Útvarpsþátturinn Fótbolti.net hélt upp á afmæli sitt laugardaginn 17. febrúar. Í fyrri hluta þáttarins er farið yfir íslenskar fótboltafréttir vikunnar og úrslitin úr Lengjubikarnum. Í seinni hluta þáttarins er Jón Rúnar Halldórsson gestur og ræðir um fótboltapólitíkina og komandi ársþing KSÍ.
Feb 17, 2024
Rice Rice Babe. Er Salah að snúa aftur? Er Haaland fullkominn Triple C í næstu umferð? Bruno G og Star Boy Saka ofl. í þætti dagsins.
Feb 13, 2024
Chelsea er mikið til umræðu í hlaðvarpsþættinum Enski boltinn í dag. Liðið vann endurkomusigur gegn Crystal Palace í gær en tímabilið hefur verið afar dapur hjá Lundúnafélaginu. Chelsea endaði um miðja deild á síðasta tímabili og það er útlit fyrir að það gerist eftir. Guðmundur Aðalsteinn stýrir þættinum og fær hann þá Harald Örn og Stefán Martein í heimsókn, en þeir eru báðir miklir stuðningsmenn Chelsea. Einnig er farið yfir aðra leiki helgarinnar í enska boltanum í þættinum.
Feb 13, 2024
Steven Lennon hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir magnaðan feril hér á Íslandi. Hann er einn besti leikmaður sem hefur spilað í efstu deild hér á landi og er hann í dag markahæsti erlendi leikmaður í sögu efstu deildar. Lennon ólst upp í akademíu Rangers í Skotlandi en kom hingað til lands árið 2011 til að spila með Fram. Hér festi hann rætur en hann spilaði lengst af með FH og varð algjör goðsögn hjá félaginu. Þessi skemmtilegi Skoti kom í dag í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net þar ...
Feb 13, 2024
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 10. febrúar. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Í fyrri hlutanum: Baldvin Már Borgarsson kom með ótímabæra Lengjudeildarspá. 42:15 Í seinni hlutanum: Formannsefni KSÍ fóru yfir málin, rætt var við Guðna Bergsson, Vigni Má Þormóðsson og Þorvald Örlygsson en þeir eru í framboði til formanns KSÍ.
Feb 10, 2024
Gísli Eyjólfsson var í vikunni kynntur sem nýr leikmaður sænska úrvalsdeildarfélagsins Halmstad. Hann er annar leikmaðurinn sem Halmstad fær frá Íslandi í vetur því í síðasta mánuði fékk liðið Birni Snæ Ingason, besta leikmann Bestu deildarinnar 2023, í sínar raðir frá Víkingi. Gísli hefur undanfarin ár verið algjör lykilmaður í liði Breiðabliks. Hann skoraði þrjú mörk í 15 Evrópuleikjum og sjö mörk í Bestu deildinni á liðinni leiktíð. Hann lagði upp fjögur mörk í deildinni, eitt í Evrópu og eit...
Feb 08, 2024
Hugarburðarbolti er nýtt fantasy hlaðvarp sem alla fantasy spilara þyrstir í. Hlusta má á þáttinn á öllum helstu veitum í gegnum Fótbolti.net. Annar þáttur var að koma í loftið.
Feb 07, 2024
Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er þjálfari Grindavíkur, Brynjar Björn Gunnarsson. Við ræddum við hann um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.
Feb 06, 2024
Arsenal stóð uppi sem sigurvegarinn í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Lundúnafélagið vann sannfærandi sigur gegn Liverpool á heimavelli sínum. Jón Kári Eldon var á vellinum en hann var á línunni í hlaðvarpinu Enski boltinn í dag og ræddi þar um ferð sín á Emirates, og jú auðvitað um leikinn. Þá er auðvitað líka rætt um aðra leiki helgarinnar í þættinum en það var nóg um að vera í þessari stórskemmtilegu deild.
Feb 05, 2024
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 3. febrúar. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Gestur er Máni Pétursson, sérfræðingur á Stöð 2 Sport og fyrrum útvarpsmaður á X-inu. Hann fer yfir nýja ótímabæra spá þar sem öll liðin í Bestu deildinni eru skoðuð. Þá eru fréttir vikunnar að sjálfsögðu á sínum stað.
