Athyglisbrestur á lokastigi - podcast cover

Athyglisbrestur á lokastigi

Útvarp 101
https://www.patreon.com/athyglisbrestur Athyglisbrestur á lokastigi er vikulegur hlaðvarpsþáttur um þjóðfélagsmál, poppmenningu og samtímann útfrá sjónarhorni tveggja kvenna sem komnar eru yfir 23 ára aldurinn en eru ekki ennþá orðnar þrítugar sem þýðir að þær vita allt best og eru ennþá...heitar? Salvör Gullbrá og Lóa Björk eru sviðslistakonur, grínistar og sérfræðingar í poppkúltúr.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Kvöldvaka í Evrópu

Í þessum þætti grafa stelpurnar stríðsöxina, en það var stutt í vinslit meðan á Evróvisíón stóð. Þær gera upp reiðina og ósættið og greina kepnnina fyrir fans og ekki fans af þessum menningarviðburði vikunnar. Þær krýna arftaka Dúu Lipa og Ariönu Grande, ræða stuttlega óvinsæla skoðun Lóu sem gerir heiðarlega tilraun til að vera cancelled af woke bullies í þættinum. Aldursmunur í unglingasamböndum, trauma porn í metoo, fósturlát og kynferðisofbeldi eru til umræðu svo það sé tekið fram. Þáttur se...

Jun 01, 20211 hr 21 minSeason 3Ep. 26

Við erum með besta podcast á Íslandi

Í þessum þætti Athyglsibrests ræða Lóa og Salka af hverju konur yfir 25 mega ekki vera einlægir aðdáendur ungra tónlistarmanna(spoiler: það er af því það má ekkert lengur) og rjúfum ærandi þögn okkar(sem var ekki það ærandi) um nýja bylgju #metoo. Salka fór að gráta yfir að Jóhann í Gagnamagninu væri með Covid en Lóu er alveg sama enda skortir hana almennt samkennd með öðrum. Lóa frumflytur líka einkennissetningar (catchphrase endilega dm um hvort það sé góð þýðing) nýrrar seríu af Æði....mhm......

May 24, 20211 hr 5 minSeason 3Ep. 25

Toxic sonur minn (með Tatjönu Dís og Jóhanni Kristófer)

Í þessum splunkunýja þætti af Athyglisbresti fáum við iconic listatvíeykið, Tatjönu Dís og Jóhann Kristófer í hljóðverið til okkar. Við tölum um hypothetical toxic syni, mæðradaginn sem snerist ekki um Lóu, að Tatjana djammaði í LHÍ, Salka horfði á Nomadland og Jói komi alltaf seint. Og vegna þess að það er gagnkynhneigður maður í þættinum þá ræðum við fjárfestingar og rafmyntir. Ztonelove á lokalag þáttarins.

May 17, 20211 hr 50 minSeason 3Ep. 24

Bólusett fyrir ástinni (með Hjalta Vigfússyni)

JÆJA. Lóa Janssen er komin með bólusetningu og Salka fór (ekki viljandi) á fyrirlestur hjá Begga Ólafs um daginn svo það mætti segja að þær báðar séu betri manneskjur í dag en í gær. Þar sem það er eins og allir vita EKKERT í gangi í samfélaginu sem þarf að ræða fengu stelpurnar til sín í þáttinn góðan fastagest Athyglisbrestsins, HJALTA VIGFÚSSON, sem jafnframt er lögfræðingur stelpnanna. Kaotísk orka í þætti vikunnar og krakkarnir ræða hvort Athyglisbrestur á lokastigi sé kristilegt podcast, h...

May 10, 20211 hr 6 minSeason 3Ep. 23

#GirlGang #WomenEmpowerment

Í þessum þætti af Athyglisbresti á lokastigi ræðum við nýja seríu af The Circle á Netflix, sem við mælum með af öllu hjarta. En það hlaut líka að koma að því við mellurnar tækjum þátt í Official OnlyFans „Umræðunni“ sem hefur tjahhhhhhhhhhh sett íslenska internetið á hliðina í nokkra daga. P.s. Lóa hafði neytt ceremonial Cacao í þessum þætti og hafði tekið lyf þannig vonandi útskýrir það sumt sem fór fram. P.s. 2 Salka er líka að reyna að hætta á nikótíni en hún var ekkert grumpy

May 03, 20211 hr 14 minSeason 3Ep. 22

Mömmur okkar (seinni hluti)

Hér er þá komið að seinni hlutanum með mæðraveldinu. Mömmu eru bestar, við föttuðum það í part 1. en núna er part two og þá förum við að tala um hvernig við gerum heiminn að betri stað og af hverju manni finnst stundum sitt eigið barn ekki vera fyndnasta barnið á uppistandinu. Stóru málin.

