Undirmannaðar - podcast cover

Undirmannaðar

Undirmannaðarpodcasters.spotify.com
Þrjár tvíburamæður með munnræpu. Deilum reynslu okkar á tvíburum ásamt því að fá til okkar frábæra viðmælendur sem allir eiga það sameiginlegt að vera foreldrar.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

70. Undirmannaðar - Fanney Dóra

Viðmælandi vikunnar er Fanney Dóra, tveggja barna móðir, leikskólakennari, áhrifavaldur og förðunarfræðingur. Fanney og Aron eiga saman tvö börn en síðustu tvö ár hafa verið mjög krefjandi í lífi þeirra. Fanney segir okkur á einlægan hátt frá erfiðri lífsreynslu þegar dóttir þeirra greinist með heilaæxli aðeins 2 og hálfs árs gömul. Stuttu síðar komust þau að því að lítill laumufarþegi væri á leiðinni. Þessi þáttur fer í gegnum allan tilfinningaskalann og við mælum innilega með að þið hlustið! P...

Dec 05, 20242 hr 15 minSeason 1Ep. 70

69. Undirmannaðar - Eyja Eydal

Viðmælandi vikunnar er Eyja Eydal þriggja barna móðir. Eyja og Egill maðurinn hennar eignuðust börnin sín þrjú á 14. mánuðum - JÁ þið lásuð rétt, 3 börn á 14 mánuðum. Við fórum yfir barneignarferlið, fyrstu mánuðina í orlofi með tvíbura, litla laumufarþegan og fjörið sem það var að eiga þrjú ung börn í orlofi. Þátturinn er í samstarfi við: Netto.is & Änglamark Eldabuskan.is / afsláttarkóði: undirmannadar Venja.is / afsláttarkóði: undirmannadar *gildir af fyrsta pakka í áskrift Shareiceland.i...

Nov 28, 20241 hr 33 minSeason 1Ep. 69

68. Undirmannaðar - Dr. Erla Björnsdóttir

Viðmælandi vikunnar er engin önnur en Dr. Erla Björnsdóttir, 4 barna móðir, sálfræðingur og doktor í svefnrannsóknum. Hún hefur sérhæft sig í rannsóknum, greiningu og meðferð á svefni og svefnvanda og er stofnandi og framkvæmdastjóri Betri svefns. Við erum fullar af innblæstri eftir þetta spjall en hún fræddi okkur um allt sem tengist svefni, svefnvenjum, tengslum tíðahringsins við svefn og svo margt fleira. Við mælum með að rífa fram glósubókina og anda að ykkur viskunni! Fyrr á þessu ári gaf h...

Nov 21, 20241 hr 20 minSeason 1Ep. 68

67. Undirmannaðar - Maggý

Við fengum Maggý til okkar í skemmtilegt spjall um lífið og tilveruna. En hún og kærastinn hennar eiga saman þrjú börn, 4 ára stelpu og 1,5 ára tvíbura, stelpu og strák. Við fórum yfir meðgöngurnar, sjokkið við að fá fréttirnar að það væru tvíburar á leiðinni ásamt daglegu lífi hjá fjölskyldunni. Þátturinn er í samstarfi við: Netto.is & Änglamark Eldabuskan.is / afsláttarkóði: undirmannadar Venja.is / afsláttarkóði: undirmannadar *gildir af fyrsta pakka í áskrift Shareiceland.is Cosarx húðvö...

Nov 14, 20241 hr 42 minSeason 1Ep. 67

66. Undirmannaðar - Þórdís Björk

Viðmælandi vikunnar er Þórdís Björk, þriggja barna móðir, leik- og söngkona, áhrifavaldur og skemmtikraftur. Í þættinum ræddum við allt milli himins og jarðar, barneignir, sambandsslit á meðgöngu, hvernig er að vera stjúpforeldri, vinnuna, lífið og fjölskylduna. Það var heldur betur hlegið svo við mælum með að hækka vel í græjunum og njóta! Þátturinn er í samstarfi við: Netto.is & Änglamark Eldabuskan.is / afsláttarkóði: undirmannadar Venja.is / afsláttarkóði: undirmannadar *gildir af fyrsta...

Nov 07, 20241 hr 59 minSeason 1Ep. 66

65. Undirmannaðar - Sólrún Diego

Sólrún Diego mætti til okkar í spjall í vikunni. Hana þarf vart að kynna en hún er einn vinsælasti áhrifavaldur landsins. Sólrún spjallaði við okkur á persónulegu nótunum um lífið og tilveruna, barneignaferlið, móðurhlutverkið, stór verkefni sem þau fjölskyldan hafa þurft að tækla saman og hamstrahjólið sem við virðumst því miður flest lenda í. Við fengum einnig að skyggnast á bakvið tjöldin varðandi starfið á samfélagsmiðlum.

