Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz eru komnir úr landsleikjafríi og fara yfir enska boltann í Evrópu-Innkastinu. Einnig er horft til helstu tíðinda úr stærstu deildum Evrópu. Það er áhugaverð helgi að baki í ensku úrvalsdeildinni og margt að ræða!
Apr 03, 2017
Markvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson hefur verið að standa sig mjög vel hjá danska úrvalsdeildarliðinu Nordsjælland. Liðið hefur verið á flottu skriði með Íslendinginn sjóðheitan í markinu.
Apr 03, 2017
Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson gerðu upp liðna landsliðstörn í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 í dag. Þeir fóru meðal annars yfir meðaleinkunnir leikmanna Íslands nú þegar riðlakeppnin í undankeppni HM er hálfnuð.
Apr 02, 2017
Kristján Atli Ragnarsson, ritstjóri á kop.is, fór yfir 3-1 sigur Liverpool gegn Everton í ensku úrvalsdeildinni í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu í dag. Þrátt fyrir sigurinn var Kristján sótillur út í leikplan Everton og frammistöðu dómarans.
Apr 01, 2017
Keppni í norsku úrvalsdeildinni fer af stað en opnunarleikurinn er viðureign Kristiansund og Molde. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson ræddu við Andra Júlíusson, sérfræðing um norska boltann, í útvarpsþættinum Fótbolti.net í dag. Skoðuð var spá fyrir deildina og rætt um Íslendingana sem þar spila. Hlustaðu á umræðuna í spilaranum hér að ofan.
Apr 01, 2017
Í þessum þriðja þætti heimsækjum við Hernan Crespo, Gianluigi Buffon og Juan Sebastian Veron til Parma. Félagið frá matarhöfuðborginni sem nefnt var í höfuðið á einu frægasta tónskáldi heims. Í seinni tíð hafa tvö ævintýraleg gjaldþrot sett spor sín á Parma og leikur félagið nú í þriðju deild á Ítalíu.
Mar 31, 2017
„Það var náttúrulega frábært. Það er frábær tilfinning að vera aftur kominn á völlinn og það skemmdi ekki fyrir að ná að skora," sagði Alfreð Finnbogason, framherji Augsburg í Þýskalandi, í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolta.net á X-inu FM 97,7 í dag. Alfreð spilaði á fimmtudag æfingaleik með Augsburg gegn Greuther Fürth. Alfreð skoraði mark Augsburg með þrumuskoti á 18. mínútu leiksins, en leikurinn endaði með 1-1 jafntefli.
Mar 25, 2017
Magnús Már Einarsson og Tómas Þór Þórðarsson fengu til sín góðan gest í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 í dag. Arnar Grétarsson, þjálfari Breiðabliks í Pepsi-deild karla, mætti til þeirra félaga og ræddi landsleikinn sem fram fór í gærkvöldi.
Mar 25, 2017
Í þessari viku förum við á sögufrægar slóðir og heimsækjum Fiorentina. Þar hittum við fyrir framherjann Batistuta með ljónsmakkann og hríðskotabyssufagnið, miðjumanninn Angelo Di Livio sem spilaði alltaf í skrúfutökkum og Rui Costa með sokkana rúllaða niður á ökkla.
Mar 24, 2017
Ármann Smári Björnsson tilkynnti nýlega að skórnir væru farnir á hilluna. Ármann hefur verið lykilmaður í liði ÍA undanfarin ár.
Mar 23, 2017
Íslenska landsliðið var til umræðu í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu í dag en í gær var landsliðshópurinn fyrir komandi leik gegn Kosóvó í undankeppni HM opinberaður. Hjörvar Hafliðason kom í heimsókn og ræddi um umræðuna um Viðar Örn Kjartansson, skoðaði hópinn, líklegt byrjunarlið gegn Kosóvó og fleira.
Mar 18, 2017
Elvar Geir Magnússon og Benedikt Bóas Hinriksson ræddu um Meistaradeildina í útvarpsþættinum Fótbolti.net í dag. Farið var yfir dráttinn í 8-liða úrslitum og heyrt í Birni Má Ólafssyni sérfræðingi um ítalska boltann sem fræddi okkur um Juventus.
Mar 18, 2017
Ítalski boltinn er nýtt Podcast í umsjón Björns Más Ólafssonar. Í hverjum þætti verður fjallað ítarlega um eitt ítalskt knattspyrnulið á Ítalíu. Verður farið yfir sögu félagsins, menningu og áhugaverðar staðreyndir.
Mar 17, 2017
Sjálftitluðu 4. deildar sérfræðingarnir Ingólfur Sigurðsson og Runólfur Trausti ræddu fjórðu deildina eða Passion League eins og hún er stundum kölluð í dag.
