Fotbolti.net - podcast cover

Fotbolti.net

Fotbolti.netfotbolti.net
Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Tiltalið: Ásta Eir Árnadóttir

Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er fyrirliði Breiðabliks Ásta Eir Árnadóttir. Við ræddum við hana um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.

Aug 29, 2023

Innkastið - Listrænn gjörningur

Elvar Geir, Tómas Þór og Sæbjörn Steinke eftir 21. umferð Bestu deildarinnar. Breiðablik mætti of seint í Fossvoginn. Hver voru skilaboðin frá Blikum? Gyrðir sá til þess að FH vann Val og Eyjamenn náðu með naumindum að bjarga stigi úr leik sínum gegn HK.

Aug 29, 2023

Enski boltinn - Költhetjan Nunez verður að vera betri en Origi

Þriðja umferðin í ensku úrvalsdeildinni fór fram um liðna helgi og var mikið húllumhæ. Gummi og Steinke settust niður í Thule-stúdíóinu í dag til að fara í umferðina. Hringt var í Atla Má Steinarsson, Liverpool stuðningsmann, og staðan könnuð eftir magnaðan sigur á Newcastle. Darwin Nunez er költhetja í Liverpool, Man Utd kom til baka eftir skelfilega byrjun, Ange-ball er að virka vel á meðan Arteta flækir hlutina um of, Sterling er heitur og Everton er algjört þrot.

Aug 28, 2023

Heimavöllurinn: Uppgjör á seinni hálfleik í Bestu

18 umferð Bestu deildarinnar er lokið og framundan er úrslitakeppni þar sem í ljós kemur hvaða lið verður Íslandsmeistari og hvaða lið falla. Í nýjasta þætti Heimavallarins er spáð í spilin og umferðir 10-18 gerðar upp. Auðvitað í boði Dominos og Orku Náttúrunnar. Gestir þáttarins að þessu sinni eru Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson og Jón Stefán Jónsson.

Aug 28, 2023

Ástríðan 19. umferð - Suðumarki náð í Sandgerði

Sverrir Mar og Gylfi Tryggva komu saman að morgni til og fóru yfir rosalega helgi í Ástríðunni. Toppbaráttan í báðum deildum er að ná hæstu hæðum.Ástríðan er í boði Jakosport, Bola Léttöl, Preppbarsins, Unbroken og ICE nikótínlausra púða.

Aug 28, 2023

Ungstirnin - Sextán ára skrímsli og lítill töfrakall í Katalóníu

Hlaðvarpsþátturinn vinsæli Ungstirnin er snúinn aftur eftir árs langt hlé. Þátturinn sem kynnir fyrir þjóðinni næstu stórstjörnur fótboltans. Umsjón: Arnar Laufdal og Bjarni Þór Hafstein.Í þessum þætti kynna þeir Johan Bakayoko (2003) sem er belgískur landsliðsmaður og einn efnilegasti leikmaðurinn í hollensku úrvalsdeildinni. Luka Vuskovic (2007) einn mest spennandi ungi leikmaður heims um þessar mundir en hann leikur fyrir Hadjuk Split í Króatíu og er mikið orðaður við Manchester City og PSG. ...

Aug 28, 2023

Útvarpsþátturinn - Hástökk upp úr ruslflokki, Besta og Luigi

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 26. ágúst. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir allt það helsta í íslenska boltanum. Breiðablik er á barmi þess að skrifa nýjan kafla í Íslendingasögu fótboltans og gjaldkerinn er ekki eðlilega spenntur. Stefán Árni Pálsson íþróttafréttamaður skoðar komandi umferð í Bestu deildinni, Logi Tómasson er á línunni frá Noregi og Valur Gunnarsson í beinni frá bæjarhátíðinni í Mosfellsbæ en lokasprettur Lengjudeildarinnar er í fullum gangi.