Oct 31, 20242 hr 41 minSeason 1Ep. 65

64. Undirmannaðar - Ástrós Rut

Ástrós Rut er viðmælandi vikunnar, 4 barna móðir, unnusta, píparanemi, baráttukona og svo margt fleira. Við ræddum allt milli himins og jarðar, menntaskólaárin, þegar hún kynntist æskuástinni, skyndileg veikindi Bjarka, baráttuna þeirra og fallega lífið sem þau sköpuðu sér. Við ræddum einnig hvernig er að vera aðstandandi, barneignaferlið þeirra og sorgina. Ástrós tók þá ákvörðun að leyfa sér að vera hamingjusöm, að finna ástina aftur og skapa sér framtíðina og fjölskylduna sem hún þráði. Ástin ...

Oct 24, 20242 hr 25 minSeason 1Ep. 64

63. Undirmannaðar - Aníta Rós

Viðmælandi vikunnar er Aníta Rós, móðir og þrjóskupúki. Aníta og Smári eiga saman tvær stúlkur, þær Valgerði Móu og Heiðdísi Emblu en Heiðdís Embla fæddist andvana á 35viku meðgöngu. Þá eiga þau von á þriðju stúlkunni í mars á næsta ári. Í þættinum ræðum við meðgöngur, fæðingar og þá ólýsanlegu sorg að missa Heiðdísi Emblu. Aníta segir okkur á aðdáunarverðan hátt frá öllu og við vonum innilega að einlæg frásögn hennar aðstoði aðra sem ganga eða hafa gengið í gegnum barnsmissi. Þátturinn er í sam...

Oct 18, 20242 hr 13 minSeason 1Ep. 63

62. Undirmannaðar - Tinna Jökuls

Tinna Jökuls mætti til okkar í skemmtilegt og einlægt spjall. Hún er 5 barna móðir, sjúkraþjálfari, fyrrum handboltakona og með allskonar skemmtilega bolta á lofti, bókstaflega! Tinna gaf okkur frábær heilræði, innsýn í fjölskyldulíf sjö manna fjölskyldu og svo margt fleira Þátturinn er í samstarfi við: ⁠Netto.is⁠ & Änglamark ⁠Eldabuskan.is⁠ / Afsláttarkóði: undirmannadar ⁠Venja.is⁠ / Afsláttarkóði: undirmannadar ⁠Shareiceland.is⁠ ⁠ Whitenoise.is / Afsláttarkóði: undirmannadar ⁠Hellenergy.is...

Oct 10, 20241 hr 39 minSeason 1Ep. 62

61. Undirmannaðar - Júlíana Sara

Flest ykkar ættu að þekkja viðmælanda vikunnar! Ein fyndnasta kona landsins, Júlíana Sara kom til okkar í spjall. Hún er tveggja barna móðir, unnusta, leikari, handritshöfundur og leikstjóri með meiru. Við erum fljótari að segja ykkur hvað við ræddum ekki í þættinum, en hann er stútfullur af skemmtilegu spjalli og miklum hlátri! Þátturinn er í samstarfi við: Netto.is & Änglamark Eldabuskan.is / Afsláttarkóði: undirmannadar Venja.is Shareiceland.is Whitenoise.is / Afsláttarkóði: undirmannadar...

Oct 03, 20241 hr 26 minSeason 1Ep. 61

60. Undirmannaðar - Aníta Rut

Nú þarf að rífa fram glósubókina og henda sér í djúpu laugina! Viðmælandi vikunnar er Aníta Rut, tveggja barna móðir og viðskiptastjóri. Við fórum um víðan völl og ræddum m.a. barneignir, hvernig er að tvinna saman fjölskyldu- og atvinnu, fyrstu skrefin í fjármálageiranum og ævintýrið hjá Fortuna Invest. Hún gaf okkur góð ráð og hvetur allar konur eindregið til að kynna sér fjárfestingar og byrja að fjárfesta! Þátturinn er í samstarfi við: Netto.is & Änglamark Eldabuskan.is / Afsláttarkóði: ...

