Þeir Jóhann Skúli Jónsson og Sverrir Mar Smárason eru þekktir þáttarstjórnendur, en þeir létu vel af stjórn í þætti dagsins. Sæbjörn Steinke fékk þáttarstjórnanda Draumaliðsins og Svona var sumarið annars vegar og þáttarstjórnanda Ástríðunnar hins vegar til að gera upp 6. umferðina í ensku úrvalsdeildinni. Jonny Evans henti upp sýningu á Turf Moor, jafntefli í Norður-Lundúna slagnum, meistararnir halda áfram að vinna, Liverpool heldur áfram að elta og hvenær mun Brighton fara hiksta? Er Mikel Ar...
Sep 26, 2023
Elvar Geir, Tómas Þór og Sæbjörn Steinke fara yfir liðna umferð í Bestu deildinni og umspil Lengjudeildarinnar. Heiðursvörður, sandkassaleikur, dómaraskandall, ömurleg frammistaða liða í neðri hlutanum og spennandi úrslitaleikir.
Sep 25, 2023
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 23. september. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Valur Gunnars fara yfir það helsta í íslenska boltanum og gera upp Evrópuleik Breiðabliks. Langleikjahæsti Víkingurinn, Halldór Smári Sigurðsson, er gestur og gefur skemmtilega innsýn inn í meistaralið Víkings. Þá er Kristján Atli sérfræðingur þáttarins um enska boltann á línunni. Vandræði Man Utd, byrjun Liverpool og Lundúnaslagurinn koma við sögu. Einnig er rætt um Íslendingaliðið Lyngby.
Sep 23, 2023
Á morgun fara fram undanúrslitin í Fótbolti.net bikarnum. Fjögur lið berjast þá um tvö pláss í úrslitaleiknum sjálfum sem fram fer á Laugardalsvellinum. Í undanúrslitunum mætast Víðir og KFG annars vegar og KFA og KFG hins vegar. Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson og Sæbjörn Þór Steinke heyrðu í dag í þjálfurunum fjórum sem stýra liðunum sem eftir eru í keppninni. Staðan var tekin fyrir morgundaginn.
Sep 22, 2023
Umspil Lengjudeildarinnar er fyrsta mál á dagskrá í Innkastinu. Elvar Geir, Baldvin Borgars og Sölvi Haralds fara yfir fyrri undanúrslitaleikina. Þá er Besta deildin einnig tekin fyrir. Fram fékk stig í Kórnum og KR náði að fresta Íslandsmeistarafögnuði Víkings. Þá er rætt um mestu skemmtikrafta deildarinnar. Einnig kemur Fótbolti.net bikarinn og 2. deildin við sögu
Sep 21, 2023
Gylfi Tryggva svaf yfir sig en galvaskir mættu Óskar Smári og Sverrir Mar fóru yfir lokaumferðina og allt þetta helsta.Ástríðan er í samstarfi við Unbroken, Preppbarinn, Jakosport, Waterclouds, Bola Léttöl og ICE Nikótínlausra púða.
Sep 20, 2023
Gummi og Steinke fengu góðan gest í Thule-stúdíóið á mánudagskvöldi því sjálfur Nablinn, Andri Már Eggertsson, mætti til þess að fara yfir enska boltann. Mikið er rætt um Manchester United en það er dökkt ský yfir Old Trafford þessa stundina. Er farið að hitna undir Erik ten Hag? Farið er yfir alla umferðina en það er ansi áhugaverð umferð að baki í enska.
Sep 18, 2023
Úrslitakeppni neðri hlutans í Bestu er lokið og það er ÍBV sem kveður deildina. Blikar rönkuðu við sér eftir dapurt gengi að undanförnu og eru aftur komnar í Evrópusæti. Framundan eru landsleikir og Meistaradeildarævintýri og það er margt að ræða. Elíza Gígja Ómarsdóttir og Lilja Dögg Valþórsdóttir mæta á Heimavöllinn og fara yfir málin með Mist Rúnarsdóttur. Í boði Dominos og Orku Náttúrunnar.
