Ásthildur og Stefanía Sigurdís heitum við og erum vinkonur sem ræða bæði saman og við aðra einstaklinga sem tengjast jafnréttisbaráttunni og uppfærslu Íslands á einn eða annan hátt. Við höfum það að markmiði að fá fólk til að gagnrýna samfélagið á uppbyggilegann hátt.
Endilega fylgið okkur á instagram @vaknadu
Last refreshed: ⓘ
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more
Aktívistinn Helga Margrét Jóhannesdóttir, skipuleggjandi Black Lives Matter viðburðarins á Ráðhústorgi á Akureyri settist í sófann hjá Stefaníu og Ásthildi og ræddi málin.
Er eitthvað öðruvísi að vera pabbi eða mamma þegar barn fæðist? Við fáum að vita aðeins meira um Ísak Hilmarsson sem safnar fæðingasögum feðra ásamt konu sinni Grétu Maríu Birgisdóttur.
Í þessum þætti ræddum við við Loga Einarsson formann Samfylkingarinnar. Við fengum að vita m.a. hver munurinn sé á jafnaðarmanni og jafnréttissinnuðum manni.
Í fjórða þætti af jafnréttishlaðvarpinu Vaknaðu ræddu þær Ásthildur og Stefanía Sigurdís við Evu Harðardóttur fyrrverandi kennara þeirra beggja sem sameinaði þeirra jafnréttisbaráttu að hluta til. Eva er mikill femínisti og segir þeim m.a. Hvernig hún nær að samstilla sig sem femínista og móður eða kennara og frá reynslu sinni í Malaví!
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ræðir m.a. um afhverju hún byrjaði í stjórnmálum, hvernig hún varð dómsmálaráðherra, um hvað stjórnmál snúast og hver hún er sem einstaklingur.
Í þætti vikunnar af Vaknaðu komu Sólborg Guðbrandsdóttir og Þorsteinn V. Einarsson sem halda uppi instagram aðgöngunum Fávitar og Karlmennskan ræddu við okkur um karlmennsku, kynlíf, samþykki, jafnrétti, femínisma og fleira.