Fotbolti.net - podcast cover

Fotbolti.net

Fotbolti.netfotbolti.net
Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Heimavöllurinn - Lengjuspáin 2020

Það eru rúmar tvær vikur í að keppni í Lengjudeild kvenna hefjist og í nýjasta þætti Heimavallarins er spáð í spilin fyrir tímabilið. Gestur þáttarins er knattspyrnuþjálfarinn Aníta Lísa Svansdóttir og hún fer yfir málin með þeim Huldu Mýrdal og Mist Rúnarsdóttur. Meðal efnis: -Spáin opinberuð: 1.sæti-10.sæti -Hverjar verða mikilvægastar í sínum liðum? -Hvaða efnilegu leikmönnum þurfum við að fylgjast með? -Hvaða lið fara upp í Pepsi Max? -Hvaða leikmenn verða bestar í Lengjudeildinni? -Hvaða li...

Jun 01, 2020

Pepsi Max hringborð - Umræður eftir æfingaleikjaviku

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas ræddu helstu tíðindi vikunnar úr íslenska fótboltanum. Þá er Hafliði Breiðfjörð í beinni frá Kaplakrika þar sem Emil Hallfreðsson skoraði í æfingaleik. Spá Fótbolta.net er byrjuð að opinberast og þeir félagar horfðu á fjölmarga æfingaleiki í vikunni. Meðal annars er rætt um Harley Willard málið, styrkingar FH og tilboð Vals í Tryggva Hrafn.

May 30, 2020

Niðurtalningin - Nýr fyrirliði Fylkis og endurkoma fótboltans

Ragnar Bragi Sveinsson, nýr fyrirliði Fylkis, er gestur vikunnar. Niðurtalningin er hnitmiðaður hlaðvarpsþáttur sem er á dagskrá í hverri viku fram að Íslandsmóti. Í þáttunum er hitað upp fyrir fótboltasumarið með góðum gestum og nýjustu fréttirnar úr boltanum skoðaðar. Ragnar Bragi ræðir við Elvar Geir og Magnús Má um það sem er efst á baugi í fótboltanum og hvernig sumarið lítur út í Árbænum.

May 26, 2020

Ástríðan - Sérfræðingar spá í 3. deildina

Ástríðan fékk tvo sérfræðinga til að spá fyrir um 3. deildina í sumar. Farið var yfir liðin og lykilmenn þeirra. Atli Jónasson og Ingimar Finnsson voru gestir Óskars Smára Haraldsson. Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi.

May 26, 2020

Heimir Guðjóns í ítarlegu viðtali um fótboltasumarið

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Heimir Guðjónsson kom í hljóðver og ræddi um komandi tímabil í Pepsi Max-deildinni. Heimir er tekinn við Val og fær það verkefni að koma liðinu aftur á toppinn eftir vonbrigðin í fyrra. Í viðtalinu ræðir Heimir um tímabilið framundan og einnig um árin í Færeyjum.

May 24, 2020

Axlabandalið Pepsi Max og fyrirliðapælingar

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór hita upp fyrir Pepsi Max-deildina. Þeir skoða fyrirliðahræringar deildarinnar en þær hafa verið miklar í vetur. Þá opinberar Tómas 'axlarbandaliðið', úrvalslið leikmanna sem þurfa að stíga upp á komandi tímabili. Einnig er rætt við Birgi Jóhannsson, framkvæmdastjóra ÍTF, um endurkomu fótboltans en á mánudag verður létt á takmörkunum og fótboltaleikir fullorðinna leyfðir á Íslandi.

May 24, 2020

Miðjan - Janus var landsliðsmaður í handbolta og fótbolta

Janus Guðlaugsson var á sama ári landsliðsmaður í handbolta og fótbolta, endaði í þriðja sæti í langstökki í bikarkeppni FRÍ og þjálfaði vonarstjörnur þjóðarinnar til Íslandsmeistaratitils í 2. flokki í handbolta. Seinni varð hann atvinnumaður í Þýskalandi í nokkur ár og fékk eftir ferilinn það verkefni að bjarga KR frá falli. Janus segir sögu sína í podcastþættinum Miðjunni hér á Fótbolta.net í dag. Meðal efnis: - Rekur eigið fyrirtæki í heilsueflingu í dag - Braut rúður í næsta húsi í fótbolta...

May 22, 2020

Ástríðan - Markahrókurinn Alexander

Alexander Már Þorláksson, leikmaður Fram, er gestur í Ástríðunni að þessu sinni. Alexander Már var markahæsti leikmaður 3. deildarinnar í fyrra þegar hann skoraði 28 mörk í 21 leik með KF, sem fór upp um deild. Alexander Már fór yfir ótrúlegt tímabil sitt í fyrra, skoðaði helstu fréttir undanfarna daga og ræddi getumuninn á milli deilda. Leikmannamarkaðurinn er farinn á fullt eftir Covid 19, en þar ber helst að nefna félagaskipti Viktors Segatta í Þrótt Vogum. Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um...

