahverfinu í Breiðholti. Hann er kennararmenntaður og hefur starfað sem slíkur ásamt því að hafa náð frábærum árangri sem knattspyrnuþjálfari. Davíð Snorri er í dag aðstoðarþjálfari A-landsliðs karla en hefur einnig þjálfað 21 árs landslið Íslands, yngri landslið ásamt því í að hafa þjálfað hjá Leikni og Stjörnunni. Við fórum yfir feril Davíðs Snorra, hvernig maður býr til liðsheild, byggir upp sjálfstraust, lið og margt fleira. Davíð Snorri hefur einstakl...

Jan 27, 2025

Útvarpsþátturinn - Nýtt teymi í Víkinni, VV og KA skýrsla

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur í hlaðvarpsútgáfu þessa vikuna. Umsjónarmenn: Elvar Geir og Tómas. Farið er yfir fréttir vikunnar, þar á meðal nýja þjálfarateymið hjá Víkingi og gengi landsliðsmanna okkar. Valgeir Valgeirsson, nýr leikmaður Íslandsmeistarara Breiðabliks, er gestur þáttarins. Svo mætir Haraldur Örn og kynnir úrslit Fótboltanördans, skoðar gang mála hjá KA og skoðar erlendar fréttir ásamt Guðmundi Aðalsteini.

Jan 23, 2025

Hugarburðarbolti GW 22 Justin Kluivert með Dillon þrennu!

Justin Kluivert með svakalega þrennu á St.James's Park gegn Newcastle. Darwin Nunez hetja Liverpool á móti Brentford. Foden er vaknaður! Aston Villa sótti stig á Emirates til Arsenal. Forest halda áfram að vinna leiki. Fulham og Crystal Palace með sterka útisigra og Man Utd tapar enn einum leiknum í deildinni.

Jan 21, 2025

Beta um nýtt starf og tímann eftir Kristianstad

Elísabet Gunnarsdóttir var í gær ráðin landsliðsþjálfari Belgíu eftir að hafa verið í smá fríi frá fótbolta. Hún skrifaði undir samning til sumarsins 2027. Belgía er í 19. sæti styrkleikalista FIFA (Ísland er í fjórtánda sæti) og verður eins og Ísland meðal þátttökuþjóða á EM í sumar. Belgía er með Portúgal, Ítalíu og Spáni í riðli. Beta, eins og hún er oftast kölluð, hefur verð án starfs síðan hún hætti sem þjálfari Kristianstad haustið 2023. Hún var sterklega orðuð við Aston Villa á Englandi í...

Jan 21, 2025

Enski boltinn - Góð gen, Darwizzy og brotið sjónvarp á Old Trafford

Liverpool jók forskot sitt á toppi ensku úrvalsdeildarinnar um helgina þar sem Arsenal missteig sig. Manchester United var skellt aftur á jörðina og Bournemouth sýndi magnaða frammistöðu gegn Newcastle. Þá skoraði Manchester City sex mörk á milli þess sem félagar verslar inn leikmenn. Þá er Tottenham í frjálsu falli og Ange Postecoglou er í veseni. Baldvin Már Borgarsson og Sölvi Haraldsson eru gestir í þessum þætti en Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson stýrir.

Jan 21, 2025

Útvarpsþátturinn - Arnar valinn til að leiða land og þjóð

Jörundur Áki Sveinsson, yfirmaður fótboltamála hjá KSÍ, er gestur í útvarpsþættinum þessa vikuna. Elvar Geir og Benedikt Bóas taka á móti Jörundi í hljóðveri. Þjálfaramál landsliðsins urðu endanlega ljós í vikunni þegar Arnar Gunnlaugsson var ráðinn landsliðsþjálfari. Rætt er við Jörund um ráðninguna og það sem framundan er hjá KSÍ. Þá er farið yfir fréttir vikunnar með Baldvini Borgars. Freyr skrifaði undir hjá Brann, Sölvi er að taka við Víkingi og það eru einhverjar hreyfingar á leikmannamark...

Jan 18, 2025

Hugarburðarbolti GW 21 Arsenal setur pressu á Liverpool!

