Athyglisbrestur á lokastigi
Last refreshed: ⓘ

Episodes
Handboltaherrarnir, Euphoria og meint endurkoma á Twitter
„Mig langar að Men in Black gaurarnir komi með ljósið og láti mig gleyma öllu sem gerðist eftir árið 2011, sem var árið sem ég fékk mér Twitter“ - Lóa Eru liðsmenn íslenska handboltalandsliðsins heitustu menn í heimi? Er Þórir Sæm kominn aftur á Twittter? Hverju má búast við í nýrri seríu af Euphoria? Þetta og fleira til umfjöllunar í þessum þætti, sem tekinn var upp 21.janúar og hefði komið inn fyrr ef athyglisbrests-lyfið Elvanse hefði ekki allt í einu orðið ófáanlegt svo vikum skipti í lok ja...
Hundraðasta podcastið sem Helgu Brögu er boðið í
Helga Braga hefur bókstaflega gert allt: Skrifað og leikið í Fóstbræðrum, leiðsagt túristum á rútu, átt kommbakk á leikhúsfjölunum, skartað pappabrjóstum á fyrsta uppistands-gigginu á félagsheimili í Borgarfirði, og farið í burnout löngu áður en það var í tísku. Stelpurnar nutu þess í botn að tala við þessa algjöru drottningu sem elskar að vera í "einhverju skrýtnu", enda mætti hún í þennan þátt. Elskum ykkur babylotion, njótið vel!
Bassi Maraj tell all þátturinn
Rapparinn og raunveruleikastjarnan Bassi Maraj... Hver er hann í raun og veru? Hlustendur fá að skyggnast bakvið tjöldin í raunveruleikaþættinum Æði, heyra hvaða Bassa fannst um Lóu þegar hann hitti hana fyrst og komast að því hver framtíðarplön Bassa eru. Bassi rekur það hvernig það var að fara í hlaðvarpsþáttinn Karlmennskan og hvaða afleiðingar það hafði fyrir hann.
Saga Garðarsdóttir: Ástin og leigumarkaðurinn, viral rassamynd og Spænska veikin
Rassamyndir á Tene, að lenda í því að það sé hrækt framan í mann (sérstaklega ef manneskja með fjölþættan fíknivanda á í hlut) og að vera ein af fyrstu manneskjum á Íslandi með Pod. Þetta eru þau mál sem voru efst á baugi í þessum nýja þætti af Athyglisbresti á Lokastigi. Saga Garðars er svo fyndin og skemmtileg að þetta er must listen og share with friends kind of episode. Saga Garðarsdóttir er ekki bara geggjuð leikkona og grínisti heldur er hún líka podcast frumkvöðull á Íslandi, en hún stýrð...
árið er... '22?
Fyrsti þáttur ársins og þáttastjórnendur leggja spilin á borðið. Hvernig verður þetta ár? Hverjar eru lexíur ársins 2021? Við ræðum undarlegt blogg leikkonunnar Juliu Fox sem fjallar um stefnumót hennar við Ye. Nýju uppáhalds þættina okkar, Verbúðina, og svo margt fleira í þessum stórkostlega þætti í fullri lengd.
The Family Athyglisbrestur(með Ásdísi Maríu og Hjalta Vigfússyni)
Hér er Athyglisbrests-þáttur sem ber nafn með rentu, en til þess að hringja inn hátíðarnar fengum við sanna regulars í þáttinn: Engin önnur en þau Hjalta Vigfússon og Ásdísi Maríu Viðarsdóttur, enda fá önnur sem geta látið okkur hlæja jafn mikið og á sama tíma gert okkur jafn brjáluð í skapinu <3 Við ræðum einn lélegasta þátt sem gerður hefur verið(spoiler: Það er "And just like that"), plönum áramótapartý með besta þema í heimi, þrætum um hvort Reykjavík sökki eða ekki og förum í svona þúsun...
Þú ert Kendall Roy
#JeSuisKendallRoy
Sendið okkur í útlegð
Þær eru komnar aftur - og þær eru í góðu jafnvægi. Eitthvað extra wholesome þáttur í dag - stelpurnar tóku upp þátt eftir að síðasti þáttur hvarf út í himingeima, þeim líður vel og eru uppfullar af bjartsýni þrátt fyrir að lýðræðið sé blekking - semsagt já, við ræðum nýja ríkisstjórn, þakkargjörðarbæn Kanye West, jólin(edgy) og hvað okkur langar í jólagjöf frá vinnustaðnum okkar (sumsé ykkur - spoiler: Lóu finnst Sölku vanta flotta úlpu).
