Eldur og brennisteinn - podcast cover

Eldur og brennisteinn

Vísirwww.visir.is
Heiðar Sumarliðason og Snæbjörn Brynjarsson eru léttir á bárunni og taka á málefnum líðandi stundar, sem og fortíðar. Ekkert er þeim óviðkomandi og „hot take“ eru þeirra ær og kýr.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Í skugga sögunnar 1989: Alltaf sama fokking kjaftæðið

Vegna fjölda áskoranna er hér hægt að nálgast þátt þar sem Eldur og brennisteinn fara yfir hvað á daga þjóðarinnar dreif árið 1989. Þessi þáttur var tekinn upp sl. sumar en var ekki settur á netið (vegna annarskonar áskoranna). Einnig hefur þáttur um árið 1984 verið birtur og hægt að finna hann með því að smella á Eldur og brennisteinn flipann hér að neðan.

Dec 04, 20211 hr 5 minSeason 1Ep. 20

Í skugga sögunnar - 1984

Vegna fjölda fyrirspurna er hér annar af óbirtu þáttum E&B: Í skugga sögunnar sem tekinn var upp í sumar um árið 1984.

Nov 29, 202148 minSeason 1Ep. 19

Íslendingar þola nefnilega ekki framapotara

Íslendingar þola flestir ekki framapotara, sama hvers kyns potarinn er. Testalausu karlfeministarnir Heiðar og Snæbjörn ræða Sjálfstæðisflokkinn, aðallega sjálfstæðiskonur, sem hafa farið mikinn í vikunni. BYKO býður upp á Eld og brennistein.

Jun 27, 202154 minSeason 1Ep. 18

Ófarir Íslendinga í Ástralíu kættu Moggamenn

Í lok sjöunda áratugarins freistuðu margir Íslendingar gæfunnar og fluttu búferlum í sólina í Ástralíu. Lífið þar var þó ekki tekið út með sældinni og bjuggu margir landar okkar þar við kröpp kjör. Margir komu heim með skottið á milli lappanna og að sjálfsögðu hlakkaði í Staksteinum Morgunblaðsins enda Ísland, undir styrkri stjórn Sjálfstæðisflokksins, best í heimi. Þetta er brot úr nýjasta þætti Elds og brennisteins: Í skugga sögunnar, þar sem Heiðar og Snæbjörn taka árið 1971 fyrir. Hægt er að...

Jun 21, 202113 minSeason 1Ep. 16

Eldur og brennisteinn: Í skugga sögunnar

Eldur og brennisteinn: Í skugga sögunnar lítur um öxl og skoðar árið 1971. Strandaglópar í Ástralíu, geirfuglsuppboð, hundaútrýmingarbúðir, konan til vandræða og þjóðin fitnar.

Jun 20, 20211 hr 18 minSeason 1Ep. 15

Atvinnuástandið - Enginn vill skítadjobb á skítakaupi

Atvinnuveitendur kvarta undan því að atvinnulausir vilji ekki taka illa borguðu skítadjobbin þeirra. Þetta er brot úr nýjasta þætti Elds og brennisteins, hægt er að hlýða á hann allan með því að smella á Eldur og brennisteinn flipann hér að neðan. BYKO býður upp á þáttinn.

Jun 01, 20219 minSeason 1Ep. 14

Vikan þar sem áhrifavaldarnir misstu kúlið

Það ætlaði allt um koll að keyra þessa vikuna hjá áhrifavöldunum. Hnefasamlokur og voodoo-dúkkur. Heiðar og Snæbjörn velta fyrir sér og afbyggja það sem fyrir augu bar. BYKO býður upp á Eld og brennistein.

May 30, 202159 minSeason 1Ep. 13

Season 3 af Samherjasápunni nær nýjum hæðum

Þegar áhorfendur töldu líklegt að Samherjasápan færi að dala koma höfundar hennar inn með nýjan kraft og glás af súrreal steypu. Þetta er brot úr nýjasta þætti Elds og brennisteins, en hægt er að hlýða á hann allan með því að smella á Eldur og brennisteinn flipann hér að neðan. Einnig er hægt að nálgast þáttinn á X977 appinu og í hlaðvarpi. BYKO býður upp á þáttinn.

May 25, 202116 minSeason 1Ep. 12

Naglar reknir í dekk bíls Alexöndru

Snæbjörn og Heiðar fengu Alexöndru Briem nýskipaðan forseta borgarstjórnar í spjall og ræddu allt milli himins og jarðar (sem og Vigdísi Hauksdóttur). Þetta er E&B-viðtals aukaþáttur, hægt er að hlýða á nýjasta þáttinn þar sem Heiðar og Snæbjörn láta gamminn geisa með því að smella á Eldur og brennisteinn flipann hér að neðan. BYKO býður upp á Eld og brennistein.

May 24, 20211 hr 9 minSeason 1Ep. 11

Harðasta naglanum bolað af þingi

Heiðar og Snæbjörn heiðra harðasta naglann, Gunnar Braga Sveinsson, sem verið er að bola af þingi. Einnig ræða þeir hversu mikla fúskara Samherji er með í vinnu, hvers vegna Play Air/Player er vonlausasta flugfélagið og svo náttúrulega ofbeldi ofbeldi og aftur ofbeldi. BYKO býður upp á Eld og brennistein.