Mar 15, 2017
Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz fara yfir enska boltann í Evrópu-Innkastinu og einnig er rætt um spænska boltann. Rætt er um sigur Chelsea gegn Manchester United í bikarnum í kvöld og farið yfir leikina um liðna
Mar 13, 2017
Grétar Rafn Steinsson, fyrrum landsliðsmaður Íslands, var í áhugaverðu viðtali í útvarpsþætti Fótbolta.net á laugardaginn. Grétar er yfirmaður fótboltamála hjá Fleetwood Town sem er í öðru sæti í ensku C-deildinni og er í baráttu um að komast í fyrsta sinn upp í B-deildina.
Mar 13, 2017
Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson fengu góðvini þáttarins í þriðja fjórðungsuppgjör ensku úrvalsdeildarinnar. Tryggvi Páll Tryggvason af raududjoflarnir.is og Kristján Atli Ragnarsson af kop.is mættu í hljóðver X-ins 97,7.
Mar 11, 2017
Það var góð yfirferð yfir enska boltann í hljóðvarpsþættinum Evrópu-Innkastið þessa vikuna. Daníel Geir Moritz og Elvar Geir Magnússon voru á sínum stað. Martin Sindri Rosenthal, stuðningsmaður Liverpool, var með þeim.
Mar 07, 2017
„Maður finnur að maður er viljugri til að fara út í útihlaupin vitandi að við verðum í Evrópukeppni. Maður vill vera í standi og við viljum ná langt og mæta skemmtilegum liðum," segir Guðjón Baldvinsson, sóknarmaður Stjörnunnar, í viðtali við útvarpsþáttinn Fótbolti.net.
Mar 06, 2017
Grindvíkingar eru á fullu að búa sig undir tímabil meðal þeirra bestu í sumar eftir að hafa náð að komast upp úr Inkasso-deildinni. Jónas Þórhallsson, formaður Grindavíkur. hefur mjög lengi verið í fararbroddi í fótboltanum í bæjarfélaginu. Rætt var við Jónas í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu í gær og þar sagðist hann sannfærður um að liðið geti gert góða hlut í sumar.
Mar 05, 2017
„Tæknilega séð ætti þetta lið að verða ósigrandi í deildinni, það ætti að vinna alla leiki auðveldlega," segir Magnús Valur Böðvarsson, helsti sérfræðingur þjóðarinnar um neðstu deildir landsins.
Mar 05, 2017
„Við erum í 17 gráðum í dag, sól, rigning og ský til skiptis," sagði Glódís Perla Viggósdóttir, varnarmaður íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu 97,7 í dag. „Við búumst samt við sól næstu þrjá daga," bætti Glódís við, en hún er þessa stundina stödd á Algarve-mótinu í Portúgal með íslenska landsliðinu.
Mar 04, 2017
Leikur Leicester og Liverpool, brotthvarf Ranieri og deildabikarsigur Manchester United skipa stóran sess í Evrópu-Innkasti vikunnar. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz eru á sínum stað en Tómas Þór Þórðarson var með þeim í kvöld.
Feb 27, 2017
Undirbúningstímabilið á Íslandi er farið á fulla ferð en farið var yfir stöðu mála við Pepsi-hringborðið í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7. Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson, Benedikt Bóas Hinriksson og Tryggvi Guðmundsson voru við hringborðið.
Feb 26, 2017
Jónas Gestur Jónasson, formaður Víkings Ólafsvíkur, var á línunni í útvarpsþætti Fótbolta.net í dag. Fyrr í þættinum hafði Tryggvi Guðmundsson greint frá þeirri skoðun sinni að miðað við stöðuna í dag væri Víkingur Ólafsvík líklegasta liðið í Pepsi-deildinni til að falla. Jónas viðurkennir að sú spá komi ekkert endilega á óvart.
Feb 25, 2017
Það er úrslitaleikur í enska deildabikarnum á morgun þegar Manchester United og Southampton eigast við. Hitað var upp fyrir leikinn við enska hringborðið í útvarpsþætti Fótbolta.net. Einnig var rætt um umtalaðan brottrekstur Claudio Ranieri frá Leicester og Evrópumartröð Tottenham.
Feb 25, 2017
Það er komið að Evrópu-Innkastinu þessa vikuna. Daníel Geir Moritz og Elvar Geir Magnússon fóru yfir málin og svo var Benedikt Bóas Hinriksson með þeim seinni hlutann.
Feb 22, 2017
Fótbolti.net fékk Pétur Marteinsson, fyrrum landsliðsmann, í heimsókn í útvarpsþáttinn á X-inu til að segja nokkuð ítarlega frá stöðu mála varðandi Laugardalsvöll, þjóðarleikvang okkar Íslendinga. Pétur fer fyrir hönd Borgarbrags í vinnu við að undirbúa endurbyggingu vallarins.
Feb 19, 2017
Þrír ungir Fjölnismenn mættu í útvarpsþáttinn Fótbolti.net og ræddu við Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson. Það eru þeir Viðar Jónsson, Birnir Snær Ingason og Ægir Jarl Jónasson.
Feb 19, 2017
Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson ræddu nokkrar af helstu fótboltafréttum vikunnar í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu í dag. Í spilaranum hér að ofan er hægt að hlusta á umræðuna.
Feb 18, 2017