Eldur og brennisteinn - Allur þátturinn
May 02, 2021•1 hr 8 min•Season 1Ep. 5
Episode description
Snæbjörn og Heiðar byrja á að velta fyrir sér hvernig forsetahjónin tengjast Onlyfans-krökkunum. Einnig vilja þeir að Bónus fari að taka til í sjálfsafgreiðslumálum hjá sér, þeir segja fitusmánun ofbeldi, að Eyþór Arnalds sé helsti vandi XD í borginni og styðja við bakið á Önnu Töru Andrésdóttur í baráttu hennar við ritskoðun á þessum vef, Vísi (E&B eru nefnilega of heimskir til að bíta ekki höndina sem fóðrar þá). Nú er hægt að nálgast Eld og brennistein á öllum helstu hlaðvarpsveitum og á X977-appinu. BYKO (sem þolir ekki að þaggað sé niður í umræðunni) býður upp á þáttinn.
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android
