Fótbolta nördinn - 16 liða úrslit: KR vs RÚV
16 liða úrslitin halda áfram og í þetta sinn tekur Haraldur Örn á móti KR og RÚV. Fyrir KR keppti Axel Óskar Andrésson en fyrir RÚV keppti Jóhann Páll Ástvaldsson.

16 liða úrslitin halda áfram og í þetta sinn tekur Haraldur Örn á móti KR og RÚV. Fyrir KR keppti Axel Óskar Andrésson en fyrir RÚV keppti Jóhann Páll Ástvaldsson.
Brighton - Tottenham varð auðvitað veislan sem við spáðum. Liverpool með sterkan 0-1 sigur á Selhurst Park gegn Crystal Palace. Cole Palmer nokkuð rólegur um helgina og Haaland skorar ekki annan leikinn í röð. Saka í góðum gír á Emirates og Forest náðu í sterkt stig á Stamford Bridge.
Nik Chamberlain stýrði kvennaliði Breiðabliki til Íslandsmeistaratitils síðasta laugardag eftir hreinan úrslitaleik við Val. Hann var að klára sitt fyrsta tímabil hjá félaginu eftir að hafa gert flotta hluti með Þrótt þar áður. Nik, sem er frá Eastbourne á Bretlandseyjum, kom fyrst til Íslands árið 2007 en hann hefur verið hér samfleytt í býsna langan tíma. Hann mætti í dag á skrifstofu Fótbolta.net og fór yfir tímabilið með Breiðabliki og tímann sinn á Íslandi. Og auðvitað tígulmiðjukerfið sem ...
Andréssynir úr Mosfellsbæ kíktu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og fóru vel yfir málin. Bræðurnir eru stórskemmtilegir en í þættinum fara þeir aðeins yfir fótboltasumarið á Íslandi (Afturelding komst upp í Bestu deildina), lífið í akademíu á Englandi og síðastliðna umferð í ensku úrvalsdeildinni. Þeir þekkja enska boltann vel eftir að hafa verið báðir á mála hjá Reading, en Jökull er þar enn samningsbundinn.
Elvar Geir, Valur Gunnars og Haraldur Örn í Innkastinu eftir þriðju umferð úrslitakeppninnar. Víkingur og Breiðablik leiðast áfram hönd í hönd á toppi deildarinnar en bæði lið gerðu jafntefli. Við færumst nær úrslitaleik. Davíð Ingvars funheitur, mark frá miðju í Víkinni, erfitt að skilja Heimi Guðjóns, Fylkismenn eru fallnir, KR-ingar raða inn mörkum og Andri Rúnar nennir ekki Lengjudeildinni.
Magnús Már Einarsson, Maggi.net, er gestur vikunnar.Magnús byrjaði 13 ára að starfa sem blaðamaður á fotbolti.net og breytti leiknum í umfjöllunumum íslenskan fótbolta ásamt Hafliða Breiðfjörð á næstu 19 árum.Sonur hans fótbrotnaði á fyrir nokkrum árum og það fékk Magga til að hugsa um hvað hann væri að gera í lífinu. Hann hætti á .net og fór að einbeita sér að þjálfun og að vera pabbi.Árangurinn er að hann á tvö börn, það þriðja er á leiðinni og hann kom Aftureldingu í efstu deild.Við þökkum Ne...
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 5. október. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Gestur þáttarins er Magnús Már Einarsson þjálfari Aftureldingar en Mosfellingar eru komnir upp í Bestu deildina. Farið er yfir fréttir vikunnar, Bestu deildina, tap Víkings í Sambandsdeildinni, Sæbjörn Steinke skoðar landsliðshópinn og Kristján Atli ræðir um enska boltann.