Sep 18, 2023
Íslenska fótboltahelgin er gerð upp í Innkastinu. Elvar Geir og Sæbjörn Steinke fengu til sín Viktor Jónsson, markakóng Lengjudeildarinnar, en hann hjálpaði ÍA að komast upp í Bestu deildina. Víkingur vann bikarmeistaratitilinn í vonskuveðri á laugardaginn og Breiðablik er í hættu á að komast ekki í Evrópukeppni á næsta tímabili.
Sep 18, 2023
Nýjasti þátturinn af Ungstirnunum er kominn út; þátturinn sem kynnir fyrir þjóðinni næstu stórstjörnur fótboltans. Þáttastjórnendur eru þeir Arnar Laufdal og Bjarni Þór Hafstein. Í þessum þætti kynna þeir til leiks Keito Nakamura (2000) en þetta er japanskur landsliðsmaður sem er mikið líkt við samlanda sinn Kaoru Mitoma en þeir eru báðir teknískir kantmenn . Fjallað er um Yankuba Minteh (2004) en hann var keyptur í sumar til Newcastle og lánaður til Feyenoord, virkilega spennandi kantmaður sem ...
Sep 18, 2023
Útvarpsþátturinn laugardaginn 16. september. Jörundur Áki Sveinsson yfirmaður fótboltamála hjá KSÍ er gestur. Landsliðsglugginn er gerður upp og rætt um stöðu landsliðsins. Arnar Björnsson fréttamaður minnist goðsagnarinnar Bjarna Fel sem lést í vikunni. Í seinni hluta þáttarins er svo farið yfir fótboltahelgina, meðal annars hitað upp fyrir bikarúrslitaleik Víkings og KA.
Sep 16, 2023
Framundan hjá Breiðabliki er riðlakeppni Sambandsdeildarinnar. Fyrst er þó heimaleikur í Bestu deildinni gegn FH á sunnudag. Sá leikur var fyrst settur á morgundaginn (laugardag) en sökum veðurs var hann færður fram á sunnudag. Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, ræddi við Sæbjörn Steinke um komandi átök, stöðuna á hópnum, möguleikann á styrkingu og Laugardalsvöll. Hann ræðir einnig um ferðalagið til Ísraels, æfingaleiki eftir að Íslandsmótinu lýkur og svo leik Íslands gegn Bosníu sem...
Sep 15, 2023
Valskonur eru Íslandsmeistarar þriðja árið í röð og gátu fagnað heima í sófa í gærkvöldi. Það er þó enn að mörgu að keppa í Bestu deildinni. Silfrið er enn í boði og svo á eftir að koma í ljós hvaða lið fellur niður um deild. Þær Elíza Gígja Ómarsdóttir og Lilja Dögg Valþórsdóttir mæta á Heimavöllinn og fara yfir málin ásamt Mist Rúnarsdóttur. Í boði Dominos og Orku Náttúrunnar.
Sep 15, 2023
Það vakti mikla athygli í lok félagaskiptagluggans að Eggert Aron Guðmundsson skyldi ákveða að vera um kyrrt hjá Stjörnunni þegar honum stóð til boða að semja við félög erlendis. Eggert ræddi við Sæbjörn Steinke um ákvörðun sína. Ákvörðunin var erfið en Eggert þurfti að horfa í marga hluti þegar hann var að vega og meta hvað væri best fyrir sig. Eggert ræðir í viðtalinu einnig um U19, U21, Jökul Elísabetarson, föst leikatriði Stjörnunnar og ýmislegt fleira.