Apr 26, 20211 hr 15 minSeason 3Ep. 21

Mömmur okkar (fyrri hluti)

Það hlaut að koma að þessu. Gestir þáttarins að þessu sinni eru mæðraveldið sjálft, skaparar alls sem við þekkjum, the ones that started it all og konurnar sem við dýrkum meira en lífið sjálft, hinar einu sönnu MÖMMUR OKKAR. Bergþóra(mamma Lóu) og Magga Stína(mamma Sölku) ræða við dætur sínar um norræna glæpaþætti, hekl, barnabörnin sín, kisur og hvort símar séu verkfæri djöfulsins. Reyndar var svo gaman að tala við þær að við þurftum að skipta þættinum í tvennt og kemur seinni hlutinn í næstu v...

Apr 19, 20211 hr 8 minSeason 3Ep. 20

Efnilegar ungar konur

Stelpurnar eru komnar ferskar úr páskafríi. Lóa fer yfir lyfin sín og Salka opinberar ótta sinn gagnvart hugsanlegum framtíðar kærasta Lóu. TIl umræðu í þessum þætti eru kvartanir til fyrirtækja (siðlaust eða samfélagslega ábyrgt?), heimilisstörf og appið HEIMA, 3 myndir sem Lóa mælir með og svo ítarleg kvikmyndarýni um myndina Promising Young Woman, sem er skrifuð og leikstýrt af Emerald Fennell (2020).

Apr 12, 20211 hr 22 minSeason 3Ep. 19

Free Bassi Maraj

Í þessum extra (jafnvel aðeins of) langa þætti af Athyglisbrest kafa stelpurnar á dýpið í umræðu um trúðinn Chet Hanks sem hefur lýst yfir að sumarið 2021 verði White Boy Summer, svik þjóðarinnar við hetjuna Bassa Maraj og hvort það sé Hrúta-orka í loftinu, eða kannski er það bara svifryk?

Apr 05, 20211 hr 40 minSeason 3Ep. 18

A.C.A.B.

Tjah. Hvað getum við sagt? Bókstaflega? Í þessum nýja þætti förum við kannski létt yfir tilfinningarnar sem fylgja hertum aðgerðum. Hvar stöndum við í menningarstríðinu um eldfjallið? Erum við bugaðar? Já. Munum við hætta að tjá okkur um poppmenningu? Aldrei. Við erum hérum og við erum ekki almannavarnir heldur bara tvær konur með míkrafóna og það er betra en nokkuð annað í þessum heimi og betra en kári stef að tala um bóluefni. Og þú veist það. Þátturinn fjallar að stærstum hluta um réttarhöld ...

Mar 29, 20211 hr 18 minSeason 3Ep. 17

Narsissistar og þorstagildrur

Stelpurnar eru tvær í þættinum að þessu sinni en menningarlífið er í fullum gangi: Salka horfði á óvæntusta viðbót inn í umræðu um rasisma í meginstraumnum í langan tíma: Lokaþátt The Bachelor. Á meðan rakst Lóa rakst á mann drauma sinna í skíðaskála og gekk betur að klára allt grænmetið sem hún fékk frá Austurlands Coop. Allir eru svo að horfa á nýju seríuna af EXIT og stelpurnar ræða sjálfhverfuna í samfélaginu sem birtist í þáttunum og reyna að skilja huga narsissista.

Mar 22, 20211 hr 11 minSeason 3Ep. 16

Trúðaskólinn (með Gretti Valssyni)

Gestur þáttarins er íslensk barnastjarna, vinur, fyrrum nágranni, leikari í sjónvarpsþáttunum Brot, MH-goðsögn og hingað til yngsti viðmælandi þáttarins. Enginn annar en fyndnasti og besti Grettir Valsson. Grettir er Grettir og þessi þáttur hét næstum Greiningarnar hans Grettis eða Grettir og Greiningarnar, því að við hreinlega gátum ekki hætt að sjúkdómsgreina hann. Við förum yfir allt það helsta, ástina, menntaskóla, Gillz, uppgang feminisma, OPRAH viðtalið (!!!!) og framtíðarhorfur Grettis. Þ...

