Fotbolti.net - podcast cover

Fotbolti.net

Fotbolti.netfotbolti.net
Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Enski boltinn - El Jóhann hitar upp fyrir Þorláksmessuveislu

Twitter-kóngurinn El Jóhann er gestur Enska boltans hlaðvarpsins á þessum ágæta föstudegi. Hann hitar upp fyrir Þorláksmessuveisluna sem er í ensku úrvalsdeildinni á morgun. Það eru áhugaverðir leikir á dagskrá og endar dagurinn með stórleik Liverpool og Arsenal. Arsenal er á toppnum sem stendur en El Jóhann er mikill Arsenal-maður. Hann spáir þeim auðvitað sigri í leiknum en í þættinum stillti hann upp sameiginlega byrjunarliði þessara tveggja liða. Gleðilega hátíð kæru hlustendur!

Dec 22, 2023

Viðar Ari - Ævintýraþrá og ótrúleg saga

Viðar Ari Jónsson gekk í raðir norska félagsins HamKam í lok sumargluggans eftir að hafa spilað í mánuð með FH. Hann kom í FH eftir að hafa leikið með Honved í Ungverjalandi. Viðar ræðir hvernig hann endaði í Búdapest eftir frábært tímabil með Sandefjord í Noregi 2021. Í aðdraganda skiptanna var hann mjög nálægt því að semja við ísraelsku meistarana og Viðar segir frá því hvernig þau skipti duttu upp fyrir sig. Í viðtalinu ræðir hann um mótlætið í Honved og langa leið inn á völlinn hjá HamKam....

Dec 21, 2023

Enski boltinn - Fljótur að yfirgefa hópspjallið

Jafntefli var niðurstaðan á Anfield í gær þegar Liverpool og Manchester United áttust við. Það var mikið að ræða eftir leikinn en Gummi og Steinke fengu Orra Frey Rúnarsson í heimsókn í Thule-stúdíóið til að fara yfir leikinn og allt sem gerðist í kringum hann. United-menn fagna stiginu á meðan Liverpool-stuðningsmenn eru pirraðir. Það var svo nóg annað að ræða eftir helgina en jólin eru besti tími ársins í enska boltanum.

Dec 18, 2023

Útvarpsþátturinn - Besta þarfagreiningin

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 16. desember. Farið er í þarfagreiningu fyrir lið Bestu deildarinnar og skoðað hvar þau þurfa helst að styrkja sig fyrir tímabilið á næsta ári. Í leiðinni er farið yfir fréttir og slúður úr deildinni, rætt um skellinn sem Breiðablik fékk í Póllandi og janúarverkefni landsliðsins. Elvar Geir og Tómas Þór og Valur Gunnars. Málsmetandi aðili þáttarins er Sæbjörn Steinke.

Dec 16, 2023

Enski boltinn - Tryllt læti í Köben og United kveður

Riðlakeppni Meistaradeildarinnar kláraðist í gærkvöldi og má svo sannarlega tala um ótrúlega niðurstöðu. FC Kaupmannahöfn frá Danmörku komst áfram úr riðli sem innihélt Bayern München og Manchester United, en síðarnefnda liðið endaði á botni riðilsins. Í þessari sérstöku aukaútgáfu Enski boltinn hlaðvarpinu í dag var hringt til Danmerkur og rætt við íþróttafréttamanninn Runólf Trausta Þórhallsson. Spjallað er við hann um magnaðan árangur FCK, unglingaliðið sem er einnig er að ná frábærum árangri...

Dec 14, 2023

Tiltalið: Fanndís Friðriksdóttir

Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er leikmaður Íslandsmeistara Vals og fyrrum landsliðskonan Fanndís Friðriksdóttir. Við ræddum við hana um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.