Feb 03, 2024
22.000 manns á Íslandi spila fantasy leikinn í enska fótboltanum. Hugarburðarbolti er nýtt fantasy hlaðvarp sem alla fantasy spilara þyrstir í. Hlusta má á þáttinn á öllum helstu veitum í gegnum Fótbolti.net. Vignir Már Eiðsson og Gunnar Georgsson sjá um þáttinn. Gunnar Georgsson er einn allra sterkasti fantasy spilari landsins. Hann er í 10 sæti yfir allt Ísland og er efstur í mörgum öðrum deildum. Hann veit allt um fantasy. Vignir Már Eiðsson er annar stjórnandi Ofurdeildarinnar og einn allra ...
Feb 02, 2024
Það var leikið í ensku úrvalsdeildinni í miðri viku en það má með sanni segja að tveir efnilegir og spennandi leikmenn hafi stolið senunni. Gummi og Steinke komu sér vel fyrir í Thule-stúdíóinu í dag og fóru yfir leiki umferðarinnar með Óskari Smára Haraldssyni, þjálfara kvennaliðs Fram. Einnig var aðeins farið yfir gluggadaginn í gær en hann var fremur bragðdaufur.
Feb 02, 2024
Það er bikarhelgi að baki í enska boltanum og er spilað í ensku úrvalsdeildinni núna í miðri viku. Það er nóg að ræða þar sem mikið er um fréttir í enska boltanum um þessar mundir af misgáfulegum mönnum og þá er gluggadagurinn á fimmtudag. Gummi og Steinke fengu sér sæti í Thule-stúdíóinu ásamt fréttaritaranum Sölva Haraldssyni í dag. Farið var yfir bikarinn, deildina, slúður og fréttir síðustu daga.
Jan 30, 2024
Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er þjálfari Njarðvíkur, Gunnar Heiðar Þorvaldsson. Við ræddum við hann um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.
Jan 28, 2024
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 27. janúar. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Gestur fyrri hlutans er Kristinn Jónsson sem hefur yfirgefið KR og er kominn heim í Breiðablik. Gestur seinni hlutans er Gregg Ryder sem tók við þjálfun KR í vetur.
Jan 27, 2024
Þau risastóru tíðindi bárust í dag að Jurgen Klopp væri að hætta með Liverpool eftir yfirstandandi tímabil. Þessi tíðindi komu eins og þruma úr heiðskíru lofti. Gummi og Steinke settust niður í Thule-stúdíóinu með Kristjáni Atla Ragnarssyni, hörðum stuðningsmanni Liverpool, í dag og fóru yfir þessi rosalegu tíðindi.
Jan 26, 2024
Jóhann Birnir Guðmundsson er sérstakur gestur í hlaðvarpinu Enski boltinn í dag. Hann fór ungur að árum til Watford og spilaði í þremur deildum á Englandi, þar á meðal ensku úrvalsdeildinni. Í þessum þætti ræðir hann um tíma sinn hjá Watford sem var mjög áhugaverður. Jói er einnig stuðningsmaður Manchester United og er rætt um stöðu félagsins í þættinum. Þá er farið yfir síðustu leiki í ensku úrvalsdeildinni og stöðu mála í janúarglugganum.
Jan 23, 2024
Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er ekki leikmaður heldur þjálfarinn Sigurður Ragnar Eyjólfsson sem var síðast við stjörn hjá Keflavík. Við ræddum við hann um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.
Jan 21, 2024
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 20. janúar. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Fótboltafréttir vikunnar heima og erlendis. Þórir Hákonar fer yfir formannsslag KSÍ, Kristján Atli er á línunni og svo er örstutt handboltahorn.
Jan 20, 2024
Íþróttafréttamaðurinn Guðmundur Benediktsson er gestur Enska boltans í þessari viku. Hann heimsótti skrifstofu Fótbolta.net í morgunsárið og ræddi við Guðmund Aðalstein og Sæbjörn Steinke um síðustu leiki í enska boltanum. Þá var einnig snert aðeins á enska bikarnum. Gummi kastaði fram sínu liði ársins hingað til og þá var spáin - sem var birt fyrir tímabilið - skoðuð. Hvernig lítur hún út núna?