Ekki veipa of mikið
Uppistandið, mömmu-retreatið, ný sería af Morning Show, brúðkaup Paris Hilton, Succession (og sú óumdeilanlega staðreynd að Tom er aðalpersónan), Fortuna Invest og tími andhetjunnar. Stelpurnar eru solo í þætti vikunnar og living.
Þrjár konur, tvær pissupásur (með Heklu Elísabetu)
Það er tímabær og strategískur fundur með Heklu Elísabetu í þættinum að þessu sinni, enda eru stelpurnar að fara að sýna uppistand á laugardaginn og hafa því aldrei hugsað færri fyndnar hugsanir - kvíði og athyglisbrestur eru nefnilega æði! Hekla er ekki aðeins uppistandari og handritshöfundur allra þátta sem Laddi leikur í þessa dagana, heldur líka pólitískt ljón sem vill að ungt fólk láti sig málin varða - hvað sem það nú þýðir. Stelpurnar ræða hvort Pete Davidson sé daddy, hvort Covid sé þján...
Samræmist ekki framtíðarsýn Begga Mássonar
Í veipskýi í Egilsstofu á Útvarpi 101 ræddu Salka og Lóa við reyndan podcastara, Skoðanabróðir, ábyrgðarking og dyggan hlustanda Athyglisbrests, Bergþór Másson. Kveiksþátturinn með Þóri Sæm, Leynilöggan og samskipti kynjanna. Geta karlmenn elskað konur eins og þeir elska karlmenn? Vita perrar að þeir eru perrar?
Konur eru að eiga móment (með Viktoríu Blöndal)
Magnaður morð-þáttur þessa vikuna elskurnar, enda er gestur þáttarins hin stórskemmtilega Viktoría Blöndal - rithöfundur, listakona, þriggja barna teen mom og ein af fáum manneskjum í heiminum sem les ennþá bækur. Við förum um víðan völl með Viktoríu en snertum meðal annars á hvort það sé athyglissýki að breyta föðurnafninu sínu, hvernig það gerðist að Salka átti miða á 10 ára afmæli FM95blö gegn vilja sínum og líka fullt af BÓKUM og LEIKHÚSI þannig að spennið beltin - stelpurnar eru hugsandi ma...
Í ofbeldissambandi við síma
Í þessum þætti eru að þessu sinni einungis salka og lóa mættar í hljóðverið. Þær ræða nýja seríu Succession stuttlega, Netflix þættina Maid, innkomu Sigurðar nokkurs á Twitter og börnin sem eru engin mörk sett í símanotkun sinni. Við eigum kannski í ofbeldissambandi við síma en viljum við að börnin okkar séu það líka? Takk fyrir góðar viðtökur við seinasta þætti. Elskum ykkur. Það er alltaf gaman að tala um djammið.
Elstu konurnar inni á klúbbnum (með Helgu Dögg)
Við ræðum við vinkonu, grafískan hönnuð, listakonu, tvíbura, móður, eiginkonu, hlustanda podsins... hina eldkláru, Helgu Dögg Ólafsdóttur. Það eru öll mest djúsi umræðuefnin á borðinu að þessu sinni... djammið, aldur, Covid, að vilja vera séð og þráð, að vera á lausu? Að vera elstu konurnar á klúbbnum. Einlægt samtal og í raun eldfimur þáttur, þar sem við förum yfir mörk Lóu, mörk Sölku og sennilega mörkin hennar Helgu, en fyrst og fremst yfir mörk föður Sölku, Þórarins, sem ætti aldrei að fá að...
Scam podcast
Facebook miðlarnir lágu niðri í upphafi vikunnar, sem var eins og að fara í frí. Stelpurnar fjalla um Facebook uppljóstrarann, nýjustu seríu Sex Education og Netflix seríunna The Chair. Við þurfum að byrja aftur að shame-a en bara ekki á þann hátt og er gert núna, þetta er flókið samt þú verður að hlusta til að skilja. Þú verður að hlusta á allann þáttinn í gegn. Lóa var andvaka eftir þáttinn því henni fannst hljóma eins og hún væri að gefa í skyn að Reddit og 4chan væru kúl hliðar internetsins,...