Sep 14, 2023
Seint og um síðir þá komu ástríðubræður saman og fóru yfir 21. umferð í 2. og 3. deild. Það er allt á suðupunkti í þremur af fjórum vígstöðum, aðeins fallbaráttan í 2. deild er ráðin.Ástríðan er í samstarfi við Bola léttöl, Waterclouds, Unbroken, Preppbarinn, Jako Sport og ICE nikótínlausa púða.
Sep 14, 2023
Lengjudeildinni lauk með látum síðastliðinn laugardag og komið að því að gera deildina upp hér á Heimavellinum. Gestir þáttarins þekkja deildina inn og út en það eru knattspyrnuþjálfararnir Anton Ingi Rúnarsson og Magnús Örn Helgason. Þátturinn er í boði Dominos og Orku Náttúrunnar.
Sep 12, 2023
Elvar Geir, Tómas Þór og Guðmundur Aðalsteinn í nýju hljóðveri á Laugardalsvelli strax eftir 1-0 sigurinn gegn Bosníu. Alfreð Finnbogason skoraði sigurmarkið í uppbótartíma. Það er enn möguleiki á að ná öðru sætinu en þá þarf allt að ganga upp. Rýnt er í frammistöðu leikmanna, stöðuna í riðlinum og stemninguna á Laugardalsvelli. U21 landsliðið og mögulegar formannsbreytingar hjá KSÍ eru einnig til umræðu.
Sep 11, 2023
Nýjasti þátturinn af Ungstirnunum er kominn út; þátturinn sem kynnir fyrir þjóðinni næstu stórstjörnur fótboltans. Þáttastjórnendur eru þeir Arnar Laufdal og Bjarni Þór Hafstein. Í þessum þætti kynna þeir til leiks Benja Cremaschi (2005) en þessi 18 ára miðjumaður hefur verið að gera frábæra hluti með Lionel Messi og félögum í Inter Miami. Fjallað er um Oscar Gloukh (2004) en hann var keyptur í janúar til Salzburg og er haldið að það sé ástæðan af hverju Hákon Haraldsson fór ekki til Slazburg í ...
Sep 11, 2023
Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Í þessum þætti fengum við til okkar leikmann Víkings í tiltal, Danijel Dejan Djuric og fórum við yfir ferilinn hjá honum til þessa.
Sep 11, 2023
Lengjudeildin undir smásjánni í þessum Innkastþætti. Elvar Geir, Baldvin Borgars og Sölvi Haralds skoða 21. umferðina. Það er brjáluð spenna fyrir lokaumferðina sem verður á laugardaginn. ÍA er með öll spil hendi á fyrir lokumferðina, úrslitakeppnin er að taka á sig mynd og mörg lið eru í fallhættu fyrir lokaumferðina. Dalvík/Reynir er til umræðu en liðið er búið að tryggja sér sigur í 2. deildinni og leikur í Lengjudeildinni á næsta ári. Verður það ÍR eða KFA sem fylgir?
Sep 10, 2023
Tómas Þór og Benedikt Bóas í þættinum þessa vikuna. Albert Brynjar Ingason er gestur og Elvar Geir Magnússon er á línunni frá Lúxemborg. Landsliðið fékk skell og leikurinn er gerður upp. Þá er úrslitakeppnin framundan í Bestu deildinni og lið ársins, þar sem Víkingar mega ekki vera með, er valið.
Sep 09, 2023
Það er hart tekist á undir lok íslenska fótboltasumarsins. Í kvöld varð endanlega ljóst að Selfoss kveður Bestu deildina, Valur og Stjarnan fara í ferðalag í góðum gír og Þróttarar hafa fundið markaskónna á ný. Enn er svo barist um að fylgja Víkingum upp í efstu deild. Af ýmsu er að taka og þau Elísa Gígja Ómarsdóttir og Sverrir Örn Einarsson mæta á Heimavöllinn til að fara yfir það helsta. Í boði Orku Náttúrunnar og Dominos.
