Fotbolti.net - podcast cover

Fotbolti.net

Fotbolti.netfotbolti.net
Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Tveggja Turna Tal - Hákon Sverrisson

Hákon Sverrisson hefur þjálfað hjá Breiðablik í um 30 ár ásamt því að vera einn leikjahæsti leikmaður félagsins frá upphafi.Hákon hefur frá 2016 verið yfirþjálfari Blika en hefur auk þess í gegnum áratugina sérhæft sig í þjálfun yngstu iðkendanna og það væri gaman að vita hve mörg þúsund börn hafa hitt Hákon í Fífunni.Hákon Sverrisson er óumdeildur og góður maður. Hann er guðsgjöf fyrir fótboltann í Kópavogi og á Íslandi.Tveggja Turna Tal er hlaðvarpsþáttur þar sem Jón Páll Pálmason sest niður m...

Sep 09, 2024

Útvarpsþátturinn - Gamla og nýja bandið búa til smelli

Útvarpsþátturinn er frumfluttur í hlaðvarpsútgáfu þessa vikuna. Elvar Geir og Tómas Þór á Ölveri eftir fyrsta sigur Íslands í Þjóðadeildinni. 2-0 gegn Svartfjallalandi. Sæbjörn Steinke er með þeim og er leikurinn gerður upp, farið yfir frammistöðu leikmanna og stöðu mála. Í seinni hlutanum eru svo fréttir vikunnar og komandi umferð í Lengjudeildinni. Guðmundur Aðalsteinn er með í þeim hluta.

Sep 07, 2024

Hugarburðarbolti GW3 Er Haaland mennskur?

Erling Braut West Ham. Önnur þrennan í röð og 7 mörk í fyrstu 3.umferðunum. Liverpool gerðu góða ferð á Old Trafford með dyggri aðstoð Casemiro. Chris Kavanagh átti hörmungar dag á Emirates. Bournemouth með stórkostlega endurkomu í Guttagarði. John Duran að standa undir nafni í 9.unni hjá Aston Villa og Newcastle unnu sterkan heimasigur gegn Tottenham. Kóngurinn, hirðfíflið og rauða spjaldið á sínum stað ásamt sigurvegara mánaðarins!

Sep 03, 2024

Enski boltinn - Liverpool fékk betri sköllótta Hollendinginn

Liverpool fór illa með Manchester United í stórleik í ensku úrvalsdeildinni í gær. Arnar Laufdal, stuðningsmaður Liverpool, og Eysteinn Þorri Björgvinsson, stuðningsmaður Manchester United, mættu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og gerðu leikinn upp. Einnig var farið yfir aðra leiki helgarinnar og aðeins rætt um gluggadaginn. Enski boltinn hlaðvarpið er í boði Nova.

Sep 02, 2024

Tveggja Turna Tal - Sigurvin Ólafsson

Sigurvin Ólafsson er óumdeilanlega einn af Turnum efstu deildar og neðri deilda í Íslenskum fótbolta. Venni er margfaldur Íslandsmeistara og hvar sem hann hefur komið er honum líst sem einstaklega góðum manni. Þátturinn í dag er stútfullur af góðum ráðum, áhugaverðum sögum, kímni og gleði. Það er gulur September. Munum: Það Er Alltaf Von. Tveggja Turna Tal er hlaðvarpsþáttur þar sem Jón Páll Pálmason sest niður með þjálfurum, þverrt á íþróttagreinar, og ræðir þjálfun með gestum sínum. Þættirnir ...

Sep 02, 2024

Útvarpsþátturinn - Þegar einn gluggi lokast opnast annar

Davíð Snorri Jónasson aðstoðarlandsliðsþjálfari Íslands er gestur vikunnar í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Það er landsleikjagluggi framundan og Ísland mætir Svartfjallalandi og Tyrklandi í Þjóðadeildinni. Áður en spjallað er við Davíð er farið yfir helstu fótboltafréttirnar. Orri Steinn fór til Real Sociedad á gluggadeginum, ljóst er hverjum Víkingur mætir í Sambandsdeildinni, það er heil umferð framundan í Bestu deildinni og toppbaráttan í Lengjudeildinni er galopin. Enski boltinn kemur...

