www.patreon.com/einpaeling Hermundur Sigmundsson er prófessor í lífeðlislegri sálfræði við háskólann í Þrándheimi í Noregi. Hann býr yfir áratuga reynslu í rannsóknum á lestrarhæfni og árangri skólabarna sem hann hefur kynnt víða um heim. Hermundur hefur stórkostlegar áhyggjur af þróun skólamála hér á landi og telur hann að ef að ekki sé tekist á við þennan vanda verði erfitt að vinda ofan af því.
Dec 21, 2022•26 min
www.patreon.com/einpaeling Hannes Hólmsteinn skrifaði nýlega bók um Landsdómsmálið. Nefnist hún Landsdómsmálið - Stjórnmálarefjar og Lagaklækir. Í þessu hlaðvarpi ræðir Þórarinn við Hannes um bókina, hrunið 2008, pólitíska ábyrgð, og margt fleira.
Dec 17, 2022•26 min
Www.Patreon.com/einpaeling Þórarinn, Ívar Elí og Eyþór kryfja helstu málefnin.
Dec 15, 2022•26 min
www.patreon.com/einpaeling Þórarinn ræðir við Andreu Sigurðardóttur um kjaramál, femínisma, tjáningarfrelsi og fleira.
Dec 09, 2022•26 min
Tóti speaks with Coleman Hughes about police brutality, political discourse, culture and more.
Dec 03, 2022•48 min
Upptaka af fyrsta live-hlaðvarpi Einnar Pælingar en gesturinn var Brynjar Níelsson og rætt var um forvirkar rannsóknarheimildir og hælisleitendur.
Nov 30, 2022•1 hr 33 min
https://tix.is/is/buyingflow/tickets/14455/ Þórarinn ræðir við Heiðar Guðjónsson í annað skiptið. Heiðar skrifaði nýverið grein um orkuskiptin og vannýtt tækifæri Íslands til þess að hafa marktæk áhrif gagnvart þeim krefjandi áskorunum sem Evrópa stendur nú frammi fyrir vegna innrásar Rússa í Úkraínu.
Nov 23, 2022•31 min
Miðar á live-show: https://tix.is/is/buyingflow/tickets/14455/ Aron Ólafsson er framkvæmdarstjóri Rafíþróttasamband Íslands. Í þessu hlaðvarpi er rætt um hlutverk sambandsins, hvort að tölvuleikir eigi að teljast til íþrótta, samanburð við aðrar íþróttir og margt fleira.
Nov 18, 2022•32 min
Miðar á live-show: https://tix.is/is/buyingflow/tickets/14455/ Eyþór, Ívar Elí og Þórarinn ræða um flóttamannamál, jöfn tækifæri, stríðið í Úkraínu og fleira.
Nov 14, 2022•33 min
Lawrence Krauss joins Toti for the second time. Now to discuss the importance of science, black holes, controversies and much more.
Nov 11, 2022•34 min
www.patreon.com/einpaeling Þórarinn ræðir við Gísla Frey Valdórsson, blaðamann á viðskiptadeild Morgunblaðsins og hlaðvarpsstjórnandi Þjóðmála. Í þættinum er rætt um hvor muni bera sigur úr býtum í formannskjöri Sjálfstæðisflokksins, Twitter herinn, hvernig Gísli myndi ráðleggja Kristrúnu Frostadóttur væri hann hennar persónulegi ráðgjafi og margt fleira.
Nov 03, 2022•33 min
In 2016-17 Þórarinn and Bruce Bagnall shared an experience in an American academic institution. This is what they experienced.
Oct 31, 2022•49 min
w www.patreon.com/einpaeling Bogi Ágústsson er fréttamaður á RÚV til fjörutíuogsex ára. Í þessu hlaðvarpi ræðir Bogi um hvernig fjölmiðlar hafa breyst, mikilvægi tengsla Ísland við Norðurlöndin í fjölmiðlun, hina gylltu fortíð, hvernig stjórnmál hafa breyst og margt fleira.
Oct 28, 2022•31 min
www.patreon.com/einpaeling Þórarinn ræðir við Bjartmar Odd Þey Alexandersson um lýgilega samantekt Bjartmars í Stundinni um endurvinnslumál á Íslandi. Rætt er um glerendurvinnslu, Úrvinnslusjóð, plastið í Svíþjóð og tregðu af hálfu iðnaðarins gagnvart upplýsingaöflun blaðamanna.
Oct 24, 2022•29 min
Þórarinn ræðir efnahagshorfur við Björn Berg Gunnarsson, deildarstjóra greiningar og fræðslu hjá Íslandsbanka. www.patreon.com/einpaeling
Oct 21, 2022•31 min
Stutt upptaka með Ólafi Þ. Harðarsyni en mixerinn gaf upp öndina og restin af upptökunni eyðilagðist. Á þeim stutta tíma er rætt um framtíðarhorfur í stjórnmálunum og hryðjuverkamálið.
Oct 14, 2022•19 min
Þórarinn ræðir við Margréti Valdimarsdóttur í þriðja sinn. Að þessu sinni er rætt um forvirkar rannsóknarheimildir, vopnaburð lögreglu, rafbyssur, ACAB og Thin Blue Line hugmyndafræðin og lagaleg viðbrögð í kjölfar hryðjuverkaógnar.
Oct 11, 2022•39 min
Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, mun á næstu dögum leggja fram tillögu um breytingu á aðild launþega að stéttarfélögum. Hér er rætt við Óla Björn um stéttarfélög, vanþekkingu fólks á réttindum sínum, stjórnmálamenningu, frumvarp Jóns Gunnarssonar um auknar rannsóknarheimildir lögreglumanna, hugmyndafræði og margt fleira.