May 21, 2020

Heimavöllurinn - Spá fyrir Pepsi Max 2020

Í nýjasta þætti Heimavallarins er boðið upp á spá fyrir Pepsi Max deild kvenna sem hefst eftir 3 vikur. Gestur þáttarins er Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir og hún ræðir komandi tímabil við þáttastýrurnar Huldu Mýrdal og Mist Rúnarsdóttur. Verja Valskonur Íslandsmeistaratitilinn? Halda nýliðarnir sér uppi? Hvaða lið gerðu vel á félagaskiptamarkaðnum? Hvaða leikmenn verða mikilvægastar sínum liðum? Þetta og ýmislegt fleira í þætti dagsins.

May 20, 2020

Niðurtalningin - Gústi og Gróttusumarið

Niðurtalningin er hnitmiðaður hlaðvarpsþáttur sem er á dagskrá í hverri viku fram að Íslandsmóti. Í þáttunum er hitað upp fyrir fótboltasumarið með góðum gestum og nýjustu fréttirnar úr boltanum skoðaðar. Í þessum öðrum þætti er byrjað á fótboltafréttayfirliti og svo er rætt við Ágúst Gylfason, þjálfara Gróttu, um komandi tímabil. Hann kemur meðal annars með sína spá um Íslandsmeistara í sumar. Umsjón: Elvar Geir og Magnús Már.

May 19, 2020

Bikarmeistararnir Ágúst Hlyns og Óttar Magnús

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Gestir þáttarins voru Ágúst Eðvald Hlynsson og Óttar Magnús Karlsson, ungir leikmenn bikarmeistara Víkings. Báðir fóru þeir mjög ungir erlendis í atvinnumennsku en eru í dag lykilmenn hjá Víkingum.

May 16, 2020

Boltahringborð - Sögulínur sumarsins í Pepsi Max

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Ingólfur Sigurðsson tóku fyrir nokkur umræðuefni fyrir Pepsi Max-deild karla í sumar. Hvernig verða sögulínur deildarinnar? Skemmtileg umræða um íslenska boltann. Daníel Geir Moritz, eigandi ÍBV, var einnig á línunni.

May 16, 2020

Miðjan - Augnabliks fíflalæti og fyndnar sögur

Í lok ársins 1981 var knattspyrnufélagið Augnablik stofnað en lið þeirra vakti mikla athygli næstu árin fyrir almenn fíflalæti og uppákomur. Fræg er til dæmis sagan af því þegar reynt var að stofna félagið hjá ÍSÍ. Jón Orri Guðmundsson og Andrés Pétursson rifja upp gamla tíma í podcastþættinum Miðjunni hér á Fótbolta.net í dag. Meðal efnis: - Stofnað í lok ársins 1981 - Ekki allir sáttir við stofnun félagsins - Gerðu í því að vera með fíflalæti - Vildi láta liðið heita Kakó fyrst - Fyndið símtal...

May 13, 2020

Niðurtalningin - Maggi Bö og skemmtilegustu vellirnir

Niðurtalningin er hnitmiðaður hlaðvarpsþáttur sem er á dagskrá í hverri viku fram að Íslandsmóti. Í þáttunum er hitað upp fyrir fótboltasumarið með góðum gestum og nýjustu fréttirnar úr boltanum skoðaðar. Þáttur dagsins hefst á fótboltafréttayfirliti og svo er rætt við Magnús Val Böðvarsson, vallarstjóra KR, um vallarmálin á Íslandi. Hann velur skemmtilegustu velli landsins og er settur í létta spurningakeppni. Umsjón: Elvar Geir og Magnús Már.

May 12, 2020

Ástríðan - Sumarið framundan í 2. og 3. deild

Það styttist óðum í fótboltasumarið og því er tímabært að setjast niður og ræða neðri deildirnar. Að þessu sinni var athyglin á 2. og 3. deild. Baldvin Már Borgarsson, aðstoðarþjálfari Ægis, og Óskar Smári Haraldsson, leikmaður Tindastóls, þekkja deildirnar betur en flestir og voru fengnir til þess að koma með áhugaverða umræðupunkta. Ingólfur Sigurðsson stýrði umræðunum. Meðal efnis: - Bikarkeppni fyrir neðri deildir - Mikael Nikulásson stýrir Njarðvík eftir 10 ára pásu frá þjálfun - Gríðarlega...

