Í gær voru átta-liða úrslitin í Fótbolti.net bikarnum, þeirri yngstu og sprækustu, spiluð í heild sinni og er núna ljóst hvaða lið spila í undanúrslitum. Nú þarf bara að vinna einn leik í viðbót til að komast á Laugardalsvöll. Liðin sem eru komin í undanúrslit: Selfoss (2. deild) KFA (2. deild) Árbær (3. deild) Tindastóll (4. deild) Það verður dregið í undanúrslitin á morgun en Baldvin Már Borgarsson, þjálfari Árbæjar, og Sölvi Haraldsson, fréttamaður Fótbolta.net, mættu í stúdíó í dag og fóru a...
Aug 07, 2024
Hugarburðarbolti fór aftur á stað í kvöld með upphitun fyrir komandi tímabil. Farið var yfir breytingar á reglum í fantasy leiknum og breytingar á þættinum þar sem nýr sérfræðingur gekk til liðs við félaganna. Sérfræðingarnir fóru yfir nokkur ráð fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna. Palmer fékk mestu hækkun sem leikmaður hefur fengið á milli tímabila og er fyrsta pikkið hans Vignirs. Vignir hlær að því að Gunni og Dóri séu ekki með neina Arsenal menn í sínum liðum eins og er og þeir reyna að ...
Aug 06, 2024
Þetta var ótrúleg fréttavika í íslenska fótboltanum. Elvar Geir og Valur Gunnars fara yfir allt það helsta í útvarpsþættinum Fótbolti.net. Risafréttir í þjálfaramálunum á Íslandi, Evrópuleikir, heimkoma Arons Einars, Besta deildin, Lengjudeildin og fleira. Þátturinn er auðvitað í verslunarmannahelgargírnum og heyrt er í Tom í Herjólfi, Steinke á Akureyri, Páli Sævari um KR og Kela í París.
Aug 03, 2024
Manchester United endaði síðasta tímabil vel og nokkur ánægja er með félagaskiptagluggann til þessa og frekari liðsstyrkur er orðaður við félagið. Þeir Aksentije Milisic og Egill Sigfússon eru djúpir í United fræðunum og fóru yfir hópinn, sumarið og spáðu í spilin með Sæbirni Steinke. Hvar þarf að styrkja hópinn frekar? Hverjir geta komið inn? Hverjir eru á förum? Ungir leikmenn sem gætu komið inn í hlutverk og fleira skemmtilegt til umræðu. Þá er einnig horft í hin toppliðin og félagaskiptaglug...
Aug 03, 2024
Það var tilkynnt seint í gærkvöldi að Arnar Grétarsson hefði verið látinn taka pokann sinn hjá Val. Srdjan Tufegdzic, alltaf kallaður Túfa, tekur við og hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið. Haukur Páll Sigurðsson verður aðstoðarmaður Túfa. Tíðindin komu nokkrum klukkutímum eftir að Valur hafði tapað gegn St. Mirren frá Skotlandi í forkeppni Sambandsdeildarinnar. Túfa hefur síðustu árin þjálfað Öster og Skövde í B-deild Svíþjóðar. Áður en hann hélt út, þá var hann aðstoðarmaður He...
Aug 02, 2024
Innkast vikunnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Sverrir Örn. VÖK opnaði markareikninginn, KR bjargaði stigi, Framarar komu úr fríi og skelltu Valsmönnum, slæmt tap ÍA og FH heldur áfram að gera góða hluti. Lengjudeildarhornið, Evrópa og fleira.
Jul 29, 2024
Hringborð í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 laugardaginn 27. júlí. Elvar Geir skoðar helstu fótboltafréttir vikunnar með sérfræðingunum Baldvini Borgarssyni þjálfara Árbæjar og Sölva Haraldsson fréttamanni Fótbolta.net. Sæbjörn Steinke er á línunni frá Akureyri. Misjafnt gengi íslensku liðanna í Evrópu, gluggaslúður, Óskarlistinn, Besta deildin, Lengjudeildin og fleira. Í seinni hlutanum er rætt um 2. deild karla og hverjir hafa verið bestu leikmenn deildarinnar í sumar? Brynjar Kristmundsso...
