Fotbolti.net - podcast cover

Fotbolti.net

Fotbolti.netfotbolti.net
Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Útvarpsþátturinn - Birkir Már og landsliðsgleðin á Wembley

Útvarpsþátturinn 8. júní. Tómas Þór og Benedikt Bóas halda um stýrið og að sjálfsögðu er sigur Íslands í vináttulandsleiknum gegn Englandi á Wembley fyrirferðarmikill. Birkir Már Sævarsson, fyrrum landsliðsmaður Íslands, er gestur þáttarins en hann er eini Íslendingurinn sem hefur fengið rautt spjald á Wembley. Þá er fjallað um íslenska boltann.

Jun 08, 2024

Guðrún Elísabet og Jasmín: Heiður að taka þátt í vegferðinni

Fyrsti þriðjungur af deildarkeppni Bestu deildar kvenna - fyrir skiptingu - er lokið og má með sanni segja að deildin sé að spilast á mjög svo áhugaverðan hátt. Guðrún Elísabet Björgvinsdóttir og Jasmín Erla Ingadóttir, leikmenn Íslandsmeistara Vals, komu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og ræddu aðeins byrjunina á mótinu, tímann sinn hjá Val til þessa og margt fleira. Guðrún Elísabet er á sínu öðru tímabili með Val og Jasmín er á sínu fyrsta tímabili hjá Íslandsmeisturunum, en þær eru...

Jun 06, 2024

Innkastið - Ömurlegur varnarleikur í markaveislu

Innkastið eftir 9. umferð Bestu deildarinnar. Valur Gunnarsson stýrir að þessu sinni en með honum eru Haraldur Árni Hróðmarsson og Tómas Þór Þórðarson. Það var sett markamet fyrir eina umferð en varnarleikurinn var ekki upp á marga fiska, þá sérstaklega ekki hjá KR í Vesturbænum. Ísak Snær sendi skilaboð í Kórnum, Víkingur þurfti að hlaupa mikið gegn Fylki, Vestri barði á Stjörnumönnum, ÍA lagði vonlausa KA-menn og FH tapaði niður þriggja marka forystu gegn Fram.

Jun 04, 2024

Útvarpsþátturinn - Sérfræðingurinn Sævar Atli og fjármálaskýrsla

Útvarpsþátturinn á kosningadegi. Umsjón: Elvar Geir og Benedikt Bóas. Sævar Atli Magnússon, leikmaður Lyngby, er með þeim í þættinum. Þeir þrír fara yfir helstu fótboltafréttir vikunnar, leiki Bestu deildarinnar og Lengjudeildarinnar og ýmislegt fleira. Í seinni hlutanum kemur Þórir Hákonarson, sérfræðingur þáttarins í fótboltapólitíkinni. Hann hefur skoðað samantektarskýrslu Deloitte og KSÍ um fjármál íslenskrar knattspyrnu og fer yfir það sem honum finnst áhugaverðast.

Jun 01, 2024

Enski boltinn - Úrslitaleikurinn og tímabil Man Utd

Bræðurnir Hallgrímur Mar og Hrannar Björn fóru yfir bikarúrslitaleikinn og tímabilið hjá Manchester United með Sæbirni Steinke. Man Utd varð bíkarmeistari eftir sigur á Man City um síðustu helgi, úrslit sem komu mörgum á óvart. Einstakir leikmenn í liðinu voru til umræðu og rætt vel um framtíð stjórans. Þá voru vangaveltur um hvaða leikmenn þyrfti að selja og hvaða stöður þyrfti að styrkja

May 30, 2024

Innkastið - Baulað í Vesturbæ og Hrafninn í stúkunni

Innkastið eftir 8. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Baldvin Borgars og með þeim er Örn Þór Karlsson fótboltaþjálfari. KR tapaði niður tveggja marka forskoti gegn nýliðunum, umdeild vítaspyrna réði úrslitum á Akranesi, stór dómaramistök á Hlíðarenda og sex stiga fallbaráttuslagur í Árbæ.

May 27, 2024

Útvarpsþátturinn - Þarfir toppliðanna, svekktir eftir landsliðsvalið og enskt uppgjör

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur í hlaðvarpsformi þessa vikuna. Elvar Geir, Valur Gunnars og Guðmundur Aðalsteinn í hljóðveri. Í fyrri hluta þáttarins er fjallað um íslenska boltann. Þarfagreining fyrir toppliðin í Bestu deildinni, landsliðsval Age Hareide, Lengjudeildina og fleira. Í seinni hlutanum er uppgjör Kristjáns Atla á tímabilinu í enska boltanum.