Arsenal setur pressu á Liverpool. Alexander Isak skorar og skorar. Amad Diallo kom Man Utd til bjargar. Matz Sels með enn einn stórleikinn fyrir Forest. Loks náðu Brighton í sigur. Ollie Watkins minnir á sig og Erling Braut Haaland skrifaði undir nýjan langtímasamning við Man City sem misstigu sig í vikunni gegn býflugunum í Brentford.

Jan 17, 2025

Enski boltinn - Þurfa að reka Ten Hag aftur og FSG á leið á svarta listann

Andri Rúnar Bjarnason, sóknarmaður Stjörnunnar, er sérstakur gestur í Enski boltinn hlaðvarpinu þennan föstudaginn. Andri er stuðningsmaður Manchester United sem hefur farið býsna vel af stað á árinu 2025. Man Utd vann endurkomusigur á Southampton í gær þar sem Amad Diallo skoraði þrennu. Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson stýrir þættinum og Magnús Haukur Harðarson er að venju með. Farið er yfir síðustu leiki og stöðuna í deildinni.

Jan 17, 2025

Tveggja Turna Tal - Þórarinn Ingi Valdimarsson

Þórarinn Ingi Valdimarsson hitti mig í World Class Laugum og ræddi Vestmannaeyjar, Noreg og þurra Norðmenn, FH, Stjörnuna auk þess sem hann valdi lið af mönnum til að taka með sér á þjóðhátíð sem kemur á óvart!Visitor, Lengjan, Hafið Fiskverslun, World Class eru með okkur í liði ásamt auðvitað Budweiser Budvar!Njótið vel!

Jan 16, 2025

Freysi fer yfir síðustu daga - Fundaði með KSÍ en tók við Brann

Freyr Alexandersson er tekinn við sem þjálfari Brann í Noregi og hann stefnir á að hjálpa liðinu að vinna sinn fyrsta meistaratitil síðan 2007 þegar þrír Íslendingar léku með liðinu. Það er gríðarlegur áhugi á Brann í borginni Bergen og hefur Freyr aldrei kynnst annarri eins fjölmiðlaathygli eins og síðustu daga. Hann gaf Fótbolta.net hálftíma í dag til að fara yfir nýja starfið. Freyr var líka inn í myndinni hjá KSÍ varðandi landsliðsþjálfarastarf Íslands en í viðtalinu hér að ofan ræðir Freyr ...

Jan 15, 2025

Útvarpsþátturinn - Að gera Bestu deildina enn betri

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 11. janúar. Elvar Geir og Tómas Þór skoða landsliðsþjálfaramálin, félagaskipti og fréttir vikunnar og fá síðan góða gesti frá Toppfótbolta. Birgir Jóhannsson, framkvæmdastjóri ÍTF, og Björn Þór Ingason, markaðsstjóri ÍTF, koma í heimsókn. Rætt er um þróun Bestu deildarinnar, peningana í kringum hana, fyrirkomulagið og hvar svigrúm sé til bætinga.

Jan 11, 2025

Hugarburðarbolti GW 20 Er Brian Mbeumo sonur Bob Marley?

2-2 jafntefli í veislu á Anfield hjá erkifjendunum Liverpool og Man Utd. Brian Mbeumo með sýningu á St.Mary's. Brighton náði í stig gegn Arsenal í annað skiptið í vetur. Ipswich náði í stig gegn Fulham á Craven Cottage. Aston Villa lönduðu þremur punktum gegn nýliðum Leicester á heimavelli. Matz Sels er stigahæsti markvörðurinn í fantasy og ekki að ástæðulausu.

Jan 07, 2025

Enski boltinn - Alvöru slagur þegar erkifjendur mættust

Erkifjendurnir Liverpool og Manchester United áttust við í ensku úrvalsdeildinni í gær og enduðu leikar með jafntefli í fjörugum leik. Það má svo sannarlega telja þetta til óvæntra úrslita þar sem flestir bjuggust nú við öruggum sigri Liverpool. Drummerinn sjálfur, Jóhann D Bianco, var ekki einn þeirra en hann er mikill stuðningsmaður Manchester United og hafði trú á sínum mönnum fyrir leikinn. Joey var gestur í Enski boltinn hlaðvarpinu í dag og fór yfir málin ásamt Guðmuni Aðalsteini og Magnús...

