* - Hefnendurnir eru komnir á Storytel!
Hulkleikur og Ævorman finnst báðum gaman að segja sögur, þess vegna eru þeir komnir á Storytel og þar munu birtast nýir þættir. Það eru meira að segja komnir nýjir þættir þar nú þegar!
Hulkleikur og Ævorman finnst báðum gaman að segja sögur, þess vegna eru þeir komnir á Storytel og þar munu birtast nýir þættir. Það eru meira að segja komnir nýjir þættir þar nú þegar!
Hetjurnar okkar halda ótrauðar áfram í upprifjun sinni á tímans rás til að hita upp fyrir spánýja þætti á Storytel.
Hulkleikur og Ævorman halda áfram niður braut hefndurminninganna í undirbúningi fyrir hefndurkomu Hefnenda á Storytel. Hvað ætli þeir muni í þessum þætti?
Reboot Hefnenda er handan hornsins og í tilefni þess minnast Hulli og Ævar sinna fyrstu ævintýra sem gerðust fyrir alveg aðeins meira en hálfum áratug síðan.
Hulkleikur snýr aftur á klakann og Ævorman treður í hann hamborgurum og bláberjum. Þeir gera sitt besta til að sigrast á kjötsvimanum á meðan þeir ræða um skáskot Jada Pinkett-Smith, Rómarveldið Abrams og mögulegar stafsetningarvillur í víkingaleikjum, áður en Hulli egnir til slagsmála með feitri bombu um Kardemommubæinn.
Ævormann býður Hullann velkominn frá plánetunni Ber-Lin yfir í Stark Tower, þar sem þeir taka fyrir mikilvægustu málefnin, nemlig: Battinson, Sjálfsmorðsliðana og annað désadæmi… og tala síðan aðeins um eina af dauðasyndum bíógláps: að tala meðan ÉG ER AÐ REYNA AÐ HORFA!
Hetjurnar okkar hittast yfir frelsisöli til að ræða um póstkví, blakkfeisoff, smitfaðmlög og Dale Carnegie handabönd og þessa óþolandi áráttu sumra til að vera stöðugt að gefa manni óumbeðin power move kreistuknús!
Strákarnir tuða um sitthvora innipúkaiðjuna úr sitthvorri sóttkvínni. Báðir öruggir og óbreyttir sökum þess að félagsfælin einvera er ekki beint ótroðin slóð hjá þessum sjóuðu njarðaprinsum sem kalla sig Hefnendurna. Stay safe, Jarðarbúar!
Í þessari ævafornu en samt bara 28 daga gamalli upptöku, ræða Hefnendurnir okkar um hva þessi vírus er sooo not all that. Svo tala þeir líka um hvað þeir hlakka til júróvision og hvað Outbreak er ómerkileg mynd. It was a different time.
Feigðin hangir yfir Bíó Paradís og hræfuglar eru byrjaðir að hringsóla í kringum það eins og einhvers konar leigusalar. Hulkleikur og Ævorman taka svona fréttum ekki þegjandi, enda velunnarar og klappstýrur menningarjötunnar sem Bíó Paradís er. Nema Ævorman hljómar töluvert verr en Hulkleikur, vegna þess að hann er veikur og svo var einhver gaur að bora í næstu íbúð og allskonar.
Ævorman langaði eiginlega bara að gera eitt í Berlín. Hann án djóks talaði eiginlega ekki um annað; Fara í bíó með Hulkleiki til að horfa á Cats. Og síðan að tala um það. Tala rosalega mikið um það vegna þess að það er furðulega mikið til að tala um. Þessi mynd? Þessi mynd!
Skywalker sagan skráði sinn hinsta kafla samkvæmt Disney um jólin og Hefnendurnir okkar kíktu í bíó eins og öllum sönnum lærisveinum máttarins er ljúft og skylt. En hvað þýða ljúfsár endalokin um framhaldið? The force is dead and no one cares. If there is a mustafar I’ll see you there.
Hulli flutti til Berlínar, en Ævorman er ekki af baki dottinn heldur lagði land undir fót og mætti heim til hullsubrauðsins til að gefa jarðarbúum góða byrjun fyrir Cyberpunk árið sem gengið er í garð. Afraksturinn er 3! (þrír) sjóðheitir þættir til að hámheyra, Netflix style! Hulkleikur og Ævorman eru búnir að vera seinir allt ár. Svo seinir að þeir koma með uppáhaldsmyndirnar sínar á síðasta ári tuttugu árum of seint í þessum marglofaða 1999 besta kvikmyndaár allra tíma™ þætti.
Hulkleikur og ÆvorMan eiga fund í Grímsson Tower og velta vöngum yfir ímynduðum boltaleikjum í ódæmigerðu lögregluríki, velja topp 2 kvikmyndir sem batna við mute takkann og veðja uppá flottann kall. Hefnendurnir eru í boði Nexus. Nexus. Það er svo best sko.