May 24, 2024

Innkastið - Aftur verður FH fyrir barðinu á dómaramistökum

Innkastið eftir 7. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Skagamaðurinn Sverrir Mar Smárason skoða alla leikina. Blikar elta Víkinga, Jónatan Ingi hetja Vals í Kórnum, vondur vítadómur í Krikanum og KA vann botnslaginn. Lengjudeildarhornið er á sínum stað.

May 21, 2024

Hugarburðarbolti Þáttur 17 Uppgjör tímabilsins

Man City vann deildina fjórða tímabilið í röð. Einstakt afrek. Pep er klárlega besti knattspyrnustjóri sögunar. Arsenal sitja eftir í öðru sæti með 89 stig. Chelsea fer inn í Evrópudeildina. Aston Villa í fyrsta sinn í meistaradeildinni á næsta tímabili. Rauða spjaldið og kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað. Tímabilið gert upp.

May 21, 2024

Enski boltinn - Þegar partýið er búið

Enska úrvalsdeildin kláraðist núna um helgina en Manchester City varð Englandsmeistari fjórða árið í röð. Jurgen Klopp stýrði sínum síðasta leik hjá Liverpool og Manchester United tryggði sér áttunda sætið. Magnús Haukur Harðarson og Jón Kaldal mættu í heimsókn í dag og fóru yfir lokaumferðina, sem og tímabilið í heild sinni. Þeir völdu lið ársins, leikmann ársins og stjóra ársins. Og líka mestu vonbrigðin. Núna er partýið búið en það er stutt í það næsta.

May 21, 2024

Útvarpsþátturinn - Hvítasunnuhringborðið

Elvar Geir stýrir hringborðsumræðum í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Við hringborðið er farið yfir fréttir vikunnar en meðal annarra umræðuefna er: Þeir bestu og mestu vonbrigðin í Bestu deildinni, leikir vikunnar í Mjólkurbikarnum, komandi umferð í Bestu, Lengjudeildin og lokaumferðin í ensku úrvalsdeildinni. Með Elvari við hringborðið eru Baldvin Borgarsson þjálfari og sérfræðingur og Sæbjörn Steinke og Sverrir Örn Einarsson fréttamenn Fótbolta.net.

May 18, 2024

Hugarburðarbolti þáttur 16

Úrslitin um titilinn ráðast á sunnudag. Man City er með þetta í sínum höndum. Tottenham gáfu City hörku leik í vikunni en nýttu ekki færin. Chelsea mögulega að ná inn í Evrópudeildina með mjög góðum endaspretti. Foden eða Rice leikmaður tímabilsins? Rauða spjaldið og kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað.

May 17, 2024

Enski boltinn - Viltu að liðið þitt tapi?

Það er mjög svo spennandi lokaumferð framundan í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag og svo gríðarlega áhugaverður leikur í kvöld sem gæti haft mikil áhrif á það hvaða lið verður meistari. Ingimar Helgi Finnsson, stuðningsmaður Tottenham, og Magnús Valur Böðvarsson, stuðningsmaður Crystal Palace, mættu í heimsókn í dag til að taka stöðuna. Hvort verður Arsenal eða Manchester City enskur meistari?

May 14, 2024

Innkastið - Hrikalegir dagar fyrir Gregg Ryder

Innkastið eftir 6. umferð Bestu deildarinnar. Það er sportbarinn Ölver sem býður upp á Innkastið. Elvar Geir, Valur Gunnars og Sæbjörn Steinke skoða alla leiki umferðarinnar. Víkingur vann toppslaginn, pressan eykst á Gregg Ryder, HK í fantastuði, gæði Breiðabliks gerðu gæfumun, Valur vann KA og ÍA vann Vestra. Dómararnir áttu góða umferð!