Oct 07, 2022•39 min
Gad Saad is an evolutionary biologist who focuses on consumer behavior. In this conversation Tóti and Gad discuss various topics. Including academic culture, universal truths and postmodernism which is the focus of his book, the Parasitic mind. In the latter half the conversation moves towards Gad's clash with Sam Harris. To support this work: www.patreon.com/einpaeling
Oct 02, 2022•1 hr 1 min
www.patreon.com/einpaeling Þórarinn fær til sín góðvin þáttarins hann Jakob Bjarnar Grétarsson. Að þessu sinni er rætt um leikrit sem sætti mikilli gagnrýni nýverið og nefnist Sem á himni. Var það gagnrýnt fyrir að hafa sýnt fötluðum lítilsvirðingu og ekki vera nægilega nærgætin í sinni túlkun á þessu sænska leikriti.
Sep 28, 2022•34 min
Kristrún Frostadóttir kemur í heimsókn í hlaðvarpið til þess að ræða sínar áherslur ef hún verður kjörin formaður Samfylkginarinnar en hún bauð sig nýlega fram til þess að sinna því hlutverki.
Sep 24, 2022•41 min
Guðlaugur Þór er Umhverfis, orku- og loftslagsráðherra og situr á Alþingi fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins. Í þessu hlaðvarpi ræðir Þórarinn við Guðlaug um áhrif stríðsins á orkumál, hvort að Íslands sé í stöðu til þess að selja orku erlendis, loftslagsmarkmið og fleira.
Sep 22, 2022•58 min
Tóti speaks with Konstantin Kisin about his new book; An Immigrants Love Letter to the West. Konstantin is a comedian and a host of the increasingly popular podcast Triggernometry. The conversation covers a wide range of topics, including fatherlessness and the breakdown of the family structure, gratitude, Western culture, free speech, the mainstream media, and Konstantin's experience growing up in the Soviet Union. To support this work visit: www.patreon.com/einpaeling For audio version: https:...
Sep 18, 2022•1 hr 10 min
Þórarinn ræðir við Tjörva Schiöth um hvort sé betra efnahagskerfi fyrir Ísland, sósíalismi eða kapítalismi.
Sep 13, 2022•33 min
Sigurður Már er meðstofnandi Arcade.is en hann og Þórarinn störfuðu áður saman við dyragæslu sem meðal annars er rætt um í hlaðvarpinu. Farið er um víðan völl. Rætt er um sjálfsímynd ungs fólks og samfélagsmiðla, neikvæðni, hvort það sé hægt að skíta upp á bak og koma til baka, djammmenning og hnífaárásir, tjáningafrelsi og fleira.
Sep 02, 2022•35 min
Hildur Sverrisdóttir situr á Alþingi fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins. Í þessum þætti ræðir Þórarinn við Hildi um frelsi. Sérstaklega er beint sjónum að stöðu valdhafa, hvað það þýðir að vera hægri manneskja, íhald, faraldurinn, notkun nikotínpúða og áfengi í verslanir.
Aug 26, 2022•41 min
www.patreon.com/einpaeling Heiðar Guðjónsson er fráfarandi forstjóri fjölmiðlasamsteypunnar Sýnar, sem rekur meðal annars Vodafone, Stöð 2, Vísi og Bylgjuna. Hann hefur verið umsvifamikill á ýmsum sviðum atvinnulífsins, bæði á Íslandi og víða annars staðar. Í þessu hlaðvarpi ræðir Þórarinn við Heiðar um fyrirtækjarekstur á Íslandi, hvatastýringu, hvernig það er að reka fjölmiðil, aðkomu stjórnvalda að verðmætasköpun, erfitt umhverfi til sérhæfingar á Íslandi, ábyrgð og skyldur ungs fólks, samfél...
Aug 20, 2022•56 min
Er Brynjar Níels hinn nýji almannatengill? Hafa Hjörvar Hafliða og FM95Blö meiri áhrif á íslenska menningu heldur en fólkið á Twitter? Brugðust stjórnvöld rétt við í veirufaraldrinum? Hvaða flokk kýs hinn þögli meirihluti? Árni Helgason, fyrrum hlaðvarpsstjórnandi Hismisins, lögmaður og fleira, reynir ásamt Þórarni Hjartarsyni að svara þessum spurningum og fjölmörgum öðrum.
Aug 16, 2022•52 min
Már Wolfgang Mixa, lektor í fjármálum við Háskóla Íslands, komst nýlega í fréttirnar þegar hann tjáði fjölmiðlum að það myndi ekki koma honum á óvart ef að húsnæðisverð myndi koma til með að taka dýfu á næstunni. Í þessu hlaðvarpi er rætt um hvað hafi áhrif á fasteignaverð, ástæður þess afhverju Már telur að það muni koma til með að taka dýfu, leigumarkaðinn, kjaraviðræður, hrunið og fleira.
Aug 13, 2022•44 min
www.patreon.com/einpaeling Kristín Sif er útvarpskona, áhrifavaldur, afrekskona í hnefaleikum og margt fleira. Í þessu hlaðvarpi er rætt um áhrif samfélagsmiðla á sálarlíf ungs fólks og áhrifavalda. Farið er yfir hvort að þetta sé óumflýjanlegur veruleiki barnanna okkar, hvernig maður getur komist hjá því að vera stanslaust tengdur, breytt samskiptamynstur og margt fleira.
Aug 10, 2022•54 min