May 23, 20211 hr 3 minSeason 1Ep. 10

Það er hægt að laga ofbeldiskúltúr í grunnskólum

Eldur og brennisteinn extra. Heiðar og Snæbjörn fengu Önnu María Þorkelsdóttur, kennsluráðgjafa hjá Reykjavíkurborg, til að ræða hvernig hægt er að laga slæman kúltúr innan grunnskóla. BYKO býður upp á Eld og brennistein, sem einnig er hægt að nálgast á X977 appinu og í hlaðvarpi.

May 22, 20211 hrSeason 1Ep. 9

Náungi sem lemur allar konur sem hann er með

Heiðar og Snæbjörn eru enn að velta ofbeldi fyrir sér. Þeir ræða m.a. um viðtalið í Fréttablaðinu við Lindu Gunnarsdóttur, sem og pistil Auðar Jónsdóttur á Facebook um eðli ofbeldis. BYKO býður upp á Eld og brennistein.

May 16, 202142 minSeason 1Ep. 8

Hrint niður stiga, dregnar á hárinu, kallaðar hórur

Heiðar og Snæbjörn ræddu við Gígju Skúladóttur um hræðilega vist hennar og fleiri stúlkna á meðferðarheimilinu Laugalandi. Þetta er brot úr nýjasta þætti Elds og brennisteins, en hægt er að finna hann allan með því að smella á Eldur og brennisteinn flipann hér að neðan. BYKO býður upp á þáttinn. Instagram: eldurogbrennisteinn

May 10, 202112 minSeason 1Ep. 7

Ofbeldismaðurinn sagður góðvinur forstjóra Barnaverndarstofu

Gígja Skúladóttir er ein þeirra kvenna sem saka Ingjald Arnþórsson, fyrrum forstöðumann meðferðarheimilisins Laugalands, um langvarandi ofbeldisbrot. Gígja ræddi við Heiðar og Snæbjörn um árin sem hún dvaldi á Laugalandi, afleiðingarnar, stöðuna á rannsókn málsins og vináttu Ingjalds og Braga Guðbrandssonar, fyrrum forstjóra Barnaverndarstofu. BYKO býður upp á Eld og brennistein, sem nú er einnig hægt að nálgast á X977 appinu og helstu hlaðvarpsveitum. Instagram: eldurogbrennisteinn

May 09, 20211 hrSeason 1Ep. 6

Eldur og brennisteinn - Allur þátturinn

Snæbjörn og Heiðar byrja á að velta fyrir sér hvernig forsetahjónin tengjast Onlyfans-krökkunum. Einnig vilja þeir að Bónus fari að taka til í sjálfsafgreiðslumálum hjá sér, þeir segja fitusmánun ofbeldi, að Eyþór Arnalds sé helsti vandi XD í borginni og styðja við bakið á Önnu Töru Andrésdóttur í baráttu hennar við ritskoðun á þessum vef, Vísi (E&B eru nefnilega of heimskir til að bíta ekki höndina sem fóðrar þá). Nú er hægt að nálgast Eld og brennistein á öllum helstu hlaðvarpsveitum og á ...

May 02, 20211 hr 8 minSeason 1Ep. 5

Eldur og brennisteinn - Allur þátturinn.

Heiðar Sumarliðason og Snæbjörn Brynjarsson fóru ekki varhluta af umræðunni er varðar ákveðin líkindi með sjónvarpsþáttunum Systraböndum og leikritinu Hystory. Það var þá sem Heiðar gerði sér grein fyrir að margar eindir úr þáttunum má einnig finna í verki hans (90)210 Garðabær, sem sýnt var í Þjóðleikhúsinu sama ár og Hystory var á fjölum Borgarleikhússins. En þar drepa þrjár æskuvinkonur aðra konu, losa sig við líkið og þurfa svo að fást við afleiðingarnar. En er virkilega hægt að tala um eitt...

Apr 18, 20211 hr 20 minSeason 1Ep. 4

Eldur og brennisteinn - Allur þátturinn

Kári getur ekki hætt að uppnefna fólk, Jóhannes er ekki lengur útskýrari heldur gaslýsari, erlendir glæpahópar og túristar það hættulegasta í dag og samstarf VG og XD er eins og hjónaband þar sem foreldrarnir eru ekki sammála um uppeldisaðferðirnar. Eldur og brennisteinn hefur snúið aftur í hlaðvarp og hægt er að gerast áskrifandi að þættinum á helstu hlaðvarpsveitum. BYKO býður upp á Eld og brennistein.

Apr 11, 20211 hr 13 minSeason 1Ep. 3

Eldur og brennisteinn - Allur þátturinn

Það er allt að verða vitlaust, alls staðar! Róbert Wessman á útopnu, Covid-fangelsi, KSÍ með allt niður um sig og margt fleira. Eldur og brennisteinn er aftur kominn í hlaðvarp og því hægt að fá þáttinn beint í símann með því að ýta á subscribe. Eldur og brennisteinn er í boði BYKO.

Apr 03, 202152 minSeason 1Ep. 2

Eldur og brennisteinn - Allur þátturinn

Snæbjörn og Heiðar velta því m.a. fyrir sér hverjum sé hægt að kenna um fjórðu bylgju Covid, og hvort Frosti Logason hafi farið yfir strikið gagnvart forsætisráðherra. Einnig vilja þeir að eiginkona Helga Seljan taki af honum samfélagsmiðlalykilorðin, svo fjalla þeir um Exit 2 sem er nú hægt að finna á ruv.is, ásamt því að fá óvænta heimsókn frá Securitas. BYKO býður upp á Eld og brennistein.

Mar 28, 20211 hr 21 minSeason 1Ep. 1
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android