Fotbolti.net - podcast cover

Fotbolti.net

Fotbolti.netfotbolti.net
Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Heimavöllurinn: Þýskur grikkur en margt gott

Ísland mátti sætta sig við tap gegn Þýskalandi og stigalaus landsliðsgluggi því niðurstaðan. Það mátti engu síður greina ýmis jákvæð teikn á lofti og þau Alexandra Bía og Guðmundur Aðalsteinn mættu á Heimavöllinn og fóru yfir málin ásamt Mist Rúnarsdóttur - í boði Orku Náttúrunnar og Dominos. Þátturinn er sá síðasti fyrir vetrarfrí.

Nov 01, 2023

Enski boltinn - Agalegt ástand og grjóthörð fermingargjöf

Tíunda umferðin í ensku úrvalsdeildinni fór fram um helgina og til að gera hana upp kom Framherjinn Guðmundur Magnússon í heimsókn til þeira Guðmundar Aðalsteins og Steinke. Umdeildir vítaspyrnudómar voru til umræðu sem og sannfærandi sigur City á grönnunum í United. Liverpool og Arsenal unnu örugga sigra, Tottenham vélin mallar áfram en bakslag hjá Newcastle og Chelsea. Á Villa Park fékk ungur Íslendingur 3-1 sigur í fermingargjöf og treyju frá manni leiksins. Frábær dagur.

Oct 30, 2023

Ungstirnin - Heimsókn af Nesinu og golf með fyrrum leikmanni Liverpool

Eli Junior Kroupi (2006) er einn efnilegasti leikmaður Frakklands um þessar mundir og hefur verið líkt við engan annan en Kylian Mbappe. Hann hefur farið frábærlega af stað með aðalliði Lorient í Ligue 1 með frábærum mörkum. Sverre Halseth Nypan (2006) er lykilleikmaður á miðjunni í liði Rosenborg í Noregi. Manchester Utd, Manchester City, Barcelona og Real Madrid eru með augastað á þessum efnilega leikmanni. Góðir gestir koma í heimsókn en þeir Arnar Daníel og Tómas Johannessen leikmenn Gróttu ...

Oct 30, 2023

Páll Kristjánsson formaður KR ræðir nýjan þjálfara og gagnrýnar raddir

Páll Kristjánsson formaður knattspyrnudeildar KR ræðir við Fótbolta.net um ráðningu á Gregg Ryder sem nýjum þjálfara karlaliðs félagsins. KR tilkynnti ráðningu enska þjálfarans á fréttamannafundi í KR-heimilinu í vesturbænum í dag og eftir fundinn settumst við niður með Páli og fórum yfir málin. Til umræðu - Þrumuræðan í byrjun fréttamannafundar - Gagnrýnin á ferlið - Ógrynni starfsumsókna frá stórum nöfnum sem KR fékk - Formlegir fundir með sex aðilum - Svakalega flottur fyrsti fundur Gregg Ryd...

Oct 28, 2023

Útvarpsþátturinn - Óvænt útspil KR og undirbúningur á Akranesi

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 28. október. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Fótboltafréttir vikunnar. Gregg Ryder tekur við KR og Rúnar Kristinsson var kynntur í Ulfarsárdal. Jón Þór Hauksson þjálfari ÍA segir frá undirbúningi Skagamanna fyrir Bestu deildina. Baldvin Már Borgarsson fer yfir enska boltann.

Oct 28, 2023

Heimavöllurinn: Glittir í gömul gildi, nú þarf að þora gegn Þjóðverjum

Ísland mátti sætta sig við 0-1 tap gegn Danmörku í Þjóðadeildinni fyrr í kvöld. Fréttaritarar Fótbolta.net, þau Guðmundur Aðalsteinn, Mist Rúnarsdóttir, Stefán Marteinn og Sverrir Örn voru öll á vellinum og settust svo niður til að fara yfir málin á Heimavellinum. Í boði Orku Náttúrunnar og Dominos.

