Fotbolti.net - podcast cover

Fotbolti.net

Fotbolti.netfotbolti.net
Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Heimavöllurinn: Lifandi hliðarlína, lopapeysur og úrslitaleikur hjá topp 2

Þegar ein umferð er eftir af Lengjudeildinni er ljóst hvaða lið fara upp og hver fara niður. María Dögg Jóhannesdóttir og Telma Hjaltalín, fulltrúar Tindastóls og FH, sem hafa þegar tryggt sér sæti í efstu deild að ári mæta á Heimavöllinn og fara yfir sumarið. Þær hita líka upp fyrir lokaumferðina en í henni mætast einmitt toppliðin tvö og berjast um sigur í deildinni. Þátturinn er sjálfsögðu í boði Dominos, Heklu og Orku Náttúrunnar sem standa þétt við bakið á umfjöllun um knattspyrnu kvenna.

Sep 13, 2022

Innkastið - Draumaumferð KA, glataðir Valsarar og Stjarnan í frjálsu falli

Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn í Innkastinu eftir 21. umferð Bestu deildarinnar. KA nálgast Evrópu, Víkingar á flugi, tíu Leiknismenn unnu glataða Valsara, Gummi Magg með tvö í Eyjum, Stjarnan í frjálsu falli og Skagamenn leiddir til slátrunar í Krikanum. Næsta umferð er skoðuð, vangaveltur um þjálfaramál. Er Gamla bandið að mæta aftur? Sverrir Örn kemur með skýrslu úr Keflavík, við heyrum hljóðið í leikmönnum deildarinnar og í lokin er svo Nökkvi Þeyr Þórisson í viðtali frá...

Sep 12, 2022

Útvarpsþátturinn - Bestir í Lengju, fréttir vikunnar og stjóraskipti Chelsea

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 10. september. Umsjón: Elvar Geir og Sæbjörn Steinke. Hjammi ræðir um frestunina á Englandi, opinberað er lið ársins í Lengjudeildinni, farið yfir fréttir vikunnar og næstu umferð í Bestu deildinni, kvennalandsleikurinn ber á góma, rætt um Evrópufótboltann og Stefán Marteinn skoðar stjóraskiptin óvæntu hjá Chelsea.

Sep 10, 2022

Innkastið - Níu eða tíu fingur og eitt stykki Beershot

S-in þrjú, Sæbjörn Steinke, Sigurður Orri og Sverrir Mar gerðu upp 20. umferðina í Bestu deildinni. Rætt var ítarlega um alla sex leikina og fréttir tengdar liðunum. Umferðin var mjög góð fyrir Breiðablik sem styrkti stöðu sína á toppnum. Næstu fimm lið í deildinni töpuðu öll stigum. Á Akranesi voru lagðir út þrír fjarkar og FH nýtti ekki víti sín. KA er á leið í sjö leikja úrslitakeppni og margt fleira er rætt í þættinum.

Sep 06, 2022

Ástríðan - 20. umferð - Dalvíkingur dæmir hjá Dalvík og Þróttur í Lengjudeildina

Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport, ICE, Preppbarsins og svo er nýjasti vinur Ástríðunnar í miðbænum Session Craft Bar. Allir mættir til þess að fara yfir liðna helgi þegar spiluð var 20.umferð í báðum deildum. Meðal umræðuefnis: - Víðismenn dottnir úr baráttunni í 3.deild- Tvo leiki í röð dæmir Dalvíkingur leik hjá Dalvík- Meintir fordómar á Höfn- Var Baddi Borgars fat shameaður?- Þróttur R. komnir upp og vel að því komnir- Spennan magnast á botni 3.deildar þar sem fleiri lið eru að dr...

