Vilhjálmur Árnason er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Hann telur sjávarútvegskerfið vera mikilvæga stoð í íslensku samfélagi og að gagnrýni á það byggist helst á öfund þeirra sem að keyptu ekki kvóta eða seldu hann snemma. Í þessum þætti er rætt um réttlæti, Samherjamálið, milliverðlagningu, uppbyggingu kerfisins, hugmyndafræði og margt fleira.
Aug 07, 2022•39 min
Þórarinn Ingi þingmaður Framsóknarflokksins mætir í annað skipti í hlaðvarpið. Að þessu sinni er rætt um niðurgreiðslu í landbúnaði, stöðu fæðuöryggis í heiminum vegna innrásarinnar, samráð, hugmyndafræði og margt fleira.
Aug 04, 2022•38 min
Bjarni Kristinn Gunnarsson er sálfræðingur sem að hefur tjáð sig um áhrif samfélagsmiðla á ungt fólk. Í þessu hlaðvarpi spyr Þórarinn Bjarna úr spjörunum um framtíðarhorfur í þessum efnum, hvað sé hægt að gera til þess að sporna við vanlíðan og kvíða ungs fólks og hvers vegna þessir geðheilsukvillar hafa aukist undanfarin ár.
Jul 31, 2022•37 min
Þorsteinn Guðmundsson er klínískur sálfræðingur en margir muna eflaust eftir honum úr sjónvarpsþáttunum sívinsælu Fóstbræðrum. Þórarinn ræðir við Þorstein um vanlíðan, áföll, kvíða, samskipti foreldra, reiða foreldra og margt fleira. Að lokum spyr Þórarinn Þorstein hver sé hans uppáhalds stikla í Fósbræðrum.
Jul 29, 2022•41 min
Þórarinn ræðir við Bergþór Ólason þingmann Miðflokksins. Rætt er um stöðu Miðflokksins, innflytjendamál, orkumál og menningu.
Jul 23, 2022•53 min
Hjörtur J. Guðmundsson er alþjóðastjórnmálafræðingur sem hefur undanfarið skrifað pistla um leiðtogakosningar Íhaldsflokksins í Bretlandi á ýmsum vettvöngum. Í þættinum er rætt um þessar snörpu en mikilvægu kosningar en kjörinn leiðtogi verður sjálfkrafa forsætisráðherra Bretlands. Farið er stuttlega yfir sögu leiðtogavals Íhaldsflokksins, rætt um Brexit, ESB, "Rauða Múrinn" í norðri og fleira.
Jul 19, 2022•54 min
Ólafur Margeirsson snýr aftur í þáttinn. Ólafur er með doktorsgráðu í hagfræði og fjallar mikið um húsnæðismál á Íslandi á Patreon reikningi sínum. Að þessu sinni er rætt stöðu efnahagsmála í víðu samhengi. Rætt er um áform ríkisstjórnarinnar að byggja 35.000 nýjar íbúðir á næstu 10 árum sem nú virðist vera möguleiki þrátt fyrir að það hafi talist ómögulegt þegar að Sósíalistaflokkurinn lagði það fram fyrir síðustu kosningar. Auk þess er rætt um vaxandi verðbólgu, mögulega kreppu bæði á Íslandi ...
Jul 17, 2022•47 min
Atli Thor Fanndal er framkvæmdarstjóri samtakanna Transparency International sem að berjast gegn spillingu. Í hlaðvarpinu er meðal annars rætt um spillingu á Íslandi, Samherjamálið, Íslandsbankasöluna, hvort spilling sé öðruvísi á Íslandi en annarsstaðar, stöðu stjórnmálaflokkanna í þeim efnum, og þá sérstaklega Sjálfstæðisflokksins.
Jul 14, 2022•1 hr 2 min
Recorded in December of 2021: Zuby is an entrepreneur, rapper, coach, podcast host, and the list goes on. Zuby has made an impact on cultures around the world with his unique voice conveying a message of personal resilience and responsibility. He is not afraid to challenge the popular narrative in every sphere of society. In this conversation, Tóti and Zuby discuss the challenges to free speech, woke-ism, and culture.
Jul 10, 2022•1 hr 3 min
Lawrence M. Krauss is an American theoretical physicist who runs the Origins Project Foundation. He served on the science-policy committee for Barack Obama in 2008 and has taught at some of the most elite institutions in America. In this conversation Tóti probes Lawrence about what are the greatest threats to science today. They speak about university culture, the impacts of woke thinking, the influence of politics, the dangers of speaking out, and much more. The second half of the conversation ...
Jul 09, 2022•39 min
Þórarinn ræðir við Arnar Sigurðsson sem er frumkvöðull á sviði netverslunar áfengis. Rætt er um lýðheilsu, frelsi, samfélagslegt umburðarlyndi, drykkju ungmenna og margt fleira.