Jul 27, 2024
Sumarglugginn er galopinn í enska boltanum og nokkuð áhugavert í gangi þó þetta hafi nú verið frekar rólegt lengi vel. Man Utd farið að haga sér eins og fótboltafélag, læti og nýr stjóri hjá Chelsea, Arne Slot tekinn við af kóngnum hjá Liverpool, City ætlar að vinna fimmta árið í röð, Arsenal sækir hinn sjóðheita Calafiori, Tottenham fær tvo bráðefnilega og Aston Villa að gera mjög skemmtilega hluti. Guðmundur Aðalsteinn fékk þá Harald Örn Haraldsson og Sölva Haraldsson í heimsókn í dag til að t...
Jul 26, 2024
Innkastið eftir 15. umferð Bestu deildarinnar (sem er þó ekki alveg búin vegna kerfisvillunnar). Fjör í Kópavoginum þar sem Breiðablik vann fallbaráttulið KR og Víkingur tapaði gegn funheitum KA-mönnum. Lengjudeildarhornið en það er líka farið niður í 2. og 3. deild. Svo er það blessuð Sambandsdeildin. Elvar Geir, Guðmundur Aðalsteinn og Baldvin Borgars.
Jul 22, 2024
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 20. júlí. Elvar Geir og Tómas Þór skoða helstu fótboltafréttir vikunnar. Íslensku liðin í Evrópu, Besta deildin, félagaskipti og Lengjudeildin. Börkur formaður Vals er í beinni frá Albaníu, Tom segir ferðasögu frá Dublin og Jökull þjálfari Stjörnunnar er á línunni. Þá er einnig farið yfir erlendar fréttir.
Jul 20, 2024
Íslenska kvennalandsliðið er komið á EM eftir frábæran landsliðsglugga. Stelpurnar unnu magnaðan 3-0 sigur gegn Þýskalandi á Laugardalsvelli og unnu í kjölfarið 0-1 sigur gegn Póllandi. Þær lentu í öðru sæti sínum og fara beint á EM. Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Fram, og Magnús Haukur Harðarson, þjálfari Fjölnis, komu við á skrifstofu Fótbolta.net í dag og ræddu um stöðu kvennalandsliðsins og Evrópumótið sem er framundan.
Jul 18, 2024
Innkast vikunnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og með þeim er Magnús Þórir Matthíasson. Rætt er um dramatíkina í Dublin þar sem Shamrock Rovers vann Víking í forkeppni Meistaradeildarinnar. Frammistaða Víkings í einvíginu voru gríðarleg vonbrigði. Farið er yfir síðustu leiki Bestu deildarinnar og einnig er rætt um Evrópuleikina framundan og Lengjudeildina.
Jul 16, 2024
Leiðin á Laugardalsvöll heldur áfram á miðvikudaginn þegar 16-liða úrslitin í Fótbolta.net bikarnum verða leikin í heild sinni. Það eru nokkrir mjög svo áhugaverðir leikir framundan en við hitum upp í dag með því að spjalla við Baldvin Má Borgarsson, þjálfara Árbæjar. Hans menn hafa verið að gera flotta hluti í 3. deildinni en þeir mæta Víkingi Ólafsvík, sem er í þriðja sæti í 2. deild, á miðvikudag. Svo hringjum við til Húsavíkur þar sem markamaskínan Jakob Gunnar Sigurðsson er á línunni. Jakob...
Jul 15, 2024
Spánverjar eru Evrópumeistarar eftir skemmtilegan úrslitaleik gegn Englandi. Fótboltinn kom ekki heim að þessu sinni. En það má klárlega segja að fótboltinn hafi sigrað því besta lið mótsins vann. Axel Óskar Andrésson og Eyþór Aron Wöhler, leikmenn KR, komu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net til að ræða úrslitaleikinn og gera upp mótið á léttum nótum.
Jul 15, 2024
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 13. júlí. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Gestur þáttarins er Brynjar Gestsson fótboltaþjálfari og er víða komið við í spjalli við hann. Farið er yfir fótboltafréttir vikunnar, Evrópuleiki íslensku liðanna, Bestu deildina og fleira. Þá koma formenn frá FIFPro alþjóðlegu leikmannasamtökunum í spjall seinni hluta þáttarins.