Aug 26, 2023

Tiltalið: Nadía Atladóttir

Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er leikmaður nýkringdra Mjólkurbikarmeistara kvenna í Víkinga R. og fyrirliði liðsins Nadía Atladóttir. Við ræddum við hana um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.

Aug 25, 2023

Enski boltinn - Fáránleg dómgæsla og Szobo betri kostur en Mount

Önnur umferð í ensku úrvalsdeildinni er að baki en það fór fram mjög áhugaverð um liðna helgi. Gummi og Steinke fengu Jóhann Pál Ástvaldsson, íþróttafréttamann á RÚV, í heimsókn til þess að fara yfir umferðina og annað sem er að gerast í enska boltanum. Sigur Tottenham á Man Utd, ömurleg dómgæsla, Mason Mount, Dominik Szoboszlai, Phil Foden, Roberto De Zerbi og margt fleira er til umræðu í þættinum í dag.

Aug 22, 2023

Ástríðan 18. umferð - Og þá voru þau fimm

Sverrir Mar og Gylfi Tryggva komu saman og fóru yfir 18. umferðina í báðum deildum ástríðunnar.Ástríðan er í boði Bola Léttöl, Jakosport, Unbroken og ICE níkótínlausra púða.

Aug 22, 2023

Innkastið - Vantaði bara að bikarinn færi á loft

Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Valur Gunnars í Innkastinu eftir 20. umferð Bestu deildarinnar. Víkingur er með ellefu stiga forystu, Stjarnan er næstbesta lið deildarinnar og Eyjamenn eru það slakir að mögulega verður ekki spenna í fallbaráttunni. Lengjudeildin, Evrópa og smá 2. deild fylgir með.

Aug 21, 2023

Heimavöllurinn: Viva España, markabölvun og stjarnvísindi

Spánn er Heimsmeistari í fyrsta skipti í sögunni og HM hinum megin á hnettinum var stórkostleg skemmtun. Það er allt á suðupunkti hér á Íslandi og 17.umferð Bestu deildar kvenna fór fram í gær. Þær Alexandra Bía og Lilja Dögg mæta á Heimavöllinn og fara yfir málin ásamt Mist Rúnarsdóttur. Í boði Dominos og Orku Náttúrunnar.

Aug 21, 2023

Ungstirnin - Don't Call It A Comeback

Hlaðvarpsþátturinn vinsæli Ungstirnin er snúinn aftur eftir árs langt hlé. Þátturinn sem kynnir fyrir þjóðinni næstu stórstjörnur fótboltans. Nýr leikmaður er genginn til liðs við hlaðvarpið en það er Bjarni Þór Hafstein leikmaður Fjölnis í Lengjudeildinni en Arnar Laufdal og Bjarni ólust saman upp í Breiðabliki. Í þessum þætti kynna þeir Elye Wahi (2003) sem um helgina var keyptur til Lens í Frakklandi á 35 milljónir evra, Matheus Franca (2004) sem er nýjasti leikmaður Crystal Palace frá Brasil...

Aug 21, 2023

Útvarpsþátturinn - Engar afsakanir og Jölliball

Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas í hljóðveri X977. Farið er yfir íslensku fótboltavikuna, helstu fréttir og félagaskipti, Blika í Evrópu, bestu og verstu kaupin í Bestu deildinni og liðna umferð í Lengjudeildinni. Hvernig væri sameiginlegt byrjunarlið Víkings og Vals? Gestur þáttarins er Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar. Hann fer yfir starf sitt í Garðabænum, hugtakið 'Jölliball' og fyrir hvað sín hugmyndafræði stendur.

Aug 19, 2023

Heimavöllurinn: Trylltur Lengjulokasprettur

Nú er æsispennandi lokasprettur hafinn í Lengjudeild kvenna og hart barist um sæti í Bestu deildinni að ári. Á Heimavöllinn eru mættir knattspyrnuþjálfararnir Arnar Páll Garðarsson og Magnús Haukur Harðarson til fara yfir Lengjudeildarmálin með Mist Rúnarsdóttur. Þátturinn er í boði Orku Náttúrunnar og Dominos.

