Fotbolti.net - podcast cover

Fotbolti.net

Fotbolti.netfotbolti.net
Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Enski boltinn - Löngu kominn tími á málm hjá Tottenham

Enska úrvalsdeildin hefst í kvöld með leik Crystal Palace og Arsenal á Selhurst Park. Síðustu daga höfum við verið að hita upp fyrir þessa frábæru skemmtun sem er framundan. Í dag mættu tveir grjótharðir Tottenham menn á skrifstofu Fótbolta.net, Hörður Ágústsson og Ingimar Helgi Finnsson (litla flugvélin). Það ríkir bjartsýni fyrir tímbilinu hjá Spurs og núna er kominn tími á að taka málm. Rætt var um ýmislegt í þættinum; síðasta tímabil, Antonio Conte, leikmannagluggann í sumar og væntingar fyr...

Aug 05, 2022

Enski boltinn - Bergmann bræður rýna í Man Utd

Fótbolti.net heldur áfram að hita upp fyrir tímabilið í ensku úrvalsdeildinni sem hefst um helgina. Þátturinn er tekinn upp á Akureyri. nánar tiltekið í KA heimilinu. Sæbjörn ræðir við þá bræður Hallgrím Mar og Hrannar Björn sem eru miklir Man Utd stuðningsmenn. Rætt er um nýja stjórann Erik ten Hag, leikmannamál og almennt spáð í spilin.

Aug 05, 2022

Enski boltinn - Chelsea aldrei neðar en í þriðja sæti

Við höldum áfram að hita upp fyrir ensku úrvalsdeildina sem hefst núna á föstudaginn. Í dag er sérstakur Chelsea þáttur. Guðmundur Aðalsteinn settist niður með Stefáni Marteini Ólafssyni og Damir Muminovic, sem eru báðir grjótharðir Chelsea menn. Rætt er um síðustu tímabil, sumargluggann, undirbúningstímabilið og tímabilið sem er framundan. Hver á að skora mörkin fyrir Chelsea á þessari leiktíð?

Aug 03, 2022

Barcelona á gjörgæslu en hættir ekki að kaupa - Hvað er í gangi?

Barcelona er með skuldir upp á 1,3 milljarð evra en hefur samt einhvern veginn tekist að kaupa leikmenn fyrir mikið meira en 100 milljónir evra í sumar. Þetta sögufræga félag hefur tekið vafasamar ákvarðanir á síðustu árum og kórónuveirufaraldurinn lék þá grátt. Þrátt fyrir þessa slæma stöðu á ekki að leggjast niður, það á að spýta í lófana. En hvernig hefur félagið tök á því? Og er það virkilega góð ákvörðun? Við fengum Björn Berg Gunnarsson, deildarstjóra greiningar hjá Íslandsbanka, til þess ...

Aug 03, 2022

Enski boltinn - Tekur City þann þriðja í röð?

Enska úrvalsdeildin fer af stað á föstudaginn. Fótbolti.net hefur síðustu daga verið að hita upp fyrir deildina og mun halda því áfram fram að fyrsta leik. Við spáum í deildina og heyrum í stuðningsmönnum. Þá mæta stuðningsmenn liðanna í topp sex í hlaðvarpsþætti þar sem þeir ræða um sitt lið og tímabilið sem er framundan. Í dag - í þriðju útgáfunni fyrir komandi leiktíð - er sérstakur Manchester City þáttur, Englandsmeistararnir eru teknir fyrir. Guðmundur Aðalsteinn settist niður með Magnúsi I...

Aug 02, 2022

Útvarpsþátturinn - Íslensk yfirferð og enski nálgast

Útvarpsþátturinn í verslunarmannahelgargír laugardaginn 30. júli. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir það helsta í íslenska boltanum. Breiðablik og Víkingur í Sambandsdeildinni og félagaskiptaglugginn eru til umræðu. Enska úrvalsdeildin er handan við hornið. Við hverju má búast? Tryggvi Páll ræðir um Man Utd. Arnar Daði í beinni frá Eyjum og Þórir Hákonar fer yfir peningamál og fleira.

