Það eru tíu dagar núna í það að Besta deildin fari af stað! Í dag tökum við fyrir Vestra í Niðurtalningunni hér á Fótbolta.net. Fréttamaðurinn Aron Guðmundsson og Sigurgeir Sveinn Gíslason, goðsögn hjá félaginu, mættu til að fara yfir málin. Þá er Benedikt Warén á línunni í seinni hlutanum en hann skrifaði undir þriggja ára samning við Vestra fyrir síðasta tímabil og hjálpaði liðinu að komast upp.
Mar 27, 2024
Lokaþáttur Aldrei heim, markmiðið að komast á EM náðist því miður ekki. Daginn eftir tapið gegn Úkraínu fara Elvar Geir og Sæbjörn Steinke yfir leikinn og niðurstöðuna. Farið er yfir einkunnir íslenskra leikmanna, helstu umræðupunkta og framhaldið hjá liðinu. Við þökkum fyrir hlustunina á hlaðvarpsþætti okkar frá Ungverjalandi og Póllandi. Áfram Ísland!
Mar 27, 2024
Það eru ellefu dagar í það að Besta deildin fari af stað en í dag tökum við Fylki fyrir í Niðurtalningunni hér á Fótbolta.net. Kristján Gylfi Guðmundsson og Þorsteinn Lár Ragnarsson, stuðningsmenn Fylkis, mættu í dag í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net og fóru um víðan völl. Þá er Ragnar Bragi Sveinsson, fyrirliði Fylkis, á línunni í seinni hluta þáttarins.
Mar 26, 2024
Það er úrslitastund, leikdagur. Úkraína og Ísland mætast í Wroclaw í kvöld og stemningin í borginni eykst. Elvar Geir og Sæbjörn Steinke ræða við góða menn á leikdegi. Stefán Árni Pálsson íþróttafréttamaður á Stöð 2 Sport og Kjartan Henry Finnbogason sérfræðingur kíktu á hótelbarinn. Rætt er um stemninguna og spennuna í aðraganda leiksins, líklegt byrjunarlið, kynni Kjartans af landsliðsþjálfara Úkraínu og geðþekkan og gjafmildan Úkraínumann.
Mar 26, 2024
Þeir Elvar Geir Magnússon og Sæbjörn Steinke ræddu um atburði dagsins í hlaðvarpsþættinum Aldrei heim. Á morgun fer fram úrslitaleikur milli Íslands og Úkraínu um sæti á EM. Í dag voru fréttamannafundir liðanna og lokaæfingarnar fyrir leikinn. Farið er yfir líklegt byrjunarlið Íslands og það helsta sem kom fram á fréttamannafundunum, Í þættinum er rætt við Þorvald Örlygsson formann KSÍ um landsliðið og fyrstu vikurnar í starfi formanns.
Mar 25, 2024
Það er heldur betur farið að styttast í Bestu deildina en í dag eru aðeins tólf dagar í fyrstu leiki mótsins. Við á Fótbolta.net byrjuðum með spá okkar fyrir mótið í dag en þar er HK á botninum. Meðfram spánni munum við birta hlaðvörp þar sem rætt er við stuðningsmenn liða og leikmann úr hverju liði. Fyrir hönd HK mættu fjölmiðlamennirnir Ingvi Þór Sæmundsson og Andri Már Eggertsson. Svo var hringt í Leif Andra Leifsson, fyrirliða HK, og staðan tekin fyrir tímabilið sem framundan er.
Mar 25, 2024
Íslenska landsliðið flaug í dag yfir til Wroclaw í Póllandi en þar verður leikurinn gegn Úkraínu á þriðjudag, úrslitaleikurinn um sæti á Evrópumótinu í Þýskalandi. Elvar Geir og Sæbjörn Steinke eru einnig komnir yfir til Póllands og ræddu helstu umræðumálin í aðdraganda leiksins. Ferðalagið til Póllands, íslensku stuðningsmennirnir, styrkleikar úkraínska liðsins, tvífari Trossard, spurningamerki á miðsvæði Íslands, mögulegt byrjunarlið og fleira.
Mar 24, 2024
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 er á hlaðvarpsformi þessa vikuna og var tekinn upp í dag, föstudaginn 22. mars. Tómas Þór og Benedikt Bóas gera upp sigur Íslands á Ísrael í gær. Jóhannes Karl Guðjónsson aðstoðarþjálfari Íslands er á línunni og fer yfir leikinn með þeim. Þá er hringt í Bjarka Má Elísson landsliðsmann Íslands í handbolta sem var á leiknum í gær ásamt heimsþekktum handboltastjörnum. Elvar Geir Magnússon ritstjóri Fótbolta.net var á leiknum og hann var einnig á línunni í símatí...
Mar 22, 2024
Aldrei heim! Ísland gerði sér lítið fyrir og vann 4-1 sigur gegn Ísrael í Búdapest. Eftir ótrúlegan rússíbanaleik er ljóst að það bíður úrslitaleikur gegn Úkraínu sem fram fer í Póllandi á þriðjudaginn. Úrslitaleikur um sæti á EM í Þýskalandi. Eftir langan vinnudag ræddu Elvar Geir og Sæbjörn Steinke við Helga Sigurðsson fréttamann 433.is um þetta skemmtilega kvöld þar sem Albert Guðmundsson stal fyrirsögnunum en mætti ekki í viðtöl.