Oct 28, 2023

Bjarni Jó snýr aftur eftir lærdómsríka árspásu

Bjarni Jóhannsson er mættur aftur í þjálfun eftir að hafa tekið sér árspásu. Bjarni hefur verið ráðinn þjálfari Selfoss sem leikur í 2. deild næsta sumar eftir að hafa fallið úr Lengjudeildinni í sumar. Hann gerir tveggja ára samning við félagið. Bjarni hefur verið í þjálfun í meira en 30 ár og komið víða við á ferlinum. Næsta stopp er Selfoss þar sem hann stefnir að koma liðinu aftur upp í Lengjudeildina eftir vonbrigðarsumar. Selfoss er félag sem á ekki að vera í 2. deild í fótbolta. Í þættinu...

Oct 26, 2023

Rúnar Kristins leyfir Frömurum að dreyma í Dal draumanna

Rúnar Kristinsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við Fram og tekur formlega til starfa sem þjálfari liðsins í Bestu deildinni um mánaðamótin. Eftir fréttamannafund í dag ræddi Elvar Geir Magnússon við Rúnar í fundarherbergi í Úlfarsárdalnum. Rætt er um nýtt verkefni Rúnars og ýmislegt fleira.

Oct 25, 2023

Enski boltinn - Ekki bara góður þjálfari, líka góð manneskja

Það var mjög svo áhugaverð umferð í ensku úrvalsdeildinni um liðna helgi. Það er alltaf gaman að fá enska boltann aftur að loknu landsleikjahléi. Jón Júlíus Karlsson, stuðningsmaður Newcastle, er gestur í þætti dagsins en hann ræðir við Gumma og Steinke um fína byrjun sinna manna á tímabilinu. Eddie Howe hefur sannað sig sem magnaður stjóri. Þá er farið vel yfir umferðina sem er að baki og helstu fréttapunkta í kringum deildina.

Oct 24, 2023

Heimavöllurinn: Fjölhæfi fyrirliðinn og sú flugsynda fara yfir tímabilið

Valskonurnar Fanney Inga Birkisdóttir og Málfríður Anna Eiríksdóttir áttu þrusugott og heillangt fótboltasumar þar sem þær urðu Íslandsmeistarar. Eftir gott gengi heimavið tóku þær þátt í Meistaradeildarævintýri og eru nýlentar aftur á klakanum. Klárar í gott spjall á Heimavellinum sem er sem fyrr í boði Orku Náttúrunnar og Dominos.

Oct 21, 2023

Enski boltinn - Hvað er að frétta hjá Leeds?

Enska úrvalsdeildin snýr aftur um helgina en aðalmálið í Enski boltinn hlaðvarpinu í dag er Leeds og Championship-deildin. Fjölmiðlamaðurinn Máni Pétursson er sérstakur gestur í þættinum en hann er grjótharður stuðningsmaður Leeds sem féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili. Farið var yfir tímabilið hingað til í Championship-deildinni og auðvitað var rætt eitthvað um ensku úrvalsdeildina líka.

Oct 20, 2023

Siggi Höskulds: Allir Þórsarar farnir að þrá að spila í efstu deild

Sigurður Heiðar Höskuldsson var í gær tilkynntur sem nýr þjálfari Þórs og samdi hann til þriggja ára. Þór var í þjálfaraleit eftir að ljóst varð að Þorlákur Árnason yrði ekki áfram þjálfari liðsins. Siggi var síðasta árið aðstoðarþjálfari Vals en þar áður var hann þjálfari Leiknis og gerði góða hluti þar. Hann er staddur í Belgíu og var því í símaviðtali. Hann ræðir áhuga Þórs á sér, tengingu fjölskyldunnar norður árið hjá Val, samanburður milli Þórs og Leiknis, aðkomu landsliðsfyrirliðans og ým...

Oct 18, 2023

Tiltalið: Arnór Gauti Ragnarsson mætti aftur og fór yfir sumarið

Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar er leikmaður Aftureldingar Arnór Gauti Ragnarsson en hann fer yfir tímabilið og við fáum stutt 'recap' á sumrinu frá honum.

Oct 17, 2023

Innkastið - Gylfasýning gladdi og Van Dijk lagði hönd á plóg

Ísland vann Liechtenstein 4-0 á Laugardalsvelli í kvöld. Innkastið gerir upp Gylfasýninguna og býr sig undir umspilið í mars á næsta ári. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke, Guðmundur Aðalsteinn og Sverrir Örn í Thule stúdíóinu. Einnig er rætt um fréttir úr íslenska boltanum, meðal annars þjálfaramál Haugesund og KR.