May 11, 2020

Atli Sigurjóns um hæðir og lægðir - „Var erfitt að mótivera sig"

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Atli Sigurjónsson, leikmaður Íslandsmeistara KR, kom í hljóðver í skemmtilegt spjall. Atli var hreinskilinn þegar hann horfði til baka á ferilinn og viðurkennir að metnaður sinn fyrir íslenska fótboltanum hafi ekki verið nægilega mikill þegar hann sá drauma um atvinnumennsku erlendis hverfa. Honum líður gríðarlega vel hjá KR og sér sig ekki snúa aftur til Akureyrar.

May 09, 2020

Ótímabær spá fyrir Pepsi Max byggð á sandi - Blaut tuska fyrir Fjölni

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson fóru yfir nýja ótímabæra spá fyrir Pepsi Max-deildina. Spá sem er byggð á sandi! Í klippunni er einnig viðtal við Ásmund Arnarsson, þjálfara Fjölnis. Grafarvogsliðið missti fyrirliða sinn þegar Bergsveinn Ólafsson tilkynnti að hann væri ekki lengur með áhuga fyrir fótbolta og lagði skóna óvænt á hilluna.

May 09, 2020

Miðjan - Bjarnólfur var til í að koma nakinn fram fyrir frægðina

Bjarnólfur Lárusson var tilbúinn að gera allt fyrir frægðina, meðal annars að koma nakinn fram. Hann var atvinnumaður í Englandi og Skotlandi en sneri svo heim og þótti óheiðarlegur leikmaður sem fékk ótal spjalda. Hann var líka lengi Íslandsmethafi í kúluvarpi. Bjarnólfur er gestur vikunnar í podcastþættinum Miðjan hér á Fótbolta.net. Meðal efnis: - Stofnaði ráðgjafafyritæki í haust - Hluthafi í Passion bakaríi - Átti Íslandsmet í kúluvarpi í áratug - Mjög efnilegur í handbolta - Samkeppni Týs ...

May 06, 2020

Heimavöllurinn: Varamaður úr KR keyptur fyrir metupphæð í Hruninu

Anna Björk Kristjánsdóttir var leggjalangur framherji í yngri flokkunum. Þegar hún var 18 ára gömul var hún ennþá varamaður í KR og hafði einungis spilað 11 leiki í efstu deild. Hún gekk í gegnum mikinn missi sumarið 2008 sem hafði mikil áhrif á hennar næstu skref. Máni Pétursson sannfærir hana um að koma í miðlungslið Stjörnunnar og hún endar á því að spila 168 leiki fyrir Stjörnuna, vera goðsögn í Garðabænum og vinna sex stóra titla. Anna hefur síðustu fjögur tímabil spilað sem atvinnukona í S...

May 02, 2020

Útvarpsþátturinn - Þórsarar og Magni Grenivík

Seinni hluti af norðurferð útvarpsþáttarins Fótbolti.net, Halló Akureyri! Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas heimsækja 1. deildarfélögin Þór og Magna í þessum seinni hluta. Rætt er við Pál Viðar Gíslason þjálfara Þórs og formanninn Óðinn Svan Óðinsson. Þá var Heimir Ásgeirsson, Eyjabitakóngur og Magnamaður, heimsóttur í nýtt vallarhús Magna á Grenivík.

May 01, 2020

Útvarpsþátturinn - Halló Akureyri! Heimsókn til KA

Fyrri hluti af norðurferð útvarpsþáttarins Fótbolti.net, Halló Akureyri! Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas heimsækja KA í þessum fyrri hluta en seinni hlutinn kemur inn á morgun. Rætt er við Hallgrím Jónasson, spilandi aðstoðarþjálfara KA, og framkvæmdastjóra félagsins, Sævar Pétursson. Þá var sagt frá því hvernig dreifa á leikjum fyrstu umferðar Pepsi Max-deildarinnar og rætt um fréttirnar af kaupum Vals á Aroni Bjarnasyni.

Apr 30, 2020

Fantabrögð - Draumaliðsdeild Eyjabita - upphitunarþáttur

Draumaliðsdeild Fótbolti.net og Eyjabita er farin af stað, en stefnt er að því að Pepsi Max deild karla hefjist 13. júní. Eins og undanfarin ár velur fólk 15 leikmenn úr liðunum 12 og má mest hafa 3 leikmenn úr hverju liði. Leikmenn kosta á bilinu 4 til 12 milljónir króna en þjálfarar hafa 100 milljónir til að kaupa leikmenn. Þeir Fantabragðabræður Aron og Gylfi fóru yfir málin og opinberuðu sitt fyrsta liðsval. Kóði í deild Fantabragða er 36rRP4tkhv

Apr 29, 2020

Fótbolta Quiz Þorkels - Lokakeppnin

Íþróttafréttamaðurinn Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson á RÚV leggur sitt að mörkum í að stytta fólki stundirnar í því ástandi sem er í gangi. Það er sjöundi miðvikudagurinn í samkomubanni og sjöunda og síðasta spurningakeppni Þorkels, í bili að minnsta kosti, er komin í loftið. Um er að ræða 30 spurninga Pod Quiz sem hægt er að spreyta sig á. Ert þú með allt á hreinu í boltanum? Taktu þátt og skoraði á vini og kunningja.

