Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um fréttir vikunnar í íslenska boltanum og dráttinn í Mjólkurbikarnum. Víðir Reynisson, öryggisfulltrúi íslensku þjóðarinnar, var á línunni í upphafi og ræddi um kórónaveirusmitin í Pepsi Max-deildunum. Hangir Íslandsmótið á bláþræði? 41:30 Viktor Karl Einarsson, leikmaður Breiðabliks, mætti svo í þáttinn í mjög skemmtilegt spjall en Blikar hafa unnið báða leiki sína í Pepsi Max-deildinni.
Jun 27, 2020
Fimmti þáttur í hlaðvarpsþáttaröðinni Boltinn á Norðurlandi var tekinn upp á föstudag. Hver þáttur er sjálfstætt framhald af fyrri þáttum. Rætt um dómgæsluna á Norðurlandi, bikarvikuna, stórtap Þór/KA og matareitrun sem leikmenn KF fengu fyrir síðasta deildarleik. Dagskráin: Matareitrun og dómgæsla mín: 0-9 KA: 9-14 Stólar: 14-19 Þór/KA: 19-24 Magni: 24-42 Þór: 42-56 Næstu leikir og aðrar umræður: 56-67 Hljóðið er að mati þáttarstjórnenda talsvert betra en í síðustu þáttum.
Jun 26, 2020
Nú hafa þrjár umferðir verið spilaðar í Pepsi Max deild kvenna og ýmislegt áhugavert átt sér stað. Deildin er til umræðu í nýjasta þætti Heimavallarins en Berglind Hrund Jónasdóttir, fyrrum markvörður Stjörnunnar, og Steinunn Sigurjónsdóttir knattspyrnuþjálfari mæta í stúdíó og ræða við Mist Rúnarsdóttur um gang mála.
Jun 25, 2020
Keppni er hafin í Lengju- og 2. deild og þær deildir verða í flóðljósunum á Heimavellinum í dag. Þær Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir fara yfir allt það helsta úr fyrstu umferðum Íslandsmótanna og rýna þar að auki í spá þjálfara og fyrirliða fyrir 2. deildina.
Jun 23, 2020
Enski boltinn er farinn aftur á fleygiferð eftir hlé vegna kórónaveiru faraldursins. Tottenham stuðningsmennirnir Hjálmar Örn Jóhannsson og Ingimar Helgi Finnsson eru gestir vikunnar í Innkastinu. Meðal efnis: Leiðinlegur Liverpool leikur, Man Utd á uppleið, staða Gylfa hjá Everton, óvænt Íslandstenging Lloris, Áhorfendahljóð, innistæðulaus Guendouzi, glórulaus borði Burnley stuðningsmanns, Alli og Son til Newcastle?, Úlfarnir komnir til að vera, sterkt Chelsea lið, West Ham í veseni og Guðni T(...
Jun 23, 2020
Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Í þættinum er að þessu sinni farið yfir það sem gerðist í fyrstu umferð í 2. og 3. deild. Þáttastjórnandi er Óskar Smári Haraldsson og álitsgjafi með honum er Sverrir Mar Smárason, leikmaður Kára á Akranesi.
Jun 23, 2020
Enski boltinn fór aftur af stað 17 júní og fyrsta Fantasy umferðin í þessari endurkomu klárast með leik Manchester City og Burnley. Strákarnir í Fantabrögðum nenntu þó ekki að bíða eftir honum enda mikið að gerast í íslenska boltanum sem þurfti að ræða, bæði í draumaliðsdeildum 50 skills og Eyjabita. -Víkingar vörusvik? -Patrick Pedersen ekki skorað í 2 fyrstu leikjunum -Stjarnan skorar 4 en Hilmar Árni fær engin stig -Selfoss ekki skorað mark í Pepsi Max deild kvenna -Þór/KA komið skemmtilega á...