Mar 15, 20211 hr 53 minSeason 3Ep. 15

Þegar uppáhalds hlutirnir þínir eru „cancelled“

Hvernig er rétt að bregðast við þegar fólk verður uppvíst að rasisma? Finnst okkur sem hvítu fólki stundum pirrandi að annað hvítt fólk þurfi að axla ábyrgð á hlutum sem virka smávægilegir þegar kemur að kynþáttafordómum? Við köfuðum aðeins ofan í atburðina í Reply All v.s. Bon Appetit málinu, Salka útskýrir hvernig Bachelor-vörumerkinu hefur mistekist að taka á þessu og svo ræða stelpurnar myndirnar Small Axe sem eru í uppáhalds efnisveitunni okkar, Rúv Sarpinum. https://www.patreon.com/athygli...

Mar 08, 20211 hr 7 minSeason 3Ep. 14

Hver heldur með litlum stelpum?

Ef það var einhverntímann athyglisbrestsþáttur þar sem við tölum um jafnrétti kynjanna, kynin, menntakerfið, félagsmótun, hvernig strákar haga sér og hvernig stelpur haga sér, þá er þetta sá þáttur. Þetta er ultimate SÁ þáttur. Heimildarmyndin 'Hækkum rána' snerti einhverja strengi innra með okkur. Okkar innri litlu stelpur töluðu í gegnum okkur í þessum þætti. Myndin er sýnd á Sjónvarpi Símans og fjallar um stúlknalið í körfubolta og þjálfara þeirra. Þjálfarinn beitir aðferðum og hörku sem ekki...

Mar 01, 20211 hr 28 minSeason 3Ep. 13

It's Britney, bitch (með Grétu Þorkelsdóttur)

Heimildarmyndinn Framing Britney kom út þann 5. febrúar síðastliðinn. Af því tilefni fengum við til okkar sérfræðing í Britney Spears, hana Grétu Þorkelsdóttur til að ræða við okkur um heimildarmyndina, goðsögnina Britney, allt sem er ekki í myndinni og sömuleiðis útskriftarverkið hennar úr grafískri hönnun í LHÍ, sem var glæislegt bókverk um Britney. Hvernig fóru fjölmiðlar svona illa með yndislega stelpu frá Kentwood, Louisiana?

Feb 22, 20211 hr 39 minSeason 3Ep. 12

Gríslingur Marteinn (með Gísla Marteini Baldurssyni)

Eftir klúður seinustu viku þurftum við að sækja stóru byssurnar. Enginn annar en TV-superstar, Vikan með Gísla Marteini kom til okkar í podið. Gísli vígir með okkur nýjan lið í þættinum, Seven Minutes in Heaven. Stelpurnar ræða gestina í Gísla Marteini, sænsku sjónvarpsþættina Gösta, Eurovison, Málsvörn, Hrunið 2008, svo fátt eitt sé nefnt. Allt nema borgarskipulag og bóluefni er á borðinu.

Feb 15, 20211 hr 43 minSeason 3Ep. 11

„Ég vil bara að ljótir menn séu leiðinlegir við mig“

Er í lagi að finnast einhver sem óbeint/beint olli íslenska efnahagshruninu sexy a.f? Til umræðu í þessum nýja þætti eru enn á ný menn sem stelpurnar eru ósammála um hvort séu heitir eða ekki. Jón Ásgeir Jóhannesson og.... ofc allir mennirnir í Dönsku kvikmyndinni Druk. Stórar siðferðislegar spurningar vakna þegar stelpurnar ræða Kveiksviðtalið sem Helgi Seljan (virðing á nafnið) tók við Jón Ásgeir. Lóa opinberar óra sem hið kapítalíska samfélag hefur kveikt innra með henni. Salka fer ófögrum or...