Sep 06, 2022

Enski boltinn - Velkomnir úr draumalandinu og flókið draumalið

Þeir Sæbjörn Steinke og Aksentije Milisic fara yfir sjöttu umferðina í ensku úrvalsdeildinni. Það urðu nokkur ansi athyglisverð úrslit um helgina og mörg vafaatriði sem hægt var að tala um. Man Utd vann sinn fjórða leik í röð þegar liðið lagði topplið Arsenal, Liverpool tapaði stigum í fjórða leiknum á tímabilinu, City náði ekki að leggja Villa og Chelsea var stálheppið að vinna. Brighton heldur svo áfram að heilla og Ivan Toney var maður helgarinnar. Í lok þáttar eru svo valin draumalið skipað ...

Sep 05, 2022

Útvarpsþátturinn - Gósentíð í íslenska og enska

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 3. september. Það er allt í gangi í boltanum og nóg að fara yfir við hringborðið. Elvar Geir, Benedikt Bóas og Orri Freyr rýna í undanúrslitaleikina áhugaverðu i bikarnum sem fram fóru í vikunni. Víkingur og FH munu mætast í úrslitum. Hitað er upp fyrir næstu umferð í Bestu deildinni. Fjallað er um enska boltann, gluggakaupin og Kristján Atli gerir upp Everton - Liverpool. Þá ræðir Guðmundur Aðalsteinn um leið íslenska kvennalandsliðsins á HM....

Sep 03, 2022

Heimavöllurinn: Mætum og klárum dauðafærið!

FH-konur hafa verið á flugi og leika í Bestu deildinni að ári. Valskonur svífa vængjum þöndum og eru á leið til Prag. Eru stelpurnar okkar á leiðinni á HM? Það gæti skýrst á næstu dögum. Fyrrum landsliðskonurnar og legendin, Guðrún Jóna Kristjánsdóttir og Sonný Lára Þráinsdóttir, fara yfir allt saman á Heimavellinum. Auðvitað í boði Dominos, Heklu og Orku Náttúrunnar.

Sep 01, 2022

Ástríðan - 19. umferð - Hart barist á báðum endum í 3.deild, fáum við fallbaráttu í 2.deild?

Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport, ICE, Preppbarsins og svo er nýjasti vinur Ástríðunnar í miðbænum Session Craft Bar. Sverrir Mar og Gylfi Tryggva mættu til þess að fara yfir liðna helgi þegar spiluð var 19.umferð í báðum deildum.Meðal umræðuefnis: - Ofsaleg toppbarátta í 3.deild- ÍH og Vængir opnuðu fallbaráttuna- Kári Péturs og Andri Júl að lauma sér í markakónginn- Höttur/huginn er heitasta lið 2.deildar- Maggi Matt með pillu á Badda Borgars sem skipti svo sjálfum sér inná í næsta ...

Aug 31, 2022

Innkastið - Uppgjör á slóðum séra Friðriks

Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas gera upp 19. umferðina í Bestu deildinni og ræða helstu fréttir tengdar deildinni. Þátturinn var tekinn upp á Hlíðarenda, strax eftir 1-1 jafntefli Vals og Fram. Völsurum mistókst að henda sér í alvöru Evrópubaráttu, Víkingar unnu KA í leikjum sem var fullur af umdeildum atvikum, Atli Jónasson fékk á sig fjögur gegn Breiðabliki, ÍA elskar að spilar í Keflavík, hundleiðinlegur leikur á Meistaravöllum og ráðgjafinn fjarverandi þegar ÍBV vann Stjörnuna.

Aug 29, 2022

Enski boltinn - Salah pirrar marga, Nallarar missa sig og óvænt verkefni

Gummi og Steinke settust niður í dag og fóru yfir fjórðu umferðina í ensku úrvalsdeildinni í hlaðvarpinu Enski boltinn. Það var margt áhugavert sem átti sér stað í umferðinni sem var um helgina. Man Utd er hægt og rólega að hrökkva í gang, Liverpool svaraði með flugeldasýningu, Brighton er á flugi, Chelsea vann einum færri, Haaland í stuði, Nallarar í skýjunum, Tottenham er vél sem mallar og Gerrard verður fyrst rekinn. Þetta og margt fleira í þætti dagsins. Það var jafnframt boðið upp á óvænt v...