May 12, 2024

Útvarpsþátturinn - Böddi gestur og vangaveltur um Óskar Hrafn

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 11. maí. Umsjón Elvar Geir og Tómas Þór. Böðvar Böðvarsson leikmaður FH er gestur en hann kom aftur heim fyrir tímabilið eftir atvinnumennsku. FH-ingar hafa farið vel af stað á tímabilinu og leika toppslag gegn Víkingum. Rætt er um stórtíðindin í gær en Óskar Hrafn Þorvaldsson sagði óvænt upp hjá Haugesund. Þruma úr heiðskíru. Í hvaða starf fer hann næst? Í þættinum er 1-1 jafntefli Stjörnunnar og Fram gert upp ásamt því að aðrir leikir umferðarinnar í ...

May 11, 2024

Hugarburðarbolti Þáttur 15

Haaland í stuði á Etihad. 6 mörk á Anfield. Arsenal heldur titildraumunum lifandi. Crystal Palace burstuðu Man Utd. Lánleysi Burnley heldur áfram. Rauða spjaldið og kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað.

May 07, 2024

Enski boltinn - Alveg búinn á því og hvar ræðst titilbaráttan?

Áhugaverð helgi að baki í ensku úrvalsdeildinni, en umferðin kláraðist með ótrúlegum leik Crystal Palace og Manchester United í gær. United fékk þar vænan skell. Þeir Chelsea félagar Jón Aðalsteinn Kristjánsson og Stefán Marteinn Ólafsson mættu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og fóru yfir umferðina. Spennan er heldur betur farin að magnast. Hvaða lið vinnur deildina og hvaða lið fer eiginlega í Sambandsdeildina?

May 07, 2024

Innkastið - Gylfasýning og óvæntustu úrslit sumarsins

Innkastið eftir 5. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars. Gylfi var magnaður í sigri Vals í stórleik umferðarinnar, HK með stórkostlega frammistöðu og vann Víking, dómararnir byrja mótið illa og það er óvæntur toppslagur á dagskrá í næstu umferð.

May 06, 2024

Útvarpsþátturinn - Besta, Lengjan og Arne Slot skýrsla

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 4. maí. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Farið yfir komandi umferð í Bestu deildinni og skoðað hvernig Lengjudeildin fer af stað. Sölvi Haraldsson ÍR-ingur er á línunni eftir óvæntan sigur Breiðhyltinga í Keflavík. Kristján Atli Ragnarsson, sérfræðingur um Liverpool, kemur og fer yfir hverju megi búast frá Arne Slot sem tekur að öllum líkindum við stjórnartaumunum á Anfield í sumar. Einnig er rætt um titilbaráttuna sem er í fullum gangi. Orri á X-inu er...

May 04, 2024

Hugarburðarbolti Þáttur 14

King Kai Havertz var kóngurinn í Norður Lundúna slagnum á meðan Michael Oliver var hirðfíflið. Man City marði þrjú sterk stig í Nottingham. Liverpool stimplaði sig alveg út úr baráttunni um titilinn. Burnley er enn á lífi í botnbaráttunni. Rauða spjaldið og kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað.

May 03, 2024

Innkastið - Víkingar fá hjálp sem þeir þurfa ekki

Innkastið gerir upp 4. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunn og Sæbjörn Steinke. Víkingar fá óþarfa hjálp frá dómurunum, Valsmenn eru oftar ólíkir sjálfum sér en líkir, Blikar hættu að vera andlausir og leikmaður sem fæddist ári eftir að Fernando Torres tryggði Spáni Evrópumeistaratitilinn skoraði fyrir Fram. Hvað eru eiginlega komin mörg gul spjöld í þessari deild?

Apr 29, 2024

Enski boltinn - Ef ég tala, þá er ég í miklum vandræðum

Það var nóg af atriðum til að ræða eftir helgina í ensku úrvalsdeildinni. Það fer að styttast í annan endann á þessu stórskemmtilega tímabili. El Jóhann mætti í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag til að fara yfir helgina með þeim Gumma og Steinke. El Jóhann hefur að sjálfsögðu enn bullandi trú á því að Arsenal geti tekið Englandsmeistaratitilinn í næsta mánuði.

Apr 29, 2024

Útvarpsþátturinn - Lengjuspáin, úrvalslið og bikarstuð

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 27. apríl. Umsjón: Elvar Geir og Benedikt Bóas. Lengjudeildin er aðalmálið í þættinum. Baldvin Már Borgarsson, sérfræðingur velur úrvalslið deildarinnar og afhjúpað er hvernig spá þjálfara og fyrirliða lítur út. Einnig verður farið yfir bikarleikina, tíðindi gluggadagsins og hitað upp fyrir fjórðu umferð Bestu deildarinnar.