Jul 30, 2022

Ástríðan - 2. deildar special - 13. og 14. umferð

Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport og ICE. Sverrir Mar, Gylfi Tryggva og Óskar Smári hittust og ræddu stóru málin í 2. deild karla. Farið yfir tvær umferðir, félagaskipti og hvaða lið eru að snúa genginu við í báðar áttir. Top3 og bottom3 spá með Acan.is. Línur eru við það að skýrast og spennan að magnast. Hlustaðu í spilaranum hér, í Podcast appinu eða á Spotify.

Jul 29, 2022

Ástríðan - 3. deildar special - 13. og 14. umferð

Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport og ICE. Sverrir Mar, Gylfi Tryggva og Óskar Smári hittust og ræddu stóru málin í 3. deild karla. Farið yfir tvær umferðir, félagaskipti og hvaða lið eru að snúa genginu við í báðar áttir. Top3 og bottom3 spá með Acan.is. Línur eru við það að skýrast og spennan að magnast.Hlustaðu í spilaranum hér, í Podcast appinu eða á Spotify.

Jul 29, 2022

Enski boltinn - Liverpool samfélagið aldrei verið veikara

Enska úrvalsdeildin fer af stað um næstu helgi, veislan er að fara að byrja aftur. Fótbolti.net mun næstu daga hita upp fyrir deildina, til að mynda með sérstökum hlaðvörpum þar stuðningsmenn liðanna í topp sex fá að láta ljós sitt skína. Í dag er sérstakur Liverpool þáttur. Guðmundur Aðalsteinn settist niður með Sóla Hólm, formanni samfélagsins, og fjölmiðlamanninum Atla Má Steinarssyni. Rætt var um hið stóra Liverpool samfélag sem hefur aldrei verið veikara en núna, síðasta tímabil og tímabili...

Jul 28, 2022

Enski boltinn - Arsenal upphitun með Skagafrændum

Það styttist í að enska úrvalsdeildin fari af stað og í tilefni af því er Fótbolti.net byrjaður að hita upp fyrir komandi tímabil. Í dag var sérstakur Arsenal þáttur. Sæbjörn Steinke ræddi við þá Albert Hafsteinsson og Lúðvík Gunnarsson og var farið yfir sumargluggann hjá Arsenal. Spáð var í spilin fyrir komandi tímabil, hvar þyrfti helst að styrkja liðið, hver eru markmiðin og ýmislegt fleira.

Jul 27, 2022

Innkastið - Niðurlægingar á heimavöllum, rauð spjöld og formannspistill

Innkastið þegar aðeins einum leik er ólokið í 14. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir heldur um stjórnartaumana að nýju, Sæbjörn Steinke er nýkominn af Meistaravöllum og hinn ástríðufulli Óskar Smári Haraldsson er með þeim í þættinum. ÍA og Leiknir töpuðu á niðurlægjandi hátt á heimavöllum, Fram er í gírnum, ÍBV komið með tvo sigra í röð en geymir stjörnur á bekknum, rauð spjöld fór á loft, Breiðablik missti af stigum, Óli Jó mættur aftur, formaður KR tók upp pennann, KA gerði góða ferð suður,...

Jul 26, 2022

Heimavöllurinn á EM: Fjögur fræknu berjast um titilinn

Það er örstutt eftir af stórskemmtilegu EM í Englandi og spennan er óbærileg. Þær Guðrún Jóna Kristjánsdóttir og Lilja Dögg Valþórsdóttir litu við á Heimavellinum og fóru yfir mótið til þessa og spáðu fyrir um framhaldið. Það er einnig nóg um að vera í neðri deildunum hér heima og Besta deildin fer aftur af stað í vikunni. Þátturinn er sem fyrr í boði Dominos, Heklu og Orku Náttúrunnar.