Apr 29, 2020

Miðjan - Gummi Torfa valdi fótboltaferil fram yfir tónlistina

Guðmundur Torfason var í hljómsveitum með Mezzoforte strákunum og hefði getað orðið næsti Björgvin Halldórsson en valdi farsælan fótboltaferil framyfir það. Hann heillaði meðal annars Sir Alex Ferguson þegar hann skoraði þrjú, eða fjögur, mörk í sama leiknum á Old Trafford. Gummi Torfa fór yfir ferilinn í podcastþættinum Miðjunni hér á Fótbolta.net í dag. Meðal efnis: - Uppvaxtarárin í Vestmannaeyjum - Vildi ekki fara í frjálsar eins og pabbi hans - Valdi Fram þó pabbi hans hafi viljað KR - Söng...

Apr 27, 2020

Heimavöllurinn - Tilbúin í sitt tuttugasta tímabil

Heimavöllurinn er laus úr sóttkví og það er nóg um að vera í þætti dagsins. Leikjahæsti leikmaður Pepsi Max, landsliðskonan og Íslandsmeistarinn Sandra Sigurðardóttir, er á leið inn í sitt tuttugasta tímabil og kíkir í heimsókn. Hildur Antonsdóttir opinberar hvaða andstæðingar hafa reynst henni erfiðastir og þeir erlendu leikmenn sem hafa skarað fram úr hérlendis eru til umræðu.

Apr 24, 2020

Sumargleði útvarpsþáttarins - Boltahringborð

Boltahringborðið er dregið fram í þriðja sinn í samkomubanninu. Nú er sérstök sumargleði í tilefni dagsins. Elvar Geir, Tómas Þór, Magnús Már og Benedikt Bóas eru við hringborðið. Hver og einn kemur með sitt umræðuefni að borðinu, umræðuefni sem tengjast íslenska boltanum, enska boltanum og heimsfótboltanum. Einnig var rætt um áhugaverðar niðurstöður á fundi UEFA sem fram fór fyrr um daginn.

Apr 23, 2020

Fótbolta Quiz Þorkels - Sjötta keppnin

Íþróttafréttamaðurinn Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson á RÚV leggur sitt að mörkum í að stytta fólki stundirnar í því ástandi sem er í gangi. Það er sjötti miðvikudagurinn í samkomubanni og sjötta spurningakeppni Þorkels af sjö er komin í loftið. Um er að ræða 30 spurninga Pod Quiz sem hægt er að spreyta sig á. Ert þú með allt á hreinu í boltanum? Taktu þátt og skoraði á vini og kunningja.

Apr 22, 2020

Miðjan - Damir upplifði mikið heimilisofbeldi

Damir Muminovic lenti ungur í því að faðir hans yfirgaf fjölskylduna og hefur ekki átt neitt samband við hann síðan. Hann upplifði mikið heimilisofbeldi á sínum yngri árum og leitaði mikið í djamm. Í gegnum fótboltann náði hann svo góðri reglu á lífinu. Damir segir sögu sína í podcastþættinum Miðjan hér á Fótbolta.net í dag. Ekkert barn á að þurfa að þola ofbeldi eða verða vitni að ofbeldi. Allt ofbeldi á heimili þar sem börn dvelja, er jafnframt ofbeldi gagnvart börnum. Ef þú býrð við slíkar að...

Apr 21, 2020

Útvarpsþátturinn - Bjarni Jó og Andri Fannar

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er í hlaðvarpsformi meðan samkomubann gildir. Elvar Geir og Tómas Þór fengu ansi ólíka en skemmtilega gesti þessa vikuna. Fyrri gesturinn er reynsluboltinn Bjarni Jóhannsson, þjálfari Vestra. Rætt var við Bjarna um það hvernig komandi Íslandsmót geti farið fram og einnig voru rifjaðir upp gamlir tímar. 44:00 - Seinni gestur þáttarins er svo einn mest spennandi fótboltamaður Íslands í dag, hinn 18 ára Andri Fannar Baldursson. Andri spilar fyrir Bologna og varð fyrr á...

Apr 16, 2020
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android