Aug 29, 2022

Útvarpsþátturinn - Besta, Dagur Dan og enski

Útvarpsþátturinn laugardaginn 27. ágúst. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Rætt um Bestu deildina og val á úrvalsliði umferða 10-18 opinberað. Guðmundur Steinarsson ræður um Vaduz í Sambandsdeildini. Dagur Dan Þórhallsson leikmaður Breiðabliks og U21 landsliðsins er gestur og Tryggvi Páll Tryggvason ræðir við Tom um Man Utd og enska boltann.

Aug 27, 2022

Heimavöllurinn: París kallar, bestar í 2/3 og bikartryllingur

Það er þéttsetið á Heimavellinum þessi misserin enda nóg um að vera. Landsliðskonurnar okkar eru að ganga til liðs við stórlið á meginlandinu, landsliðshópurinn er klár fyrir lokasprettinn á leiðinni á HM og bikarúrslitaleikurinn fer fram á laugardag. Þá er einnig nóg um að vera í öllum deildum hérlendis og komið að því að tilkynna um bestu leikmenn í öðrum þriðjungi Bestu deildarinnar. Gestir þáttarins að þessu sinni eru þau Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson og Lilja Dögg Valþórsdóttir og þátturi...

Aug 25, 2022

Ástríðan - 17. og 18. umferð í 3. deild - Nú byrjar ballið og megi besta liðið vinna

Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport, ICE, Preppbarsins og svo er nýjasti vinur Ástríðunnar í miðbænum Session Craft Bar. Sverrir Mar og Gylfi Tryggva mættu til þess að fara yfir liðna helgi þegar spilaðar voru 17. og 18. umferð í 3. deildinni. Meðal umræðuefnis: - Ofsaleg toppbarátta- ÍH eru að bjarga sér annað árið í röð- KFG að kólna- Brotlentir Vængir- Stigasöfnun ElliðaHlustaðu í spilaranum hér, í Podcast appinu eða á Spotify.

Aug 25, 2022

Enski boltinn - Man Utd fyrir ofan Liverpool, bíddu ha?

Það var farið vel yfir stórleik gærdagsins í hlaðvarpinu um Enska boltann í dag. Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Þór Steinke settust niður með litlu flugvélinni, Ingimar Helga Finnssyni, og fóru yfir þriðju umferðina. Þá var hringt í Atla Má Steinarsson, einn harðasta stuðningsmann Liverpool, og fór hann yfir málin hjá sínu félagi sem hefur farið illa af stað. Þetta eru tæplega 100 mínútur af umræðu um enska boltann, það er ekki hægt að láta þetta fram hjá sér fara.

Aug 23, 2022

Innkastið - Upprisan á botninum og vígsla KA

Átjánda umferð Bestu deildarinnar var vægast sagt tíðindamikil. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Sverrir Mar gera umferðina upp. Öll þrjú neðstu lið deildarinnar unnu, jafnteflin reynast Víkingum dýr, Blikar sýndu fagmennsku í dal draumanna og KA heldur sér á sigurbraut. Tvö bestu lið Lengjudeildarinnar mætast í kvöld og Njarðvíkingar eru komnir upp úr 2. deildinni.

Aug 23, 2022

Ástríðan - 17. og 18. umferð í 2. deild - Njarðvík í Lengjuna og deildin er búin, eða hvað?

Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport, ICE, Preppbarsins og svo er nýjasti vinur Ástríðunnar í miðbænum Session Craft Bar.Sverrir Mar og Gylfi Tryggva mættu til þess að fara yfir liðna helgi þegar spiluð var 17. og 18. umferð í 2. deildinni. Meðal umræðuefnis: - Njarðvík spiluðu í Valstreyjum og tryggðu sig upp- Ægismönnum fatast flugið- Magni eiga möguleika en samt ekki- Reynismenn fallnir- Þróttur R á leið upp með Hinrik Harðar í fararbroddiHlustaðu í spilaranum hér, í Podcast appinu eða...

