Innkastið - Hreinsanir þarfar hjá Arsenal
Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz fengu til sín blaðamanninn Benedikt Bóas Hinriksson í Evrópu-Innkastinu þessa vikuna.

Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz fengu til sín blaðamanninn Benedikt Bóas Hinriksson í Evrópu-Innkastinu þessa vikuna.
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net setti saman spurningakönnun varðandi enska boltann og fékk hlustendur í lið með sér. Spurningarnar voru af ýmsum toga og farið var yfir niðurstöðurnar í þættinum á laugardaginn.
Sverrir Ingi Ingason var í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu 97,7 á laugardaginn. Sverrir gekk til liðs við Granada í spænsku úrvalsdeildinni í janúar. Síðastliðinn mánudag átti hann flottan leik í 1-0 sigri liðsins á Las Palmas. Granada er með 13 stig í næstneðsta sæti deildarinnar, fimm stigum frá öruggu sæti. Þrátt fyrir erfiða stöðu er Sverrir bjartsýnn á framhaldið.
Það er Chelsea þema í Innkastinu að þessu sinni en Jóhann Már Helgason, stuðningsmaður Chelsea, er sérstakur gestur.
Guðni Bergsson og Björn Einarsson eru í framboði til formanns KSÍ en kosið verður á ársþingi sambandsins í Vestmannaeyjum næsta laugardag.
Þórir Hákonarson, fyrrum framkvæmdastjóri KSÍ, mætti í útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 eftir kappræður Björns Einarssonar og Guðna Bergssonar. Þórir fór þar yfir málin en Björn og Guðni berjast um formannsstólinn hjá KSÍ. Kosið verður á ársþingi í Vestmannaeyjum um næstu helgi.
Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz eru mættir í hinu vikulega Evrópu-Innkasti. Janúarglugginn og nýliðin umferð í ensku úrvalsdeildinni eru í aðalhlutverki í þætti kvöldsins en einnig var rætt um ráðningu Lars Lagerbak til norska landsliðsins.
Arnar Grétarsson, þjálfari Breiðabliks, var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 síðasta laugardag. Þar fór hann yfir stöðuna hjá Kópavogsliðinu sem hefur verið duglegt á leikmannarkaðnum að undanförnu. Breiðabliki gekk illa í markaskorun í fyrra en hefur styrkt sóknarleikinn með því að fá Martin Lund Pedersen frá Fjölni, Aron Bjarnason frá ÍBV og Hrvoje Tokic frá Víkingi Ólafsvík.
„Möguleikarnir í Bandaríkjunum að fara lengra eru meiri en fólk heldur. Stóru skólarnir úti eru gríðarlegur stökkpallur til að fara lengra í fótbolta. Ofan á það nærðu í menntun," segir Brynjar Benediktsson. Brynjar og Jóna Kristín Hauksdóttir mættu í útvarpsþáttinn Fótbolti.net en þau eru með fyrirtækið Soccer and Education USA sem hjálpar strákum og stelpum að komast á fótboltastyrk í háskólum í Bandaríkjunum.
Hljóðvarpsþátturinn Evrópu-Innkastið er mætt en Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz fóru yfir fótboltahelgina í Evrópu. Að vanda er enski boltinn í aðalhlutverki en Elvar sagði frá ferð sinni á Anfield þar sem hann horfði á Liverpool - Swansea um helgina ásamt 500 Íslendingum.
Hollenska goðsögnin Marco van Basten starfar nú hjá FIFA en mikla athygli vakti í síðustu viku þegar hann kynnti tíu hugmyndir sínar um að breyta fótboltareglunum. Fótboltaáhugamaðurinn og sagnfræðingurinn Stefán Pálsson ræddi við Tómas Þór Þórðarson og Benedikt Bóas Hinriksson í útvarpsþættinum Fótbolti.net.
KA sendi frá sér umtalaða yfirlýsingu í síðustu viku um að samningur um samstarf KA og Þórs í knattspyrnu kvenna yrði ekki endurnýjaður. Mikil læti hafa verið fyrir norðan en Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, sagði frá hlið félagsins í þessu máli í viðtali við Tómas Þór Þórðarson og Benedikt Bóas Hinriksson í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu.