Dec 13, 2023

Enski boltinn - Meistarasigur og tvö stórlið í brasi

Enska úrvalsdeildin heldur áfram að skemmta Íslendingum en þó mismikið eftir því hvaða liði fólk heldur með. Það var stórskemmtilegt að fylgjast með umferðinni um helgina en til þess að kryfja hana þá kom Tómas Þór Þórðarson, ritstjóri enska boltans hjá Síminn Sport, í heimsókn í Thule-stúdíóið í dag. Gummi og Steinke eru á sínum stað að venju en farið er yfir alla leiki helgarinnar í enska boltanum.

Dec 11, 2023

Ungstirnin - Frelsari Svíþjóðar og skærasta ungstirni Afríku

Í þessum 50. þætti Ungstirnanna fara þeir Arnar Laufdal og Bjarni Þór Hafstein yfir víðan völl. Ibrahim Diarra (2006) ein skærasta stjarna Afríku. Hann skoraði 5 mörk og gerði 4 stoðsendingar á HM U-17 ára þegar að lið Malí lenti í 3.sæti og segir sagan að hann sé þegar búinn að skrifa undir samning hjá Barcelona. Lucas Bergvall (2006) er efnilegasti leikmaður Svíþjóðar um þessar mundir og einn sá efnilegasti í allri Evrópu. Lið eins og Manchester United, Barcelona, Inter Milan og RB Leipzig eru...

Dec 10, 2023

Útvarpsþátturinn - Góðir gestir á aðventunni

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 9. desember. Í fyrri hluta þáttarins mætir Axel Óskar Andrésson í hljóðver. Fjallað hefur verið um að þessi öflugi varnarmaður Örebro sé að hugsa um að færa sig um set. Þá mætir Aron Elís Þrándarson en hann kom heim til Víkings á liðnu sumri eftir atvinnumennsku og lét heldur betur að sér kveða áður en Víkingar lyftu bikurum tímabilsins.

Dec 09, 2023

Enski boltinn - Up the Villa!

Aston Villa hefur gert frábæra hluti á þessari leiktíð og er í baráttu um Meistaradeildarsæti, jafnvel um enska meistaratitilinn. Villa er sem stendur fjórum stigum frá toppnum þegar liðið mætir toppliði ensku deildarinnar, Arsenal, á heimavellii núna um helgina. Jón Haukur Baldvinsson, stuðningsmaður Aston Villa, er gestur í Enski boltinn hlaðvarpinu þennan föstudaginn en hann fer yfir velgengni Villa á þessari leiktíð og áhuga sinn á félaginu. Gummi og Steinke eru svo að venju í þættinum en fa...

Dec 08, 2023

Gústi Gylfa um ellefu ár af Bose mótinu - Stórleikur framundan

Það eru núna ellefu ár síðan Bose-mótið var stofnað en mótið hefur verið fastur liður af undirbúningstímabilinu hér á Íslandi síðan. Fótboltaþjálfarinn Ágúst Gylfason á stóran þátt í mótinu en hann kom á skrifstofu Fótbolta.net í dag þar sem hann ræddi um stofnun mótsins og þróun þess. Framundan er stórleikur þar sem erkifjendurnir Breiðablik og Víkingur eigast við í úrslitaleik. Leikurinn fer fram annað kvöld á Kópavogsvelli. Í seinni hluta þáttarins ræddi Gústi um viðskilnaðinn við Stjörnuna o...

Dec 07, 2023

Á réttri leið eftir frækinn sigur í Danmörku

Ísland vann frækinn sigur gegn Danmörku í lokaleik sínum á árinu í gær. Þetta var síðasti leikur Íslands í riðlakeppni Þjóðadeildarinnar en stelpurnar tóku níu stig í sex leikjum. Guðmundur Aðalsteinn fékk þá Magnús Hauk Harðarson, þjálfara Fjölnis, og Óskar Smára Haraldsson, þjálfara Fram, í heimsókn í dag til að gera upp leik gær dagsins. Einnig var farið yfir árið í heild sinni og framhaldið. Er liðið á réttri leið eftir miklar breytingar?