Jun 22, 2020
Þrír heimasigrar unnust á Þórsvelli um helgina. Svekkjandi hjá Stólunum og rýr uppskera í 2. deild. KA fékk stig gegn Víkingi og brekka hjá Samherjum. Dagskráin: KA mín 1-16. Þór mín 16-33. Magni mín 33-38. Þór/KA mín 38-50. KF mín 50-59. Tindastóll mín 59-65. Völsungur mín 65-68. Hamrarnir mín 68-70. Dalvík/Reynir 70-73. Samherjar 73-75.
Jun 22, 2020
Í Innkastinu í er farið yfir alla leiki 2. umferðar Pepsi Max-deildarinnar. Elvar Geir Magnússon, Gunnar Birgisson og Ingólfur Sigurðsson stóðu vaktina um helgina. Meðal efnis: Vörusvik hjá Víkingum, sól á Akureyri, Engin vandræði hjá Valsmönnum, skýrsla eftir mögnuð úrslit í Vesturbænum, mikilvægi Finns, frábærir HK-ingar, hark hjá Blikum, Halldór Orri gengur í gegnum endurnýjun lífdaga, yfirburðir FH gegn ÍA, Lengjudeildarhornið og bikarleikir vikunnar.
Jun 21, 2020
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór fóru yfir fótboltamálin og ræddu um enska boltann, Lengjudeildina og Pepsi Max-deild karla. Í upphafi: Enski boltinn 11:30 Tryggvi Páll Tryggvason, sérfræðingur um Manchester United. 29:00 Farið yfir upphaf Lengjudeildarinnar. Baldvin Már Borgarsson var á línunni. 50:45 Pepsi Max-deildin: Hitað upp fyrir 2. umferð. 60:00 Sindri Snær Magnússon, leikmaður ÍA á línunni. 66:00 Siguróli í beinni útsendingu frá Akureyri....
Jun 20, 2020
Fantabrögð taka sér ekki frí á 17. júní, enda er alltof margt sem þarf að fara yfir! Íslenski boltinn fór af stað um helgina og strákarnir stikluðu á því helsta sem gerðist í draumaliðsdeildum Eyjabita og 50 skills. -Ofmátum við Ágúst Hlynsson? -Berglind Björg byrjaði fyrsta leik og skoraði -Þægilega fyrirsjáanlegt á Hlíðarenda -Geta Blikar haldið hreinu í sumar? Við byrjuðum hins vegar þáttinn á að skoða enska boltann, sem fer aftur af stað á þjóðhátíðardegi Íslendinga, 17. júní. -Hvernig er st...
Jun 17, 2020
Farið yfir 2. umferðina í bikarnum, vítaspyrnukeppnir og Þór/KA byrjar á fljúgandi starti. Dagskráin: Mín 1-25: Völsungur - Þór Mín 25-54 KF - Magni Mín 54-64 Þór/KA - Stjarnan Mín 64-68 Krókurinn Mín 68-76 ÍA-KA Mín 76-80 Umræða um Dr. Petar og leikirnir framundan. PS. Músinni var hent eftir upptöku, amateur-hour hjá þeim þýska.
Jun 16, 2020
Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Önnur umferð Mjólkurbikarsins fór fram um liðna helgi og í þættinum að þessu sinni er farið yfir það sem gekk á. Þáttarstjórnandi er Óskar Smári Haraldsson og álitsgjafi með honum að þessu sinni er Sverrir Mar Smárason, leikmaður Kára á Akranesi.
Jun 16, 2020
Seinni hluti af uppgjöri 1. umferðar Pepsi Max-deildarinnar. Tómas Þór og Ingólfur Sigurðsson eru með Elvari að þessu sinni. Farið er yfir leikina tvo sem voru í kvöld. Stjarnan vann dramatískan sigur gegn Fylki og nýliðar Fjölnis náðu í stig á útivelli gegn Víkingi Reykjavík. Meðal efnis: Þjálfarinn sá rautt, sautján ára hetja Stjörnunnar, vonbrigðaframmistaða Víkinga, Fjölnir ekki fallbyssufóður, helstu umræðuefnin eftir helgina, leikmaður umferðarinnar, Gunni giskar og Lengjudeildin.