Sep 26, 20241 hr 32 minSeason 1Ep. 60

59. Undirmannaðar - Íris Lilja

Viðmælandi vikunnar er Íris Lilja, þriggja barna móðir. Íris Lilja og Bjarki hafa verið saman síðan í menntaskóla og eiga saman þau Hermann Inga, sem er alveg að verða 5 ára, Emblu Rún, sem er 1,5 árs og Hólmar Orra sem er 3 mánaða. Við ræðum saman hvernig þau Bjarki kynntust, barneignir og meðgöngur barnanna og þá einkum hana Emblu Rún en það kemur í ljós við fæðingu hennar að hún er með Downs-heilkennið. Við fórum m.a. líka inná allar tilfinningarnar, Downs félagið sem hefur verið þeim mikill ...

Sep 19, 20241 hr 53 minSeason 1Ep. 59

58. Undirmannaðar - Steinunn Helga

Við héldum að við værum undrimannaðar en Steinunn Helga trompar okkur heldur betur! Hún er kröftug einstæð móðir, með fimm börn á aldrinum eins árs til átta ára. Yngstu eru tvíbura stelpur sem komu í heiminn á 27 viku. * TW vegna umræðu um fósturmissi og vökudeild* Steinunn fór m.a. með okkur í gegnum meðgönguna með tvíburana, tímann á vökudeild og baráttu hennar með SAMLEIK. Btw við drógum úr gjafaleiknum <3 Þátturinn er í samstarfi við: Netto.is & Änglamark Eldabuskan.is / Afsláttarkóði...

Sep 12, 20241 hr 55 minSeason 1Ep. 58

57. Undirmannaðar - Andri Steinn

Viðmælandi vikunnar er Andri Steinn, tveggja barna faðir. Andri er uppalinn í Kópavogi og býr þar ásamt eiginkonu sinni, Sonju og dætrum þeirra. Andri starfar sem bæjarfulltrúi í Bæjarstjórn Kópavogs og tók m.a. þátt í að móta Kópavogsmódelið í leikskólamálum bæjarins. Við ræddum m.a. leikskólamálin, fæðingarorlofið og ýmis hita mál, ásamt því að svipast inn í fjölskyldulíf þeirra. Minnum á gjafaleikinn á instagram, drögum í næstu viku <3 Þátturinn er í samstarfi við: Netto.is & Änglamark...

Sep 05, 20241 hr 31 minSeason 1Ep. 57

56. Undirmannaðar - Alexandra Ósk

Viðmælandi vikunnar er Alexandra Ósk, tveggja barna móðir og kírópraktor. Alexandra og maðurinn hennar, Kristófer, fluttu til Englands með stelpurnar sínar árið 2016 þegar Alexandra hóf nám í Kírópraktík. Hún segir okkur frá barneignaferlinu, hvernig var að flytja erlendis og vera með lítil börn í námi ásamt því að ræða lífið í dag. Minnum á gjafaleikinn á instagram <3 Þátturinn er í samstarfi við: Netto.is & Änglamark Eldabuskan.is Venja.is Wnoise.is / Afsláttarkóði: undirmannadar Sharei...

Aug 29, 20241 hr 47 minSeason 1Ep. 56

55. Undirmannaðar EINS ÁRS

EINS ÁRS! Takk fyrir samfylgdina og sturlaðar móttökur! Það leynist glaðningur í þættinum & er þátturinn stútfullur af glensi og gaman <3 LETSGOO Þátturinn er í samstarfi við: Netto.is & Änglamark Eldabuskan.is Venja.is Wnoise.is / Afsláttarkóði: undirmannadar Shareiceland.is / Afsláttarkóði: undirmannadar Hellenergy.is / Afsláttarkóði: undirmannadar

Aug 23, 20241 hr 15 minSeason 1Ep. 55

54. Undirmannaðar - Thelma Guðmundsen

Thelma Guðmundsen er viðmælandi vikunnar. Thelma og maðurinn hennar Logi eiga saman tvo drengi, Jökul og Tind. Hún ræðir við okkur um fæðingar strákanna, lífið með strákunum sínum þremur, erfiða æsku og hvernig æskan hennar hefur mótað bæði hana og viðhorf hennar gagnvart uppeldi strákanna sinna en það er aðdáunarvert að hlusta á hana og hennar viðhorf. Þátturinn er í samstarfi við: Netto.is & Änglamark Eldabuskan.is Venja.is Wnoise.is / Afsláttarkóði: undirmannadar Shareiceland.is / Afslátt...