Einn stærsti leikur síðari ára í íslenska fótboltanum fer fram á laugardaginn þegar Valur tekur á móti Breiðabliki. Risarnir tveir í kvennaboltanum eigast þarna við í einum leik sem mun skera úr um það hvaða lið verður Íslandsmeistari. Breiðablik er með einu stigi meira fyrir leikinn. Það er óhætt að gera kröfu á áhorfendamet en leikurinn fer fram á Hlíðarenda á laugardaginn klukkan 16:15. Fótboltaþjálfararnir Magnús Haukur Harðarson og Óskar Smári Haraldsson mættu í heimsókn í dag og fóru vel y...
Fótbolta nördinn er nýr hlaðvarpsþáttur hjá Fótbolti.net. Í þessum þáttum munu knattspyrnumenn og fjölmiðlamenn etja kappi í spurningakeppni. 16 liða úrslitin eru hafin og hægt er að hlusta á þeim í spilaranum og öllum öðrum hlaðvarpsveitum.
Cole Palmer með alvöru sýningu á brúnni og er sá fyrsti til þess að skora fernu í fyrri hálfleik frá stofnun úrvalsdeildarinnar 1992. Draumamark bakvarðarins dugði ekki til á Emirates. Liam Delap með tvennu fyrir Traktors strákana. Liverpool fóru á toppinn með því að leggja Úlfana 1-2 á meðan Man City mátti sætta sig við stig gegn sterkum Newcastle mönnum í norðrinu og Man Utd steinlá á heimavelli gegn Tottenham.
Uppgjör á 2. umferð úrslitakeppni Bestu deildarinnar og Lengjudeildin gerð upp. Hverjir voru bestir? Tarik Ibrahimagic töfraði þrjú stig til Víkings og Breiðablik skoraði sigurmark beint úr horni. Nokkur lið eru hreinlega kominn í vetrarfrí og Vestri vann klaufalegt lið HK. Afturelding er komin upp í Bestu deildina. Elvar Geir, Valur Gunnars og Guðmundur Aðalsteinn í Innkastinu.
Erik ten Hag getur ekki lifað mikið lengur í starfi hjá Manchester United. Það er bara svoleiðis, United hlýtur að fara að reka hann. United tapaði 0-3 gegn Tottenham í gær en það var farið vel yfir það í Enski boltinn hlaðvarpinu í dag. Tryggvi Páll Tryggvason var á línunni og fór yfir leikinn í gær. Chelsea stuðningsmennirnir Haraldur Örn Haraldsson og Stefán Marteinn Ólafsson eru þá gestir og fara yfir flotta byrjun Chelsea á tímabilinu. Cole (Cold) Palmer fór á kostum um helgina. Liverpool e...
Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars fara yfir allt það helsta í boltanum. Leikir vikunnar í Bestu deildinni, fótboltafréttir vikunnar, 50 milljóna króna leikurinn og ýmislegt fleira. Sævar Pétursson framkvæmdastjóri KA í beinni frá Akureyri.
Þórsarar voru stórhuga fyrir tímabilið og eftir velgengni á undirbúningstímabilinu var trúin fyrir norðan mikil, gera átti alvöru atlögu að sæti í Bestu deildinni. Byrjunin í deildinni var fín, vel gekk í bikarnum en svo fór að halla undan fæti og þegar leið á tímabilið var liðið hreinlega í fallhættu. Niðurstaðan varð 10. sætið. Sigurður Höskuldsson, þjálfari liðsins, ræddi við Sæbjörn Steinke og var farið yfir tímabilið, stoppað við nokkra leiki og farið dýpra í ýmis mál. Siggi ræddi einnig um...
Þvílíka skemmtunin hjá Man City og Arsenal á Etihad. Leikur sem bauð upp á allt. Luis Diaz á eldi með Liverpool. Tottenham í góðum gír um helgina. Newcastle tapaði gegn Fulham í London og það var leikur markvarðanna þegar Crystal Palace og Man Utd skildu jöfn 0-0 á Selhurst Park.