Feb 01, 20211 hr 14 minSeason 3Ep. 10

Haturskomment frá börnum

Veistu hvað barnið þitt er að gera á tiktok? Líklegast kommenta haturskommentum á vídjóin hennar Lóu. Salka og Lóa ræða í þætti vikunnar málefni snjallmiðla. Þeirra einstaka sýn varpar að þessu sinni litlu ljósi á alvarleika stöðunnar og niðurstaðan er engin, því miður. Áframhaldandi fíknihegðun og botnhegðun í símanum er mögulega það eina í stöðunni? Salka fer yfir þrjú mest horny gymmin og stelpurnar fara yfir týpurnar sem þú gætir fundið í gymminu. Lóa vill ekki verða fræg (loksins) og Salka ...

Jan 25, 20211 hr 44 minSeason 3Ep. 9

„Kaþólskur king“

Þrítugasti þáttur af Athyglisbresti á lokastigi og guð minn góður stelpurnar eru í stuði. Loksins hafa þær fundið tíma til að kryfja mál Hilaria Baldwin. Lóa er að vanda Team Alec Baldwin, Sölku til mikils ama. Er siðferðilega réttlætanlegt að kalla 12 ára dóttur sína svín því hún svarar ekki símanum? Er kaþólsk trú góð? Stelpurnar ræða auðvitað lestarslysið sem er soc med nærvera Lönu Del Rey, Sigurjón Sighvats í viðtali hjá Jakobi Bjarnar - tveir stórkostlegir listamenn þar á ferðinni (kemur í...

Jan 18, 20211 hr 51 minSeason 3Ep. 8

Ég er hvít kona ég get ekki sagt Kaní West

Stelpurnar héldu að skilnaður Kim og Kanye yrði stóra frétt dagsins, það reyndist ekki rétt. Neckbeards í USA gerðu tilraun til valdaráns, en stelpurnar ræða það ekki neitt. Hvenær lauk hjónabandi Kimye í raun og veru? Stelpurnar eru ekki sammála um það. Salka kom þó ekki bara til að rífast við Lóu um skilnaðinn heldur kom hún líka spitting facts um brauð og co og færandi hendi með rjúkandi heitt eintak af Lífsbiblíunni beint úr prentsmiðjunni. Það er bókakynning á þessari merku útgáfu og stelpu...

Jan 08, 20211 hr 24 minSeason 3Ep. 7

Árið 2020 á lokastigi (með Hjalta Vigfússyni)

Áramótaþáttur Athyglisbrests er eini þátturinn sem þið þurfið að hlusta á þessi áramót. Þátturinn er fullkomin, kaotísk yfirferð á öllu því góða og slæma sem þetta ár færði okkur. Lóa og Salka fá til sín O.G gest þáttarins, hann var með þeim í allra fyrsta þættinum af Athyglisbresti, Hjalta Vigfússon. Í sameiningu fara þau yfir hæðir og lægðir ruglaðasta ársins: Fræga fólkið söng Imagine til að losna við Covid, Söngvakeppnin sem var haldin rétt áður en samkomutakmarkanir skullu á, Mentor kom út,...

Dec 31, 20201 hr 34 minSeason 3Ep. 6

Meine komische Mädchen (með Ásdísi Maríu)

Söngkonan, lagasmiðurinn, Berlínarbúinn, grínistinn, fyndnasta, besta vinkona Sölku, Ásdís María Viðarsdóttir var gestur í podinu að þessu sinni. Stelpurnar töluðu um þýskt take-over á Fyndnustu mínar like-síðunni, tónlistarkonuna Sögu B, Diet-culture og Lizzo juice cleanse. Þátturinn er extra exxxtra langur að þessu sinni og nóg af jólastemmingu. Hvað eiga stelpurnar að gefa í jólagjafir? Þær eru 100 prósent ekki búnar að kaupa neitt og það eru tveir dagar til jóla!!! Ef þú ert ein rjúkandi rús...

Dec 25, 20201 hr 49 minSeason 3Ep. 5

Gefum fullorðnum jólagjafir á kostnað barna

Salka og Lóa benda á augljósa mismunun sem á sér stað í kringum jólin sem fáir þora að ræða. Genaminnið er farið að kicka inn sem þýðir bara eitt: Stanslaus jólakvíði og órökréttar ákvarðanir. Athyglisbresturinn fer með þær á áður ókannaðar slóðir: Sambönd og meðvirkni! Eitthvað sem hefur aldrei verið áður rætt. Skáld og karlkyns skáld, sérstaklega fá að heyra það, íslensk poppstjarna fær á baukinn og stelpurnar gremjubonda yfir því að hafa aldrei verið músur listamanna. Þú getur gerst styrktara...