Aug 18, 2023

Ástríðan 17. umferð - Gott að vera Reynir

Sverrir Mar og Gylfi Tryggva mættu og fóru yfir leikina sem fóru fram í miðri viku í 2. og 3.deild karla.Ástríðan er í boði Bola Léttöl, JakoSport, Unbroken og ICE Nikótínlausra púða.

Aug 18, 2023

Heimavöllurinn: Rólegur kúreki, danskir dagar og stjörnur í augum

16. umferð Bestu deildar kvenna var að ljúka og línur aldeilis að skýrast. Fréttaritarar Fótbolta.net þeir Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson og Sverrir Örn Einarsson mæta á Heimavöllinn og fara yfir umferðina ásamt Mist Rúnarsdóttur. Þau spá svo einnig í spilin fyrir lokahnykk Heimsmeistaramótsins. Allt saman í boði Orku Náttúrunnar og Dominos.

Aug 17, 2023

Enski boltinn - Alvöru gæði í Enzo og Onana slapp með skrekkinn

Fyrsta umferð ensku úrvalsdeildarinnar er að baki og því tilvalið að gera hana upp. Gummi og Steinke fengu sér sæti í Thule stúdíóinu í morgun ásamt Tómasi Þór Þórðarsyni, ritstjóra enska boltans á Síminn Sport. Tómas er nýkominn frá London þar sem hann var á stórleik fyrstu umferðar, Chelsea gegn Liverpool. Farið var vel yfir stórleik umferðarinnar, kaupin Chelsea á Caicedo og Lavia, skiptinguna á Salah, hörmulega frammistöðu Man Utd, komandi titilbaráttu hjá Arsenal, ómannlegan Erling Haaland ...

Aug 15, 2023

Tiltalið: Eyþór Aron Wöhler

Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.

Aug 14, 2023

Innkastið - Keppt á botninum um að vera minnst lélegir

Innkastið eftir 19. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Valur Gunnars. Allt verður að gulli í Fossvoginum og forysta Víkings eykst, uppgjöf hjá HK fyrir leik, Valsmenn á lágu plani, furðulegur fótboltaleikur á Akureyri, KR og FH með mikilvæga sigra, ÍA gæti farið á topp Lengjudeildarinnar á næstu vikum.

Aug 14, 2023

Heimavöllurinn: Bikarmeistarar í heimsókn

Eins og þjóðin veit urðu Víkingar bikarmeistarar í kvennaflokki í fyrsta sinn í sögunni sl. föstudag. Víkingarnir og bikarmeistararnir Nadía Atladóttir, fyrirliði, og Erna Guðrún Magnúsdóttir kíktu í heimsókn á Heimavöllinn og fóru yfir bikarævintýrið ótrúlega. Þátturinn er í boði Orku Náttúrunnar og Dominos.

Aug 14, 2023

Útvarpsþátturinn - Beygja í Keflavík, Evrópuskellur og enski farinn í gang

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 12. ágúst. Umsjón: Elvar Geir og Benedikt Bóas. Í fyrri hlutanum er farið yfir Bestu deildina og fréttirnar þaðan, Evrópuleikina og Lengjudeildina með Magnúsi Þóri Matthíassyni fyrrum leikmanni Keflavíkur og lýsanda á Stöð 2 Sport. Í seinni hlutanum eru það bikarúrslit kvenna með Prettyboitjokko og enski boltinn með Tom og Kára Kongó.

Aug 12, 2023

Heimavöllurinn: Sögulegt og sannfærandi hjá stórkostlegum Víkingum

Sagan var skrifuð á Laugardalsvelli í gær og það var hreint ótrúleg stemmning á Þjóðarleikvanginum þegar Víkingar urðu bikarmeistarar í fyrsta skipti. Þetta var jafnframt í fyrsta sinn sem að lið úr 1. deild vinnur bikarinn. Magnað afrek sem þarf að ræða og á Heimavöllinn eru komnir þeir Guðmundur Aðalsteinn og Jón Stefán Jónsson sem ætla jafnframt að fara yfir gang mála í Bestu deildinni. Að sjálfsögðu í boði Dominos og Orku Náttúrunnar.