Oct 16, 2023

Útvarpsþátturinn - Landsliðið, Hannes, Haugesund og slúður

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 14. október. Umsjónarmenn: Elvar Geir og Tómas Þór. Gestur er Hannes Þór Halldórsson fyrrum landsliðsmarkvörður. Landsleikur Íslands og Lúxemborgar er gerður upp, rætt um endurkomu Gylfa og einkunnagjöf leikmanna skoðuð. Hannes ræðir um landsliðið og nýja sjónvarpsþætti um ÍA sem fara af stað á mánudaginn. Rætt er um íslenskt slúður og þjálfarakapalinn. Jörgen Freyr Ólafsson er í beinni frá Haugesundi.

Oct 14, 2023

Tiltalið: Hallgrímur Jónasson

Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er ekki leikmaður heldur þjálfari Bestu deildarliðs KA, Hallgrímur Jónasson. Við ræddum við hann um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.

Oct 11, 2023

Júlli Magg: Símtal sem breytti golfhringnum

Norska félagið Fredrikstad verður með lið í efstu deild Noregs á næsta tímabili í fyrsta sinn síðan 2012. Liðið er í toppsæti norsku B-deildarinnar þegar fjórar umferðir eru eftir og sex stigum frá því að tryggja efsta sætið. Með liðinu leikur Víkingurinn Júlíus Magnússon sem fenginn var fyrir tímabilið. Júlíus er í landsliðsverkefni þessa dagana og var hann fenginn í viðtal um landsliðið, tímabilið með Fredrikstad og Víking. Júlíus fór meðal annars yfir fjarveru sína frá landsliðsæfingu dagsins...

Oct 10, 2023

Ástríðan - Uppgjör í 3. deild

Sverrir Mar og Gylfi Tryggva fengu góða gesti þegar þeir gerðu upp tímabilið í 2.deild. Kristófer Páll (Reynir S) og Ingvi Rafn (Kormákur/Hvöt) voru gestir þáttarins. Lið Ársins, leikmaður ársins, efnilegastur og besti þjálfarinn. Allt í samstarfi við Unbroken, Preppbarinn, Bola Léttöl, JakoSport og ICE níkótínlausra púða.

Oct 10, 2023

Enski boltinn - Fætur á jörðinni og McSósan til bjargar

Hallur Flosason, fyrrum leikmaður Aftureldingar og ÍA, er gestur í Enski boltinn hlaðvarpinu í dag. Gummi og Steinke eru auðvitað á sínum stað. Hallur er mikill Arsenal maður og var að vonum ánægður með sigur sinna manna í stórleiknum gegn Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í gær. Einnig var rætt um aðra leiki helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni og aðeins farið í Championship-deildina líka.

Oct 09, 2023

Innkastið - Jarðarför í kyrrþey og Óskar farinn

Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Valur Gunnars í Innkastinu eftir 22. umferð Bestu deildarinnar. Eyjamenn eru fallnir niður í Lengjudeildina, Fylkir kláraði þetta með stæl, Fram fékk ljótan skell sem hjálpar ekki Ragga Sig, Kjartan Henry með hnífasettið og Víkingur og Stjarnan í stuði. 54:00 KAFLA SEM VAR BÆTT VIÐ! Strax eftir upptöku var tilkynnt að Óskar Hrafn væri hættur með Breiðablik. Það var ekki hægt að setja þáttinn í loftið án þess að ræða það! Hvernig verður byrjunarlið landsliðsins?...

Oct 08, 2023

Útvarpsþátturinn - Besta lokahófið, lokaumferðin og Stefán Teitur

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 7. október. Elvar Geir, Benedikt Bóas og Valur Gunnars. Fotbolti.net heldur lokahóf Bestu deildarinnar. Val á liði ársins, þjálfara ársins, leikmanni ársins, besta unga leikmanninum og besta dómaranum opinberað. Farið er yfir fótboltafréttir vikunnar og hitað upp fyrir lokaleikina í Bestu deildinni, auk þess sem Stefán Teitur Þórðarson er á línunni. Stefán Teitur skoraði hina fullkomnu þrennu gegn Íslendingaliðinu Lyngby .