Dec 18, 20201 hr 15 minSeason 3Ep. 4

Relapse og deyfing

Þriðji þáttur í þriðju seríu en Lóa er í seríu eitt skapi (af hverju er svona mikill munur á seríu eitt og hinum spyr Salka). Lóa relapsaði og tók ekki athyglisbrestslyfin sín. Salka hins vegar kom beint úr deyfingu frá tannlækni. Þátturinn er tekinn upp Against all ODDS. Tannlæknar fá að heyra það fyrir verðlagningu sína, Salka talar um vinstri sinnaða karla og BÓ og Lóa lætur STELPUR á internetinu heyra það. Sundlaugar eru að opna, alkóhólistar fá stórt shout out og Leifur, 9 ára, bróðir Sölku...

Dec 11, 20201 hr 23 minSeason 3Ep. 3

Gæða sjónvarpsefni og hin kapítalíska óhamingja (með Þóru Tómasdóttur)

cw: umræða um kynferðisofbeldi // Stelpurnar eru með spennandi tilkynningu, þær eru farnar að selja merch, það er komið nýtt intro lag og í þessum þætti fá þær GEGGJAÐAN GEST. Þær ræða við legendary fjölmiðlakonu, Þóru Tómasdóttur, sem tókst á seinustu stundu að redda þeim podcast upptökuherbergi í Advania. Spekingarnir þrír, Salka, Lóa og Þóra ræddu um norrænt gæða sjónvarpsefni, Reese Witherspoon, konur sem þátttakendur í ofbeldismenningu og #MeToo sem þema í sjónvarpsþáttum. Þær velta steinum...

Dec 04, 20202 hr 3 minSeason 3Ep. 2

Athyglisbrestur snýr aftur

Þær eru komnar aftur! Lóa og Salka hafa neyðst til að liggja á skoðunum sínum svo mánuðum skiptir en nú eru þær loks mættar aftur í hljóðver, og þær hafa meira að segja en nokkru sinni. Salka tekur upp sinn fyrsta hlaðvarpsþátt án þess að bera barn undir belti, Lóa fylgist með fíkniefnasölu á Telegram og stelpurnar ræða muninn á að kynnast femínisma núna og þegar þær voru unglingar(það er rosa langt síðan). Rant vikunnar er svo auðvitað á sínum stað! Stelpurnar íhuguðu að stofna OnlyFans en ákvá...

Nov 27, 20201 hr 20 minSeason 3Ep. 1

Lokaþáttur á lokastigi

Kaflaskil í lífi stelpnanna leiða þær að lokaþætti af þessum frábæra hlaðvarpsþætti sem hefur umbreytt hugsun landsmanna. Nei, djók, en þetta er samt lokaþáttur og hann fjallar um miðaldra konur, leikhús, stelpur sem gera list, nýjan síma og líðan Sölku á lokametrum meðgöngu.

Feb 28, 20201 hr 35 minSeason 2Ep. 7

Rænum ríka menn

Salka og Lóa ræða ríka menn og konur á lágum launum. Erkióvinur þáttarins er valinn og svissneska menningu, raunveruleikaþætti og Söngvakeppni sjónvarpsins ber á góma.

Feb 17, 20201 hr 23 minSeason 2Ep. 6

Botnhegðun og Bjarni Ben í Söngvakeppninni

NRK- sjónvarpsþættirnir Exit, Söngvakeppni sjónvarpsins, botnhegðun og Bernie Sanders. Málefni vikunnar tækluð á óyfirvegaðan en einlægan hátt. Elskum ykkur.

Feb 10, 20201 hr 8 minSeason 2Ep. 5

Hvítar, ríkar konur á sveppum

Salka og Lóa fá til sín gest að þessu sinni, í fjórða þætti af Athyglisbresti á lokastigi. Það er engin önnur er ólétti tvíburinn, sviðshöfundurinn og blaðakonan Alma Mjöll Ólafsdóttir. Þær ræða ráðningu Útvarpsstjóra, rasismann sem kemur upp á yfirborðið í kjölfar útbreiðslu kórónaveirunnar og Goop, nýjan netflix þátt Gwyneth Paltrow. Við erum living, en ert þú living?

Feb 03, 20201 hr 15 minSeason 2Ep. 4
Hosted on Transistor
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android