Jul 13, 2024
Úrslitaleikurinn á Evrópumótinu fer fram á sunnudaaginn en undanúrslitin kláruðust í gær. Það eru England og Spánn sem munu mætast í úrslitaleiknum. Guðmundur Aðalsteinn, Sæbjörn Steinke og Valur Gunnarsson fóru yfir undanúrslitin og úrslitaleikinn í EM hringborðinu í dag. Lionel Messi baðaði nýju stórstjörnu heimsfótboltans, Kylian Mbappe átti hauskúpumót og Southgate fer aftur í úrslitaleikinn með Englandi en nær hann að taka gullið núna? Kobbie Mainoo er með eitursvalt höfuð og Ollie Watkins ...
Jul 11, 2024
Komið er að undanúrslitunum á EM. Fyrri viðureignin fer fram í kvöld, þriðjudagskvöld, þegar Spánn mætir Frakklandi og annað kvöld mætast England og Holland. Til þess að gera upp mótið til þessa, og aðallega 8-liða úrslitin, komu þeir Birkir Björnsson og El Jóhann í stúdíó Fótbolta.net og ræddu við Sæbjörn Steinke. Hvernig gengu taktísku breytingar Southgate upp? Toni Kroos kvaddi og Ronaldo lék sinn síðasta leik á EM. Víti eða ekki víti á Cucurella og einn skemmtilegasti leikur mótsins þegar Ho...
Jul 09, 2024
Innkastið eftir 13. umferð Bestu deildarinnar. Í seinni hluta þáttarins er uppgjör á umferðum 1-11 í Lengjudeildinni; úrvalslið og ýmis verðlaun. Elvar Geir, Valur Gunnars og Baldvin Borgars fara yfir leikina og helstu fréttir úr íslenska boltanum.
Jul 08, 2024
Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er leikmaður FH og Duke Blue Devils Úlfur Ágúst Björnsson. Við ræddum við hann um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.
Jul 08, 2024
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 6. júlí. Umsjón: Elvar Geir og Benedikt Bóas. Rætt er um EM og íslenska boltann en gestur er Kjartan Henry Finnbogason aðstoðarþjálfari FH og EM sérfræðingur. Einnig er Ögmundur Kristinsson nýr markvörður Vals á línunni frá Aþenu og Anton Freyr fréttamaður Fótbolta.net er á írskum dögum á Akranesi.
Jul 06, 2024
Í gær kláruðust 16-liða úrslitin á Evrópumótinu og er það ljóst núna hvernig átta-liða úrslitin verða. Það var margt áhugavert sem gerðist í 16-liða úrslitunum: Bellingham var ótrúlega lélegur en var samt hetja leiðinlegra Englendinga, Ronaldo grét þegar mikið var eftir, Þjóðverjar fóru áfram eftir VAR-leikinn mikla, Spánverjar eru ofboðslega skemmtilegir og Frakkar eru þéttir til baka. Systurnar Ásta Eir og Kristín Dís Árnadætur komu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og fóru yfir 16-li...
Jul 03, 2024
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 29. júní. Innkastið í beinni útsendingu þar sem Elvar Geir, Benedikt Bóas og Baldvin Borgars skoða 12. umferð Bestu deildarinnar, helstu tíðindi og fréttir og Lengjudeildina. Góð umferð að baki fyrir Víking. Svo er hitað upp fyrir 16-liða úrslit EM. Örvar Arnarsson fréttaritari Fótbolti.net í Austurríki er á línunni.
Jun 29, 2024
Riðlakeppninni á Evrópumótinu í Þýskalandi er lokið og framundan eru 16-liða úrslitin. Almarr Ormarsson og Adda Baldursdóttir, sem eru bæði að vinna í kringum mótið fyrir RÚV, komu í heimsókn í dag og ræddu um riðlakeppnina og 16-liða úrslitin sem eru framundan. Það verður áhugavert að sjá hvernig mótið þróast en 16-liða úrslitin hefjast á laugardaginn.