Jul 25, 2022

Útvarpsþátturinn - Öflug Evrópuúrslit, Besta deildin og Lengjan

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 23. júlí. Elvar Geir, Tómas Þór og Úlfur Blandon fara yfir allt það helsta í íslenska boltanum. Sambandsdeildin, Besta deildin og Lengjudeildin til umfjöllunar. Ennig er rætt við Jón Sveinsson, þjálfara Fram. Farið er yfir öll helstu tíðindin úr íslenska boltanum, ýmsar vangaveltur og einhverjir slúðurmolar fá að fjúka.

Jul 23, 2022

Innkastið - Miklar hræringar og vesen í Vesturbæ

Ungstirni fótboltafréttamennskunnar, Arnar Laufdal, stýrir Innkastinu að þessu sinni. Með honum í þættinum er Eysteinn Þorri Björgvinsson og Andri Már 'Nablinn' Eggertsson, íþróttafréttamaður á Sýn. Aðalumræðuefnið er Besta deildin og 13. umferð hennar. Farið er yfir hræringarnar hjá Val og FH, vesenið í Vesturbænum, Evrópuleikina, Lengjudeildina og fleira. Þátturinn er í boði White Fox, refurinn maður lifandi.

Jul 20, 2022

Á kaffihúsi í Svíþjóð með Brynjari Birni - Frá Lengjudeildinni í Superettan

Brynjar Björn Gunnarsson tók við liði Örgryte í Svíþjóð í maí. Hann hafði þess áður verið aðalþjálfari HK en skipti um lið þegar bara 2 leikir voru búnir af mótinu hér heima. Þetta hefur verið erfitt tímabil hjá Örgryte þar sem þeim var spáð góðu gengi fyrir mót en sitja nú í fallsæti. Haraldur Örn Haraldsson, fréttamaður Fótbolta.net, settist niður með Brynjari á kaffihúsi í Gautaborg og spjallaði við hann. Það var farið yfir feril hans sem leikmaður, tími hans sem aðstoðarþjálfari Stjörnunnar,...

Jul 20, 2022

Ástríðan - 12. umferð - Ólsarar vakna en þungt ský yfir Grafarvogi

Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport og ICE.Óskar Smári og Sverrir Mar mættu og fóru yfir 12. umferð í báðum deildum. - Ólafsvík með sigur en Ægismenn sleppa með skrekkinn- Líf í Magnamönnum en Njarðvík hangir á lyginni- Munu Haukar blanda sér í toppinn?- Talið upp hvaða Káramenn vantaði- Mörg töp í röð hjá Vængjum og ÍH- Víðismönnum fannst létt að spila á HöfnHlustaðu í spilaranum hér, í Podcast appinu eða á Spotify.

Jul 20, 2022

EM Innkastið - Markmiðið náðist ekki en þjóðin er stolt

Sjötta og síðasta EM Innkastið þetta sumarið. Ísland er úr leik og komið að kveðjustund á hótelbarnum í Crewe. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn eru komnir "heim" til Crewe eftir tveggja daga sólarlandaferð til Rotherham. Leikurinn við Frakkland er gerður upp, farið yfir leikdaginn, byrjunarliðið óvænta, einkunnir Íslands, alla 1-1 leiki ferðarinnar og það áhugaverðasta úr viðtölum eftir leik. Þá er valinn besti leikmaður Íslands á mótinu.

Jul 19, 2022

EM Innkastið - Eyjastemning í Rotherham

EM Innkastið er sent út frá sveitinni að þessu sinni, rétt fyrir utan Rotherham. Elvar, Steinke og Gummi (stundum kallaður Gvendur) eru á sínum stað en sérstakur heiðursgestur er Svava Kristín Grétarsdóttir, íþróttafréttakona á Stöð 2. Það er Eyjaþema í þættinum þar sem hitað er upp fyrir lokaleik riðilsins, leikinn erfiða gegn Frakklandi. Í þættinum er rætt um Rotherham, New York völlinn, einræðisherrann við stjórnvölinn og svör Steina á fréttamannafundinum í dag.