Mar 22, 2024
Það er leikdagur í Búdapest. Ísland og Ísrael mætast í kvöld. Sigurliðið í leiknum mætir Úkraínu eða Bosníu í úrslitaleik um sæti á EM. Elvar Geir og Sæbjörn Steinke spjalla um komandi leik við Stefán Árna Pálsson íþróttafréttamann á Stöð 2 Sport og Vísi.
Mar 21, 2024
Viktor Unnar Illugason var á sínum tíma einn efnilegasti fótboltamaður Ísland en í dag er einn efnilegasti þjálfari landsins. Viktor hefur starfað sem yngri flokka þjálfari hjá Breiðabliki undanfarin ár en var í vetur ráðinn til Vals. Þar stafar hann sem þjálfari 2. flokks og 4. flokks, en er einnig með puttana í meistaraflokknum. Viktor Unnar settist niður með Baldvini Má Borgarssyni, fréttamanni Fótbolta.net, eftir leik Vals gegn ÍA í Lengjubikarnum í gær þar sem hann spjallaði um leikinn og s...
Mar 21, 2024
Aron Jóhannsson, leikmaður Vals, settist niður með Baldvini Má Borgarssyni, fréttamanni Fótbolta.net, eftir tap Valsmanna gegn ÍA í Lengjubikarnum í gær. Í spjallinu fór Aron aðeins yfir leikinn, komu Gylfa Þórs Sigurðssonar til félagsins, nýjan samning sinn á Hlíðarenda og Cole Campbell sem ákvað nýverið að spila fyrir bandaríska landsliðið.
Mar 21, 2024
Fantasy spilarar slógu öll met um helgina. Fulham unnu Lundúnaslaginn. Burnley náðu í kærkomin og gríðarlega mikilvæg 3 stig. Man Utd unnu Liverpool eftir framlengingu í FA bikarnum í rosalegum leik. Bestu 3 í umferðinni. Rauða spjaldið og kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað.
Mar 19, 2024
Elvar Geir og Sæbjörn Steinke eru staddir í Búdapest og fá Helga Sigurðsson fréttamann 433.is í spjall þar sem komandi landsleikur er skoðaður. Ísrael - Ísland verður í borginni á fimmtudagskvöld. Sigurliðið í leiknum mætir Úkraínu eða Bosníu í úrslitaleik um sæti á EM. Rætt er um undirbúning íslenska liðsins, æfingarnar sem búnar eru, tignarlegt hótel liðsins, Albert Guðmundsson og ýmislegt fleira.
Mar 19, 2024
Sæbjörn Steinke spjallar við Hákon Rafn Valdimarsson landsliðsmarkvörð á hóteli íslenska liðsins í Búdapest. Ísrael - Ísland verður í borginni á fimmtudagskvöld. Sigurliðið í leiknum mætir Úkraínu eða Bosníu í úrslitaleik um sæti á EM. Hákon ræðir um umspilið og einnig um Brentford en hann var keyptur til enska úrvalsdeildarfélagsins í janúarglugganum.
Mar 19, 2024
Einn besti leikur tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni var í gær þegar erkifjendurnir Manchester United og Liverpool áttust við í FA-bikarnum. Leikurinn var magnaður og má svo sannarlega tala um rússíbanareið. Jóhann Páll Ástvaldsson og Orri Freyr Rúnarsson mættu í Thule-stúdíóið í dag og fóru yfir stórleikinn, sem og aðra leiki helgarinnar.
Mar 18, 2024
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 16. mars. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir allt það helsta sem er í gangi í boltanum. Sæbjörn Steinke fréttamaður Fotbolti.net er með þeim í þættinum. Landsliðsvalið er krufið og sigurmöguleikar okkar í umspilsleiknum gegn Ísrael eru skoðaðir. Einnig er rætt um komu Gylfa í Bestu deildina og aðrar fréttir íslenska boltans skoðaðar. Að auki er horft út í heim, Meistaradeildin og enski boltann. Þá er Logi Bergmann á línunni og segir frá nýrri heim...
Mar 16, 2024
Son sá um Villa á Villa park. Tvær gullsendingar bakvarðarins Ben skiluðu þremur stigum. Man Utd með sigur og jafntefli í stórleiknum á Anfield. Semenyo frábær á Vitality vellinum. Hver fær rauða spjaldið? Kóngurinn og Hirðfíflið á sínum stað.
Mar 14, 2024
Gylfi Þór Sigurðsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Val og ætlar sér að verða Íslandsmeistari með liðinu. Elvar Geir og Sæbjörn Steinke ræða þessar fréttir í sérstökum hlaðvarpsþætti sem tekinn var upp í ljósi þessara risatíðinda. Þá ræðir Sæbjörn við Börk Edvardsson formann Vals um komu Gylfa.