Jul 06, 2022•40 min
www.patreon.com/einpaeling Brynjar Níelsson mætir í tólfta skiptið. Að þessu sinni er rætt um transmál, þungunarrof, #MeToo, þversagnarkennda rökhugsun rétttrúnaðarins, mál Vítalíu og Arnars Grant og margt fleira.
Jul 01, 2022•1 hr 13 min
Arnar Þór Ingólfsson, blaðamaður Kjarnans, skrifaði nýlega leiðara um síðastliðnar borgarstjórnarkosningarnar. Í þessu hlaðvarpi er rætt um þau skrif. Titill leiðarans er "Flokkurinn sem útilokaði sjálfan sig" og fjallar um að Sjálfstæðisflokknum hafi tekist að útiloka sjálfan sig fyrir síðustu kosningar. Arnar gefur lítið fyrir hugmyndir flokksmanna Sjálfstæðisflokksins um að aðrir séu að beina spjótum sínum að flokknum og telur að áherslur og framboðslistinn sé meginorsök þess að margir flokka...
Jun 29, 2022•34 min
www.patreon.com/einpaeling Jóhann Páll er fyrrum blaðamaður á Stundinni en hann situr nú á þingi fyrir hönd Samfylkingarinnar. Í þættinum er drepið á ýmsu. Rætt er um stöðu minnihlutaflokka á Alþingi, hvernig megi betur búa um hnútanna þegar það kreppir að í efnahagsmálum, sérstöðu og formannsmál Samfylkingarinnar og margt fleira.
Jun 24, 2022•43 min
Halldór Kári er hagfræðingur fasteignasölunnar Húsaskjól. Í þessum þætti er rætt um áhrif ákvarðanna Seðlabankans, skuldsetningu ungs fólks á fasteignamarkaði, framtíðarhorfur, stöðu sveitarfélaga og fleira.
Jun 18, 2022•34 min
Dr. Jordan Peterson mætir til Íslands í annað skipti þann 25. júní næstkomandi. Gunnlaugur Jónsson sér um að láta þessi kvöld verða að veruleika en í þessu hlaðvarpi ræðir Þórarinn við hann um hugmyndir og áherslur Peterson ásamt öðru. Rætt erum frjálshyggju, frelsi, ábyrgð, síbreytilegum áherslum vinstri- og hægrimennsku í vestrænum samfélögum, hamingju, velferð og fleira.
Jun 10, 2022•47 min
Albert Jónsson er einn helsti sérfræðingur Íslendinga á sviði alþjóðasamskipta. Þetta er í annað skiptið sem að Albert kemur í hlaðvarpið og umræðuefnið að sjálfsögðu stríðið í Úkraínu. Rætt er um hver sé að vinna stríðið, herþreyta beggja fylkinga, vanmat Rússa á samstöðu Vesturveldanna, áhrif refsiaðgerða, breytt staða í málefnum flóttamanna, stöðu Íslands og NATO aðild Finna og Svía.
Jun 04, 2022•36 min
www.patreon.com/einpaeling Arndís Anna hefur verið áberandi í umræðum undanfarna daga um hælisleitendur og hópbrottvísun sem á að framfylgja á næstu dögum. Í þessu hlaðvarpi er rætt um pólitískan áhuga fyrir auknum stuðningi við hælisleitendur, hversu mörgum Ísland eigi að taka á móti, menningarárekstra, aðlögun, reynslu Norðurlandanna og fleira.
Jun 02, 2022•45 min
Þórarinn ræðir við góðvin þáttarins, hana Ívu Adrichem. Umræðuefnið að þessu sinni er vændi. Rætt er um hvort að heimspekileg sjónarmið sem snúa að því hvort að ófrítt fólk eigi að hafa aðgengi að vændi, valdaójafnvægi, ábyrgð kúnna og kynlífsverkafólks, rétttrúnað og margt fleira.
May 26, 2022•58 min
Þórarinn ræðir við Bjarna Benediktsson, fjármálaráðherra, um ýmis mál. Meðal annars persónulegar pólitískar áherslur og hugmyndafræði Bjarna, stjórnmál á Íslandi, kulnun og atvinnulífið, Íslandsbankasöluna og margt fleira.
May 22, 2022•1 hr 7 min
www.patreon.com/einpaeling Jónas Atli er hagfræðingur og fyrrum blaðamaður Kjarnans. Í þessu hlaðvarpi er rætt um peningamagnskenningar, fjármálalæsi, orsakir og afleiðingar mismunandi efnahagsstefna og fleira. Sérstaklega er rætt um pólitísk loforð sem ekki taka tillit til raunveruleikans.
May 20, 2022•41 min
www.patreon.com/einpaeling Gunnar Smári Egilsson er flestum hlustendum kunnur. Að þessu sinni ræðum við sveitastjórnakosningarnar á laugardaginn kemur, 14. maí. Um hvað snúast kosningarnar? Einnig yfirvofandi kreppu á húsnæðismarkaði, kjör hinna verst settu, frjálshyggju og fleira. Í síðari hluta þáttarins eru landsmálin og Íslandsbankasalan í brennidepli. Rætt er um stöðu ríkisstjórnarflokkanna, formann Sjálfstæðisflokksins og pólitískar afleiðingar bankasölunnar....