Hulli hinn hvíti og Ævar hinn grái hafa ekki fært á sér bossana síðan í síðasta þætti því þeir hafa bara og mikið að segja. Þar á meðal sitthvað um eigið sköpunarferli, emo ofurhetjur með daddy issues og leiðarlok Luke Perry. Við biðjumst velvirðingar á skruðningunum sem heyrast í þessari upptöku. Það er líklega bara draugur.
Eftir allt of langan dvala skríða tveir stírublindir Hefnendabangsar úr hýði sínu og ræða húmorsleysi Svía og sáðlát Aquamans og að sjálfsögðu rýna þeir eldfast í endalok mikilvægasta nördafyrirbæris síðari ára: Big Bang Theory.
Hefnendurnir fá Emil Hjörvar Petersen, veraldarsmið og örlagavefjara, í heimsókn og hefna hann spjörunum úr. Lengsti Hefnendaþáttur ever höldum við bara. Gleðilegt nýtt ár, Jarðarbúar!Hefnendurnir eru í boði Nexus. Nexus er í boði guðanna. Kjarninn í samstarfi við Storytel býður þér að hlusta frítt á þúsundir hljóðbóka í símanum þínum í 30 daga. Það eina sem þú þarft að gera er að skrá þig á www.storytel.is/kjarninn og byrja að njóta. Storytel.is, þúsund...
Hefnendurnir fara tvisvar í bíó! Fyrst á garlakallamynd og svo á hjólhúsamynd! Það var nú aldeilis gaman. Í bílferðum sínum ræða þeir meðal annars um magíska munnkossa, ferðir Ted Dansons og örvar kúbids. Hefnendurnir eru í boði Himnaríkis… ég meina Nexus. Same thing.
Hulli og Ævar minnast nýfráfallins skapara skaparanna og ná samt eitthvað að tuða um aðra hluti sem skipta minna máli. En það er náttúrulega bara eins og þeir eru.
Hulli hinn hvíti kíkir í heimsókn til Ævars hins gráa og þeir fara yfir samþykki Egils Ólafs, píslargöngu Ofurhugans og hlutlausa kjúklingavængi.Hefnendurnir eru í boði Nexus. Nexus er aðal.
Hetjurnar okkar hittast á ný í hefnendahöfuðstöðvunum eftir heljarferðalag um heimsins lendur og henda í hugleiðingar um hrekkjavöku, Hicks og Hetjur til leigu, ásamt almennu húllumhæi. Hefnendurnirnir eru í boði Nexus, auðvitað.
Hulli og Ævar eru í sitthvorri heimsálfunni og ná engu sambandi við hvorn annann. En óttist eigi, Jarðarbúar fríðir, því Hefnendurnir luma nebblilega á ýmsu óáðurbirtu góðgæti. Þar á meðal bubblandi bíóferð á "rándýr"a mynd og babbl um Boba með Andreu Björk. Hefnendurnir eru í boði Nexus. Nexus > Allt.
Hugleikur heimsækir Andreu Björk og köttinn hennar í Berlín og þau ræða Saurugan Dexter, Sprungna eiturlyfjasmokka og Búning Blökukonunnar. Hefnendurnir eru í boði Nexus og Nexus er næs to the max.
Þið eruð ennþá stödd á bar. Hulkleikurinn og Ævormanninn eru komnir í Irish Coffee og hætta ekki að láta gamminn geysa um sín hjartans mál. Og panta fleiri drykki.
Þið eruð stödd á bar. Ævar “Dean Martin” Grímsson og Hugleikur “Scorsese” Dagsson sitja í einu horninu, sötra svart öl og ræða um tilfinningagáfur í dýflissum, klámmyndagláp á stefnumótum og kosti þess að vera með framheilaskaða.
Ævorman og Hulkleikur voru með live podcast á Midgard 2018 þar sem þeir ræddu um dag leðurblökunnar, undarlegar ofurhetjur og auðvitað hvort að Súperman sé með rassgat.
Hulli og Ævar bregða sér saman í bíó til að ná Mission Impossible 6 áður en hún hættir í bíó. Á leiðinni þangað og til baka ræða þeir um tengsl Central Perk og Eterníu, skort á dúfnadauða í Woo myndum og raddmissi James Bond.
Hullinn og Ævarinn hita upp fyrir midgard með masi um fréttir frá síðasta sumri, stafrænan spædermann, burtreiðar og endalok ævintýratímans.
Hetjurnar okkar halda áfram endurkomunni með spánýjum þætti þar sem farið verður yfir allt glápið sem gerðist og það sem að gerðist en aðallega glápið sem gerðist.
Sumarfríð er búið! Hefnendur snúa aftur til jarðar! Ævar hinn myndarlegi og Hulli minnast sumarsins sem var að líða. Sem var basically bara Antman og Rigning. Við biðjumst velvirðingar á leininlegu hljóði sem er Hulla-megin þegar þeir eru að tala netleiðis við hvorn annan. Auðvitað Hulla-megin. Týpískt Hulli.