Mar 14, 2024
Það var svo sannarlega um nóg að ræða í Enski boltinn hlaðvarpinu eftir stórleik Liverpool og Manchester City á Anfield í gær. Leikurinn endaði með jafntefli og titilbaráttan er gífurlega spennandi. Tómas Þór Þórðarson, ritstjóri enska boltans á Símanum, er gestur þáttarins í dag. Og þá eru stór tíðindi því Sæbjörn Þór Steinke er mættur aftur eftir gott frí í Víetnam.
Mar 11, 2024
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 9. mars. Umsjón: Elvar Geir og Benedikt Bóas. Í fyrri hluta þáttarins: Fótboltafréttir vikunnar og Baldvin Borgars mætir með endurnýjaða ótímabæra Lengjudeildarspá. Í seinni hlutanum: Halldór Árnason þjálfari Breiðabliks er gestur þáttarins og Kristján Atli hitar upp fyrir stórleikinn á Anfield.
Mar 09, 2024
Phil Foden gulls ígildi á Etihad. Það er einn krónprins í Birmingham sem heitir Ollie Watkins. Arsenal áfram á eldi og Liverpool tóku 3 stig á elleftu stundu í Nottingham eins og Hrói Höttur sjálfur. Hver fær rauða spjaldið? Kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað.
Mar 05, 2024
Stórleikur Manchester City og Manchester United er mikið til umræðu í hlaðvarpinu Enski boltinn í dag. Andri Már Eggertsson og Eysteinn Þorri Björgvinsson eru gestir í þættinum en Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson stýrir umræðunni. Yfirburðir City voru miklir í leiknum, 27 marktilraunir gegn þremur. Er það boðlegt fyrir Man Utd? Einnig var farið yfir aðra leiki helgarinnar og rætt um toppbaráttuna sem er martröð fyrir Man Utd stuðningsmenn. Að lokum var aðeins rætt um íslenska boltann en það er að...
Mar 05, 2024
Í útvarpsþættinum Fótbolti.net þessa vikuna er síðasta ótímabæra spáin fyrir Bestu deild karla. Það er um mánuður í mót! Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Sérfræðingar: Baldur Sigurðsson og Valur Gunnarsson. Í þættinum fræðir Baldur okkur einnig um þætti sína, Lengsta undirbúningstímabil í heimi, og rætt er um formannskosningu KSÍ.
Mar 04, 2024
Íslenska kvennalandsliðið vann sigur gegn Serbíu í umspili Þjóðadeildarinnar fyrr í þessari viku. Stelpurnar verða því áfram í A-deild sem skiptir máli fyrir undankeppni Evrópumótsins. Guðmundur Aðalsteinn fékk þá Guðna Þór Einarsson og Gylfa Tryggvason, þjálfara kvennaliðs HK, í heimsókn í dag til að fara yfir leikina tvo. Rætt var um þróun liðsins og margt fleira en Ísland er áfram á meðal 16 bestu þjóða Evrópu í kvennaboltanu.
Mar 01, 2024
Liverpool vann deildarbikarinn í spennuleik.Bowen sökkti býflugunum. Bitlausir Man Utd menn án Højlund. Arsenal menn áfram á flugi. Hver fær rauða spjaldið? Kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað.
Feb 27, 2024
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net frá laugardeginum 24. febrúar. Tómas Þór, Benedikt Bóas og Henry Birgir fara yfir fótboltafréttirnar.
Feb 27, 2024
Liverpool vann deildabikarinn í gær eftir frábæran úrslitaleik gegn Chelsea á Wembley. Óskar Smári Haraldsson, þjálfari kvennaliðs Fram, og Jón Aðalsteinn Kristjánsson, þjálfari 2. flokks karla hjá Haukum, fóru yfir leikinn ásamt undirrituðum. Óskar er stuðningsmaður Liverpool og Nonni er stuðningsmaður Chelsea. Einnig er farið yfir aðra leiki helgarinnar á Englandi en lengst af var rætt um úrslitaleikinn frá því í gær.
Feb 26, 2024
Sjóðandi heitur Hojlund. Eygypski töframaðurinn birtist þegar engin/n átti von á honum og stimplaði sig inn tímabundið. Skytturnar halda áfram að skjóta lið í kaf. Vonir margra fantasy spilara brotnuðu. Rauða spjaldið, kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað.
Feb 22, 2024
Það er skemmtileg umferð að baki í ensku úrvalsdeildinni og er toppbaráttan gríðarlega spennandi þessa stundina. Manchester City tapaði stigum á meðan Arsenal og Liverpool unnu sína leiki sannfærandi. Manchester United er á fínu skriði og Rasmus Höjlund getur ekki hætt að skora, Gary O'Neil er aftur einn af stjórum tímabilsins og Mason Holgate er ekki skarpasti hnífurinn í skúffunni. Gunnar Ormslev, lýsandi á Síminn Sport, og Magnús Haukur Harðarson, þjálfari kvennaliðs Fjölnis, eru gestir í þæt...
Feb 19, 2024