May 13, 2022•1 hr
www.patreon.com/einpaeling Þórarinn ræðir við Helga Áss Grétarsson um ýmis málefni. Helgi býður sig fram fyrir Sjálfstæðisflokkinn í næstkomandi borgarstjórnarkosningum en margir þekkja til hans í umræðunni um #MeToo sem hann skipti sér af þegar sú umræða stóð sem hæst. Helgi er hvergi banginn við að snerta á erfiðum málefnum og standa við sínar skoðanir. Rætt er um leikjafræði og stjórnmál, hvernig ferill hans sem stórmeistari í skák hefur haft áhrif á þankagang hans um samfélagsmál og hans ímy...
May 11, 2022•45 min
www.patreon.com/einpaeling Þórarinn ræðir við Grétar Theodórsson um kaup Elon Musk á Twitter. Grétar er almannatengill, stundakennari við HÍ og annar stjórnenda hlaðvarpsins Hismið. Í þættinum er rætt um áhrif sölunnar á lýðræðislega umræðu, áhrif samfélagsmiðla á stjórnmál víðsvegar um heiminn, reynt að greina fyriráætlanir Musk með nýja samfélagsmiðlinn sinn og hvort að vestræn lýðræðissamfélög séu komin með leið á sínum stjórnmálamönnum....
May 08, 2022•43 min
Síðasti borgarstjórnarkosningaþátturinn. Þórarinn ræðir við Einar Þorsteinsson um áherslur Framsóknarflokksins fyrir kosningarnar 14. maí. Rætt er um húsnæðismál, skotárás á bíl borgarstjóra, samgöngumál, velferðarmál og kjaramál.
May 06, 2022•1 hr 21 min
Guðmundur Arnar er sviðsstjóri CERT-IS, netöryggissveitar Fjarskiptastofu sem vinnur náið með almannavörnum við að verja Ísland fyrir netárásum. Hér ræðir Þórarinn við Guðmund um álitamál sem að snúa að netöryggi. Hvaða áhrif hefur stríðið í Úkraínu á varnir Íslands? Er Ísland í verri eða betri stöðu en önnur ríki? Er líklegt að netárásir muni færast í aukana vegna ástandsins? Hvað með upplýsingaöryggi einstaklinga? Hvernig er hægt að nota upplýsingar gegn okkur, hvernig nýta hakkarar sér vankun...
May 04, 2022•38 min
Sigurður Hannesson er framkvæmdarstjóri Samtaka iðnaðarins. Þórarinn ræðir við Sigurð um hvað stríðið í Úkraínu og eftirmálar Covid-19 þýði fyrir iðnaðargeirann á Íslandi. Rætt er um hrávöruskort, húsnæðismál, kjaramál og fleira. Að lokum er rætt í nokkuð löngu máli um orkumál og sérstöðu Íslands í þeim efnum.
May 01, 2022•57 min
Hlaðvarpið í heild sinni: www.patreon.com/einpaeling Nýleg sala á stórum hlut ríkisins í Íslandsbanka hefur sætt mikilli gagnrýni undanfarna daga. Kristrún Frostadóttir er þingmaður Samfylkingarinnar og hefur hún verið sérstaklega áberandi í þeirri umræðu. Í þessu hlaðvarpi er rætt um ábyrgð fjármálaráðherra, Bjarna Benediktssonar, ábyrgð bankasýslunnar, hlutverk og ábyrgð söluaðilana, sérstaka rannsóknarnefnd Alþingis og hvernig Kristrún hefði hagað málunum ef hún hefði verið fjármálaráðherra....
Apr 29, 2022•41 min
Kristján Kristjánsson er sjóaður blaðamaður sem að hefur komið víða við. Hann stjórnar útvarpsþættinum Sprengisandi á Bylgjunni og er þetta í annað skiptið sem að hann mætir í hlaðvarpið Ein Pæling. Að þessu sinni ræðir Þórarinn við Kristján um aðgengi fjölmiðla að stjórnmálafólki, bæði hvernig það var áður og hvernig það er í dag. Í síðari hluta hlaðvarpsins er síðan farið yfir afstöðu stjórnmálafólks gagnvart fjölmiðlum og hvernig mismunandi stjórnmálamenn koma fram við fjölmiðla. Umræðuefnin ...
Apr 27, 2022•41 min
Þórarinn, Eyþór og Ívar ræða um hvort að svartur húmor eigi undir högg að sækja. Rætt er um áhrif twitter, hvort að grínistar veigri sér við að prófa nýtt efni á uppistöndum, dósahlátur, hvort það megi gera grín að öllum ásamt ýmsum hliðarsporum.
Apr 23, 2022•10 min