Aug 31, 2024

Staðan tekin í Bestu deild kvenna nú þegar deildin er skipt

Fyrstu leikirnir í Bestu deild kvenna eftir að deildinni var skipt fóru fram í kvöld. Fyrr í dag komu þjálfararnir Magnús Haukur Harðarson og Óskar Smári Haraldsson við á skrifstofu Fótbolta.net og fóru yfir stöðuna í deildinni, lið fyrir lið. Það er mikil spenna í titilbaráttunni og á hinum enda töflunnar er þriggja liða barátta í baráttunni um að halda sér uppi. Einnig var aðeins snert á Lengjudeild kvenna og ævintýri FHL í þættinum.

Aug 30, 2024

Tveggja Turna Tal - Arnar Grétarsson

Arnar Grétarsson á mjög áhugaverðan feril sem leikmaður, þjálfari og yfirmaður knattspyrnumála á Íslandi, Grikkland og í Belgíu. Við fórum fyrir yfir allt á milli himins og jarðar frá því að hann sat 16 ára gamall á skrifstofunni hjá Sir Alex Ferguson yfir í tíma hans hjá Val. Tveggja Turna Tal er hlaðvarpsþáttur þar sem Jón Páll Pálmason sest niður með þjálfurum, þverrt á íþróttagreinar, og ræðir þjálfun með gestum sínum. Þættirnir eru á öllum helstu hlaðvarpsveitum og er í boði Nettó, Netgíró ...

Aug 30, 2024

Arnar Gunnlaugsson fer vel yfir málin

Arnar Gunnlaugsson þjálfari Víkinga tók símtal við fréttaritara Fótbolta.net eftir markalaust jafntefli Víkinga gegn Santa Coloma í Andorra í viðureign liðanna í umspili um sæti í Sambandsdeild Evrópu. Eftir 5-0 sigur í heimaleiknum var nokkuð ljóst að leið Víkinga í deildarkeppnina væri nokkuð greið.

Aug 29, 2024

Tveggja Turna Tal - Fjalar Þorgeirsson

Fjalar Þorgeirs settist niður með mér og fór yfir sviðið. Hvernig var að vera leikmaður undir Ásgeiri El, Willum og Atla Eðvalds? Fjalar byrjaði þjálfaraferilinn í kampavínspartýinu í Garðabæ og upplifði drauga fortíðar bíta menn í FH. Fjalar er í dag markmannsþjálfari Íslenska karlalandsliðsins og við veltum fyrir okkur markmannsþjálfun í fortíð, nútíð og framtíð! Tveggja Turna Tal er hlaðvarpsþáttur þar sem Jón Páll Pálmason sest niður með þjálfurum, þverrt á greinar, og ræðir þjálfun með gest...

Aug 29, 2024

Tveggja Turna Tal - Sigurður Ragnar Eyjólfsson

Sigurður Ragnar Eyjólfsson settist niður með mér og fór yfir knattspyrnuferlinn og þjálfun. Sigga Ragga þykir vænt um landsliðsstelpurnar gömlu þó honum hafi sárnað viðskilnaðinn. Siggi Raggi er klár í að byrja þjálfa á nýjan leik og hjálpa KSI að bæta fótboltann á Íslandi með ýmsum hætti. Þátturinn er í boði Nettó, Netgíró og Lengjunnar.

Aug 28, 2024

Hugarburðarbolti GW2 Tvær þrennur og aftur -8 stig!

Cole Palmer og Nonni með sýningu gegn Úlfunum. Haaland kominn með 4 mörk í 2 leikjum. Það ættu öll að eiga einn Son. David Raya þyngdar sinnar virði í gulli og Liverpool byrja mótið mjög sannfærandi. Man Utd að gefa ódýr mörk.

Aug 27, 2024

Innkastið - Blikar mættir á toppinn og spenna á öllum vígstöðvum

Innkast vikunnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Haraldur Örn. Breiðablik er komið á toppinn, Jón Þór fær sjaldséða gagnrýni, KA með mikilvægan sigur, Valur ekki sannfærandi en vann tíu Vestramenn, Björn Daníel funheitur og Stjarnan ekki í miklum vandræðum með HK.