Sep 05, 2023
Söngvarinn Robbie Williams elskar Ange Postecoglou það mikið að hann gerði textabút honum til heiðurs. Þessi nýi stjóri Tottenham er að vinna hug og hjörtu stuðningsmanna félagsins eftir flotta byrjun á tímabilinu. Í hlaðvarpinu Enski boltinn í dag voru Hjammi og Jóhann Alfreð, skemmtikraftar og stuðningsmenn Tottenham, í heimsókn þar sem þeir ræddu um byrjunina flottu á tímabilinu og Ange-ball. Einnig var rætt um stórleik Arsenal og Manchester United, Jadon Sancho, mögulegar stjórabreytingar og...
Sep 05, 2023
20 umferðum er lokið í deildunum tveimur og enn skýrast línurnar ekki neitt. Toppbaráttan galopin í 2. deild og botnbaráttan stórbrotin í 3. deild. Sverrir og Gylfi fóru saman yfir málin.Ástríðan er í boði JakoSport, Bola Léttöl, Preppbarsins, Waterclouds, Unbroken og ICE nikótínlausra púða.
Sep 05, 2023
Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er leikmaður Þróttar og læknaneminn Elín Metta Jensen. Við ræddum við hana um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.
Sep 04, 2023
ÍR tryggði sér um helgina sigur í 2. deild og þar með sæti í Lengjudeildinni að ári. Þær Lovísa Guðrún Einarsdóttir og Sandra Dögg Bjarnadóttir voru í lykilhlutverkum hjá ÍR-liðinu og eru gestir Heimavallarins að þessu sinni. Þátturinn er sem fyrr í boði Orku Náttúrunnar og Dominos.
Sep 04, 2023
Þáttur númer 43 af Ungstirnunum er kominn út; þátturinn sem kynnir fyrir þjóðinni næstu stórstjörnur fótboltans. Þáttarstjórnendur eru þeir Arnar Laufdal og Bjarni Þór Hafstein. Í þessum þætti kynna þeir til leiks Bradley Barcola (2002) sem var nýlega keyptur frá Lyon til PSG á 45 milljónir evra. Einnig er kynntur til leiks Gift Orban (2002) en hann leikur fyrir Gent í Belgíu - sem Blikar munu mæta í Sambandsdeildinni - en Orban er búinn að vera gjörsamlega á eldi í Belgíu. Simone Pafundi (2006)...
Sep 04, 2023
22. umferð Bestu deildarinnar var leikin í dag og það er komið að tvískiptingunni. KA situr eftir með sárt ennið. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Valur Gunnars gera upp umferðina. Einnig er fjallað um Lengjudeildina og spennuna sem þar ríkir. Er í lagi að selja heimaleikinn sinn? Landsliðsverkefnið sem er framundan er skoðað. Sæbjörn setur saman líklegt byrjunarlið Íslands fyrir leikinn gegn Lúxemborg á föstudag.
Sep 03, 2023
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 2. september. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Í fyrri hlutanum: Íslenski boltinn. Flosi Eiríksson formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks mætir og ræðir um afrek Kópavogsliðsins, verkefnin framundan og það sem er í gangi hjá félaginu. Einnig er rætt um Bestu deildina. Í seinni hlutanum: Kristján Atli Ragnarsson gerir upp sumargluggann í enska boltanum. Glugginn er lokað og enn og aftur var eyðslumet slegið.
Sep 02, 2023
Það eru þrjár umferðir eftir af Lengjudeildinni, áður en kemur að úrslitakeppninni. Elvar Geir, Baldvin Borgars og Sölvi Haralds rýna í stöðu mála í þessum sérstaka aukaþætti af Innkastinu. - ÍA andar í hálsmál Aftureldingar í baráttunni um toppsætið, eina beina sætið upp í Bestu deildina. - Hvaða lið fara í úrslitakeppnina og verða skrefi frá 50 milljóna króna leiknum á Laugardalsvelli? - Hvaða lið fellur með Ægismönnum?
Aug 30, 2023