Dec 06, 2023

Tiltalið: Ásgeir Börkur Ásgeirsson

Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er goðsögn Fylkis sem lagði skónna á hilluna að loknu tímabilinu 2023, Ásgeir Börkur Ásgeirsson. Við renndum yfir farinn veg og litum yfir ferils eins mesta harðhausar Íslenskrar knattspyrnu.

Dec 05, 2023

Enski boltinn - Endo-kallinn og skemmtileg heimska

Það var boðið upp á ruglaða skemmtun í ensku úrvalsdeildinni um helgina, frábæra fótboltaleiki. Guðmundur Aðalsteinn fékk þá Arnar Laufdal og Baldvin Már Borgarsson, erkifjendur úr 3. deild karla, í heimsókn í dag til þess að ræða um leiki helgarinnar. Farið var yfir ótrúlegan dóm í leik Manchester City og Tottenham, hugmyndafræði Ange og Kompany, magnaða endurkomu Liverpool, ömurlegt United og margt fleira.

Dec 04, 2023

Útvarpsþátturinn - Grindavík, Haukur Páll og samsæriskenningar

Fjölbreytt fótboltaumfjöllun í útvarpsþættinum Fótbolti.net laugardaginn 2. desember. Rætt er um fréttir vikunnar. Þorsteinn Halldórsson lét íþróttamálaráðherra heyra það og Blikar töpuðu á grátlegan hátt gegn Maccabi. Haukur Guðberg Einarsson formaður Grindavíkur ræðir um stöðu mála hjá fótboltanum á þessum miklu hamfara- og óvissutímum. Gestur þáttarins er Haukur Páll Sigurðsson sem ræðir um nýtt hlutverk sitt hjá Val. Þá er fjallað um enska boltann en Guðjón Heiðar Valgarðsson einn af umsjóna...

Dec 02, 2023

Enski boltinn - Vonin veik hjá Rauðu djöflunum

Manchester United er ekki í góðum málum í Meistaradeildinni þrátt fyrir að vera í slökum riðli. Einn leikur er eftir og það eru innan við tíu prósent líkur á því að United fari áfram. Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Steinke eru umsjónarmenn Enska boltans en í þættinum í dag er aðallega rætt um Man Utd og Meistaradeildina. Man Utd gerði 3-3 jafntefli gegn Galatasaray í mögnuðum leik á miðvikudag en úrslitin gefa United litla von í framhaldinu. Tryggvi Páll Tryggvason, stuðningsmaður Man Utd, var ...

Dec 01, 2023

Ungstirnin - Argentínskur efniviður

Matias Soule (2003) hefur verið að gera frábæra hluti með nýliðum Frosinone í Serie A á Ítalíu en þessum argentínska kantmanni hefur verið líkt við samlanda sinn Angel Di Maria. Soule er í eigu Juventus og er að færast nær því að spila fyrir ítalska landsliðið. Claudio Echeverri (2006) er eftirsóttur af stærstu liðum heims en þessi sóknarþengjandi miðjumaður sem spilar fyrir River Plate hefur verið að gera allt vitlaust á HM U17 sem er núna í gangi í Asíu en hann t.d. skoraði þrennu í 3-0 sigri ...

Nov 28, 2023

Enski boltinn - Ungverjinn upplifði mikinn hita, mikla reiði og sturlað mark

Þrettánda umferðin í ensku úrvalsdeildinni lýkur í kvöld en tekið var forskot á gleðina og umferðin gerð upp í dag. Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Steinke eru umsjónarmenn þáttarins. Manchester United vann útisigur á Everton og var Fótbolti.net með útsendara á vellinum. Mate Dalmay var á línunni og fór yfir stemninguna á Goodison Park. Í gær fór einnig fram stórskemmtilegur leikur á heimavelli Tottenham. Arsenal er eftir umferðina í efsta sæti deildarinnar, City og Liverpool gerðu jafntefli í s...