Aug 26, 2024

Enski boltinn - Ten Hag tíminn, Noni í stuði og Guardiolabolti í Liverpool

Önnur umferðin í ensku úrvalsdeildinni var skemmtileg en hún kláraðist í gær. Orri Fannar Þórisson, þjálfari KV, og Jóhann Páll Ástvaldsson, íþróttafréttamaður á RÚV, mættu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og fóru yfir umferðina ásamt öllu því helsta. Manchester United tapaði enn og aftur í uppbótartíma undir stjórn Erik ten Hag, Noni Madueke talaði illa um Wolverhampton og skoraði svo þrennu og Arne Slot boltinn minnir meira á Pep Guardiola en Jurgen Klopp. Enski boltinn hlaðvarpið er...

Aug 26, 2024

Útvarpsþátturinn - Brotnir KR-ingar, Euro-Vikes og enskt hringborð

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 24. ágúst. Elvar Geir og Tómas Þór skoða helstu fótboltafréttir vikunnar; Sambandsdeildin, Besta deildin og Lengjudeildin eru til umræðu. Í seinni hlutanum er fjallað um upphaf ensku úrvalsdeildarinnar og sérfræðingur þáttarins, Kristján Atli, kemur með sína spá um það hvernig þetta mun enda.

Aug 24, 2024

Hugarburðarbolti GW1 Flottir vinningar og frítt inn!

Erling Braut Haaland og Mo Salah samir við sig í fyrstu umferð. Sigurvegari umferðarinnar með 99 stiga byrjun! Kai Havertz með draumabyrjun fyrir Arsenal. Zirkzee með sigurmarkið á Old Trafford í fyrsta leiknum sínum.

Aug 20, 2024

Innkastið - Blikar gripu loks gæsina og vond ára yfir Val

Elvar Geir, Valur Gunnars og Baldvin Borgars eftir 19. umferð Bestu deildarinnar. Þvílík umferð að baki! Breiðablik hefur jafnað Víking að stigum á toppi deildarinnar og spennan eykst líka á öðrum vígstöðum! Lengjudeildarhornið er á sínum stað.

Aug 19, 2024

Enski boltinn - Nýju gæjarnir flottir og Slot grjótharður

Enska úrvalsdeildin er hafin að nýju! Nýju gæjarnir hjá Manchester United voru flottir, Slot var grjótharður í fyrsta leiknum hjá Liverpool, Arsenal byrjaði á sigri, Brighton skellti sér á toppinn og hafnaboltapælingin hjá Chelsea virkar ekki í fótbolta. Baldvin Már Borgarsson og Sölvi Haraldsson mættu í heimsókn í dag og fóru yfir leiki helgarinnar og helstu sögulínur. Enski boltinn er í boði Nova.

Aug 19, 2024

Útvarpsþátturinn - Gulli Jóns og tvíburarnir

Útvarpsþátturinn 17. ágúst. Tómas Þór, Benedikt Bóas og Valur Gunnars. Með þeim er Gunnlaugur Jónsson fjölmiðlamaður og fyrrum fótboltamaður. Sjónvarpsþættir um tvíburana Arnar og Bjarka, sviptingar hjá KR, sigur Breiðabliks gegn Vals, enski boltinnn og fleira til umfjöllunar.

Aug 17, 2024

Enski boltinn - Sá fimmti í röð hjá City?

Manchester City er að fara inn í komandi tímabil til að vinna ensku úrvalsdeildina fimmta árið í röð. Eiríkur Þorvarðarson og Magnús Ingvason mættu í heimsókn í dag til að fara yfir síðasta tímabil og komandi leiktíð hjá Englandsmeisturunum. Pep Guardiola stýrir skútunni áfram hjá City og sá maður elskar að vinna titla. Enski boltinn hlaðvarpið er í boði Nova.

Aug 16, 2024

Hugarburðarbolti GW1 Pakkaferð á leik í vinning!

Enska deildin fer af stað á morgun og fórum við yfir liðin sem við ætlum að stilla upp í byrjun tímabils. Gunni og Dóri eru með nánast alveg eins lið en Vignir er með allt aðrar pælingar en þeir. Svo eru risa fréttir! TA-Sport eru gengnir til liðs með okkur og ætla að gefa sigurverara deildarinnar pakkaferð á leik í ensku úrvalsdeildinni! Við munum að sjálfsögðu halda áfram með vikulega vinninga og fullt af flottum vinningum í allan vetur svo endilega skráið ykkur í deildina það kostar ekkert og...