Jan 06, 2025

Útvarpsþátturinn - Fyrsta ótímabæra og enska hringborðið

Elvar Geir og Tómas Þór í fyrsta þætti ársins 2025. Fyrsta ótímabæra spáin fyrir Bestu deildina afhjúpuð og farið yfir fréttir úr íslenska boltanum. Kristján Atli Ragnarsson, sérfræðingur þáttarins í enska boltanum velur sérstakt úrvalslið og hitar upp fyrir viðureign Liverpool og Manchester United.

Jan 04, 2025

Hugarburðarbolti GW 19 Versta byrjun nýs stjóra Man Utd í 103 ár!

Liverpool svífa hátt á toppi deildarinnar! Þeir kjöldrógu Hamrana á útivelli. Ipswich unnu fyrsta heimasigur sinn í úrvalsdeildinni síðan 2004 þegar þeir gerðu sér lítið fyrir og skelltu stórliði Chelsea 2-0. Öskubusku ævintýri Notthingham Forest ætlar engan endi að taka. Morgan Rogers heldur áfram góðri spilamennsku og þakkar fantasy spilurum traustið. Tottenham og Man Utd halda áfram að vera í vandræðum og þetta er versta byrjun nýs stjóra Man Utd í 103 ár!

Jan 02, 2025

Enski boltinn - Man Utd gælir við falldrauginn eftir vonlaus jól

Gleðilegt nýtt ár! Enski boltinn var á fleygiferð í kringum jólahátíðina en í þessum þætti er farið yfir það helsta. Manchester United er mikið á milli tannana á fólki þessa dagana en falldraugurinn gælir við liðið. Það er aðeins sjö stig í fallsvæðið eftir þrjá tapleiki í röð. Liðið er hreint út sagt ömurlegt og það er dimmt yfir Old Trafford. Liverpool er sem fyrr á toppnum, Arsenal átti góð jól en það sama er ekki hægt að segja um Chelsea sem svo gott sem stimplaði sig út úr titilbaráttunni. ...

Jan 02, 2025

Útvarpsþátturinn - Kæfan 2024

Gleðin er við völd í Kæfunni þegar fótboltaárið er gert upp og veitt verðlaun í fjölmörgum flokkum. Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas í beinni í síðasta þætti ársins frá fiskabúrinu á Suðurlandsbrautinni. Gestur þáttarins er hinn þrælskemmtilegi og öflugi markvörður Jökull Andrésson. Einnig kemur Breki Logason í heimsókn og Tómas Meyer er á línunni.

Dec 28, 2024

Tveggja Turna Tal - Óli Jóh & Sigurbjörn Hreiðars

Jólaspjall Tveggja Turna Tals var við tvo af skemmtilegri mönnum Íslands og þótt víðar væri leitað. Óli Jóh og Bjössi Hreiðars gáfu sér tíma í jóla amstrinu og fóru yfir allt sviðið. Það bar ekki á miklu jólastressi á þeim félögum. Það var ekki rædd vitleysan í stúdíó í þetta skiptið - allavega ekki allan tímann. Þeir félagar ræddu hvað er gaman við þjálfun, hvað traust skiptir miklu máli þegar kemur að liðsheild og svo sagði Óli frá því hvernig Guðný, eiginkona hans, fékk Arnar og Bjarka í FH. ...

Dec 25, 2024

Tveggja Turna Tal - Kári Ársælsson

Kári Ársælsson er fyrsti fyrirliði Breiðabliks til að lyfta Íslands og Bikarmeistaratitlinum í meistaraflokki karla í fótbolta. Það gerði hann á lágmarkslaunum!Kári var 16 ára keyptur af Ásgeiri Elíassyni í Þrótt þar sem hann sat stundum á bekknum þegar Þróttarar féllu úr efstu deild eftir að hafa verið efstir eftir fyrri umferðina. Hann stundaði nám í Alabama í Bandaríkjunum og er þekktur "trash talker" meðal fótboltamanna.Við ræddum þetta allt og miklu fleira þegar við fórum yfir feril Kára - ...

Dec 23, 2024
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android