Aug 12, 2023

Enski boltinn - Spjallað um Liverpool og leitina að varnartengiliðnum

Enska úrvalsdeildin hefst í kvöld þegar nýliðar Burnley mæta Englandsmeisturum Manchester City. Síðustu daga höfum við hitað upp fyrir deildina með því að fá stuðningsmenn 'topp sex' liðanna í spjall og í dag er komið að Liverpool sem á ansi stóran aðdáendahóp hér á landi. Hrafn Kristjánsson og Magnús Haukur Harðarson komu í heimsókn til að ræða sitt félag. Það hefur mikið gengið á hjá Liverpool í sumar, og sérstaklega síðasta sólarhringinn eða svo. Auðvitað var rýnt söguna um Moises Caicedo ása...

Aug 11, 2023

Innkastið - Jólasveinar og spjót beinast að markvörðum

18. umferð Bestu deildarinnar, Lengjudeildin, Evrópuverkefnin og Fótbolti.net bikarinn. Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars fara yfir málin í Innkastinu. Arnar kallaði dómarana jólasveina og fékk rautt, Raggi Sig náði í stig, Jajalo í ruglinu gegn Val, KR vann Blika í veisluleik og Stjarnan mun betri en ÍBV í Þjóðhátíðarleiknum.

Aug 09, 2023

Enski boltinn - Hafa báðir haldið með City í meira en hálfa öld

Við á Fótbolti.net höldum áfram að hita upp fyrir ensku úrvalsdeildina sem hefst á föstudaginn. Í dag fengum við tvo Manchester City menn í heimsókn, þá Magnús Ingvason og Sigurð Helgason. Þeir hafa báðir haldið með Manchester City í meira en 50 ár, meira en hálfa öld. Magnús byrjaði að halda með City 1968, ári eftir að liðið varð þá Englandsmeistari. Sigurður útskýrir það í þættinum af hverju hann heldur með félaginu. Þeir eru auðvitað brattir fyrir tímabilinu sem er framundan eftir magnað síða...

Aug 09, 2023

Enski boltinn - Spá Chelsea í topp fjóra eftir ruglið á síðustu leiktíð

Við á Fótbolti.net höldum áfram að hita upp fyrir ensku úrvalsdeildina sem hefst á föstudaginn. Í dag er komið að því að ræða við tvo Chelsea menn, þá Harald Örn Haraldsson og Stefán Martein Ólafsson. Síðasta tímabil var erfitt hjá Chelsea og sumarið hefur verið kostulegt þar sem fjöldi leikmanna hefur farið og margir nýir hafa komið inn. Þetta getur ekki verið verra en á síðustu leiktíð. Chelsea byrjar á leik gegn Liverpool um næstu helgi og eru þeir félagar brattir fyrir leikinn.

Aug 08, 2023

Enski boltinn - Hrein norðlenska Vol. 2

Þeir eru mættir aftur! Bræðurnir Hallgrímur Mar og Hrannar Björn hita upp með Sæbirni Steinke fyrir komandi tímabil hjá Manchester United. Fótbolti.net heldur áfram að hita upp fyrir tímabilið í ensku úrvalsdeildinni sem hefst um næstu helgi og fer fyrsti leikur Man Utd fram næsta mánudagskvöld. Rætt var um fyrsta tímabil hjá United undir stjórn Ten Hag, nýju leikmennina, snert á flestum leikmönnum og ýmsar vangaveltur. Í lok þáttar var aðeins farið yfir komandi verkefni hjá KA en liðið mætir Cl...

Aug 07, 2023
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android