Aug 15, 2024

Enski boltinn - „Fagleg" umræða um Arsenal

Arsenal ætlar sér að vinna ensku úrvalsdeildina á komandi tímabili. Þetta er árið. Gunnar Birgisson og Jón Kári Eldon, tveir veikustu Arsenal stuðningsmenn landsins, mættu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og fóru yfir sviðið. Umræðan var „fagleg" að þeirra mati. Arsenal hefur lent í öðru sæti síðustu tvö tímabil en ætla sér að taka gullið í ár. Jón Kári og Gunnar sætta sig við tvo titla, en vilja helst fá þrjá titla á komandi leiktíð. Enski boltinn hlaðvarpið er í boði Nova.

Aug 15, 2024

Enski boltinn - Nýr kafli skrifaður í sögu Liverpool

Það verður nýr kafli skrifaður í sögu Liverpool á komandi tímabili; Jurgen Klopp er farinn eftir níu ára veru hjá félaginu. Í staðinn er Hollendingurinn Arne Slot tekinn við stjórnartaumunum. Atli Már Steinarsson og Magnús Haukur Harðarson, tveir grjótharðir Liverpool stuðningsmenn, mættu í heimsókn í dag og fóru yfir stöðuna eftir breytingarnar. Mun Liverpool kaupa leikmann áður en glugginn lokar? Enski boltinn hlaðvarpið er í boði Nova.

Aug 14, 2024

Innkastið - Bölvun aflétt með nýjum þjálfara og glórunni tapað

Innkastið eftir 18. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Óskar Smári. Óskar Hrafn byrjar aðstoðarþjálfaraferilinn á sigri, Skagamenn náðu aftur í sigur, Arnar Gunnlaugs urðaði yfir dómarastéttina, allir brjálaðir í Garðabæ, mistök að fara á Hlíðarenda, Lengjudeildarhornið og fleira.

Aug 12, 2024

Enski boltinn - Ætla aftur í hópferð til Tottenham

Tottenham er að fara inn í sitt annað tímabil með Ange Postecoglou við stjórnvölinn og menn eru bara nokkuð brattir. Hjálmar Örn Jóhannsson, Hjammi, og Ingimar Helgi Finnsson, litla flugvélin, mættu í heimsókn á skrifstofu í dag og fóru yfir stöðuna fyrir tímabilið sem er framundan. Dominic Solanke, Mikey Moore, Oliver Skipp koma við sögu í þættinum og þá ræða þeir um mögulega hópferð til Tottenham í vetur. Enski boltinn hlaðvarpið er í boði Nova.

Aug 12, 2024

Útvarpsþátturinn - Fjósamennska í íslenska boltanum

Elvar Geir og Tómas Þór í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 laugardaginn 10. ágúst. Lengjudeildin skoðuð, Kristinn Kjærnested fer yfir Bestu deildina og helstu fréttamál þaðan og Jón Þór Hauksson þjálfari ÍA er á línunni frá Akranesi. Í lok þáttarins er rætt um enska boltann.

Aug 10, 2024

Enski boltinn - Furðulegur heimur Chelsea

Það hefur mikið gengið á hjá Chelsea í sumar, alveg eins og búist var við. Leikmenn hafa komið og farið, og það er kominn nýr stjóri. Ekkert óvænt þar. Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson eru fárveikir Chelsea menn. Þeir mættu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og fóru aðeins yfir stöðuna hjá sínu félagi; fóru yfir furðulegan heim Chelsea.

Aug 09, 2024

Innkastið - Brotið mark og óútreiknanlegt liðsval

Innkastið fer yfir leiki vikunnar í Bestu deildinni. Elvar Geir, Valur Gunnars og með þeim er Haraldur Örn fréttamaður Fótbolta.net og stuðningsmaður KA. Brotið mark í Kórnum, tap í fyrsta leik Túfa, fjör í markalausu jafntefli, áhugamennskulegt hjá Fylki, óútreiknanlegt liðsval Jökuls og Víkingssigur í Krikanum. Einnig er rætt um Evrópuleik Víkings og Lengjudeildina.

Aug 08, 2024

Tiltalið: Hallbera Guðný Gísladóttir

Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar áhugaverða einstaklinga úr knattspyrnunni á Íslandi bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er fyrrum landsliðskonan Hallbera Guðný Gísladóttir. Við ræddum við hana um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.

Aug 08, 2024
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android