Nov 27, 2023

Bjarni Mark: Hitafundir og mikil reiði

Um helgina var Start dæmt úr leik í umspilinu um að komast upp í efstu deild í Noregi. Bjarni Mark Duffield er leikmaður Start og ræddi hann við Fótbolta.net í dag. Bjarni fór yfir ástæðuna fyrir því af hverju Start var dæmt úr leik. Heimavöllur liðsins var frosinn og tekin var ákvörðun að kveikja ekki á hitanum undir vellinum til að spara pening. Völlurinn var ekki leikhæfur og liðið dæmt úr leik. Hann segir að hljóðið í mönnum hjá félaginu sé ekki gott, talar um mikla reiði og mikinn pirring....

Nov 27, 2023

Útvarpsþátturinn - Heimir Hallgríms gestur

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 25. nóvember. Umsjón: Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas. Í fyrri hluta þáttarins er farið yfir fótboltafréttir vikunnar, meðal annars rætt um landsliðið, fréttir úr Bestu deildinni og formannsslag KSÍ. Í þeim seinni kemur Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari Jamaíku í heimsókn en hann fékk enn eina rósina í sitt hnappagat í vikunni þegar hann kom liðinu í undanúrslit Concacaf Þjóðadeildarinnar og í úrslitakeppni Copa America.

Nov 25, 2023

Enski boltinn - Gunnar í skýjunum með magnað gengi

Gummi og Steinke halda utan um stjórnartaumana í Enski boltinn hlaðvarpinu að venju en með þeim í dag er sannkallaður heiðursgestur, Gunnar Sigurðarson. Rætt er aðallega við Gunnar, sem er gallharður Ipswich maður, um hans heittelskaða félag. Ipswich hefur verið að gera frábæra hluti í Championship-deildinni og er liðið sem stendur í öðru sæti með gott forskot á liðin fyrir neðan. Ipswich komst upp úr C-deildinni á síðasta tímabili en Kieran McKenna, fyrrum aðstoðarmaður Jose Mourinho og Ole Gun...

Nov 24, 2023

Mikael Nikulásson: Ætlum að keyra þetta í gang

Mikael Nikulásson framlengdi samning sinn við KFA á dögunum og stýrir því liðinu í annað tímabil næsta sumar. Mikael, eða Mike eins og hann er oftast kallaður, gerði flotta hluti með KFA síðasta sumar en liðið var taplaust lengi vel. Liðið rétt missti þó af því á endanum að komast upp í Lengjudeildina. Þessi skemmtilegi þjálfari ræddi við Fótbolta.net í dag um þá ákvörðun að framlengja við KFA, síðasta sumar og framhaldið hjá félaginu. Hann lofar því að KFA mæti með hörkulið á næstu leiktíð en þ...

Nov 20, 2023

Innkastið - Ómar Ingi um landsliðið og HK

Ómar Ingi Guðmundsson, þjálfari HK, ræddi við þá Sæbjörn Steinke og Guðmund Aðalstein í fyrri hluta þáttarins um stöðu landsliðsins og leikinn gegn Slóvakíu í gær. Farið var yfir frammistöðu liðsins sem var ekki nógu góð en Ómar nefndi þó tvo leikmenn sem hann var ánægður með. Einnig var aðeins snert á U21 landsliðinu. Í seinni hluta þáttarins ræddi hann svo um HK; tímabilið 2023, leikmannamál og ýmislegt annað.

Nov 17, 2023

Tiltalið: Halldór Árnason

Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er ekki leikmaður heldur þjálfari Bestu deildarliðs Breiðabliks, Halldór Árnason. Við ræddum við hann um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.Þessi þáttur er í boði Bjórland. Kynntu þér hágæða Íslenskt handverksöl...

Nov 17, 2023

Enski boltinn - Einhver veikasti leikur síðari ára

Leikur Chelsea og Manchester City er einhver skemmtilegasti leikur sem hefur verið spilaður í ensku úrvalsdeildinni á síðustu árum. Það var hrein unun að fylgjast með leiknum. Kári Snorrason, stuðningsmaður Chelsea, er gestur í Enski boltinn hlaðvarpinu í dag en hann ræddi mikið við Gumma og Steinke um stórleikinn í gær. Hann ræddi einnig um stöðuna hjá Chelsea og svo var farið yfir aðra leiki helgarinnar.