Jun 27, 2024
Elvar Geir, Valur Gunnars og Guðmundur Aðalsteinn gera upp 11. umferð Bestu deildarinnar. Blikum tókst ekki að fara á toppinn, KR mætti með varnarleikinn að vopni og náði í stig gegn Víkingi og markvörður Vestra var í vandræðum gegn Val. Í þættinum er opinberað val á liði umferða 1-11, besta leikmanninum, besta þjálfaranum, besta unga leikmanninum og besta dómaranum.
Jun 24, 2024
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 22. júní. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Freyr Alexandersson þjálfari Kortrijk er gestur þáttarins. Víða er komið við í spjalli við Frey en hann náði á magnaðan hátt að halda liðinu uppi í belgísku úrvalsdeildinni þegar nær allir voru búnir að útiloka það. Hvernig fór hann að því? Einnig er rætt um landsliðið, Bestu deildina, EM og fleira.
Jun 22, 2024
Þeir Lárus Orri Sigurðsson, fyrrum atvinnu- og landsliðsmaður, og Óðinn Svan Óðinsson, fréttamaður RÚV, eru gestir í fyrsta uppgjörsþættinum á þessu Evrópumóti. Sæbjörn Steinke stýrir þættinum og fer yfir fyrstu vikuna á EM með þeim Lárusi og Óðni. Þjóðverjar hafa farið vel af stað, eitthvað slen er yfir Englendingum og Belgar í brasi. Farið er yfir það helst á mótinu til þessa og spáð í spilin. Þá tók Lárus Orri góða ræðu um VAR en hann vill fá myndbandstæknina til Íslands sem allra fyrst. Þátt...
Jun 20, 2024
Innkastið eftir 10. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og með þeim er íþróttafréttamaðurinn og markvarðasérfræðingurinn Runólfur Trausti. Runólfur er stuðningsmaður KR en í morgun var staðfest að Gregg Ryder hefði verið rekinn. Það er fyrsta mál á dagskrá þáttarins. Þá er farið yfir alla leiki umferðarinnar, þar á meðal stórskemmtilegan toppslag Vals og Víkings. Deildin er galopin á toppi og botni.
Jun 20, 2024
Hringborð í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 laugardaginn 15. júní. Elvar Geir skoðar helstu fótboltafréttir vikunnar með sérfræðingunum Baldvini Borgarssyni þjálfara Árbæjar og Sölva Haraldsson fréttamanni Fótbolta.net. Rætt er um bestu og verstu kaupin í Bestu deildinni, besta leikmann Lengjudeildarinnar, leiki vikunnar í bikarnum, landsliðið og fleira. Í seinni hlutanum er sjónum síðan beint að EM. Björn Már Ólafsson sérfræðingur í ítalska boltanum rýnir í liðið sem ríkjandi Evrópumeistara...
Jun 15, 2024
Önnur útgáfan af Fótbolti.net bikarnum hefst á sjálfan þjóðhátíðardaginn á mánudaginn þegar KFA og ÍH mætast. Svo eru hinir leikirnir spilaðir á miðvikudaginn. Í kringum keppnina verða hlaðvarpsþættir hér á síðunni og er þetta fyrsti þátturinn í sumar. Arnar Laufdal og Eysteinn Þorri, leikmenn Augnabliks, mættu í spjall um ástríðuna í Fífunni og fóru yfir leikina í 32-liða úrslitunum. Þá var Bjarni Jóhannsson, þjálfari Selfoss, á línunni undir lok þáttarins en hann er virkilega spenntur að taka ...
Jun 14, 2024
Evrópumótið í fótbolta hefst núna á föstudaginn með opnunarleik Þýskalands og Skotlands. Það er afar spennandi mót framundan og mörg lið sigurstrangleg. Guðmundur Aðalsteinn fékk nýverið Gunnar Birgisson og Jóhann Pál Ástvaldsson, íþróttafréttamenn á RÚV, í heimsókn til að hita upp fyrir mótið. Farið var í gegnum alla riðlana og liðin skoðuð. Skemmtileg yfirferð svona stuttu fyrir mót.
Jun 10, 2024