Apr 27, 2024

Hugarburðarbolti þáttur 13

Monster umferð hjá mörgum fantasy spilurum. Man City í bílstjórasætinu. Liverpool missteig sig illa. Arsenal heldur áfram að halda markinu sínu hreinu. Sá stóri í Kristals höllinni heitir Jean Phillip Mateta. Rauða spjaldið og kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað.

Apr 26, 2024

Enski boltinn - Heimskur og heimskari

Viðburðarrík helgi að baki í enska boltanum þar sem bæði var spilað í ensku úrvalsdeildinni og þeirri elstu og virtustu, ensku bikarkeppninni. Manchester United var stálheppið gegn Coventry, Guardiola brjálaður eftir sigurleik og Arsenal og Liverpool komust aftur á sigurbraut. Gummi og Steinke eru á sínum stað en Emil Ásmundsson, leikmaður Fylkis, er sérstakur gestur í þættinum.

Apr 22, 2024

Innkastið - Flugbraut fyrir meistarana og norðlensk neikvæðni

3. umferð Bestu deildarinnar tekin fyrir í Innkastinu. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Valur Gunnars. Íslandsmeistarar Víkings eru eina liðið með fullt hús stiga og miðað við næstu leiki er möguleiki á að þeir stingi aftur af! Blikar órafjarri Víkingum, Skagamenn elska að vera einum fleiri, Djúpmenn unnu fyrir norðan, Rúnar Kristins skákaði KR, Björn Daníel með Bergkamp takta og pirringur í þjálfara Vals.

Apr 21, 2024

Niðurtalningin - Endar titillinn enn eitt árið á Hlíðarenda?

Besta deild kvenna hefst í dag og það er mikil spenna fyrir deildinni sem er framundan. Því er spáð að Valur muni verja Íslandsmeistaratitil sinn í sumar. Við höfum hitað upp fyrir deildina með því að spjalla við fulltrúa liðanna tíu og taka á þeim púlsinn fyrir komandi tímabil. Adda Baldursdóttir, aðstoðarþjálfari Vals, og Fanndís Friðriksdóttir, leikmaður liðsins, mættu í heimsókn og fóru yfir stemninguna á Hlíðarenda.

Apr 21, 2024

Niðurtalningin - Silfur er alls ekki nóg í Kópavoginum

Besta deild kvenna hefst á morgun og það er mikil spenna fyrir deildinni sem er framundan. Breiðabliki er spáð öðru sæti í spá Fótbolta.net fyrir mótið. Við hitum upp fyrir deildina með því að spjalla við fulltrúa liðanna tíu og taka á þeim púlsinn fyrir komandi tímabil. Ásta Eir Árnadóttir, fyrirliði Blika, og Birta Georgsdóttir, framherji liðsins, mættu í heimsókn og fóru yfir stöðuna í græna hluta Kópavogs.

Apr 20, 2024

Niðurtalningin - Dreymir um að endurtaka leikinn frá 2012

Besta deild kvenna hefst á morgun og það er mikil spenna fyrir deildinni sem er framundan. Þór/KA er spáð þriðja sæti í spá Fótbolta.net fyrir mótið. Við hitum upp fyrir deildina með því að spjalla við fulltrúa liðanna tíu og taka á þeim púlsinn fyrir komandi tímabil. Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þór/KA, og Sandra María Jessen, lykilmaður liðsins, mættu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net þegar kynningarfundur fyrir Bestu deildina fór fram í vikunni. Þau fóru yfir stöðuna á Akureyri fyr...

Apr 20, 2024

Útvarpsþátturinn - Brottvísun sem eyðilagði leikinn

Besta deildin er aðalmálið í útvarpsþættinum Fótbolti.net þessa vikuna. Elvar Geir og Tómas Þór eru umsjónarmenn þáttarins. Sérstakur gestur og sérfræðingur í þættinum er Haraldur Árni Hróðmarsson, fyrrum aðstoðarþjálfari ÍA og Vals. Leikur Stjörnunnar og Vals er gerður upp og hitað upp fyrir komandi leiki, þar á meðal stórleik Víkings og Breiðabliks. Í lok þáttar er farið í Evrópuboltann og enska boltann.

Apr 20, 2024
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android