Jul 17, 2022

EM Innkastið - Færi í súginn og þörf á Krísuvíkurleið

Aftur varð niðurstaðan 1-1 jafntefli, núna gegn Ítalíu. Ísland þarf að komast Krísuvíkurleiðina ef sæti í úrslitakeppninni á að nást. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn fá sér sæti á hótelbarnum fræga í Crewe og gera upp leikinn og skoða möguleika Íslands. Í lok þáttarins er svo farið yfir víðan völl og rætt um Evópuleiki og Lengjudeildina.

Jul 14, 2022

EM Innkastið - Að duga eða drepast í Manchester

Bjarni Helgason, blaðamaður á Morgunblaðinu, er heiðursgestur EM Innkastsins að þessu sinni. Hann ræðir við Elvar, Steinke og Gumma um komandi leik gegn Ítalíu, sífelldar ferðir hans og Eggerts ljósmyndara til Manchester og hverju má búast við í leiknum á morgun. Hver fer á vítapunktinn ef við fáum víti? Í lok þáttar er farið um víðan völl og meðal rætt um skoðunarferð til Liverpool, Kristal Mána og Víking og fleira.

Jul 13, 2022

Heimavöllurinn: Klúður gegn Belgíu, næst eru rassskelltir Ítalar og 100 leikja Fanndís Friðriksdóttir

Í boði Landsbankans, Orku Náttúrunnar, Dominos og Heklu er fyrsti leikur Íslands á EM gerður upp með Báru Kristbjörgu knattspyrnusérfræðing ásamt því að fara yfir einstaklingsframmistöður og möguleika Íslands í riðlinum. Við heyrðum einnig í Fanndísi Friðriksdóttir sem hefur farið á öll stórmót Íslands hingað til og er einn af þeim Íslendingum sem hefur tekist að skora mark á stórmóti í knattspyrnu

Jul 12, 2022

Ástríðan - 11. umferð - Tímabilið hálfnað en engar línur að skýrast

Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport og ICE.Gylfi Tryggva og Óskar Smári hittust síðla kvölds og ræddu stóru málin í 2. og 3. deild karla. Tímabilið er hálfnað og margt í gangi. Þjálfaraskipti, félagaskipti, lið að snúa genginu við í báðar áttir og spennan magnast upp!-Njarðvík óstöðvandi.-Ægir með yfirburði í toppslagnum.-Fjarðabyggðarhöllin er ekkert til að grínast með.-Hvaða annað lið ætti að falla úr 2. deild?-Dalvík/Reynir blésu lífi í sínar vonir.-Kári að koma bakdyramegin í toppbar...

Jul 12, 2022

EM Innkastið - Leikur sem átti að vinnast

EM Innkastið er sent út beint frá Englandi þar sem Evrópumót kvennalandsliða fer fram. Fréttamenn Fótbolta.net ræða málin. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn fá sér sæti á hótelbar íslenska fjölmiðlahótelsins. Í þessum öðrum þætti er 1-1 jafnteflisleikurinn gegn Belgíu gerður upp. Ísland fékk heldur betur tækifæri á að taka öll stigin en það gekk ekki upp. Hvernig líta möguleikarnir út núna? Í þættinum er einnig rætt um skrautlega stuðningsmenn, kynninguna á Haaland, maður dagsi...

Jul 10, 2022

Heimavöllurinn á EM: Troðfullt í leikhúsi draumanna og veislan loks hafin

Það er enskt þema á Heimavellinum í dag. EM í Englandi er hafið og leitað var til tveggja enskra sérfræðinga til að fara yfir málin. Þeir Nik Chamberlain og Jamie Brassington, aðal- og markmannsþjálfari Þróttar, mættu og ræddu EM, England, Ísland og í raun allt milli himins og jarðar. Gáfu meðal annars nokkur góð ferðaráð enda fjölmargir stuðningsmenn íslenska landsliðsins á leið til Englands að styðja við stelpurnar okkar. Þátturinn er sem fyrr í boði Dominos, Heklu, Orku Náttúrunnar og Landsba...