Vibe check (feat. Einhleyp, einmana og eirðarlaus)
Það er kominn tími á crossover episode! Það er einhleypur, einmana og eirðarlaus athyglisbrestur því þau Steiney Skúladóttir og Pálmi Freyr Hauksson eru gestir stelpnanna að þessu sinni. Steiney og Pálmi eru bæði grínistar á öllum sviðum sem hægt er: Sketsum, spuna og dýfa jafnvel tánni í uppistand, auk þess að halda úti hlaðvarpinu Einhleyp, einmana og eirðarlaus. Í þættinum drógum við upp úr þeim geggjaðar deitsögur sem involva furðulega mikið af blóði og sársauka, auk þess sem Steiney leikur ...
Glúm-kynslóðin (með Tóta Leifs)
Að þessu sinni er feðraveldið sjálft, Þórarinn Leifsson, gestur þáttarins, enda kominn tími til að Lóa og Salka heyri loksins skoðanir alvöru miðaldra íslensks karlmanns - „Nothing about us without us“ og allt það. Þórarinn, eða Tóti Nei eins og hann var kallaður á unglingsárunum er pabbi Sölku og rithöfundur, en í þættinum ræðum við nýútkomna bók hans Út að drepa túrista, léttar alhæfingar um þjóðir, hvað kosningabarátta er leiðinleg og af hverju karlmenn á miðjum aldri deita yngri konur eftir ...
Mjóar mömmur (með Katrínu Björgvins)
Hvað finnst okkur að íslenskum feministum í dag? Hvers vegna er Salka hætt að horfa á Love Island? Hvaða skandal gerði Lóa á Austfjörðum? Af hverju eru mæður okkar í betra formi en við? Afsakið biðina á nýjum þætti! Við þökkum þolinmæðina og viljum senda sérstaka kveðju til Péturs Marteins. Hér er droppið! Og droppið er risa stórt. Við fengum til okkar kæran gest sem hefur hlustað mikið á þáttinn. Það er alltaf gaman að fá gesti sem eru hlustendur og vilja ræða ákveðin mál við okkur. Gesturinn e...
Presta á þing!
Stelpurnar ræða StÓrU mÁLiN í þessum þætti: Kosningar 2021 nálgast hvort sem okkur líkar það betur eða verr. Hér kemur þekking stelpnanna á sviðslistum sterk inn enda eru þær sammála um að kosningabarátta er ekki annað er leikrit og að formenn flokkanna myndu sóma sér betur á leiksviði en í pólitík(Nema Glúmur, hann ætti kannski bara að halda sig heima). Skiptir stefnuskrá flokks meira máli en að fólkið í flokknum séu góðar og ábyrgar manneskjur? Er vinstrið enn og aftur í ruglinu? Ætti Sölku að...
Ketamínkynslóðin
White Lotus, 9 Líf, Íslandsleiði og Ketamín er til umræðu í þessum nýja athyglisbresti. Lítill athyglisbrestur hér, bara mikill fókus á stórkostlega nýja HBO þætti úr smiðju Mike White, sem er einna þekktastur fyrir School of Rock og Emoji movie. Það eina sem við vitum í raun er að Jennifer Coolidge er svo stórkostleg leikkona að við vitum ekki hverju við eigum von á næst. White Lotus: great acting, great writing and we are loving the vibe. Enginn gestur. Deal with it bitch.
Bjartur Örn rofnar
Það er komið að honum - mesti athyglisbrestsþáttur Athyglisbrests til þessa. Bjartur Örn Bachmann, sviðshöfundur, leikarabarn og trúður er gestur þáttarins og það fyrsta sem hann gerir er að labba út úr upptöku því hann þarf að pissa. Framhaldið er eftir því . Þríeykið ræðir þriggja daga gönguna sem þau voru í um helgina, súr TikTok-hljóð, hversu snemma er hægt að tweeta um áramótin og auðvitað Íslandsklukku Halldórs Laxness. Heldur þann versta en þann næstbesta amirite??...
Martraðar Island
Í podi dagsins eru engir gestir nema þá bara þunglyndið hennar Lóu. Stelpurnar ræða covid infested podstudioið, spyrja sig hvort Kim K sé listakona, hvort Ben og J-lo séu í alvöru saman osfrv. Stór hluti þáttarins fer þó í að ræða Love Island, lýtaaðgerðirnar, rifrildin og geðheilsu eyjaskeggja. Og já hvort Salka sé búin að skipta um skoðun á crocs eftir áhorfið (spurning frá hlustanda).