Hringborðið dregið fram í Innkasti vikunnar. Elvar Geir, Valur Gunnars, Guðmundur Aðalsteinn og svo Haraldur Örn stuðningsmaður KA. Bikarinn á Brekkuna! Til hamingju KA. Bikarúrslitaleikurinn er gerður upp en þar sýndi KA fyrirmyndar frammistöðu og vann verðskuldaðan sigur gegn Víkingi. Úrslitakeppni Bestu deildarinnar er farin af stað með glæsimörkum, áætlun Aftureldingar er að ganga upp í Lengjudeildarumspilinu og á föstudagskvöld er úrslitaleikur Fótbolti.net bikarsins.
Það var sannkallaður stórleikur í ensku úrvalsdeildinni í gær þegar Manchester City spilaði við Arsenal. Jón Kaldal, stuðningsmaður Arsenal, og Magnús Haukur Harðarson, stuðningsmaður Liverpool, komu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net og fóru yfir stórleikinn, og aðra leiki helgarinnar. Enski boltinn er í boði Nova.
Gunnlaugur Jónsson er gestur vikunnar. Við félagarnir fórum yfir víðan völl enda áhugasvið og ferill Gulla afar athyglisverður.Nýdönsk, afhverju vann FH ekki 89?, Draumalið ÍA frá 1980, Gaui Þórðar, Teitur Þórðar, Selfoss, Valur, Þróttur og fjölmiðlabakterían bar á góma! Við lentum í tómum vandræðum með þjófavörnina, brunavarnirnar og margt fleira.Við þökkum Nettó, Netgíró, Lengjunni, Fitness Sport og 0% Budvar fyrir samstarfið góða og óskum ykkur öllum þess að njóta vel!Það Er Alltaf Von
Elvar Geir og Tómas Þór í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 laugardaginn 21. september. Sæbjörn Steinke er með þeim í þættinum. Rætt er um fréttir vikunnar, umspil Lengjudeildarinnar, bikarúrslitaleikinn, Bestu deildina og fleira. Gestur þáttarins er Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram.
Úrslitaleikur Mjólkurbikarsins fer fram á morgun þar sem Víkingur og KA munu eigast við. Haraldur Örn Haraldsson stuðningsmaður KA og Sverrir Örn Einarsson stuðningsmaður Víkings hituðu upp fyrir leikinn í þessu þætti.
Á morgun fara fram undanúrslitin í Fótbolti.net bikarnum. Aðeins þarf að vinna einn leik í viðbót til að komast á Laugardalsvöll. laugardagur 21. september 13:00 Selfoss-Árbær (JÁVERK-völlurinn) 13:00 KFA-Tindastóll (Fjarðabyggðarhöllin) Bjarni Jóhannsson, þjálfari Selfoss, ræddi við Fótbolta.net í morgunsárið um sumarið á Selfossi en lið hans flaug upp úr 2. deildinni. Einnig var farið yfir undanúrslitin í þessari keppni sem Bjarni er svo hrifinn af. Hann segir hana stórskemmtilegt fyrirbæri og...
Viktor Örlygur Andrason leikmaður Víkinga mætti í hljóðver Fótbolta.net í létta upphitun fyrir úrslitaleik Mjólkurbikarsins sem fram fer næstkomandi laugardag. Þar munu Víkingar mæta KA í úrslitum annað árið í röð og freista þess að vinna sinn fimmta bikartitil í röð.
Haaland heldur bara áfram sínu striki. Robert Sanchez og Onana vörðu báðir vítaspyrnu í stöðunni 0-0 hjá sínum liðum. Fyrsti sigur Notthingham Forest á Anfield síðan 1969. Arsenal með montréttinn í Norður London eftir helgina og Ollie Watkins er vaknaður. Draumamörk í umferðinni.