Aug 23, 2022

Útvarpsþátturinn - Læti í Kórnum, enskur stórleikur og Danijel Djuric

Af nægu að taka í útvarpsþættinum Fótbolti.net þessa vikuna. Elvar Geir og Tómas Þór á sínum stað. Farið er yfir íslensku fótboltavikuna og Mjólkurbikarinn; lætin í Kórnum og leikinn stórskemmtilega milli Víkings og KR, auk þess sem næsta umferð Bestu deildarinnar er skoðuð. Kristján Atli Ragnarsson rýnir í komandi stórleik Manchester United og Liverpool sem verður á mánudagskvöldið. Nýjasta stjarna Bestu deildarinnar, Danijel Djuric, er gestur þáttarins en hann fer svakalega líflega af stað í b...

Aug 20, 2022

Ungstirnin - Transfer Special

Í þessum þætti er fjallað um þau ungstirni sem hafa verið að byrja vel í ensku úrvalsdeildinni, ungstirnaliðið FC Nordsjælland situr á toppi dönsku úrvaldsdeildarinnar, ungstirni á ferð og flugi um alla Evrópu að skipta um félög, Football Manager og svo margt margt fleira. Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn eru Arnar Laufdal Arnarsson og Kristinn Helgi Jónsson.

Aug 19, 2022

Heimavöllurinn: Sokkuðu spánna og eru efstar, ráðgátur og 3x ON í 2. deild

Það er stútfullur Heimavöllur í dag. Línur eru aldeilis að skýrast í efstu deild og nú liggur fyrir að Meistaradeildarliðin Breiðablik og Valur mætast í bikarúrslitum. Það er ein umferð eftir af fyrri hluta 2. deildar og gríðarleg spenna framundan þar. Arnar Páll Garðarsson, þjálfari KR, er gestur þáttarins og rýnir með þeim Huldu Mýrdal og Mist Rúnarsdóttur í 2. deildina og allt hitt sem um er að vera. Sem fyrr eru það Orka Náttúrunnar, Hekla og Dominos sem bjóða upp á þáttinn.

Aug 17, 2022

Ungstirnin - ÍAS & GBN úr Garðabæ

Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn eru Arnar Laufdal Arnarsson og Kristinn Helgi Jónsson. Eftir langt sumarfrí þáttarins fjalla drengirnir um Mathys Tel (2005 / Bayern Munchen) sem var nýlega keyptur frá Rennes á 20 milljónir evra, sem og Charlie McNiell (2003 / Man Utd) sem á yfir 600 mörk fyrir yngri lið Man City og Man United. Ísak Andri Sigurgeirsson og Guðmundur Baldvin Nökkvason tveir af m...

Aug 17, 2022

Enski boltinn - Sumir gengu of langt

Annarri umferð ensku úrvalsdeildarinnar er lokið og er það ljóst að Íslendingar eru svo sannarlega blóðheitir þegar kemur að enska boltanum. Það var mikill hiti í mönnum og sumir fóru yfir strikið. Bæði er hægt að tala um leikmenn og stuðningsmenn í samhengi við það. Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Steinke, fréttamenn á Fótbolta.net, settust niður í dag með Stefáni Marteini Ólafssyni, stuðningsmanni Chelsea, og ræddu um aðra umferðina sem er að baki. Farið var yfir allt það helsta; stórt tap Man...

Aug 16, 2022

Innkastið - Hnífjafn toppslagur og ójafnt stríð

17. umferð Bestu deildarinnar gerð upp í Innkastinu. Elvar Geir, Tómas Þór og Sæbjörn Steinke í hljóðveri. Þreytt topplið gerðu jafntefli, vígið ógurlega í Úlfarsárdal, trúleysi hjá Breiðhyltingum, varabakvörðurinn í KR, mögnuð sóknarsýning Vals, handbragð Hemma Hreiðars er komið á ÍBV, þrotið hjá FH og Nökkvi er heitasti leikmaður deildarinnar. Einnig er Lengjudeildarhorn.