Það langar alla að drepa einhvern (með Önnu Þóru Björnsdóttur)
Hún selur gleraugu á Hverfisgötu. Hún er uppistandari. Hún er djammlegend og hún er viðmælandi dagsins. Stelpurnar spjalla við Önnu Þóru Björnsdóttur um hvernig hún álpaðist út í uppistand, breytingaskeiðið, konur sem eru sjálfri sér verstar og athyglisbrest að sjálfsögðu. Hún er fyndnasta kona íslands. Það er því bara eitt að segja: Njóttu elsku besta mín. xoxoxo
Fjalla-Eyvindur og ástin
Guð er til og hann býr á hálendi Íslands. Guð er til og hann er kona? Guð er sá sem bjó til yfirvaraskeggsfilterinn á Insta. Guð er þetta pod, sem er loksins komið úr sumarfríi. Salka og Lóa setjast niður í kók stúdíóið og ræða málin. Þær fara yfir bækurnar sem þær lofuðu að lesa í sumarfríinu. Það má því líta á þennan þátt sem framhald seinasta þátts fyrir sumarfrí.
Sumarfrís bókaklúbburinn
Hæjjjjjjj. Í þessum langa og góða þætti mæla Salka og Lóa með bókum sem þær ætla að lesa í sumarfríinu sínu. Bækurnar sem við tölum um í þættinum eru Capitalist Realism eftir Mark Fisher, Conflict is not abuse eftir Söruh Schulman og Communion eftir bell hooks. Stelpurnar ræða pælingar í sambandi við samskipti, sambönd og ofbeldi. Metoo, konur sem fórnarlömb og eðlileg viðbrögð við því að vera sakaður um ofbeldi. Lóa vill taka fram að hún varð mjög steikt í þessum þætti og átti erfitt með að úts...
Miðaldra horny incel
Smellum saman? Nýtt lag eftir Króla og Rakel Björk eða jákvæð auglýsingaherferð fyrir sætisbelti? Katla, lyftistöng fyrir ferðaþjónustuna eða sköpunarverk miðaldra horny incels? Skoðanabræður, vinir eða óvinir? Antivax, problematic eða skiljanlegt? Lóa vakir alla nóttina til að horfa á Silicon Valley, þættir á HBO sem kláruðust árið 2019 og Salka microdosar Kötlu. Ef þú höndlar ekki gagnrýni frá Jóni Viðari: Get out of Art.
Saumaklúbbur á lokastigi (Með Göggu Jónsdóttur)
Hæ hoes, mellur og tussur 👩🦳 Salka og Lóa fóru með litlum hópi kvenna á nýja íslenska bíómynd, Saumaklúbburinn, í upphafi vikunnar. Í þessum þætti fengu þær til sín leikstjóra og höfund myndarinnar, Göggu Jónsdóttur. Gagga hefur verið í kvikmyndabransanum lengi, hún skrifaði handritið að Agnes Joy og séð um framleiðslu ótal margra þátta. Stelpurnar ræða myndina, miðaldra konur, strákavini, Æði, leikstjórn osfrv. Gagga er frábær viðmælandi. Saumaklúbburinn er frábær mynd. Lífið er frábært.
Palestínumótmæli og Keratínmeðferð með Kolfinnu Nikulásdóttur (seinni hluti)
Gestur þáttarins er engin önnur en drottningin Kolfinna Nikulásdóttir: leikskáld/leikstýra/móðir/sviðshöfundur/ólíkindatól! Athyglisbresturinn er í hámarki í þessum þætti svo hlustendur eiga að sjálfsögðu gott eitt í vændum: Lóa ekki búin að taka lyfin í marga daga og búið að cancella hana á twitter, Salka í mömmu og aktívisma burnouti og Kolfinna nýbúin í Keratín meðferð og nöglum, er hægt að biðja um meira? Svarið er JÁ, það er hægt, við erum nefnilega líka allar með Ztonelove á heilanum og Ló...
Keratínmeðferð og Palestínumótmæli með Kolfinnu Nikulásdóttur (fyrri hluti)
Gestur þáttarins er engin önnur en drottningin Kolfinna Nikulásdóttir: leikskáld/leikstýra/móðir/sviðshöfundur/ólíkindatól! Athyglisbresturinn er í hámarki í þessum þætti svo hlustendur eiga að sjálfsögðu gott eitt í vændum: Lóa ekki búin að taka lyfin í marga daga og búið að cancella hana á twitter, Salka í mömmu og aktívisma burnouti og Kolfinna nýbúin í Keratín meðferð og nöglum, er hægt að biðja um meira? Svarið er JÁ, það er hægt, við erum nefnilega líka allar með Ztonelove á heilanum og Ló...