Oct 07, 2023

Heimavöllurinn: Besta lokapartýið!

Besta deildin 2023 kláraðist í gærkvöldi og nú er komið að því að gera sumarið upp. Elíza Gígja og Guðmundur Aðalsteinn mæta á Heimavöllinn og fara yfir sumarið ásamt Mist Rúnarsdóttur - Í boði Orku Náttúrunnar og Dominos.

Oct 07, 2023

Ástríðan - Uppgjör í 2. deild

Sverrir Mar og Gylfi Tryggva fengu góða gesti þegar þeir gerðu upp tímabilið í 2.deild.Bragi Karl (ÍR) og Tómas Þórðarson (Dalvík) gestir þáttarins.Lið Ársins, leikmaður ársins, efnilegastur og besti þjálfarinn.Allt í samstarfi við Unbroken, Preppbarinn, Bola Léttöl, JakoSport og ICE níkótínlausra púða.

Oct 06, 2023

Tiltalið: Ívar Örn Árnason

Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er leikmaður KA - Ívar Örn Árnason. Við ræddum við hann um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.

Oct 05, 2023

Innkastið - Vesturbæjarvonir og Vestradraumar

Evrópubaráttunni í Bestu deildinni er lokið en lífsbaráttu laugardagur er framundan. Lið ársins í Lengjudeildinni er opinberað, Vestri vann 50 milljóna króna leikinn og þjálfaraskipti verða hjá KR. Elvar Geir, Baldvin Borgars og Sölvi Haralds gera upp helgina og skoða öll helstu tíðindin úr íslenska boltanum í Innkastinu.

Oct 02, 2023

Ungstirnin - Íslandsvinur og ungir Framarar bjarga hlutunum

Nýjasti þátturinn af Ungstirnunum er kominn út; þátturinn sem kynnir fyrir þjóðinni næstu stórstjörnur fótboltans. Þáttastjórnendur eru þeir Arnar Laufdal og Bjarni Þór Hafstein. Í þessum þætti kynna þeir til leiks Carlos Forbs (2004) sem seldur var til Ajax í sumar frá Man City eftir ótrúleg ár í akademíu þeirra bláklæddu. Fjallað er um Desire Doue (2005) en hann er næsta stórstjarna Rennes í frönsku úrvalsdeildinni líkt og Eduardo Camavinga var á sínum tíma. Viktor Djukanovic, Íslandsvinur (20...

Oct 02, 2023

Enski boltinn - Toppuðu sig í fáránleikanum

Það átti sér stað ótrúlegur dómaraskandall í ensku úrvalsdeildinni um liðna helgi þegar Tottenham tók á móti Liverpool. Enn ein afsökunarbeiðnin fylgdi í kjölfarið. Kristján Atli Ragnarsson, stuðningsmaður Liverpool, mætti í Thule-stúdíóið á skrifstofu Fótbolta.net og gerði málið vel upp ásamt Guðmundi Aðalsteini Ásgeirssyni og Elvari Geir Magnússyni. Einnig var farið yfir aðra leiki í umferðinni en það litu dagsins ljós mjög óvænt úrslit.

Oct 02, 2023

Útvarpsþátturinn - La Masia í Garðabæ og norsk falleinkunn

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur í hlaðvarpsformi þessa vikuna. Elvar Geir, Tómas Þór og Sæbjörn Steinke gera upp fimmtudagsumferðina í Bestu deildinni. Stjarnan er á barmi þess að ná Evrópusæti og útlitið er orðið svart í Vestmannaeyjum. Þá er rætt um 50 milljóna króna leikinn, landsliðið og fleira.

Sep 29, 2023

Heimavöllurinn: Þrjú stig og ljótur skellur

Landsliðið okkar sigraði Wales en fékk svo skell gegn Þýskalandi í fyrstu leikjum sínum í Þjóðadeildinni. Íþróttafréttamaðurinn Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson og þjálfarinn Óskar Smári Haraldsson mæta á Heimavöllinn og gera leikina upp og spá í spilin. Þátturinn er í boði Orku Náttúrunnar og Dominos.

Sep 27, 2023
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android