Jul 08, 2022

EM Innkastið - McLeigubíll, lífið í Crewe og byrjunarlið Íslands

EM Innkastið er sent út beint frá Englandi þar sem Evrópumót kvennalandsliða fer fram. Fréttamenn Fótbolta.net ræða málin. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn fá sér sæti á hótelbar íslenska fjölmiðlahótelsins. Í þessum fyrsta þætti ræða þeir um lífið í Crewe þar sem bækistöðvar íslenska liðsins eru, stóru fréttirnar í breskum stjórnmálum, velja leigubílstjóra sem mann dagsins, fara yfir líklegt byrjunarlið Íslands og ýmislegt tengt stelpunum okkar.

Jul 07, 2022

Ástríðan - 9. og 10. umferð - Tvöföld yfirferð í báðum deildum

Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport og ICE.Óskar Smári og Sverrir Mar mættu og fóru yfir tvöfalda umferð í báðum deildum. Toppbarátta og fallbarátta báðum megin og spenna að færast í leikana.Hlustaðu í spilaranum hér, í Podcast appinu eða á Spotify.

Jul 07, 2022

Heimavöllurinn á EM: D fyrir drama, dauðariðil, dreka eða drauma?

Í boði Orku Náttúrunnar, Dominos, Landsbankans og bílaumboðsins Heklu hitar Heimavöllurinn upp fyrir EM sem hefst í dag! Nú er komið að því að skoða D-riðilinn en það er riðillinn sem að stelpurnar okkar leika í ásamt Belgíu, Ítalíu og Frakklandi. Þær Lilja Dögg Valþórsdóttir og Ingunn Haraldsdóttir mættu í stúdíóið og fóru yfir málin.

Jul 06, 2022

Heimavöllurinn á EM: Ver Wiegman titilinn? Öll augu á Hegerberg í endurkomunni

Í boði Orku Náttúrunnar, Dominos, Landsbankans og bílaumboðsins Heklu hitar Heimavöllurinn upp fyrir EM á Englandi! Knattspyrnukonurnar Ingunn Haraldsdóttir og Lilja Dögg Valþórsdóttir mættu og fóru yfir A-riðil mótsins. Í honum leika gestgjafarnir í Englandi, Austurríki, Noregur og nýliðar Norður-Írlands.

Jul 05, 2022

Innkastið - Dómarinn kann ekki reglurnar og KR fjarlægist bestu liðin

Elvar Geir Magnússon og Sæbjörn Steinke eru í Innkasti vikunnar. Með þeim er Runólfur Trausti Þórhallsson, KR-ingur og íþróttafréttamaður á Vísi. Rætt er um hörmulega dómgæslu en frábæra frammistöðu Víkings í Malmö og svo farið yfir elleftu umferð Bestu deildarinnar. Einnig er Lengjudeildarhornið á sínum stað.

Jul 05, 2022

Sara er komin aftur - Fyrirliðinn fer yfir síðastliðin tvö ár

Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins, setti sér það markmið þegar hún var barnshafandi á síðasta ári að spila fyrir Ísland á Evrópumótinu. Hún er núna mætt ári síðar til Þýskalands þar sem hún hefur tekið þátt í undirbúningi fyrir mótið. Það eru núna fimm dagar í fyrsta leik Íslands á mótinu og settist fyrirliðinn niður með fréttamanni Fótbolta.net á hóteli landsliðsins í Þýskalandi núna rétt áðan. Sara, sem er einhver mesti sigurvegari sem Ísland hefur átt, ræddi um ýmisleg...

Jul 05, 2022
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android