Aug 15, 20242 hr 17 minSeason 1Ep. 54

53. Undirmannaðar - Lovísa Fals

Undirmönnuð móðir búsett í New York er viðmælandi vikunnar. Lovísa og Gunnar maðurinn hennar fluttu á vit ævintýranna til Bandaríkjanna árið 2021. Þau eiga þrjú börn undir 5 ára og segir Lovísa okkur frá skrautlegum flutningum, lífinu erlendis með þrjú lítil börn, ásamt mjög krefjandi og ólíkum fæðingum, en yngsta dóttir þeirra fæddist í Bandaríkjunum. Þátturinn er í samstarfi við: Netto.is & Änglamark Venja.is Wnoise.is / Afsláttarkóði: undirmannadar Shareiceland.is / Afsláttarkóði: undirma...

Aug 08, 20242 hr 14 minSeason 1Ep. 53

52. Undirmannaðar - Alexsandra Bernharð

Við fengum til okkar Alexsöndru Bernharð, tveggja barna móður. Við fórum yfir víðan völl og ræddum við meðal annars barneignir, erfið vinaslit og sjálfsvinnuna í kjölfarið. Alexsandra er einstaklega einlæg og hlý, og aðdáunavert heyra söguna hennar og fjölskyldunnar. Þátturinn er í samstarfi við: Netto.is & Änglamark Venja.is Wnoise.is / Afsláttarkóði: undirmannadar Shareiceland.is

Jul 25, 20242 hr 18 minSeason 1Ep. 52

51. Undirmannaðar - Andrea Röfn

Andrea Röfn kom til okkar í spjall um lífið og tilveruna hjá sér og fjölskyldunni, en þau búa erlendis þar sem að Arnór maðurinn hennar er atvinnumaður í fótbolta. Þau eiga saman tvö börn og hafa þau flakkað saman a milli landa eltandi bolta. Andrea er með einstaklega jákvætt og fallegt hugarfar og gaman að heyra frá þeirra ævintýrum. Þátturinn er í samstarfi við: Netto.is & Änglamark Venja.is Wnoise.is / Afsláttarkóði: undirmannadar Shareiceland.is...

Jul 18, 20241 hr 24 minSeason 1Ep. 52

50. Undirmannaðar - Bryndís Ottesen

Þáttur vikunnar er með Bryndísi Ottesen, tvíburamömmu og hlaðvarpsstjórnanda með meiru! Bryndís eignaðist tvíbura árið 2017 sem hrundi því af stað að hún fór í ADHD greiningu þrítug. Virkilega skemmtilegt spjall um tvíburalífið, móðurhlutverkið með ADHD o.fl. Mælum með hlaðvarpinu hennar, Brestur sem fjallar um konur og ADHD. Þátturinn er í samstarfi við: Netto.is & Änglamark Venja.is Wnoise.is / Afsláttarkóði: undirmannadar Shareiceland.is...

Jul 11, 20241 hr 37 minSeason 1Ep. 50

49. Undirmannaðar - Sylvía Briem & Hanna Björk

Fæðingarorlof á Íslandi er stærðfræðidæmi sem virðist alls ekki ganga upp! Við fengum til okkar þær Sylviu Briem og Hönnu Björk til að ræða fæðingarorlof á Íslandi, stöðu foreldra og réttindi barna. Ásamt því að ranta um stöðu fjölburadoreldra í fæðingarorlofi, en því orlofi hefur ekki verið breytt síðan 2003. Þátturinn er í samstarfi við: Netto.is & Änglamark Venja.is Wnoise.is / Afsláttarkóði: undirmannadar Hellenergy.is / Afsláttarkóði: undirmannadar Shareiceland.is...

Jul 04, 20242 hr 4 minSeason 1Ep. 49

48. Undirmannaðar - Guðrún Eik

Þáttur vikunnar er með Guðrúnu Eik, þriggja barna móður og fyrrum bónda! Við fórum í gegnum allan tilfinningaskalann og ræddum m.a. sveitalífið, tvíburalífið, fósturmissi og kulnun maka. Þátturinn er í samstarfi við: Netto.is & Änglamark Maikai.is Mfitness.is Venja.is Wnoise.is / Afsláttarkóði: undirmannadar Hellenergy.is / Afsláttarkóði: undirmannadar Shareiceland.is

Jun 27, 20241 hr 33 minSeason 1Ep. 48

47. Undirmannaðar - Steiney Snorrad.

Þáttur vikunnar er með magnaðri tvíburamömmu, Steineyju Snorradóttur! Sem er tvíburi og á pabba sem er tvíburi. Hvað eru margir tvíburar í því? Steiney sagði okkur frá krefjandi meðgöngu og fæðingu en tvíburi B fæddist með samvaxin höfuðbein og þurfti að gangast undir stóra aðgerð aðeins 3ja mánaða. Magnað að heyra frásögn hennar þar sem hún og maðurinn hennar hafa farið í gegnum allt með jákvæðum hug og seiglu. Þátturinn er í samstarfi við: Netto.is & Änglamark Maikai.is Mfitness.is Venja.i...