Nov 13, 2023

Útvarpsþátturinn - Biggi ÍTF og Arnar Grétars

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 11. nóvember. Í fyrri hluta þáttarins í dag er Birgir Jóhannsson framkvæmdastjóri ÍTF gestur. Rætt er um hvað íslenski boltinn getur lært af þeim danska og hvað var jákvætt og hvað neikvætt í mótafyrirkomulagi Bestu deildarinnar á liðnu sumri. Í seinni hlutanum kemur Arnar Grétarsson þjálfari Vals í heimsókn. Fótboltasumarið á Hlíðarenda er gert upp og horft fram á veginn.

Nov 11, 2023

Enski boltinn - Kaos, hatur og fáránleg yfirlýsing

Tveir af áhugaverðari leikjum tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni til þessa fóru fram í elleftu umferðinni sem var leikin núna um helgina. Tottenham tapaði 1-4 gegn Chelsea í mögnuðum fótboltaleik í gærkvöldi og þá vann Newcastle 1-0 sigur gegn Arsenal. Síðarnefnda liðið sendi frá sér yfirlýsingu eftir leik út af ósætti með dómgæsluna. Er Mikel Arteta mesti vælukjói enska boltans? Gummi og Steinke fara yfir þessa umferð en á línunni er sjálf litla flugvélin, Ingimar Helgi Finnsson.

Nov 07, 2023

Ungstirnin - Við lifum í heimi Jude Bellingham

Assan Ouedraogo (2006) er mjög eftirsóttur af Liverpool skv Sky Sports en Barcelona, Real Madrid eru nokkur lið sem eru á eftir þessum efnilega miðjumanni sem spilar fyrir Schalke. Savio (2004) er tekknískur Brassi sem hefur verið í lykilhlutverki á kantinum hjá toppliði Girona á Spáni sem er undir smásjá hjá Barcelona líkt og Ouedraogo. Hversu rugl góður er Jude Bellingham, er hann betri en Musiala? Zaire-Emery að spila eins og fullorðinn maður hjá PSG og hversu nett er það að Sædís Rún fór til...

Nov 06, 2023

Útvarpsþátturinn - Fréttir vikunnar, Lyngby og Kristján Atli gerir upp enska boltann

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 4. nóvember. Umsjón: Tómas Þór og Benedikt Bóas. - Fótboltafréttir vikunnar. Meiri umræða um ráðningu KR á Gregg Ryder og sjö lið í Bestu-deildinni hafa ekki gengið frá ráðningu aðstoðarþjálfara. - Elvar Geir Magnússon ritstjóri Fótbolta.net í símaspjalli frá Kaupmannahöfn á leið á leik hjá Lyngby. - Kristján Atli Ragnarsson mætti svo og gerði upp fyrsta fjórðung í enska boltanum.

Nov 05, 2023

Úlfur hefur ekki áhyggjur: Þarf ekki alltaf að sækja einhvern nýjan

Á síðustu dögum hefur verið greint frá því að fjórir reynslumiklir leikmenn væru horfnir á brott úr leikmannahópi Fjölnis. Það eru þeir Hans Viktor Guðmundsson, Guðmundur Þór Júlíusson, Bjarni Gunnarsson og Dofri Snorrason. Úlfur Arnar Jökulsson, þjálfari Fjölnis, ræddi brotthvarf leikmannanna í viðtali í dag. Mikil reynsla er farinn úr hópnum en Úlfur hefur ekki áhyggjur. Úlfur ræddi einnig um tímabil Fjölnis, tímann sem þjálfari hjá Fjölni, Extra völlinn og eftirminnilegt viðtal þar sem hann t...

Nov 03, 2023
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android