Hljóðvarpsþátturinn Evrópu-Innkastið snýr aftur eftir frí. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz fengu sér sæti eftir að hafa horft á stórleik Manchester United og Liverpool. Farið var yfir leikinn og aðra leiki helgarinnar í enska boltanum.
Ársþing KSÍ sem verður haldið í Vestmannaeyjum þann 11. febrúar verður það fréttnæmasta á seinni árum. Geir Þorsteinsson stígur af stóli formanns og tveir hafa staðfest framboð; það eru Björn Einarsson formaður Víkings og Guðni Bergsson fyrrum landsliðsmaður.
Það er risaslagur í ensku úrvalsdeildinni á morgun þegar Manchester United mætir Liverpool en beðið er eftir leiknum með mikilli eftirvæntingu.
Í gær bárust fréttir af því að framherjinn reyndi, Garðar Jóhannsson, værin genginn í raðir KR. Garðar hætti hjá Fylki eftir síðasta tímabil og gekk til liðs við KFG í 3. deildinni. Hann hefur hins vegar nú gengið í raðir KR.
Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson fengu til sín góðan gest við enska hringborðið í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7.
Jólakæfan 2016 var í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu FM 97,7 í dag.
Það er komið að síðasta Evrópu-Innkasti ársins 2016! Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz fóru yfir liðna umferð í ensku úrvalsdeildinni og litu einnig til Spánar, Þýskalands og Frakklands.
Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Hörður Magnússon fóru yfir fótboltafréttir vikunnar í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu í dag.
Það er sérstaklega mikil gleði þegar leikið er í enska boltanum í miðri viku. Eftir að leikjum kvöldsins lauk fengu Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz sér sæti og tóku upp Innkast vikunnar.
Freyr Alexandersson, þjálfari kvennalandsliðsins, var gestur útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X-inu á laugardag. Heimir gerði upp viðburðaríkt ár kvennalandsliðsins 2016 og er hægt að hlusta á þetta skemmtilega viðtal í spilaranum.
Í spilaranum hér að ofan má heyra brot úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 sem var á dagskrá í gær.
Það var mikið stuð við enska hringborðið á X-inu FM 97,7 í dag en þar var Tottenham þema að þessu sinni. Tveir þekktir stuðningsmenn Tottenham mættu í heimsókn, Hörður Ágústsson sem kenndur er við Macland og Hjálmar Örn Jóhannsson, skemmtikraftur og Snapchat Stjarna.
Víkingur R. styrkti sig til muna í gær þegar samningar náðust við Fylki um félagsskipti Ragnars Braga Sveinssonar úr Fylki yfir í Víking. Ragnar skrifaði undir þriggja ára samning við Víkinga, en hann segist hafa metnað til þess að spila á meðal þeirra bestu í Pepsi-deildinni.
Evrópu-Innkastið er mætt. Fjallað er um liðna fótboltahelgi að vanda þar sem enski boltinn er í algjöru aðalhlutverki. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz voru við hljóðnemana og ræddu um leiki helgarinnar.
„Kannski er betra að við séum bara í Championship deildinni og vinnum leiki þar frekar en að tapa í hverri viku í úrvalsdeildinni. Núna veit ég hvernig það er að vera stuðningsmaður Mancheter City eða Chelsea, maður býst við sigri í hverri viku," sagði Gregg Ryder, þjálfari Þróttar, léttur í bragði í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu á laugardag. Gregg er uppalinn í Newcastle og hann styður Newcastle United af krafti. Eftir fall úr ensku úrvalsdeildinni síðastliðið vor þá situr Newc...
Chris Wathan, blaðamaður hjá Wales Online, segir að Gylfi Þór Sigurðsson nái sínu besta fram hjá Swansea þar sem gífurlega mikil ábyrgð hvílir á honum. Gylfi er potturinn og pannann í sóknarleik Swansea en hann hefur komið að meirihluta marka liðsins á þessu tímabili.
Elvar Geir Magnússon, Benedikt Bóas Hinriksson og Magnús Már Einarsson sátu við enska hringborðið í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 í dag. Farið var yfir gang mála og rýnt í baráttuna á toppi og botni.
Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari var gestur útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X-inu á laugardag. Heimir gerði upp ævintýraár Íslands 2016 og er hægt að hlusta á þetta skemmtilega viðtal í spilaranum.