Jun 20, 20241 hr 39 minSeason 1Ep. 47

46. Undirmannaðar - Aldís Arnard.

Aldís Arnardóttir kom til okkar í spjall um lífið með 4 gaura undir 6 ára. Aldís er einstaklega jákvæð og hefur tileinkað sér aðdáunarvert hugarfar í gegnum lífið og barneignarferlið. Þátturinn er í samstarfi við: Netto.is & Änglamark Maikai.is Venja.is Wnoise.is / Afsláttarkóði: undirmannadar Hellenergy.is / Afsláttarkóði: undirmannadar Shareiceland.is

Jun 13, 20241 hr 42 minSeason 1Ep. 46

45. Undirmannaðar - Sandra Dís

Sandra Dís er tvíburamamma með stóra sögu. Sandra og Eyþór eiga saman 4 ára tvíburana Elektru og Eyþór en þau komu í heiminn á 29. viku. Magnað að hlusta á frásögn Söndru á einlægan og tilfinningamikinn hátt, þau gengu í gegnum ýmis áföll ásamt því að vera að fóta sig í foreldrahlutverkinu. Við viljum benda á að í þættinum er farið yfir mjög erfið veikindi barns og því TW sett hér. Þátturinn er í samstarfi við: Netto.is & Änglamark Maikai.is Venja.is Mfitness.is / Afsláttarkóði: undirmannada...

Jun 06, 20242 hrSeason 1Ep. 45

44. Undirmannaðar - Þórunn Eva

Þórunn Eva er mögnuð kona sem hefur þurft að ryðja veginn fyrir langveika syni sína og ræðir við okkur þær krefjandi áskoranir sem foreldrar langveikra barna standa frammi fyrir. Þórunn er stofnandi Mia Magic og einnig eineggja tvíburi og ræðum við skemmtileg ráð og pælingar varðandi það að vera tvíburi. Þátturinn er í samstarfi við: Netto.is & Änglamark Maikai.is Mfitness.is / Afsláttarkóði: undirmannadar Wnoise.is / Afsláttarkóði: undirmannadar Hellenergy.is / Afsláttarkóði: undirmannadar...

May 30, 20241 hr 49 minSeason 1Ep. 44

43. Undirmannaðar - Maríanna Eva

Þáttur vikunnar er með Maríönnu Evu, tveggja barna móður, jógakennara & iðjuþjálfanemi. Maríanna eignaðist tvö börn á 15 mánuðum & ræðir á einlægan hátt um fæðingarþunglyndi, hugarfarið við líkamlegar breytingar & daglegt líf með 2 börn undir 2. ára! Þátturinn er í samstarfi við: Netto.is & Änglamark Maikai.is Mfitness.is Wnoise.is / Afsláttarkóði: undirmannadar Hellenergy.is / Afsláttarkóði: undirmannadar

May 24, 20241 hr 19 minSeason 1Ep. 43

42. Undirmannaðar - Arnar Long

Eftir langa bið er komið aftur að pabba í spjall! Arnar Long fimm barna faðir og maður Hönnu Bjarkar kom til okkar í einlægt og skemmtilegt spjall. Arnar ræddi við okkur um krefjandi æsku, foreldrahlutverkið og daglegt líf með 5 börn undir 4. ára! Þátturinn er í samstarfi við: Netto.is & Änglamark Maikai.is Mfitness.is Wnoise.is / Afsláttarkóði: undirmannadar Hellenergy.is / Afsláttarkóði: undirmannadar

May 16, 20241 hr 21 minSeason 1Ep. 42

41. Undirmannaðar - Ragga Gunn

Þáttur vikunnar með einni “miðaldra” þriggja barna móður úr Hlíðunum eins og Ragga grínast sjálf með. Ragga er með PCOS og fræðir okkur um það ásamt því að fara yfir sögu sína og barneignarferlið en hún á þrjú börn undir þriggja ára. Ragga er lífsglöð og hæfileikarrík en hún hefur meðal annars túrað sem trompetleikari með Of Monsters and Men. Þátturinn er í samstarfið við: Netto.is & Änglamark Maikai.is Wnoise.is / Afsláttarkóði: undirmannadar Hellenergy.is / Afsláttarkóði: undirmannadar...

May 09, 20242 hr 3 minSeason 1Ep. 41
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android