Jun 15, 2020
Fyrri hluti af uppgjöri 1. umferðar Pepsi Max-deildarinnar. Elvar Geir, Gunni Birgis og Magnús Már skoða fjóra fyrstu leiki sumarsins. Meðal efnis: KR vann opnunarleikinn, Óskar Örn heldur áfram að þagga niður efasemdarraddir, meiðslarugl KA, karakter á Skaganum, markvarðamistök í Kórnum, gæðamunur í Kópavoginum.
Jun 14, 2020
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór hita upp fyrir Lengjudeild karla sem fer af stað næsta föstudag. Sérfræðingarnir Rafn Markús Vilbergsson og Úlfur Blandon skoða öll liðin tólf og spá fyrir um lokastöðu.
Jun 13, 2020
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór hita upp fyrir fyrstu umferð Pepsi Max-deildarinnar og skoða helstu fréttir úr deildinni. Einnig er rætt um Mjólkurbikarinn en 2. umferð er í fullum gangi.
Jun 13, 2020
Keppni í Pepsi Max deildinni hefst annað kvöld og í dag höldum við fyrirpartý á Heimavellinum. Þau Baldvin Már Borgarsson og Halla Margrét Hinriksdóttir kíkja í heimsókn og fara yfir allt það helsta með Mist Rúnarsdóttur.
Jun 11, 2020
Sokkur til okkar í boði Samherja, KF með tak á Dalvík, Stólarnir í veseni í bikarnum og Guðmundur Steinn í KA. Smá bras á öðrum mic-num en það verður komið í lag fyrir næstu upptöku! 1. umferðin rædd og spáð í spilin fyrir þá næstu. Hvað gerir Guðmundur fyrir lið KA? Á KF séns í Magna? Á að sameina KA og Þór? Leikir helgarinnar: Föstudagur: Völsungur - Þór (19:15) . Laugardagur: Tindastóll - Völsungur (14:00) , Þór/KA - Stjarnan (15:00) og Tindastóll - Samherji (17:00). Sunnudagur:KF - Magni (15...
Jun 11, 2020
Valgeir Valgeirsson leikmaður HK er gestur þáttarins en þessi sautján ára unglingalandsliðsmaður skaust af krafti fram á sjónarsviðið síðasta sumar. Þrátt fyrir ungan aldur er Valgeir algjör lykilmaður hjá HK og á sér það markmið að ná langt í boltanum. Valgeir kom á skrifstofu Fótbolta.net og spjallaði við Elvar Geir og Magnús Má.
Jun 11, 2020
UEFA gaf á dögunum út nýja leikdaga fyrir A-landslið kvenna í undankeppni EM. Framundan er þéttur leikjapakki í haust og mikið í húfi. Landsliðsþjálfarinn Jón Þór Hauksson leit við á Heimavellinum í dag og fór með okkur yfir stöðuna hjá landsliðinu og komandi verkefni. Hann rýnir svo að sjálfsögðu einnig með okkur í fótboltasumarið og Pepsi Max deild kvenna sem er handan við hornið.
Jun 10, 2020
00:00 Draumaliðsdeild Eyjabita 1:02:14 Draumaliðsdeild 50skills 1:33:20 Fantasy Premier League Fantabrögð tóku upp síðasta upphitunarþátt sinn áður en draumaliðsdeildir Eyjabita og 50 skills hefjast. Strákarnir fóru yfir nýjustu útgáfu af liðum sínum sem höfðu að sjálfsögðu breyst töluvert frá síðasta þætti. Kemst maður upp með að vera ekki með Hilmar Árna í liðinu sínu? Er Selfoss nógu gott lið til að veita Breiðabliki og Val keppni um toppsætið kvennamegin? Hver verður fyrirliði í fyrsta leik?...