Aug 16, 2022

Ástríðan - 16. umferð - 3. deildin er ótrúleg en allt að skýrast í 2. deild

Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport, ICE og svo er nýjasti vinur Ástríðunnar í átakinu Preppbarinn. Tveggja manna teymi sem enginn getur skaðað mætti til þess að fara yfir liðna helgi þegar spiluð var 16. umferð í báðum deildum. Meðal umræðuefnis: - Loksins eitthvað jákvætt úr Breiðholtinu- KFS á besta runninu síðustu 7 leiki- Njarðvík jafnar sig- Kormákur/hvöt öruggir og skila mögulega leikmönnum núna- Vængirnir dæmdir niður- ÍH með næst óvæntasta sigur sumarsins í ÁstríðunniHlustaðu í ...

Aug 16, 2022

Útvarpsþátturinn - Liðin sem hafa breytt leiknum

Elvar Geir og Benedikt Bóas stýra þætti vikunnar. Aðalumræðuefnið eru lið Víkings og Breiðabliks sem staðið hafa í ströngu á öllum vígstöðvum. Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, ræðir um árangur þeirra í Evrópu frá sjónarhorni þjálfarans. Farið er yfir fótboltafréttir vikunnar, þar á meðal bannið á Arnar Grétarsson, og Sverrir Örn Einarsson stuðningsmaður Víkings spjallar um viðureignina gegn Lech Poznan. Einnig er dómarinn Tómas Meyer í viðtali en hann er nýútskrifaður af sjúkrahúsi ...

Aug 13, 2022

Ástríðan - 15. umferð - Njarðvík tapar, botnliðin vinna og Virðing í Vestmannaeyjum

Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport, ICE og svo er nýjasti vinur Ástríðunnar í átakinu Preppbarinn.Bræðurnir þrír, Sverrir Mar, Óskar Smári og Gylfi Tryggva mættu til þess að fara yfir liðna helgi þegar spiluð var 15. umferð í báðum deildum.Meðal umræðuefnis:- Viðtalið við Arnar Halls og svör við því.- Virðing í Vestmannaeyjum- Úlfur fer og Njarðvík tapar- Blönduósvígið er fallið- Kári Péturs er góður með vinstri- ÍH þurfa margt til að halda sér uppiHlustaðu í spilaranum hér, í Podcast a...

Aug 10, 2022

Innkastið - Bestu liðin hiksta og FHallbaráttan harðnar

Elvar Geir heldur um stýrið í Innkastinu eftir 16. umferð Bestu deildarinnar. Með honum í þættinum eru Skagamaðurinn og íþróttafréttamaðurinn Sverrir Mar Smárason og FH-ingurinn og fótboltaþjálfarinn Magnús Haukur Harðarson. Topplið Breiðabliks fékk óvænta útreið í Garðabæ, Fram skoraði umdeilt jöfnunarmark gegn Víkingi, Fallfnykurinn eykst í Hafnarfirði, Nökkvi heldur áfram á flugi, Atli Sigurjóns fór illa með Eyjamenn, Skagamaður kláraði Skagamenn og Leiknir gaf Keflavík sigur á silfurfati. Ei...

Aug 09, 2022

Enski boltinn - Nýtt mót en sama gamla Man Utd

Enska úrvalsdeildin hófst um liðna helgi og var svo sannarlega fjör í fyrstu umferð. Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Steinke, fréttamenn á Fótbolta.net, setjast niður í stúdíó og ræða um fyrstu umferðina sem er að baki. Þá er hringt í Halldór Marteinsson, sem er mikill stuðningsmaður Manchester United. Rætt er við hann um tapið gegn Brighton í gær og nýjar vendingar á leikmannamarkaðnum en talað er um að United sé að sækja tvo áhugaverða leikmenn.

Aug 08, 2022
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android