Jan 16, 2024
Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er leikmaður Breiðbliks í Bestu deild karla, Alex Freyr Elísson en hann var á láni seinnii part tímabilsins hjá KA en er núna mættur aftur í treyju Breiðabliks.
Jan 15, 2024
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 13. janúar. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Gestur: Aron Sigurðarson nýr leikmaður leikmaður KR. Rætt um tíðindamikla fréttaviku í íslenska boltanum. Það er blásið í herlúðra í Vesturbænum. Landsliðið, píla, handboltasérfræðingurinn Arnar Daði í beinni frá München, Guinness gangan og fleira.
Jan 13, 2024
Aron Bjarnason var í dag tilkynntur sem nýr leikmaður Breiðabliks. Hann er keyptur frá sænska félaginu Sirius þar sem hann hefur spilað undanfarin þrjú tímabil. Aron snýr aftur til Breiðabliks en þar lék hann síðast fyrri hluta tímabilsins 2019. Aron, sem er 28 ára kantmaður, skrifar undir samning sem gildir út tímabilið 2027. Hann ræddi við Fótbolta.net og má nálgast viðtalið í spilaranum efst sem og á öllum hlaðvarpsveitum.
Jan 12, 2024
Þau tíðindi bárust um jólin að Jim Ratcliffe, ríkasti maður Bretlandseyja, hefði keypt 25 prósenta hlut í Manchester United. Þetta eru stór tíðindi fyrir stuðningsmenn Man Utd en hvað þýðir þetta nákvæmlega? Guðmundur Aðalsteinn fékk Björn Berg Gunnarsson, fjármálaráðgjafa og fyrirlesara, í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag til þess að kryfja þessi tíðindi.
Jan 10, 2024
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 6. janúar. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Í fyrri helmingnum: Fyrsta tímabæra spáin fyrir Bestu deildina og Freyr Alexandersson, nýr þjálfari Kortrijk, er á línunni. Í seinni helmingnum: Enska hringborðið með Kristjáni Atla sem velur áhugavert úrvalslið.
Jan 06, 2024
Gleðilegt nýtt ár hlustendur Enska boltans! Það er Ástríðuþema í þætti dagsins því þeir Ástríðubræður: Sverrir Mar Smárason og Gylfi Tryggvason fóru yfir síðustu umferð með Sæbirni Steinke. Farið var yfir leiki umferðarinnar og rýnt í toppbaráttuna. Verður Darwin Nunez markahærri 2024 en Erling Haaland? Hvað er að gerast hjá Arsenal? Er eitthvað ljós í enda ganganna hjá Man Utd? Er Man City líklegast til að vinna deildina og alls konar vangaveltur.
Jan 03, 2024
Síðasti útvarpsþátturinn Fótbolti.net á árinu 2023 og þá er að sjálfsögðu Áramótakæfan 2023 á dagskrá. Fótboltaárið er gert upp á skemmtilegan hátt; maður ársins valinn og leynigestur kemur í heimsókn. Takk fyrir árið hlustendur kærir, heyrumst á því nýja!
Dec 30, 2023
Enski boltinn hefur verið allsráðandi í kringum jólahátíðina og það var meira að segja spilað á aðfangadag. Gummi og Steinke komu sér vel fyrir í Thule-stúdíóinu í dag með Litlu Flugvélinni, Ingimar Helga Finnssyni, og fóru yfir það sem hefur skeð í ensku úrvalsdeildinni um jólin. Það er óhætt að segja að kraftaverkin gerist á jólunum. Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla, kæru hlustendur.
Dec 29, 2023
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 23. desember. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Í fyrri hluta þáttarins er Magnús Már Einarsson þjálfari Aftureldingar gestur og rætt um Lengjudeildina og Mosfellinga. Í seinni hlutanum er Arnar Gunnlaugsson þjálfari meistara Víkings gestur en það varð ljóst í gær að hann tekur ekki við Norrköping. Þá er rætt við Kára Árnason yfirmann fótboltamála hjá Víkingi.
Dec 23, 2023
Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er leikmaður Vals og nýjasta landsliðskonan okkar Fanney Inga Birkisdóttir. Við ræddum við hana um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.
Dec 22, 2023