Á laugardag fer fram bikarúrslitaleikur KA og Víkings á Laugardalsvelli; annað árið í röð mætast liðin í úrslitaleiknum. Í tilefni af því var KA-maðurinn Haukur Heiðar Hauksson fenginn til að hita aðeins upp fyrir leikinn. Haukur lagði skóna á hilluna eftir tímabilið 2021. Hann er uppalinn hjá KA, varð svo Íslands- og bikareistari með KR áður en hann tók skrefið út í atvinnumennsku og varð sænskur meistari með AIK. Stiklað er á stóru á ferli Hauks, í viðtalinu er rætt um Dean Martin, Alexander I...
22 umferðum er lokið í Bestu deildinni og komið að tvískiptingunni! Elvar Geir, Valur Gunnars og Guðmundur Aðalsteinn gera upp umferðina. Víkingur er á toppnum með öfluga markatölu, við höldum áfram að rembast við að búa til úrslitaleik, KR-ingar eru klaufabárðar og liðin í neðri hlutanum töpuðu nánast öll. Í þættinum er einnig fjallað um lokaumferð Lengjudeildarinnar og rýnt í umspilið. Svo er bikarúrslitaleikur handan við hornið!
Landsleikjahléið er búið og fjórða umferðin í ensku úrvalsdeildinni var leikin um helgina. Ágúst Unnar Kristinsson og Óliver Elís Hlynsson, leikmenn ÍR, mættu í heimsókn og fóru yfir málin. Arsenal vann meistarasigur gegn erkifjendum sínum í Tottenham, raunveruleikatékk fyrir Arne Slot, Haaland er vélmenni og Manchester United komst aftur á sigurbraut gegn Southampton. Þetta og fleiri í þætti dagsins af Enski boltinn. Enski boltinn er í boði Nova.
Óli Kristjáns er gestur sem allir þekkja. Óli var góður leikmaður fyrir FH, KR, AGF og Íslenska landsliðið og fáir Íslendingar hafa átt eins áhugaverðan þjálfaraferil.Það geta allir lært helling af því að hlusta á Ólaf. Skiptir þá engu hvort um sé að ræða þjálfun eða lífið sjálft.Við þökkum Nettó, Netgíró, Lengjunni fyrir samstarfið góða og óskum ykkur öllum þess að njóta vel!Það Er Alltaf Von
Elvar Geir og Tómas Þór með útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 14. september. Víkingur komst aftur á topp Bestu deildarinnar með 3-0 sigri gegn KR-ingum sem eiga greinilega langt í land. Leikurinn er gerður upp og einnig heyrt í Arnari Gunnlaugssyni. Farið er yfir fótboltafréttir vikunnar og hitað upp fyrir næstu umferð í Bestu deildinni og lokaumferð Lengjudeildarinnar. Sverrir Örn Einarsson er í beinni frá Keflavík
Pablo Punyed er einn mesti sigurvegari sem hefur spilað í íslenskum fótbolta. Hann lenti hér á landi aðeins 21 árs gamall og hefur fest hér rætur. Hann lítur núna á sig sem Íslending. Pablo spilar í dag með Íslands- og bikarmeisturum Víkings en hann er staðráðinn í að snúa aftur á fótboltavöllinn eftir að hafa slitið krossband á dögunum. Í þessum hlaðvarpsþætti ræðir hann um meiðslin, ferilinn til þessa og lífið á Íslandi.
Sérstakur aukaþáttur af Innkastinu á meðan Besta deildin er í landsleikjafríi. Umsjón: Elvar Geir. Farið er yfir landsleikinn í Tyrklandi og þá er fjallað vel um Lengjudeildina en síðasta umferðin verður leikin á laugardag. Fréttamenn .Net þeir Sölvi Haralds stuðningsmaður ÍR og Stefán Marteinn stuðningsmaður Njarðvíkur eru með Elvari í hljóðveri. Einnig Hilmar Jökull sem býður sig fram í formannsstól Tólfunnar. Einnig er rætt um 2. deild og næstu leikir í þeirri Bestu skoðaðir.