Jun 10, 2020
Fyrsta umferð Mjólkurbikarsins er að baki. Í Ástríðu vikunnar er kafað ofan í leikina sem fram fóru. Ingólfur Sigurðsson og Óskar Smári Haraldsson ræddu um leikina og rýndu í úrslitin. Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi.
Jun 09, 2020
Í Niðurtalningunni er farið yfir leiki helgarinnar í íslenska boltanum, lokasprett undirbúningsins áður en alvaran fer af stað. Þátturinn er í raun og veru Innkastið að þessu sinni. Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson, Gunnar Birgisson og Ingólfur Sigurðsson fara yfir leikina og helstu fréttir. Þá velja Gunnar og Ingólfur bestu leikmenn Pepsi Max-deildarinnar. Ingólfur bætist við í Innkastið í sumar, hlaðvarpsþáttinn þar sem umferðirnar verða gerðar upp. Meðal umræðuefna: KR-ingar halda á...
Jun 08, 2020
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977. Farið yfir spá Pepsi Max-deildarinnar. Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og sérstakur gestur: Tómas Ingi Tómasson. Farið er yfir spá Fótbolta.net fyrir deildina og öll liðin skoðuð.
Jun 06, 2020
Staðan skoðuð hjá öllum liðunum á Norðurlandi, karla og kvenna. Framundan er bikarhelgi þar sem Dalvík/Reynir og KF mætast í nágrannaslag. Á Nökkvi séns á að komast alla leið í 3. umferð? Staðan skoðuð á Króknum, Húsavík, Grenivík og hjá Samherjum. Akureyrarliðin eru til umræðu í seinni hlutanum og leikkerfi KA rætt. Lélegt gengi Þórsara gegn betri liðunum í fyrra og mikilvægi Alvaro. Aksentije Milisic og Sæbjörn Þór Þórbergsson sjá um þáttinn.
Jun 05, 2020
Þá eru einungis 8 dagar í að Íslandsmót í fótbolta hefjist! Fótbolti.net verður með draumaliðsdeildir fyrir Pepsi Max deildir karla og kvenna í samstarfi við Eyjabita og 50 skills. Mist Rúnarsdóttir hjá hlaðvarpinu Heimavellinum kíkti í heimsókn og hún, Aron og Gylfi fóru yfir allt það helsta fyrir draumaliðsdeild 50 skills og opinberuðu sín lið. Vertu með í 50 skills deild Fantabragða, með kóðanum uDBWQrBHsB Við ræddum svo aðeins hvað hefur gerst undanfarna daga hjá liðunum í Pepsi Max deild ka...
Jun 04, 2020
Í Niðurtalningunni er hitað upp fyrir fótboltasumarið með góðum gestum og nýjustu fréttirnar úr boltanum skoðaðar. Guðjón Baldvinsson og Halldór Orri Björnsson, leikmenn Stjörnunnar, eru gestir þáttarins að þessu sinni. Magnús Már Einarsson ræðir við þá um komandi tímabil. Þá fór Magnús yfir æfingaleikina í íslenska boltanum með Elvari Geir Magnússyni en níu dagar eru í að Pepsi Max-deild karla fer af stað.
Jun 04, 2020
Í Ástríðu vikunnar var farið yfir fyrstu umferð í Mjólkurbikarnum en hún fer fram um helgina. Ingólfur Sigurðsson og Óskar Smári Haraldsson fóru yfir stöðuna. Rætt var um úrslit úr æfingaleikjum og félagaskipti en félagaskiptaglugginn opnar formlega á ný í dag. Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi.
Jun 03, 2020
Í Niðurtalningunni er hitað upp fyrir fótboltasumarið með góðum gestum og nýjustu fréttirnar úr boltanum skoðaðar. Í þættinum að þessu sinni er farið yfir spá fyrir Lengjudeild karla. Baldvin Már Borgarsson fer yfir málin. Þá kemur Jón Sveinsson, þjálfari Fram, í heimsókn og ræðir um komandi tímabil í deildinni og hvernig sumarið leggst í Framara. Umsjón: Elvar Geir Magnússon.
Jun 02, 2020